Morgunblaðið - 02.02.1988, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
23
Athugasemd frá Hafrannsóknastofnun
Morgoinblaðinu hefur borist eft-
irfarandi athugasemd frá Haf-
rannsóknastofnun:
Mánudaginn 25. ianúar flutti
Grímur Jónsson frá ísafirði erindi
um daginn og veginn í Ríkisútvarp-
inu. í erindi sínu lét Grímur sér um
munn fara margskonar rangfærslur
um Hafrannsóknastofnun. Hér skulu
nokkur dæmi tekin. Grímur sagði
orðrétt: „Frumvarp Sighvats Björg-
vinssonar um rannsókn á störfum
Hafrannsóknastofnunar vakti að
vonum mikla reiði þeirra er þar ráða
ríkjum. Staðreyndin er sú að þessi
stofnun hefur á undanfomum árum
að mestu eða öllu leyti ráðið ferðinni
í fiskveiðistjóm. Niðurstöður hafa
verið byggðar á mjög umdeildum
aðferðum þar sem álit og reynsla
sjómanna hefur verið lítils sem einsk-
is metin, gagnrýni ekki talin svara-
verð og reynsla annarra þjóða ekki
talin marktæk."
Hér er ótrúlega mikilli vitleysu
safnað saman í stuttu máli. í fyrsta
lagi hefur Sighvatur Björgvinsson
ekki flutt frumvarp um rannsókn á
störfum Hafrannsóknastofnunar,
hins vegar hefur hann óskað eftir
því við formann sjávarútvegsnefndar
neðri deildar Alþingis að starfshættir
stofnunarinnar verði athugaðir. Þessi
ósk Sighvats hefur svo sannarlega
ekki vakið reiði okkar hafrannsókna-
manna. Þvert á móti viljum við minna
á að árið 1970 fékk Landssamband
íslenskra útvegsmanna einn starfs-
manna FAO, Kára Jóhannesson, til
að gera úttekt á starfsaðferðum okk-
ar við mælingar á loðnustofninum.
Þeirri úttekt fögnuðum við á sínum
tíma og á sama hátt höfum við síður
en svo á móti þvi að Alþingi fái hina
fremstu menn í hafrannsóknum til
að gera úttekt á störfum okkar. Þá
verður að telja það mjög hæpna stað-
hæfingu að Hafrarinsóknastofnun
hafi á undanfömum árum að mestu
eða öllu leyti ráðið ferðinni í fiskveiði-
stjómun. Þetta á að minnsta kosti
ekki við um nýtingu þorskstofnsins.
Hann er nýttur á allt annan hátt en
Hafrannsóknastofnun hefur lagt til
og er það ótrúlegt að þessi staðreynd
hafi farið framhjá manni sem býr á
ísafirði. Hitt er svo annað mál að
nokkrir aðrir fískstofnar hafa verið
nýttir eftir okkar tillögum og nefni
ég þar uppbyggingu og nýtingu
sfldarstofnsins síðastliðin 15 ár. Loks
verður að telja það furðulegt að
Grímur Jónsson hafí ekki orðið var
við að á undanfömum árum hefur
margt verið gert til að virkja reynslu
sjómanria á vegum Hafrannsókna-
stofnunar og má þar t.d. nefna að
ísfírskir skipstjórar hafa verið fengn-
ir um borð í rannsóknaskipið Bjama
Sæmundsson og síðastliðin þrjú ár
höfum við leigt 5 togara til fiskirann-
f©3 Persiorp
Vantar þig
tilbreytingu?
Afhverju ekki að
lífga uppá gömlu
innréttinguna?
MEÐ PERSTORP HARÐ-
PLASTI, BORÐPLÖTUM
OG GÓLFEFNI.
HF.OFNASMIflJAN
SÖLUDEILD
HÁTEIGSVEGI 7. S: 21220
sókna til að sinna verkefni sem
undirbúið var í náinni samvinnu við
skipstjómarmenn víðs vegar að af
landinu. Þá er enn fráleitara að telja
að við álítum reynslu annarra þjóða
ekki marktæka. Sannleikurinn er sá
að íslenskir hafrannsóknamenn taka
virkan þátt í störfum Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins þar sem reynsla
fiskveiðiþjóða við norðanvert Atl-
antshaf er ítarlega rædd og skipst á
skoðunum nokkmm sinnum á ári.
