Morgunblaðið - 03.02.1988, Qupperneq 36
i6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson
Sinfóníuhljómsveit íslands, Kveldúlfskórinn og kirkjukór Hvanneyrar- og Reykholtskirkju voru með
sameiginlega tónleika í Logalandi í Reykholtsdal.
Ánægjulegir tónleikar
Kleppjárnsreykjum.
Sinfóníuhljómsveit íslands,
Kveldúlfskórinn og kirkjukór
Hvanneyrar og Reykholtskirkju
voru með sameiginlega tónleika
í Logalandi í Reykholtsdal 28.
janúar. Stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar var Páll P.
Pálsson og einleikari var Selma
Guðmundsdóttir.
Á efnisskrá voru Sinfónía í C-dúr
K.V. 551 „Júpíter" eftir W.A. Moz-
art, Píanókonsert í Des-dúr eftir
A. Khatsjatúijan og Fangakórinn
úr „Nabucco" eftir G. Verdi. í lokin
sungu kóramir allir saman „Fin-
landia" eftir J. Sibelius. Hrifning
áheyrenda var svo mikil að endur-
taka varð „Finlandia".
Um það bil 300 manns voru í
húsinu þegar allt var talið, hljóm-
sveit, kórar og áheyrendur.
Það er mikil upplyfting fyrir okk-
ur á landsbyggðinni þegar svona
góða listamenn ber að garði og var
gaman að fólk sýndi það í verki að
mæta svona vel til að hlýða á þá.
Allir þeir er fréttaritari ræddi við
vom sammála um að þetta sé ein-
hver mesta og besta skemmtun sem
haldin er- hér um slóðir.
Sinfóníuhljómsveitin hefur spilað
nokkmm sinnum áður í Logalandi
og er ávallt fullt hús. Félagsheimil-
ið hefur mjög góðan hljómburð og
hefur yfír að ráða flygli af bestu
gerð og hafa verið hljóðritaðar
nokkrar plötur í félagsheimilinu.
— Bemhard
ÝSUVERÐIÐ
Afmælis
SVFÍimnnst
á Húsavík
Húsavik.
AFMÆLIS Slysavamafélags
íslands var minnst á Húsavík
sl. laugardag bæjarbúum til
fróðleiks og skemmtunar.
Björgunarsveitin Garðar
sýndi tækjabúnað sinn og
aðstöðu sem er i tveim húsum
úti á Höfða. Þar vom með-
limir sveitarinnar til að skýra
út fyrir gestum nauðsyn og
notkun hinna ýmsu tækja.
í stjómstöðinni er uppsett í
allstómm mælikvarða björgun-
arlína „milli skips og lands“
með tilheyrandi björgunarstól
og með manni á leið í land.
Einnig sviðsettu björgunar-
sveitarmenn þann atburð að
.maður féll fýrir borð í flotgalla
og flaut á sjónum þar björgun.
barst.
Kvennadeildin átti sinn þátt
í þessum afmælisfagnaði og
veitti öllum gestum kaffi og
tertur af mikilli rausn.
Björgunarsveitin hefur fundi
og æfíngar á hverju fímmtu-
dagskvöldi og mætir þar ávallt
allstór kjami sveitarinnar. Á
síðastliðnu ári var sveitin kölluð
út fjómm sinnum en í ekkert
skiptið var um alvarleg tilfelli
að ræða.
— Fréttaritari
eftírJón Steinar
Elíasson
Ég vil leyfa mér að mótmæla
ákvörðun Verðlagsráðs á þeirri
lækkun á ýsu sem orðið hefur. Ég
tel þá ákvörðun alranga. Ýsufram-
boð seinni hlutann í janúar hefur
aldrei verið meira (þ.e. síðan ég
byijaði að stunda físksölu). Verð á
físki á erlendum mörkuðum hefur
algjörlega hmnið þessa dagana. Þar
sem við emm að tala um ýsuverð
þá er mikið flutt af ferskum ýsu-
flökum til Bandaríkjanna og heilli
ýsu í gámum til Englands. Þessir
markaðir hafa hmnið undanfarið.
Samhliða því hefur framboð á ýsu
hér heima aldrei verið meira.
Verð hér á fískmörkuðum frá því
fyrstu vikuna í janúar hefur fallið
úr kr. 70—80 pr. kg. niður í kr.
35—45 pr. kg. Þetta verð getur
breyst á nokkmm dögum. Ætla
þeir þá hjá Verðlagsstofnun að
lækka verðið aftur eða eigum við
fisksalar ef til vill ekki að eiga þess
kost að bjóða neytendum fyrsta
flokks físk?
