Morgunblaðið - 03.02.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
• •
Olvaður á
stolnum bíl
oUiárekstri
HARÐUR árekstur varð undir
Kópavogsbrúnni um kl. 2.45
aðfaranótt þriðjudagsins. Þar
skullu saman bifreið, sem var
ekið suður Reykjanesbrautina,
ogf bifreið, sem ekið var á öfug-
um vegarheimingi frá Garðabæ.
Ökumaðurinn sem kom frá
Reykjavík sá skyndilega bifreið
birtast á mikilli ferð á móti sér á
veginum. Bifreiðamar skullu sam-
an af miklu afli og eru að öllum
líkindum ónýtar. Sá ökumann-
anna, sem ók á öfugum vegar-
helmingi, er grunaður um ölvun
við akstur og einnig um að hafa
tekið bifreiðina ófijálsri hendi.
Miklar skemmdir urðu á báðum
bifreiðunum og voru þær dregnar
af vettvangi. Engan sakaði við
áreksturinn.
Tillaga kynnt um áningastað við Sætún
KYNNT hefur verið i borgarráði, skipulags- Að söng Þorvaldar S. Þorvaldssonar for- verður þar reist opin súlnabygging með útsýnis-
nefnd og samþykkt í umhverfismálaráði, stöðumanns borgarskipulags, standa vonir til skýfu. Fremst á palli neðan við bygginguna
tillaga um göngustig meðfram Sætúni frá að stígurinn verði lagður um leið og gengið er verður komið fyrir sjónáuka. Þar verða einnig
útivistarsvæðinu við Laugarnestanga að endanlega frá Sætúni. Upphaflega var gert ráð bekkir og tröppur niður að sjávarmáli.
miðbænum. Gert er ráð fyrir áningastað á fyrir að hann yrði í flæðarmálinu en vegna sjó- Hönnuðir göngustígsins og áningastaðarins
leiðinni neðan við göngustíginn til móts við gangs var horfið frá því. eru arkitektamir Bjöm S. Hallsson og Jón Þór
Vatnsstíg. Bifreiðastæði verða við áningastaðinn og Þorvaldsson en þeir skipulögðu Skúlagötuhverfíð.
Stórstraumsflóð
Stórstraumsfjara
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 3.2.88
YFIRLIT í gær: Gert er ráð fyrir stormi á vestur-, norður- og suð-
vesturdjúpi. Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1030 mb. hæð, en 962
mb. hægfara lægö við Hjaltland.
SPÁ: I dag verður norðaustanátt á landinu, víða stinningskaldi eða
allhvasst. Áfram verður snjókoma eða éljagangur um norðanvert
landið og á Austurlandi en urkomulaust að mestu sunnanlands og
á Vesturlandi. Smém saman kólnar í veðri og síðdegis veröur kom-
fð frost um mest allt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG og FÖSTUDAG: Norðan- og norðaustan-
átt, víða nokkuð hvöss. tljagangur um norðanvert landið en
úrkomulaust syðra. Frost um allt land og fer heldur harðnandi.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. y Skúrir *
A V El
Léttskýiað / / / / / / / Rigning — Þoka
A 'Céík HáHskýjað / / / * / * = Þokumóða ’, ’ Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / OO Mistur
—|- Skafrenningur
Alskýiað * * * * Snjókoma * # * [ 7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl vaður
Akureyri 0 snjökoma
Reykjavík 2 úrk. (gr.
Bergen 6 skúr
Helslnki +6 snjókoma
Jen Mayen -»4 skafrenningur
Kaupmannah. 5 rignlng
Naraaarsauaq +3 skýjað
Nuuk 44 alskýjað
Oalð 2 rigning
Stokkhólmur 0 snjókoma
Þórshöfn 6 skúr
Algarve 14 skýjað
Amsterdam 8 skúr
AÞena 8 skýjað
Barcelona 14 skýjað
Barifn 8 skýjað
Chicago 48 alskýjað
Foneyjar 4 alskýjað
Frankfurt 7 alskýjað
Glaagow 6 skúr
Hamborg 7 skýjað
Lao Palmaa 20 skýjað
London 7 skúrás.klst.
