Morgunblaðið - 03.02.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988
51
1
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEG!
TIL FÖSTUDAGS
tíUétOB
Hvar er „Himnaríki“?
f blaði einu birtist athyglisverð
grein er fjallaði um trúarbrögð og
hvernig þau koma heim og saman
við skoðanir nútímamanna. Ég ætla
ekki að gera þessa ágætu grein að
umtalsefni, en langar aðeins til að
staldra við eitt atriði hennar. Þar
segir:
„Hvert hvarf þá Jesús þegar
hann yfirgaf þennan táradal? Sam-
kvæmt gömlu heimsmyndinni hvarf
hann upp til föður síns á himnum.
Samkvæmt okkar heimsmynd eru
þessir himnar hvergi til í alheimin-
um.“
Rétt er það, að samkvæmt okkar
heimsmynd eru engin ákveðin krist-
alshvel uppi yfir jörðunni, eins og
sumir miðaldamenn héldu. Samt
sem áður verðum við að gera ráð
fyrir að himnar fommanna hafi
verið raunverulegir staðir í alheim-
inum. Þá var ekki vitað hvað
stjömur voru. Nú er vitað, að stjöm-
ur eru sólir, og fastlega er gert ráð
fyrir, að flestum þeirra fylgi reiki-
stjömur, og þá má vissulega búast
við að margar þeirra séu byggðar
þroskuðum og vitibomum vemm.
Þar sem biblían talar um himna-
ríki og sömuleiðis Edda og fleiri
fom trúarrit, þá fínnst mér rökrétt
að gera ráð fyrir að hér sé um að
ræða byggða hnetti í öðmm sól-
hverfum, þar sem lífið er á svo háu
stigi þroska, kærleika og góðvildar
að í sannleika megi tala um himna
og himnaríki og um guðlegar, mátt-
ugar vemr, sem þar eigi heima.
Upphaf hinna ýmsu trúarbragða
mun einmitt vera það, að vitrana-
menn fengu sambönd við þessar
lengra komnu vemr á öðmm hnött-
um.
Okkur þarf að skiljast, að himnar
löngu horfínna kynslóða em einmitt
lífheimar annarra jarðstjama í öðr-
um sólhverfum, og að þangað er
að leita skýringanna á þeim sam-
böndum, þ.e. sýnum og vitmnum,
sem sjáendur allra tíma hafa fengið
að reyna, þar á meðal þeir, sem
urðu upphafsmenn hinna ýmsu trú-
arbragða, sem svo mikil áhrif hafa
haft á alla sögu mannkynsins.
Ingvar Agnarsson
Þessir hringdu .. .
Mokið snjóinn
af tröppunum
„Þar sem grasið grær að dymm/
gestrisnin á ekki heima" er endirinn
á vísu sem ég hef einhvemtíma
heyrt. En þetta tilskrif mitt á nú
ekki við grasið heldur andstæðu
þess, snjóinn. En hvort tveggja vill
verða hvimleitt ef það er látið óá-
reitt. Það vekur alltaf undran og
furðu hve mikið er um trassa við
að moka snjó af tröppum, sjálfum
sér til stórskammar og öðmm til
skaða og skapraunar. Það er alveg
merkilegt og sýnir mikið umburðar-
lyndi t.d. hjá þeim sem bera út
póst og blöð að hreinlega gera ekki
verkfall við hús slíkra trassa. Vil
ég endilega skora á þetta fólk að
gera það, það gæti orðið til um-
hugsunar. Flestir þó sljóir séu vilja
ekki missa af bréfum sínum og blöð-
um. Ég veit um eldri konu sem
datt illa um daginn í einum slíkum
tröppum sem vom orðnar ein íshella
af niðurtroðnum snjó, sem ekki
hafði verið hreyft við dögum sam-
an. Ég hef verið að hvetja þessa
konu til að höfða skaðabótamál á
húseigendur. Svo má sjá í mörgum
sambýlishúsum hlægilega verka-
skiptingu, þar sem helmingur
trappanna er vel mokaður en hinn
eins og hlíðar Alpanna.
Að lokum væri gaman ef einhver
kannast við hendinguna sem tilfærð
er hér í upphafí og kynni hana alla.
Anna Árnadóttir
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um
hvaðeina, sem hugnr þeirra stendur til — eða hringja milli
kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því
ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábend-
ingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð,
en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fýlgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvi til lesenda
blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut
ekki eftir liggja hér I dálkunum.
Ljósvakinn - góð
útvarpsstöð
R.S. hringdi:
„Oft er haft á orði að fíjálsu
útvarpsstöðvamar séu allar
eins en það er alls ekki rétt.
Ég hlusta mikið á Ljósvakann
og tel að þar sé komin fram
athyglisverð nýjung í útvarps-
rekstri. Ég hlusta mest á
kvöldin og tel músíkina vel
valda, ég tel það líka mikinn
kost að vera laus við mas í
þulum milli laga sem allt of
mikið er af á hinum útvarps-
stöðvunum. Vonandi heldur
Ljósvakinn áfram á sömu
braut."
Verðlaunapen-
ingur
Verðlaunapeningur fyrir
Kate kate kvenna á íþróttamóti
á Húsavík fannst fyrir nokkm.
Eigandi hans getur hringt í
síma 37706.
Skíðastafir
Fisher vaccum skíðastafir
vom teknir í misgripum í Blá-
fjöllum sunnudaginn 24.
janúar. Sá sem hefur þá undir
höndum er beðinn að hingja í
síma 666281.
Reiðhjól
Svart og hvítt Winter kven-
reiðhjól var tekið við Álfheima
í nóvember. Þeir sem orðið
hafa varir við hjólið em beðnir
að hringja í síma 33807 eftir
kl. 13.
Glæsileg karlmannaföt
dökkröndótt o.fl. litir.
Klassísk snið og snið fyrir yngri menn.
Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,-
Terylenebuxurkr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,-og
1.795,-teryl./ull/stretch.
Gallabuxur kr. 790,-, 850,- og 875,- sandþvegnar.
Andrés,
Skólavörðustíg 22a,
sími 18250.
Innilegustu þakkir fœri ég öllum vinum, vanda-
mönnum og samstarfsmönnum, er heiðruöu
mig á 75 ára afmœli mínu þann 21. janúar
sl. meÖ heimsóknum, gjöfum og heillaóskum.
GuÖ blessi ykkur öll.
Kjartan Guðnason,
Sjafnargötu 7.
SJÓNVARPS-
BINGÓ
Sjónvarpsbingó á Stöð 2
mánudagskvöldið 1. febrúar 1988.
Vinningar í fyrri umferð þegar spilað
var um eina lárétta línu.
Spilað var um 10 aukavinninga, hver
að verðmæti kr. 50.000,00., frá
HUÓMBÆ, TEGUND XZ1:
60, 53, 1 7, 87, 76, 1 3, 70, 20, 80,
22, 66, 74, 11,58, 1 0, 1 2, 62, 14, 3.
SPJALD NR. 20558.
Þegar talan 18 kom upp var HÆTT
að spila á aukavinningana.
Þegar spilað var um BÍLINN komu
eftirfarandi tölur upp.
Spilað var um þrjár láréttar línur,
(eitt spjald):
77, 48, 30, 55, 1 6, 2, 47, 31,15,
41,67,71,89.
SPJALDNR. 17116.
SÍMAR 673560 og 673561.