Morgunblaðið - 03.02.1988, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Hæ! Mig langar ad vita eitt-
hvað um sjálfa mig og fram-
tíðina (árið framundan). Ég
er fædd kl. 7.43 að morgni
til, þann 3.12.7I á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri.
Svar:
Þú hefur Sól (grunneðli, vilji
og lífsorka) og Merkúr (hugs-
un) f Bogmanni, Tungl (til-
finningar og dagleg hegðun)
í Tvíbura, Venus (ást og sam-
skipti) f Steingeit, Mars
(framkvæmdaorka) f Fiskum,
Rfsandi merki (fas og fram-
koma) í Sporðdreka og
Miðhimin (stefiia og markmið
innan þjóðfélagsins) í Meyju.
Hreyjing
Bogmaður og Tvíburi saman
táknar að þú þarft á mikilli
hreyfingu og fjölbreytileika að
halda. Þér hentar því að vinna
störf sem krefjast þess að far-
ið sé úr einu í annað. Ef þú á
hinn bóginn ert bundin niður
er hætt við að þú verðir eirðar-
laus og óþolinmóð. Ef þú hittir
ekki á rétt starf er einnig
lfklegt að þú farir úr einu f
annað og eigir erfitt með að
festa rætur.
Fjölmiðlun
Lifandi störf að félagsmálum
og flölmiðlun, s.s. blaða-
mennska, útgáfumál, útvarps-
og sjónvarpsvinna gætu átt
ágætlega við þig, sem og
ferðamál o.þ.h. Eins og alltaf
þegar Bogmaður er annars
vegar er lykilatriði hreyfing,
flölbreytileiki, víðir veggir og
ftjáls tími.
Hress persónuleiki
Um persónuleika þinn má ann-
ars segja að þú ert hress, létt,
bjartsýn ogjákvæð f viðhorf-
-um. Þú hefur stríðni og
gamansemi í þér, ert lifandi
og gefur frá þér jákvæða
strauma.
Stundum feimin
Það að Sporðdrekinn er
Rísandi táknar hins vegar að
þú átt stundum til að vera
feimin og halda sjálfri þér
niðri. Það þarft þú að varast.
Sporðdrekinn táknar einnig
að þú ert athugul og næm á
fólk og tekur vel eftir hegðun
og persónuleika annarra og
ekki síst því sem býr undir
niðri og bak við yfírborðið.
Framtíðin
Afstöður á næstu tveim árum
vísa til tveggja sviða, annars
vegar það sem varðar per-
sónulegan stíl þinn og fram-
komu og hins vegar hvað
varðar samskipti, ást og vin-
áttu.
Persónulegur stíll
Plútó kemur til með að vera
á Rísandi þínum á næsta ári.
Það táknar að þú ert að breyt-
ast i framkomu. Það er t.d.
líklegt að þú komir til með að
breyta um klæðaburð. Aðalat-
riði er hins vegar að þér gefst
nú tækifæri á að komast nær
sjálfri þér, að verða ákveðnari
og kraftmeiri í framkomu,
samfara því sem þú losar þig
við neikvæða takta.
Ástamálin
Satúmus og Öranus á Venus
táknar að mikið mun gerast í
félagslífi þínu á næstu tveim
árum. Satúmus á Venus er
orka sem bendir til félagslegr-
ar og tilfinningalegrar ábyrgð-
ar, þess að þú tekur á þig
ábyrgð og jafnvel bindir þig
að einhveiju leyti niður. Þetta
á við 1988. 1989 mun Úranus
síðan fara yfir Venus og fylg-
ir því yfirleitt spenna, nýjung-
ar og fjörugt félagslíf, en
einnig miklar og róttækar
breytingar.
r~ 1 ~~ t " 1 i ■ —
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
UOSKA
FERDINAND
PIB copenhagen
SNs-
© 1987 Unfted Feature Syndlcate, Inc.í/'i-*'^■1 \ .111.111.IIHIMMI.IIIIIIIIIIIIIIII) „1, M „ „II ■„.. 1,1 11, ^ IHFJ '1 a-11 nAyjvu-r*
iHliiiiiHiiiiiiiiiiliniiiHiiiiiHiiiiiiiiiiliiiiiiliiiHliiiiiijiiiiiiiiiiiliiiliiiiiiiiiiiiinniiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiilijHiiiili SMÁFÓLK
PROOFREAP THI5 FOR
me,uiillyou,marcie?
Viltu lesa próförk að þessu Ég vil vera viss um að ég Þetta er laukrétt, Þú stafsetur öli orð vit-
fyrir mig, Magga?
geti lagt það inn .
herra...
Meinarðu það?
laust!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sveit Flugleiða vann sannfær-
andi sigur í úrslitum Reykjavík-
urmótsins sem fóru fram um
síðustu helgi. Fjórar efstu sveit-
imar úr langri undankeppni
spiluðu útsláttarkeppni um
Reykjavíkurhomið. Fymi daginn
lögðu Flugleiðamenn sveit Verð-
bréfamarkaðs Iðnaðarbankans,
en sú sveit var langefst úr und-
ankeppninni. Sama dag sigruðu
Polarismenn sveit SamvinnU-
ferða. Úrslitaleikurinn var því
milli Flugleiða og Polaris.
Leikurinn var spilaður á Hótel
Loftleiðum og sýndur þar á
tjaldi. Eftir fyrstu 32 spilin var
staðan í jámum, en í síðustu
tveimur lotunum höfðu Flug-
leiðamenn algera yfirburði og
unnu leikinn með miklum mun.
f sveitinni eru: Aðalsteinn Jörg-
ensen, Ragnar Magnússon, Jón
Baldursson, Valur Sigurðsson,
Sigurður Sverrisson og Ásgeir
Ásbjömsson.
Hér er spil úr síðustu um-
ferðinni, þar sem Flugleiðamenn
gerðu góða hluti.
Norður
♦ D42
VG864
♦ 10832
♦ Á10
Vestur
♦ 3
T K1093
♦ D54
♦ DG753
Austur
♦ K8765
¥752
♦ G9
♦ K82
Suður
♦ ÁKG9
¥ÁD
♦ ÁK76
♦ 964
Á báðum borðum var suður
sagnhafi i þremur gröndum. Jón
Baldursson fékk út lítið lauf,
sem hann dúkkaði, austur drap
á kóng og spilaði aftur laufí. Jón
tók tígulás og síðan þrisvar
spaða og endaði í blindum.
Vestur á erfitt með afköst;
hann þarf að geyma laufslagina,
ásamt því að valda rauðu litina.
Hann henti fyrst tveimur hjört-
um. Jón ákvað þá að spila hann
upp á tígullengdina og hjarta-
kóng. Hann fór heim á tígul og
tók síðasta spaðann. Vestur
henti enn hjarta. Jón lagði niður
ásinn og fékk níunda slaginn á
drottninguna.
Á hinu borðinu spilaði Ragnar
Magnússon út laufdrottningu.
Símon Símonarson upp ás og
Aðalsteinn Jörgensen lét áttuna
detta, þrátt fyrir að hún væri
frávísun, samkvæmt þeirra
vamarreglum. Það gat verið
nauðsynlegt að losna við áttuna
til að stífla ekki litinn ef sagn-
hafi ætti níuna fjórðu. Símon
svínaði hjartadrottningu í öðmm
slag og þá notaði Aðalsteinn
tækifærið til að kalla í laufinu
með því að láta hæsta hjartað
sitt. Grandkallið, eða „oddball",
eins og það er stundum nefnt.
Og Ragnar spilaði laufi, eins og
um var beðið. Einn niður.
resió af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80