Fullyrðing Gríms er að þessu leyti
því hreint öfugmæli.
í erindi sínu sagði Grímur einnig:
„Mitt leikmannssjónarmið vegur ekki
mikið f þessari umræðu en þrfliðu-
dæmi Hafrannsóknastofnunar sem
hljóðar eitthvað í þá vem að svo og
svo margir fiskar í hrygningarstofni
gefi af sér svo og svo mikið af klaki
sem verði að svo og svö mörgum
tonnum af stórfiski eftir svo og svo
mörg ár er að mínu mati ekki traust-
vekjandi teoría enda í andstöðu við
álit margra annarra vísindamanna á
þessu sviði."
Þetta þrfliðudæmi er að sjálfsögðu
hugarburður Gríms Jónssonar og á
ekkert skylt við stefnu Hafrann-
sóknastofnunar um nýtingu fisk-
stofna. í fyrsta lagi höfum við aldrei
haldið því fram að beint samband
væri á milli hrygningarstofns þorsks
og afkomendaQölda. Hitt ætti þó
hveijum manni að vera ljóst að án
hrygningarstofns verða engir afkom-
endur. Þá höfum við ekki dregið dul
á það að í góðæri eins og verið hefur
á íslandsmiðum að undanfömu vex
þorskur mjög hratt og smáfiskur
getur þá orðið að stórfiski á fáum
árum.
Enn segir Grímur í þættinum um
daginn og veginn: „Fyrir rúmum
tveimur áratugum var fullyrt af
ábyrgum aðila innan stofnunarinnar
að ef upp úr ísaflarðardjúpi yrði tek-
"ið meira en 30 tonn af rækju yfir
árið yrði stofninum eytt fyrir fullt
og allt.“
Þessi fullyrðing byggist á þjóð-
sögu sem hefur gengið á ísafirði
undanfama áratugi og flarlægst
sannleikann eftir því sem árin líða.
Grími láðist hins vegar að geta þess
að úttekt starfsmanna Hafrann-
sóknastofnunar á rækjunni í Isa-
^arðardjúpi hefur tekist mjög vel
nokkur undanfarin ár enda er það
eftirtektarvert að gagnrýnin kemur
ekki frá sjómönnum að þessu sinni.
Þvert á móti hafa ýmsir þeirra látið
í ljós ánægju með störf okkar að
undanfömu.
Hér skulu ekki rakin fleiri öfug-
mæli Gríms Jónssonar um Hafrann-
sóknastofnun. Þau komu mér mjög'
á óvart enda erum við Grímur gaml-
ir skipsfélagar og af fyrri kynnum
okkar finnst mér með ólíkindum að
afstaða hans skuli vera sú sem fram
kom í þættinum um daginn og veg-
inn þar sem „öllu var snúið öfugt
þó aftur og fram í hundamó".
Jakob Jakobsson
ÁBÓTARREIKNINGUR Ábótarreikningur Útvegsbankans skilaði betri
UTVEGSBANKANS
MEÐ HÆSTU
ÁVÖXTUN ÓBUND-
INNA INNLÁNS-
REIKNINGA
Á SÍÐASTLIÐNU ÁRI!
ávöxtun á síðastliðnu ári (1987) en nokkur ann-
ar óbundinn reikningur í bankakerfinu. Ávöxt-
unin nam 28,2% sem er 4,89% umfram verð-
bólgu. Ábótarreikningurinn er því sem skapað-
ur fyrir þig og alla sem er annt um sparifé sitt.
Ábótarreikningurinn nýtur vinsælda meðal
sparifjáreigenda og það ekki af ástæðulausu.
Hann færir eigendum sparifjár fulla ávöxtun
fyrr en aðrir sérreikningar. Ábótin reiknast
strax frá þeim degi sem þú leggur inn á reikn-
inginn og vaxtaábótin er síðan færð mánaðar-
lega inn á höfuðstól reikningsins.
Við munum stefna að því að eigendur Ábótar-
reikninga njóti framvegis sem áður, hæstu
mögulegrar ávöxtunar á inneign sinni og spari-
fé, en hið nýbyrjaða ár leggst vel í okkur.
Þú getur opnað Ábótarreikning á öllum
afgreiðslustöðum Útvegsbankans um land allt -
því hann er þó að ótrúlegt sé - venjulegur spari
reikningur en með frábærum kjörum!
Do -
op Utvegsbanki Islandshf
—-!