Morgunblaðið - 02.02.1988, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Paraguay:
Þrátt fyrir væntanlegan
öruggan sigur gæti farið
að hitna undir Stroessner
NÚ þegar forsetakosningar eru í nánd í Paraguay og sigur núver-
andi forseta, Alfredo Stroessner, nánast bókaður, hafa stjómmála-
fréttaritarar á ný beint athygli sinni að ástandinu í þessu landi.
Suður-Ameríkuríki eru þekkt fyrir annað en hafa lengi sama hæstráð-
anda við völd; byltingar og valdarán eru kannski ekki daglegt brauð
en tíðir atburðir. Einræðisherrar og harðstjórar koma og fara, en
í Paraguay hefur þó forsetinn verið lengur við stjóravölinn en víðast
hvar. Alfredo Stroessner, hershöfðingi, hefur verið forseti í 34 ár.
í kosningum f febrúar dettur engum annað f hug en hann fái „yfir-
gnœfandi" meirihluta atkvæða. Það er f áttunda sinn sem hann býður
sig fram.
En ýmsir stjómmálafréttaritar-
ar segja, að erfiðleikar séu að
koma í ljós sem geti vafizt fyrir
forsetanum og að hann muni þurfa
að beita mikilli kænsku til að landar
hans sætti sig áfram við hina stro-
essnisku braut. Þá er minnt á að
forsetinn sé hálfáttræður og heilsa
banabiti Stroessners. Athygli hefur
vakið allra síðustu vikur, að meðal
kaupsýslumanna, sem hafa þó
hagnazt á lágri skattlagningu heyr-
ast óánægjuraddir með yfirgengi-
lega rfkisforsjá á öllum sviðum, og
gagnrýni á spillingu sem viðgangist
í æðstu stöðum og hafi kostað þjóð-
gjaldmiðlinum, en ekki Bandaríkja-
dollar.
Fjórir stjómarandstöðuflokkar
innan Þjóðarsáttafylkingarinnar
hafa ekki nægilegan styrk til að
veita aðhald. Samstaða hefur þó
aukizt innan ÞF, en þeir hafa svo
lengi sætt sig við kúgunarstefnu
Stroessners að það er engu líkara
en úr þeim sé allur vindur. Leið-
togar ÞF hafa verið handteknir og
þeir pyndaðir ef þeir hafa efnt til
andófs og það virðist sem þeif
treysti sér ekki I meira af svo góðu.
Hins vegar ætlar ÞF að hundsa for-
setakosningamar í febrúar. En tveir
smáflokkar Fijálslyndir og Frjáls-
lyndir róttæklingar hafa dregið úr
áhrifamætti hugsanlegrar stjómar-
hans tekin að bila.
Stjóm hans á Paraguay hefur
einkennzt af ófyrirleitinni kúgun.
Skýringin á þvi, hversu lengi hann
hefur setið við völd er meðal annars
að hann hefur alger tök á her lands-
ins og þar til sl. haust gat hann
reitt sig á óskoraðan stuðning Col-
orado-flokksins. Sá flokkur fylgir
stefnu ný-fasisma. Hann hefur ítök
út um allt og Stroessner lætur
„augu og eyru“ gefa sér skýrslu
eins oft og verða má. Maður sem
lét ekki nafns getið sagði við frétta-
mann South, að flokkurinn hríslað-
ist eins og æðakerfi um paragyist
samfélag, enginn gæti verið fiill-
komlega ömggur fyrir útsendurum
hans.
En svo varð flokkurinn fyrir
hnekki í fyrra og þær hafa magnazt
siðan. Þetta gæti dregið dilk á eftir
sér. Deilúr urðu á flokksþingi hans
í ágúst þegar svokallaðir fastheldn-
issinnar ákváðu að hætta samvinnu
við herskárri fylkingu í flokknum,
sem hefur á stefnunni að bijóta á
bak aftur kommúnisk áhrif með
valdbeitingu.
Fastheldnissinnamir lúta forystu
rejmdra stjómmálamanna, en hinir
koma aðallega úr röðum nýríkrá.
Þeir hafa eflzt á stjómarárum Stro-
essners og vilja fylgja óbreyttri
ný-fasískri stefnu, þegar hershöfð-
inginn hættir. Þessi armur er undir
stjóm innanríkisráðherrans Sabino
Montanaro. Þeir báru sigurorð af
fastheldnissinnum á flokksþinginu
og hinum síðamefndu var einfald-
lega bannað að taka þátt í atkvæða-
greiðslum. Þegar það dugði ekki
til, var sá úrskurður felldur, að at-
kvæði þeirra yrðu ekki tekin gild.
Og við það sat. Montanaro og tveir
aðrir úr „herskáu" fylkingunni hafa
hvatt flokksmenn til að hleypa upp
samkomum stjómarandstöðunnar
og hika ekki við að beita vopnum.