Þegar ég tala um fyrsta flokks
fisk þá á ég við línufisk sem er
alltaf verðmeiri og ekki sambæri-
legur netafíski að gæðum. Neytend-
ur spyija af hveiju fískurinn lækki
ekki þegar svona mikið framboð er.
Ég er með fasta línubáta í viðskipt-
um sem tryggja mér-ömggt fyrsta
flokks hráefni. Fyrir það hráefni
borga ég fast verð. Fiskmarkaðimir
em góðir út af fyrir sig, en það er
ekki komin næg reynsla á þá. Ég
get ekki leyft mér gagnvart mínum
viðskiptavinum að treysta á físk-
markaðina og sleppa landróðrabát-
unum úr viðskiptum sem hafa
tryggt mér ömggt hráefni ámm
saman.
Við físksalar fómm fram á 15%
verðhækkun sem heimiluð var af
Verðlagsráði 11.01.88. Við þá
hækkun bættist síðan 10% hækkun
vegna söluskattsins. Þessi 15%
verðhækkun átti fullan rétt á sér
og var sanngjöm. Verð á ýsu hækk-
aði síðast í júlí 1987. Á þeim tíma
sem liðinn er hefur öll þjónusta,
laun og svo til allt sem að rekstri
snýr, hækkað.
Ég tel ákvörðun Verðlagsráðs að
lækka ýsuna ranga og fljótfæmis-
lega gerða og ekki nægilega vel að
henni staðið.
Verð á ýsu á fiskmörkuðum er
ekki marktækt þessa dagana, mið-
að við ytri aðstæður. Mér fínnst
ekki rétt að við, sem öflum ýsunn-
ar, oft við erfíðar aðstæður með
langan vinnutíma að baki, skulum
þurfa að lækka hana þegar ríkið,
sem ekkert leggur til framleiðslunn-
ar, getur ieyft sér að setja á hana
10% skatt. Ég er mjög mótfallinn
þessari verðlækkun og mótmæli
henni eindregið.
Höfundur er eigandi Toppfisks,
sem annast heildsölu á fiski.
Sláturhúsa-
málin vestra
eftírÁrna
Jóhannesson
Þann 10. janúar sl. fór ég undir-
ritaður á Patreksfjörð að sækja
kjöt, sem ég hafði pantað fyrir
áramót. Kom sláturhússtjóri með
mér inn í sláturhús og afhenti kjö-
tið. Þegar við voram búnir að vigta
kjötið kom rotta skríðandi með-
fram veggnum fram við hurðina á
kjötklefanum, og fór inn í klefa
þar á hæðinni, þ.e. neðri hæðinni,
sem notaður er undir kjötumbúðir.
Spurði É hvaða skepna þetta
væri. Svaraði sláturhússtjóri því
engu en roðnaði við. — Þá sagði
ég að rotta hefði farið inn í þennan
klefa. Gekk hann þá að hurð klef-
ans og lokaði henni. — Klefi þessi
hefur ekki verið notaður til að
geyma matvæli í, en er, sem áður
segir, notaður undir umbúðir. Við
hliðina á honum er annar klefí sem
notaður er undir matvæli. Þann
10. janúar vora þar inni u.þ.b. eitt
hundrað kjötskrokkar, svo og
hausar, mör og annar innmatur.
Hef ég heyrt að sláturhússtjóri
hafi fullyrt við fréttamann Morg-
unblaðsins að engin matvæli væra
geymd á neðri hæð hússins. Sú
fullyrðing er röng. En sláturhús-
stjóri viðurkenndi fyrir frétta-
manni að rotta væri í húsinu. —
Rotta þessi var mógul að lit og er
af svokölluðum ræsarottustofni, og
heldur hún til í ræsum og skolp-
lögjium og er hinn versti smitberi.
— Tel ég nauðsynlegt að láta vita
um þetta.
í Morgunblaðinu 22.10. 1987
segir Sigurður Sigurðarson, settur
yfírdýralæknir, um sláturhús okk-
ar héma á Bíldudal, að niðurfall
sláturhússins sé ekki rottuhelt,
skolplögn nái ekki út fyrir stór-
straumsfjöra, húsið sé ekki afgirt
og vatn ónothæft. Lýsingin á frá-
rennsli hússins mun geta átt við
frárennsli fleiri húsa. — Á Patreks-
fírði liggur affallið frá sláturhúsinu
rétt út úr vegkantinum, og þaðan
era 30—40 metrar niður í stór-
straumsfjöra. Og frá skolpinu mun
vanta 10—15 metra í stórstraums-
§öra. Húsið er ekki afgirt, eða
ekki hef ég orðið var við neina
girðingu utan um það.
