Morgunblaðið - 02.02.1988, Síða 31
Bretland
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
31
Jafnaðarmemi sam-
þykkja sameiningii
St. Andrcws. Fri Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMÞYKKT var með yfirgnœf-
andi meirihluta atkvæða á fundi
Jafnaðarmannaflokksins í
Sheffield síðastliðinn sunnudag
að sameinast Fijálslynda flokkn-
um í nýjum stjómmálaflokki.
Stuðningsmenn dr. Davids Ow-
ens, fyrrum leiðtoga flokksins,
tóku ekki þátt í atkvæðagreiðsl-
unni. Heiftúð og biturleiki
einkenndu átök þessara fylkinga
á fundinum.
Átökin hófust á föstudagskvöld,
þegar Shirley Williams, forseti
Jafnaðarmannaflokksins, reyndi að
koma í veg fyrir, að fylgismenn
Owens fengju að halda fund á laug-
ardagskvöld í aðalfundarsal flokks-
ins. Hún og ýmsir aðrir töldu, að
það gæti valdið því, að landslýður
fengi á tilfínninguna, að fylgismenn
Owens væru hinir raunverulegu
jafnaðarmenn. En fylgismenn Ow-
ens höfðu sitt fram og hótuðu að
láta málið ganga til dómara, vegna
þess að þeir hefðu þegar greitt fyr-
ir afnot af salnum. Af því varð þó
ekki.
Viku áður hafði Fijálslyndi flokk-
urinn haldið fund um sama efni og
ákveðið með yfírgnæfandi meiri-
hluta atkvæða að ganga til samein-
ingar við jafnaðarmenn. Forystu-
menn flokksins undirbjuggu þann
fund mjög vandlega til að koma í
veg fyrir, að stefnuyfirlýsing Steels
og MacLennans, leiðtoga flokkanna
— sem þingmenn Frjálslynda
flokksins höfnuðu einróma — skað-
aði málstað sameiningarinnar.
Á fundi Jafnaðarmannaflokksins
kom fram eindreginn meirihluta-
Sovétríkin:
Malenkov er látínn
Moskvu, Reuter.
GEORGÍJ Malenkov, sem var málaráðherrans, Georgíj Zhúkov,
forsætisráðherra Sovétrikjanna sem notaði flugherinn til að flytja
um skeið eftir andlát Stalíns, lést meðlimi æðsta ráðsins á neyðarfund
22. janúar, 86 ára að aldri. Tals- í Moskvu. Þar var staðfest að
maður upplýsingaþjónustu Khrústsjov væri enn aðalritari og
sovéska utanrikisráðuneytisins, ákveðið var að Malenkov yrði rekinn
Gennady Gerasimov, sagði i gær úr framkvæmdastjóminni ásamt
að Malenkov hefði verið grafinn Molotov, fyrrum utanríkisráðherra,
S kirkjugarði i Moskvu og andlát og Laza Kaganovitsj, áður nánum
hans hefði ekki verið tilkynnt aðstoðarmanni Stalíns.
fyiT að ósk vandamanna. Þeir voru svo allir reknir úr
Á síðustu árum Stalíns var Mal- kommúnistaflokknum. Molotov
enkov lýst sem „sönnum lærisveini“ fékk að gerast félagi í flokknum
Stalíns í helsta alfræðiriti Sovétrílq- aftur á valdatíma Brezhnevs á átt-
anna, og hann var talinn líklegur unda áratugnum, en hann dó í
arftaki einræðisherrans. Þegar fyrra. Álitið er að Kaganovitsj sé
Stalín lést var Malenkov skipaður ennþá á lífí og búi í Moskvu.
stuðningur við sameininguna. Hún
var samþykkt með 273 atkvæðum,
28 voru á móti og 49 sátu hjá.
MacLennan, leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins, sagðist vera mjög
ánægður með úrslit atkvæða-
greiðslunnar. Það hefði komið fram
eindreginn vilji til sameiningar og
til hennar yrði gengið. Hann sagð-
ist vonast til, að Owen sæi sig um
hönd og gengi til liðs við hinn nýja
flokk.
