Morgunblaðið - 23.01.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988
51
Isafjörður:
Sjómannastarfið á vegum Salem
Til Velvakandá.
„Nú árið er liðið í aldanna skaut,
og aldrei það kemur til baka.“
Þannig kvað sr. Valdimar Briem,
og þetta erum við minnt á við hvert
áramót. En, „hvers er að minnast,
og hvað er það þá, sem helst skal
í minningu geyma“? Mér verður
efst í huga að taka undir með Davíð
hjarðsveini er síðar varð konungur
í ísrael. „Lofa þú Drottin, sála mín,
og allt, sem í mér er, hans heilaga
nafn, lofa þú Drottin, sála mín, og
gleym eigi neinum velgjörðum
hans.“ Sálm 103: 1—2. Megum við
íslendingar ekki í sannleika lofa
Drottin fyrir gæsku hans og náð?
Hagsæld til lands og sjávar, svo
það má segja að „landið fljóti í
mjólk og hunangi" þó menn kunni
ekki með það að fara og mesta
vandamálið virðist vera hvemig
takmarka megi alla matvælafram-
leiðslu meðan svo fólk í öðrum
heimshlutum ferst úr hungri. Hér
er illa farið með þau auðæfi sem
Guð gefur, og honum er sjaldnast
þakkað, og undantekning er það
ef maður heyrir það frá ráðamönn-
um þjóðarinnar, sem um þessi mál
fjalla. Til þeirra vil ég beina þessum
orðum Jesú: „En leitið fyrst ríkis
hans og réttlætis og þá mun allt
þetta veitast yður að auki.“ Matt.
6:33. Þið teljið ykkur vera kristna.
Ég minni aftur á orð Frelsarans:
„Þetta er mitt boðorð, að þér elskið
hvem annan, eins og ég hefi elskað
yður ... Þér emð vinir mínir, ef
þér gjörið það sem ég býð yður.“
Jóh. 15:12—13. „Ef þér elskið mig,
munuð þér halda boðorð mín.“ Jóh.
14:14. „Sæl er sú þjóð, sem á Drott-
in og Guð.“ Sálm 33:12. „Ó, land,
land, land, heyr orð Drottins." Jer.
22:30. „Svo mælti Drottinn: Nemið
staðar við veginn og litist um og
spyijið um gömlu götumar, hver
sé hamingjuleiðin og farið hana svo
að þér finnið sálum yðar hvíld."
Jer. 6:16. Jesús sagði: „Éger vegur-
inn og sannleikurinn og lífíð.“ Jóh.
14:6. „Komið til mín, allir þér sem
erfiðið og þunga emð hlaðnir og
ég mun veita yður hvfld.“ Matt.
11:28.
Salem sjómannastarfíð á ísafírði
á margar góðar minningar frá liðnu
ári. Ég vil þakka Guði fyrir gæsku
hans og náð mér til handa, hversu
hann hefir leitt mig og styrkt í
þessari þjónustu. í bók Predikarans
standa þessi orð: „Varpa þú brauði
þínu út á vatnið, því þegar margir
dagar em um liðnir munt þú finna
það aftur." 11:1. Jesús er brauð
lífsins, og þann mun ekki hungra,
sem til hans kemur." Jóh. 6:35.
Þessu brauði, orði Guðs og vitnis-
burðinum um Jesúm hefir verið
varpað út á vatnið í bókstaflegri
merkingu í 42 ár gegnum þetta
starf og margar sannanir em fyrir
því að menn hafí mettað sína hungr-
uðu sál þar af. „Þitt heilagt orðið
heims í nauð, sé, herra kær, vort
daglegt brauð. Oss leiðsögn holl um
harmadal, og himins inn í gleðisal."
(H.H.)
