Morgunblaðið - 02.02.1988, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988
6T
Náttfari frá Þorlákshöfn
Þorlákshöfn:
Lítill afli
og slæmar
gæftir
Þorlákshöfn.
í SÍÐUSTU viku var landað hér
alls um 156 tonnum af 15 bátum
sem skiptist þannig: 7 netabátar
107 tonn, 3 línubátar 4,3 tonn, 4
dragnótabátar 44,3 tonn, 1 troll-
bátur 0,5 tonn.
Aflahæstu bátar vikunnar voru
Jóhann Gíslason með 24 tonn, Am-
ar 25 tonn og Jóhanna 18 tonn.
Allir á netum.
Aflahæstur dragnótabáta var
Dalaröst með 22 tonn.
Togarinn Jón Vídalín landaði í
vikunni um 86 tonnum eftir 10
daga veiðiferð og var aðal uppistað-
an þorskur eða um 70 tonn. Þetta
er fyrsta löndum togaranna hér
eftir áramótin.
- JHS
Grindavík:
Ógæftir
einkenndu
janúar
Grindavík.
ÓGÆFTIR hafa einkennt janúar-
mánuð sem nú er liðinn. Þá daga
sem bátar hafa komist á sjó hef-
ur verið tregt í öll veiðarfærin.
Frá áramótum er Hafberg GK
377 aflahæst af netabátum með
108 tonn, næstur kemur Kópur GK
með 103 tonn og Hópsnes GK í
þriðja sæti með 100 tonn.
Af litiu bátunum sem róa með
línu er Sigrún GK hæst með 53
tonn frá áramótum. í síðustu viku
var Þorsteinn GK með mestan afla
þá vikuna alls 28,7 tonn í þremur
róðrum, þá kom Kópur GK með
24,8 tonn og Vörður ÞH 22 tonn.
Aflinn er að mestu ufsi og þykir
sjómönnum að ufsinn ætli að bregð-
ast þessa vertíð þar sem seinni hluti
janúar hefur verið skásti ufsaveiði-
tíminn til þessa.
Nokkrir bátar róa með línu eins
og áður segir og var Sigrún GK
með mestan afla í síðustu viku af
litlu bátunum eða með 10,6 tonn.
Sighvatur GK sem er einn af stórum
bátunum var aðeins með 25,2 tonn
á línu í vikunni þar á undan en
ekki lágu fyrir nákvæmar tölur um
afla í síðustu viku.
Loðnan hefur borist til
Grindavíkur að undanfömu. Síðustu
tvær vikumar hafa 9 bátar landað
alls um 6000 tonnum, þar á meðal
voru 3 bátar í síðustu viku, Hrafn
GK 625 tonn, Albert GK 700 tonn
og Sjávarborg GK 750 tonn.
— Kr.Ben.
TÖLVUPRENTARAR
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík:
Höft í kjúklinga- svína- og eggjafram-
leiðslu í andstöðu við stefnu flokksins
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá fulltrúaráði sjálf-
stæðisfélaganna i Reykjavík:
„Stjóm Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík samþykkti
eftirfarandi ályktun á fundi flmmtu-
daginn 28. janúar 1988:
Stjóm Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík lýsir yfir
andstöðu við reglur um framleiðslu-
stjómufi á kjúklinga-, svína- og
eggjaframleiðslu sem beinlínis eru
settar til að hækka verð á þessum
vörum. Stjómin skorar á ráðherra og
alþingismenn flokksins að hindra þá
atlögu að neytendum og frjálsu mark-
aðskerfi sem stefnt er að með þessum
reglum.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er skýr
og var mörkuð á síðasta landsfundi
Sjálfstæðisflokksins svohljóðandi:
„Flokkurinn lítur svo á að hið
flókna miðstýringarkerfí sem nú er
við líði geti ekki gengið nema um
skamman tíma. Þvi beri að tryggja
hagsmuni bænda og neytenda á þann
hátt til frambúðar að bændur geti
búið við aukið athafnafrelsi sem sjálf-
stæðir atvinnurekendur og tekið f
sínar hendur að laga framleiðsluna
að þörfum markaðarins."
Haftabúskapurinn í kjúklinga-,
svína- og eggjaframleiðslu, sem nú
er verið að taka upp, er í fiillri and-
stöðu við stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Stjóm Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík lýsir yfir fulluws."
stuðningi við baráttu Neytendasam-
takanna gegn þessum reglum og
skorar á landsmenn að styðja baráttu
þeirra í hvívetna til að koma í veg
fyrir þær verðhækkanir og þá atlögu
að frjálsu markaðskerfi sem land-
búnaðarráðherra berst fyrir.“
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þessi árekstur varð á Reylganesbraut við Hafnarveg, þar urðu eng-
in slys á fólki en ökutækin skemmdust talsvert.