David Owen sagði, að fylgi við
hinn nýja jafnaðarmannaflokk sinn
færi vaxandi og tæplega 200 manns
hefðu ekki tekið þátt eða setið hjá
í atkvæðagreiðslunni. Hann stað-
festi í ræðu á laugardagskvöldið,
að hinn nýi flokkur jafnaðarmanna
mundi ekki efna til átaka eða illinda
vegna sameiningarinnar, en hann
mundi á hinn bóginn ekki skirrast
við átökum við hinn sameinaða
flokk.
479 fulltrúar höfðu atkvæðisrétt.
Hefðu allir fylgismenn Owens greitt
atkvæði gegn tillögunni, er ljóst,
að hún hefði ekki náð þeim tveimur
þriðju hlutum greiddra atkvæða,
sem tilskilið er í skipulagsreglum
J afnaðarmannaflokksins.
Síðasti liðurinn í sameiningunni
er, að félagar beggja flokkanna eiga
að greiða atkvæði í pósti um hana.
Litið er á þá atkvæðagreiðslu sem
formsatriði.
Reuter
Heimsmet sett í hnattflugi
Um helgina sem leið var sett nýtt met í hraðflugi óbreyttra
borgara umhverfis hnöttinn. Um hundrað manna hópur var um
borð í vélinni, sem er af gerðinni Boeing 747SP, og tók flugið
alls 35 klukkustundir og rúmar 54 minútur að auki. Fyrra met
var rúmar 45 klukkustundir. Tilgangur flugs þessa var að safna
fé tii líknarmála, en farþegarnir voru látnir borga 5.000 Banda-
ríkjadali (um 185 þúsund íslenskar krónur) fyrir þátttökuna.
Einn helsti forvígismaður flugsins var geimfarinn Neil Armstr-
ong, en hann steig fyrstur manna fæti á tunglið. Á myndinni
má sjá hann ásamt flugstjóranum Clay Lacy, en að baki gnævir
vélin, Friendship One.
Forsetakosningarnar í Ekvador:
Jafnaðarmaður sig-
urstranglegastur
Quito, Ekvador. Reuter.
RODRIGO Boija, frambjóðandi jafnaðarmanna í forsetakosningun-
um, sem fram fóru i Ekvador á sunnudag, virðist ætla að fá mest
fylgi þeirra tiu manna, sem kepptu eftir embættinu. Talning gengur
hins vegar iqjög hægt og endanleg úrslit verða jafnvel ekki ljós
fyrr en eftir nokkrar vikur.
Þegar rúmur helmingur fímm
milljóna atkvæða hafði verið talinn
hafði Boija fengið 20,4% atkvæða
en næstur honum komst Abdala
Bucaram, sem sneri heim úr útlegð
til að bjóða sig fram, með 15,3%.
Frambjóðandi sljómarflokksins,
Kristilega sósíalflokksins, var þriðji
með 12,8%. í maí verður kosið aft-
ur milli þeirra tveggja, sem flest
atkvæði fá.
Tveir menn voru skotnir og
nokkrir slösuðust þegar til átaka
kom í höfuðborginni, Quito, á
sunnudag en annars fóru kosning-
amar tiltölulega friðsamlega fram
að þessu sinni. í kosningunum fyrir
§óram áram létu a.m.k. tíu manns
lífið.
Georgí Malenkov
forsætisráðherra og hann starfaði
einnig áfram sem ritari æðsta ráðs
kommúnistaflokksins. Innan níu
daga var hins vegar tilkynnt opin-
berlega að hann hefði sagt upp
ritaraembætti sínu og skömmu
seinna komst Khrústsjov til áhrifa
og var skipaður aðalritari. Mal-
enkov sagði síðan af sér sem
forsætisráðherra í febrúar árið
1955, en starfaði áfram innan fram-
kvæmdastjómarinnar.
Þegar Khrústsjov fordæmdi
Stalín og blóðugar hreinsanir hans
árið 1956 var ýmislegt sem benti
til að Malenkov og aðrir nánir sam-
starfsmenn Stalins væra andsnúnir
slikum afhjúpunum. Þessi ágrein-
ingur kom upp á yfírborðið í júní
árið 1957 þegar fylgismenn Stalíns
reyndu að bola Khrústsjov burt, og
náðu til þess meirihluta innan fram-
kvæmdastjómarinnar. Khrústsjov
hlaut hins vegar stuðning vamar-
■0- GM
OPEL
WliUwrí
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300