Orðinu var sáð. Farið var um
borð í um 400 skip og báta íslensk
og 110 erlend. Gefnar vom 10 Biblí-
ur, 45 Nýja testamenti, 15 Passíu-
sálmar og mikið af smærri
Biblíuhlutum, kristilegum blöðum
og ritum á 35 tungumálum. Um
300 jólapakkar og kveðjur til sjó-
manna, sem fjarri vom heimilum
sínum um hátíðina, þar af var um
helmingur erlendir sjómenn. Þetta
er ákaflega vel þegið og hefir bless-
un í för með sér og ávallt berast
margar kveðjur frá skipshöfnum á
hafi úti. Það er mér mikil gleði og
uppörvun, að halda þessari þjónustu
áfram meðan Guð gefur mér heilsu
og krafta til þess. Hann sér um
ávöxtinn. Honum ber því heiðurinn
og dýrðin. Ég bið Guð að blessa
sjómennina og aðstandendur þeirra.
Eg bið Guð að blessa og leiða for-
seta vom og ríkisstjóm. Vemm öll
samhuga í bæninni að hér megi
verða „gróandi þjóðlíf með þverr-
andi tár, sem þroskast á Guðsríkis-
braut“. (M.J.)
Ég vil þakka öllum, sem á einn
eða annan hátt hafa stutt þetta
starf, og bið Guð að launa þeim
ríkulega, þó ég viti raunar að þeir
vænta ekki endurgjalds, en Biblían
segir þó að „Guð elskar glaðan gjaf-
ara.“ 2. Kor. 9:7.
Ég vil einnig í leiðinni þakka
þeim mörgu sem í verki hafa sýnt
áhuga og fómfysi fyrir kirkjubygg-
ingu Salem-safnaðarins. Þar hefír
verið unnið stórvirki fyrir hjálp
Guðs og margra góðra vina. Því
verki verður haldið áfram. Þama
mun rísa veglegt guðshús, honum
til dýrðar og mörgum til blessunar.
Höfum það í huga. „Guði séu þakk-
ir, sem gefur oss sigurinn, fyrir
Drottin vom Jesúm Krist.“ 1. Kor.
15:57.
í Guðs friði.
Sigfús B. Valdimarsson
segja frá því?
Waldheim og vondu mennimir
Ágœti Velvakandi.
Skúli Helgason, prentari, ritar
r heldur óhugnanlega grein
nmtudaginn 14. janúar sl. sem
nn kallar. „ódseðisverk ísraels-
anna“. Greinin er svo full af
itri, fordómum og viðbjóði að
ngt er síðan önnur eins ritsmíð
.fur sést f fslensku blaði.
Greinin er öll svo ofstœkisfull og
merkileg að mér dettur ekki í hug
ð eltast við einstaka liði hennar.
att að segja átti ég erfitt með að
tta mig á hvað getur valdið svona
lUgarfari, þangað U1 ég kom að
íðustu setningunni sem er svona.
Væri ckki tilvaliö fynr alhem.8-
áð gyðinga að snúa sér af fullu
afli að þvf að upplýsa heimsbvggð-
ina um fortið ráðamanna í lsrael,
í stað þeas að rembast eins og rjúp-
an við 8taurinn við að að leita að
einhverjum skít til að kasta í Kurt
Waldheim.“
Þarna liggur hundurinn grafinn.
Eins og kunnugt er hefur Waldheim
legið undir miklu ámœli fyrir aðild
sfna að striðsmaskínu nasista. Hann
hefur oftar en einu sinni verið stað-
inn að því að segja ósati um fortið
sfna. Ekki er ég þess umkominn
cð dæma um hvort hann hefur
framið einhver sérstök ódeeðisverk
umfram þau sem þýski herinn vann
almennt í styrjöldinni. En hann q-
„persona non grata“ í Bandaríkjun-
um og ekki beinlínis hægt að segja
að rigni yfir hann heimboðum ann-
ars staðar frá. Gyðingum er, að
Vonum, Iftt um manninn gefíð.
Þarna er að leita aðalorsakanna
fyrir brœði Skúla Helgasonar. Hann
sækir greinilega hugmyndir sínar
og siðfræði til vinnuveitenda Wald-
heims á áninum 1939—1945. f því
ljósi skulu skrif hans skoðuð.
Óli Tynes, blaðamaður
Má ekki
- svarvið til-
skrifi Óla Tynes
Ágæti Velvakandi.