í Morgunblaðinu 17.10. 1987
er haft eftir Sigurði Sigurðarsyni
dýralækni: „Okkur er skylt að
kappkosta að framleiða 1. flokks
vöra handa neytendum. Það hefur
því legið fyrir að vatnið við Pat-
reksfjarðarhúsið er gott við fleiri
sýni, þó farið hafí úrskeiðis við
sýnitökuna núna.“
Hvað kom fyrir vatnið og hvers
vegna er það ekki birt?
Sigurður segir í sama Morgun-
blaði: „Harður dómur dýralæknis
Efnahagsbandalagsins um bestu
sláturhús okkar.“ Sigurður minnist
svo ekki frekar á þau hús, en fer
að staglast á sláturhúsinu á Bíldu-
dal. Það hefur aldrei staðið til að
„Lýsingin á frárennsli
hússins mun geta átt
við frárennsli fleiri
húsa. — Á Patreksfirði
liggur affallið frá slát-
urhúsinu rétt út úr
vegkantinum, ogþaðan
eru 30—40 metrar niður
í stórstraumsfjöru.“
sláturhúsið á Bíldudal slátraði til
útflutnings. — Ef Sigurður Sigurð-
arson, þáv. settur yfírdýralæknir,
veit ekki hvaða hús það era sem
leyfi hafa til útflutnings, get ég
sagt honum það. Það era sláturhús
Kf. Borgfírðinga í Borgarnesi, Kf.
Skagfírðinga, Sauðárkróki, og Kf.
Þingeyinga, Húsavík.
Æskilegt væri að við gætum
gert sömu kröfur til okkar sjálfra
og útlendingar gera sem kaupa af
okkur kjöt og önnur matvæli. Það
era strangar reglur sem þeir setja
okkur, en era ekki eins strangir
heima hjá sjálfum sér. — Komið
hef ég í sláturhús erlendis_ í þrem-
ur löndum. Þar standast ísafjarð-
ar- og Flateyrarhúsin fyllilega þær
kröfur sem þeir setja sjálfum sér.
Ég tek það fram að ég hef ekki
komið í sláturhús í Damörku, en
ég veit að þeir era öllum fremri í
sláturhúsamálum og öðra því sem
tilheyrir landbúnaði.
Hinn 3.9. 1987 mætti á fundi í
félagsheimilinu í Örlygshöfn í
Rauðasandshreppi settur yfírdýra-
læknir, Sigurður Sigurðarson, þar
sem haldinn var stofnfundur Slát-
urfélags Vestur-Barðstrendinga,
þ.e. Barðastrandar- og Rauða-
sandshreppsbúa, til að taka út
sláturhúsið á Patreksfirði og leggja
fram skýrslu um ástand þess. —
Móttökunefndinni sem tók á móti
honum á neðri hæð hússins og
inni í frystiklefanum, þ.e. maðka-
veitu í ársgömlum kjötleifum,
getur hann sjálfur lýst.
Á almennum bændafundi á
Patreksfírði þann 8.7. 1987, þar
sem rædd vora m.a. sláturhúsa-
mál, gaf héraðsdýralæknirinn
fyrrverandi eftirfarandi upplýsing-
ar, orðrétt tilvitnað í fundargerð:
„Varðandi húsið á Patreksfírði
taldi hann að það væri í því ástandi
sem það var þegar það var síðast
slátrað í því. Það er óvíst hvort
skemmdir hafí orðið á lögnum.“
Eftir ummælum hans að dæma
hefur móttökunefndin legið mörg
ár í klefanum. Góður heilbrigðis-
eftirlitsmaður það.
Svo aftur sé vikið að fundinum
í Örlygshöfn lagði Sigurður, settur
yfírdýralæknir, fast að mönnum
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Hlutabréf til sölu
Hlutabréf til sölu í nýlegu og góðu frystihúsi
á Vesturlandi. Ársvelta ca 70 millj. Ætlunin
er að selja hlutabréf fyrir 10 millj.
Upplýsingar veitir iðnráðgjafi Vesturlands í
síma 93-71318.
Fyrirtæki til sölu
Ört vaxandi fyrirtæki í útflutningi á fiskafurð-
um. Söluverð 70 milljónir. Húsnæði 2200 fm.
Tæki: Frystir, lausfrystir, flökunarvél, lyftari o.fl.
Vantar fyrir góða kaupendur fiskbúð og lítið
fyrirtæki.
Fasteigna- og fyrirtækjasalan,
Tryggvagötu 4, Reykavík,
sími 11740, hs. 92-14530.
Steypumót
Til sölu 25 metrar í tvöföldum mótum
(Hunnibeck) fyrir krana. Sama lengd í létt-
mótum. Dregarar og stoðir fyrir ca 200 fm
loftaundirslátt. Allt galvaniserað og vel með
farið.
Upplýsingar í síma 92-12336 eftir kl. 19.00.