í höfuðborginni, Asuncion er haft
fyrir satt að flestir hæstsettu menn-
imir í hemum styðji áfram forset-
ann. En samt er farið að örla á
efasemdum. Og meðal annars er
spurt, hvort Stroessner takist að
koma efnahag landsins á réttan kjöl
eftir fimm niðursveifluár. Á árunum
upp úr 1970 jókst hagvöxtur i
Paraguay stórum, vegna mikilla
Qárfestinga og vinnu við stærstu
vatnsaflsstöð í heimi, sem var r§ist
við Itaipu, ekki ýkja langt frá landa-
mærunum við Brasilíu. En síðan
byggingu versins lauk 1982, hefur
efiiahagurinn orðið fyrir hveiju
áfallinu af öðru, og hagvöxtur jókst
til dæmis aðeins um tvö prósent á
síðasta ári. Viðskiptahalli og erlend-
ar skuldir hafa farið úr böndunum
og sérfræðingar segja, að efnahags-
málin og óreiða þeirra gæti orðið
Kirkjunnar menn hafa reynt að mótmæla einræðisstjóminni.
Alfredo Stroessner
ina milljarða. Þar er meðal annars
átt við smygl, sem er arðbær iðja
margra stuðningshópa forsetans.
Stroessner hefur varið smygl, það
skapi atvinnu!
Bandaríkjastjóm hefur stutt
Stroessner í áratug. Nú virðist sem
menn séu að endurskoða það og ljós
sé að renna upp fyrir mörgum, að
varla er réttlætanlegt að lýðræð-
isríki eins og Bandaríkin standi með
landi, þar sem ný-fasismi er opinber
stjómarstefna. Sendiherra Banda-
ríkjanna Clyde Taylor hefur látið í
sér heyra upp á síðkastið og gagn-
rýnt kúgun og spillingu sem við-
gangist. Hann hefur átt marga
fundi með stjómarandstöðumönnum
og fengið orð í eyra fyrir það frá
Coloradomönnum. Stroessner hefur
gramizt hreinskiini Taylore, en hann
hefur séð sig tilneyddan að gera
ýmsar smábreytingar, sem hníga í
lýðræðisátt. Bandaríkin hafa ekki
jafnsterk tök í efnahagsmálum
Paraguay vegna þess að gjaldmiðill
þeirra, guarani er bundinn brasilíska
andstöðu. í rösk tuttugu ár hafa
þessir tveir smáflokkar verið í ein-
hveiju sem kalla má löglega stjóm-
arandstöðu og það hefur komið
Stroessner einkar vel. Með því hefur
hann haldið lýðræðishugmyndum
vakandi og að launum fá stjómar-
andstöðuflokkamir tveir, þriðjung
þingsæta og digur launaumslög.
Gildir einu hvort fylgið er í sam-
ræmi við það.
En óánægjan er farin að gera
vart við sig. Meðal bænda — en 70
prósent þjóðarinnar búa í dreifbýli.
Hjá námsmönnum og iðnverkafólki.
Þessir hópar reyna að láta að sér
kveða og viðbrögð Stroessner virð-
ast gefa til kynna, að honum sé
ekki stætt á öðru en lina aðeins
taumhald hörku og harðýðgi. En
því er ekki að neita að menn sem
andmæla Stroessner og vilja að
hann víki eiga ekki hægt um vik.
Hann hefur ríkt í 33 ár og 75 pró-
sent þjóðarinnar þekkir ekki annan
forseta. Allt er í bullandi spillingu
og allir sem lífsins lifandi geta
svindla og braska, bjóða mútur eða
þiggja. Þetta er opinbert leyndarmál
og stjómin hefst ekki að. Á meðan
telur Stroessner að honum sé ekki
ógnað og jaftiskjótt og merki sjást
um það eru menn handteknir og
beittir pyndingum, en að visu er
stundum bjnjað á að bjóða þeim fé.
Spilling hugarfareins er allsráðandi
og ærlegir menn sem vilja breytingu
I jákvæðari áttir eru hafðir að háði
og spotti. En einnig að þessu hafa
augun beinzt æ meira. Paraguay
þolir ekki alþjóðlega gagnrýni enda-
laust, allra sízt með efnahagslifið í
molum. Þess vegna segja fréttarit-
arar að það gæti farið að rofa til,
séretaklega ef Bandaríkjamenn
draga að sér höndina. En spilling
hugarfareins verður ekki upprætt í
einu vetfangi. Þar stendur hnífurinn
í kúnni.
(heimild South 2.tbl 1988.)
Vatner
verðmæti
eftirÁstu
Þorleifsdóttur
Það er sjálfsagt fátt sjálfsagð-
ara en að skrúfa frá eldhúskran-
anum og að út úr honum renni
blátært, bragðgott íslenskt vatn
beint í glas, tilbúið tíl drykkjar.