Suðurnes:
Fljúgandi hálka
Keflavík.
FLJÚGANDI hálka myndaðist
skyndilega á vegum á Suðurnesj-
um á sunnudag þegar úrkoma i
formi rigningar fraus við að
Fundur um
rétt skot-
veiðimanna
SKOTVEIÐIFÉLAG Reykjavík-
ur og nágrennis, Skotrein,
heldur opinn fund með fulltrúum
allra stjórnmálaflokkanna í
menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi laugardaginn 6. febrúar
nk. kl. 14.00. Fundarefnið er
veiðiréttur, staða og skyidur
skotveiðimanna.
Félagsstarf skotveiðimanna hér
á landi hófst með stofnun Skotveiði-
félags íslands, Skotvís, haustið
1978. Það félag gegnir nú hlutverki
landssambands skotveiðimanna og
eru deildir innan þess orðnar fimm.
Talið er að yfir 10.000 íslendingar
stundi skotveiðar að einhveiju
marki, segir í fréttatilkynningu frá
skotveiðifélaginu.
snerta jörðina. Áttu margir öku-
menn oft í hinum mestu erfiðleik-
um með að stjórna bílum sinum
sem voru eins og beljur á svelli í
orðsins fyllstu merkingu.
Að sögn lögreglunnar urðu 7
árekstrar með skömmu millibili og
var mesta mildi að ekki urðu slys á
fólki. Tvær bílveltur urðu, önnur á
Reykjanesbraut við ^Vogaafleggjara
en hin á Grindavíkurvegi. Þá urðu
nokkrir árekstrar þar sem eignatjón
varð nokkuð en slys engin.
Karl Hermannsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í Keflavík sagði að
ökumenn hefðu flestir sýnt mikla
varkámi við þessar óvenjulegu að-
stæður og það hefði átt sinn þátt í
að ekki urðu meiriháttar óhöpp að
þessu sinni.
- BB
Úr umferðinni helgina 30. og 31. janúar 1988
Um helgina urðu árekstrar bifreiða samtals 21 í höfuðborginni og þar
af urðu slys á fólki í tveimur tilvikum.
11 ökumenn voru téknir vegna gruns um ölvun við akstur.
Radarmælingar leiddu til 32 kæra fyrir of hraðan akstur.
17 ára piltur var sviptur ökuréttindum á staðnum fyrir að aka um
Kleppsveg með 109 km/klst hraða. Leyfílegur hámarkshraði er 60
km/klst. Annar 18 ára var sviptur ökuréttindum á staðnum, en hann
mældist aka um Kringlumýrarbraut með 107 km/klst hraða. Einnig
þar er leyfilegur hámarkshraði 60 km/klst.
Aðrar ákærur vegna hraðs aksturs:
Ártúnsbrekka: 90, 92 og 94 km/klst.
Bústaðavegur: 88 km/klst.
Elliðvogur: 94, 97, 98 km/klst.
Höfðabakki: 93 km/klst.
Kleppsvegur: 94—106 km/klst.
Kringlumýrarbraut: 105—107 km/klst.
Skógarhlíð: 88 km/klst.
Sætún: 87 og 90 km/klst.
Samtals 65 kærur fyrir umferðarlagabrot af ýmsu tagi í helgarum-
ferðinni.
Frétt frá Iögreglunni í Reykjavík.
HÓTEL
ÖÐK.
HVERAGERÐI
Dúkku-
lækningar
Síðastliðinn sunnudag
birtist í Morgunblaðinu viðtal
við Jón Traustason dúkku-
lækni. Þar eð birting við-
talsins tafðist er það rangt
sem fram kemur í viðtalinu
að Jón Traustason verði fjar-
verandi næstu þrjár vikur.
Jón Traustason er kominn til
starfa.
Þorrablót
Hótels Arkar verður haldið
föstudagskvöldið 5. febrúar.
Þorrakjörágfotíngu.
Nánari upplýsingar á Hótel Örk, sími 99-4700.
ÞAÐ BYÐUR ENGINN BETUR _ Allt QÓ 80% OfcláttUr
BOKAUTSALA
Við eínum til stórkostlegrar bókaútsölu frá og með 30. janúar -
13. febrúar í verslun okkar að Síðumúla 11. Opið frá kl. 9-18,
nema 10-16 á laugardögum. Úrvalsbœkur með allt að 80%
afslœtti. Lítið útlitsgallaðar bcekur með ótrúlegum afslœtti vegna
smávœgilegra útlitsgalla. Missið ekki af bókaútsölu ársins.
ÖRN OG ÖRLYGUR
Sídumúla 11, sími 84866