Ég þakka Óla Tynes fyrir tilskrif-
ið, þótt mér, að óreyndu, hefði
aldrei dottið það í hug, að reyndur
blaðamaður kalli skrif um stað-
reyndir ofstæki. Illa held ég að
komið væri fyrir blaðamönnum ef
þeir mættu ekki skýra frá stað-
reyndum, aðeins lýsa grunsemdum.
Hvers konar blaðamennska yrði
það?
Það er ofstæki að halda eigin
skoðanir þær einu réttu, en hafna
umsvifalaust skoðunum annarra.
Gyðingar, eins og ýmsir aðrir sér-
trúarhópar, telja sig þá einu
guðsútvöldu og haga sér í samræmi
við það. Allir aðrir hljóta að fara
til helvítis.
Finnst Óla Tynes svona mikið til
um menn eins og Begin og Shamir?
Óneitanlega minna þeir mig illilega
á forfeður sína, þá Herodes og
Kaifas. Allir álíka geðugir, en
hvergi minnist ég þess, að sagt sé
frá því í sögunni, að þeir síðar-
nefndu hafí verið sannir að aftökum
með eigin hendi. Þetta er þó stað-
reynd um þá fyrmefndu. Má ekki
segja frá því?
Það að reyna að réttlæta gerðir
gyðinga í ísrael núna finnst mér
svipað og bætast í þann kór, sem
forðum var boðið að velja og æpti
þá af öllum kröftum: „Barrabas,
Barrabas!" Fyndist einhveijum það
eftirsóknarvert?
Skúli Helgason, prentari
FÉLAG JÁRNIÐNADARMANNA
AllsherjaratkvæðagreiðsSa
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-.
atkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og
trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðar-
manna fyrir næsta starfsár.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðar-.
mannaráðs félagsins skal skila til kjör-
stjórnar félagsins á skrifstofu þess á
Suðurlandsbraut 30, 4. hæð, ásamt með-
mælum a.m.k. 82 fullgildra félagsmanna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn
félagsins og auk þess um 14 menn til
viðbótar í trúnaðarmannaráð og 7 vara-
menn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan
stjórnar og trúnaðarmannaráðs rennur
út kl. 18.00 þriðjudaginn 2. febrúar nk.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Við byrjum hvern dag
í „ heilsumánuöinum "
með laufléttum morg-
unteygjum iKringlunni
kl. 9.30 undir stjórn
Janusar Guðlaugsson-
ariþróttakennara. Þú '
getur gert þessar æf-
ingar hér í Kringlunni
með okkur eða hvar
sem er. Þæreru sér-
staklega œtlaðar
vinnandi fólki: ibúð-
inni, fn/stihúsinu, i
eldhúsinu, við tölvuna,
ritvélina eöa núna
meðan þú lest Mogg-
ann. Munið aó gera
þessar æfingar rólega
og anda eðlilega á
meöan.
Dagskráin á „heilsíutorgum“
Kringlunnar f dag,.
( /öv S ^ tu ifl!
í s
Þúlyftirolnbogunumró- lega upp og færir hend- urnaruppogaftur. Siðan sveiflar þú höndun- um rólega fyrst til vinstri ogsíðantil hægri.
pN *• n
í í
Þá spennir þú greipar ? hnakkaogfærirhökuna rólega að brjósti. .oks stigur þú öðrum f ær Iram, kreppirökklannog rallar boinum rólega yfir fótinn.
/
laugardag 23. janúar, erþannig að öðru leyti og munu þá eftirtald-
iraðilarkynna starfsemi sina:
Kl. 13-16: Hjúkrunarfræöingar
Kl. 14-18: Körfuknattteikssamband Islands
Kl. 14-15: Dansstúdíó Sóleyjar
Kl. 14-15: Fimlelkadeild Gerplu
Kl. 11-16: Áfengisvarnaráó
Kl. 13-14: Trlmmnefnd ÍSI
Kl. 10-16: Landlæknlsembættið
Kl. 10-16: Vinnueftiríit ríkisins
Kl. 10-16: Heilbrlgðlseftlrlit Reykja víkur og Hollustuvernd
Komdu i’iA oy fúöu ráð og upplvsingar hjá sérfnefiingum um
„fíETRI HEILSUÁ NÝJUARI" á Jmfsuto'rgum" Kringlunnar.
Starfsfólk Kringlunnar