Þeir eru ekki margir sem gera sér
grein fyrir því hve heppnir við
Islendingar erum að eiga enn slíka
auðlind sem hreint og ómengað
vatn. Á þessum auði byggir ýmis-
legt: Verðmæti íslensks físks til
útflutnings er háð því að vatnið
sem notað er við vinnsluna og í
ísun sé ferskt og ómengað. Mjólk-
in, kjötið og íslensku tómatamir
eru bragðgóð án aukaefna, því
vatnið sem notað er til framleiðsl-
unnar er gott. Og íslendingar eru
allra þjóða langlífastir og hraust-
astir meðal annars af því að
vatnsborunarsýkingar eru nær
óþekktar og efnasamsetning
vatnsins enn á þann hátt að betra
verður vart á kosið. Fæstar þjóðir
eru svo auðugar að geta enn boð-
ið þegnum síriúm að drekka
heilnæmt náttúrlegt vatn, óbland-
að bakteríudrepandi klórsam-
böndum, flúor eða öðrum
aukaefnum til vemdar heilsu
þeirra.
En hvað er vatn? Vatn er eitt
einfaldasta en jafnframt fjölhæf-
asta efnasambandið í lífheiminum.
Hver sameind er sett saman úr
tveimur vetnis- og einu súrefnis-
atómi. Súrefnisatómið er miklu
stærra en vetnisatómin og þau
mynda 105° hom við súrefhið,
því hefur sameindin hleðslu, er
skautuð. Þess vegna loða vatn-
sagnir vel saman og vatn hefur
þannig hæstu yfírborðsspennu
sem þekkt er hjá nokkrum vökva
sem er þess valdandi að það mynd-
ar gjama dropa. Vatn er besti
leysir sem hugsast getur, það leys-
ir upp fleiri efni, í meira magni
en nokkur annar vökvi, sem dæmi
um þennan eiginleika er selta
hafsins sem stafar af uppleystum
efnum í vatninu. Vatn hefur mikla
varmarýmd, þ.e. það tekur lengri
tíma að hita, eða kæla vatn en
t.d. loft og þannig vinnur vatnið
gegn miklum sveiflum í hitastigi
umhverfísins. Varmarýmd vatns-
ins er einnig mikilvæg í viðhaldi
jaftis líkamshita, en um 75%
mannslíkamans er vatn og án
þess myndum við hitna og kólna
óþægilega hratt við breytt ytri
skilyrði. Ólíkt öðrum vökvum er
eðlisþyngd vatns mest við 4°C
sem er nokkru hærra en frost-
mark þess 0°C. Afleiðing þessa
eiginleika er sá að stöðuvötn á
norðurslóðum botnfijósa ekki
heldur er þungt vatnslag neðst í
þéim þar sem lífverur geta lifað
yfír vetrarmánuðina meðan vatnið
er ísilagt. Vatn hefur að auki einn
eiginleika sem vert er að geta um,
það getur klofnað niður í jónir
(atóm með rafhleðslu) og þannig
leitt straum. Þessi eiginleiki
vatnsins er ýktur við að bæta
sýru í vatnið. Á þessu byggjast
t.d. rafgeymar í bflum, flugvélum
og bátum. Þessi leiðni er þess
einnig valdandi að ýmsir málm-
hlutir, s.s. bflhræ sem liggja á
blautri jörð, tyðga. Það ætti nú
að vera hveijum manni ljóst hvert
mikilvægi vatns er í daglegu lífí
manna og annarra vera sem jörð-
ina byggja.
Það getur vart verið um heil-
næmari drykk að ræða en vatn.
Samspil vatnsins í allri líkams-
starfsemi til dæmis meltingu og
nýrum þar sem hreint vatn aðstoð-
ar við starfsemina í stað þess að
bæta á vinnuálag líffæranna. Að
drekka vatn á Islandi, beint úr
krananum, skilur ekki heldur eftir
sig neina áþreifanlega ytri meng-
un eins og dósir og flöskur í heimi
sívaxandi ruslahauga.
íslendingar eru lánsamir. Enn
sem komið er hefur hvorki loft-
mengun (útblástur bifreiða, súrt
regn, verksmiðjuryk o.s.frv.) né
vatnsmengun (fískeldisstöðvar,
skolp, ruslahaugar, olía o.fl.) náð
að spilla vatnsbólum svo nokkru
nemi á íslandi. Það er þó ekki
nein trygging fyrir því að svo
verði um ókomna framtíð. Það er
því okkar allra að stuðla að vemd-
un vatnsbóla um landið allt, að
muna að snjórinn sem þú skíðar á
í dag er verðandi drykkjarvatn
frænda -þíns á morgun, og sýna
því umhverfínu tilhlýðilega virð-
ingu hvar sem farið er. Vekjum
athygli stjómvalda á mikilvægi
hreins, ómengaðs vatns og sýnum
um leið heilsu og líkama virðingu.
Drekkum vatn!
P.S. Á meðan þú last þessar
línur létust um 500 manns um
víða veröld af völdum vatnsbor-
inna sýkinga og mengunar í vatni!
Þetta fólk hafði ekki aðgang að
ömggu vatnsbóli. Höldum
íslensku vatni hreinu, það er eitt
besta vatn sem völ er á.
Höfundur erjarðfræðingur.
(Frá heilbrigðÍBráðuneytinu og
Bandalagi fsl. skáta.)
TÖLVUPRENTARAR