LosAngalea 10 rlgnlng
Luxemborg 6 skúr
Madrfd 8 mistur
Malaga 18 skýjað
Mallorca 13 skýjað
Montreal 43 snjókoma
NewYork 14 alskýjað
Parfs 8 skýjað
Róm 14 akýjað
Vfn 4 rlgnlng
Waahlngton 16 skýjað
Winnipeg 428 alskýjað
Valencia 14 skýjað
Heilbrigðisþing
á f östudaginn
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, efnir til heilbrigðis-
þings föstudaginn 5. febrúar næst komandi að Borgartúni 6. Til
umfjöllunar verður islenzk heilbrigðisáætlun, sem Ragnhildur
Hegladóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, lagði fram til kynn-
ingar á Alþingi vorið 1987. Áætlunin var m.a. byggð á ríkissljómar-
ákvörðun um landsáætlun í heilbrigðismálum með hliðsjón af
stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, sem nefnd var „Heil-
brigði allra árið 2000“. Ávörp flytja Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra, og dr. H. Mahler, framkvæmdastjóri Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar í Genf.
Ráðstefnuna, sem stendur einn
dag, sitja um 230 fulltrúar frá
löggiltum heilbrigðisstéttum, heil-
brigðisstofnunum (sjúkrahúsum
o g heilsugæzlustöðvum), ráðu-
neytum, þingflokkum, Sambandi
íslenzkra sveitarfélaga, Neytenda-
samtökunum, samtökum um
hagsmunamál aldraðara og ör-
yrkja o.fl.
Framsögur flytja: Skúli Jo-
hnsen, borgarlæknir, formaður
vinnuhóps um stefnu í heilbrigðis-
málum, Bjami Þjóðleifsson,
læknir, formaður vinnuhóps um
heilbrigða lífshætti, Öm Bjama-
son, forstjóri, formaður vinnuhóps
um heilbrigðiseftirlit, Guðmundur
Sigurðsson, heilsugæzlulæknir,
formaður vinnuhóps um heilsu-
gæzlu, tannheilsu, sérfræðiþjón-
ustu og geðlækningar, Almar
Grímsson, lyfsali, formaður vinnu-
hóps um öldrun, -lyfjamál og
tryggingamál, Davíð A. Gunnars-
son, forstjóri, formaður vinnuhóps
um fjármuni og mannafla, og Sig-
mundur Guðbjamarson, háskóla-
rektor, formaður vinnuhóps um
rannsóknir og kennslu. Tillögur
og greinargerðir liggja fyrir frá
öllum þessum vinnuhópum. Al-
mennar umræður verða að
framsögum loknum.
Pundarstjórar verða Hrafn V.
Priðriksson, yfirlæknir, og Guðjón
Magnússon, aðstoðarlandlæknir.
Helgarpósturinn:
Halldór Halldórs-
son hættur störfum
HALLDÓR Halldórsson hefur
látið af störfum sem ritstjóri
Helgarpóstsins. Að sögn Sigurð-
ar Ragnarssonar formánns
Goðgár, útgáfufélags HP, varð
það að samkomulagi milli Hall-
dórs og stjórnarinnar að hann
viki úr starfi. Sigurður bar til
baka orðróm um að uppsögn
Halldórs ætti rætur að rekja til
ágreinings um ritsjómarstefnu.
„Halldór hefur lengi starfað
sem ritsljóri blaðsins við góðan
orðstír,“ sagði Sigurður Ragn-
arsson, „og það hefur ekki ríkt
neinn ófriður um brottför hans
héðan.“
Ekki hefur enn verið ráðinn
maður í starf Halldórs en auk hans
hefur Helgi Már Arthúrsson verið
ritstjóri blaðsins. Sigurður kvaðst
eiga von á að ritstjóri yrði ráðinn
í stað Halldórs og sagði að hvorki
væri í vændum samdráttur á blað-
inu né breytingar á útliti og
efnistökum þess.
„Það var ákveðið með sam-
komulagi milli mín og stjómar
Goðgár að ég léti af störfum,"
sagði Halldór Halldórsson. „Ég hef
unnið lengi við Helgarpóstinn og
fannst kominn tími til að hvíla mig
á þessu erflða og slítandi starfí.“
Halldór vildi ekki tjá sig um fregn-
ir um að ágreiningur við stjóm
blaðsins um ritstjómarstefnu hefði
ráðið miklu um þessa ákvörðun.