Morgunblaðið - 05.02.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988
Morgunblaðið/Bj ami
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra, James Webb flotamálaráðherra Bandarikjanna og Nicholas
Ruwe sendiherra Bandaríkjanna á íslandi eftir fund ráðherranna í forsætisráðuneytinu.
James Webb flotamálaráðherra í stuttri lieimsókn:
Rætt um varnarsamstarf
JAMES Webb flotamálaráðherra Bandaríkjanna átti i gær við-
ræður við Þorstein Pálsson forsætisráðherra og Steingrím
Hermannsson utanrikisráðherra í stuttri heimsókn hingað til
lands. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér starfsemi varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli.
Þorsteinn Pálsson sagði eftir
fund sinn með Webb að þeir hefðu
rætt um vamarsamstarf íslands
og Bandarfkjanna, um stöðu og
hlutverk vamarliðsins og vamar-
samvinnuna innan Atlantshafs-
bandalagsins, meðal annars
umsvif Sovétmanna á norður-
höfum. „Ég ræddi um það við
Webb að við íslendingar legðum
áherslu á að kjamorkuvopnum
flölgaði ekki í hafinu hér í kring-
um okkur um leið og þeim
fækkaði í Evrópu. Var ékki
ágreiningur á milli okkar um
það,“ sagði Þorsteinn.
Sjá frétt á bls. 24
O’Connor kardínáli
meðal erlendra gesta
við biskupsvígsluna
UM 70 erlendir gestir verða viðstaddir vigslu kaþólska biskupsins á
laugardag. Meðal þeirra verða John O’Connor kardináli í New York,
Lemaitre sendiherra páfa á Norðurlöndum, Virschuem biskup í
Helsinki, og Grand biskup í Noregi.
Búist er við að 20 til 30 erlendir prestur árið 1945, biskup árið 1979,
prestar víðs vegar að úr heiminum
verði viðstaddir vígsluna, sem hefst
klúkkan 10.30 á laugardag. John
O’Connor kardínáli kemur hingað
til lands á laugardagsmorgun og
áætlað er að hann fari samdægurs
af landi brott.
John O’Connor kardínáli er fædd-
ur árið 1920. Hann var vígður
erkibiskup í New York árið 1984
og varð kardínáli árið 1985. Hann
gerðist prestur í bandaríska flotan-
um árið 1952 og hlaut flotaforingja-
tign fyrir framgöngu sína í
Kyrrahafs- og Atlandshafsflota
Bandaríkjanna. Embætti kardínála
í New York er eitt hið valdamesta
í kaþólsku kirkjunni í Bandaríkjun-
um og raunar um allan heim.
Iðnaðarráðherra um viðskiptin við Sovétríkiii:
Kannað hvernig rétta
megi viðskiptahallann
— mætti fækka í sovéska sendiráðinu
Viðskiptaráðherra:
Frumvörp um fjármagns-
markaðinn á lokastigi
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sagði í utandagskrárumræðum á
Alþingi í gær að nú væri verið að ljúka smíði á frumvörpum um fjár-
magnsmarkaðinn utan bankanna. Tilgangur þeirra væri að tryggja
hagsmuni viðskiptavina og betri hagstjórn en ekki kæfa fjármagns-
markaðinn i fæðingu, sagði ráðherrann.
markaðurinn vissulega," sagði Jón
Sigurðsson, viðskiptaráðherra.
FRIÐRIK Sophusson iðnaðarráð-
herra sagði í fyrirspumartíma á
Alþingi í gær að verið væri að
safna upplýsingum til að kanna
hvernig mætti jafna halla á við-
skiptum við Sovétríkin. Auka
þyrfti útfiutning þangað eða
draga úr innflutningi. Með minnk-
andi viðskiptum taldi hann að
vart yrði annað séð en að fækka
mætti í starfsliði sendiráðs Sov-
étríkjanna bér á landi.
Iðnaðarráðherra sagðist hafa beð-
ið viðskiptaráðherra um að tína
saman upplýsingar um viðskipti ís-
lands og Sovétríkjanna í því skyni
að þær gætu skapað grundvöll fyrir
því að kannað verði hvort jafna
mætti þann „gífurlega halla" sem
nú væri á viðskiptum við Sovétríkin.
Það hlyti að vera augljóst verkefni
íslenskra stjómvalda að auka út-
flutning til Sovétríkjanna eða draga
saman innflutning þaðan og beina
þeim inn á þær brautir sem skapað
gætu viðskiptasambönd fyrir ís-
lenskan útflutning.
Ætla mætti að hinn mikli fjöldi
sovéskra starfsmanna í sendiráðinu
hér á landi væri skýrður með miklum
viðskiptum milli landanna, sagði iðn-
aðarráðherra. Með minnkandi
viðskiptum yrði vart annað séð en
að fækka mætti í starfsliði sendi-
ráðsins.
Viðskiptaráðherra sagði að á veg-
um ríkisstjómarinnar væri nú verið
að ljúka smíði á frumvörpum um
fjármagnsmarkaðinn utan bank-
anna. Þessi framvörp væra samin í
samræmi við stefnuyfirlýsingu
stjómarinnar og reyndar boðuð með
stefnuræðu forsætisráðherra. í þess-
um framvörpum væra ákvæði um
starfsemi verðbréfasjóða og fjár-
mögnunarfyrirtækja, um afborgun-
arviðskipti og greiðslukort.
Viðskiptaráðherra sagði að þessi
framvörp myndu fela í sér tiliögur
um að þessi nýju fyrirtæki hefðu í
fyrsta lagi lágmarksstofnfé, í öðra
lagi að krafist yrði nafnskráningar
allra þessara viðskipta, í þriðja lagi
að skattskylda þeirra yrði samræmd,
í fjórða lagi að áskilið yrði starfs-
leyfi, í fimmta lagi að reiknings- og
upplýsingaskylda til bankaeftirlits-
ins yrði skýrt áskilin, að í sjötta lagi
yrðu þessum fyrirtækjum settar
lausaflárkvaðir og í sjöunda lagi að
tryggt yrði að óháðar ákvarðanir
væra teknar um kaup og sölu verð-
bréfa þessara sjóða.
„Þessari löggjöf er ætlað að
tryggja hagsmuni viðskiptavinanna
og betri hagstjóm í landinu. En þessi
frumvörp era ekki til þess hugsuð
að kæfa í fæðingu nýjabram í okkar
atvinnulífi, því það er fjármagns-
Grennslast fyrír um danskt flutningaskip:
Fór frá land-
ínu í leyfísleysi
Erlend þátttaka á
fjármagnsmarkaðnum?
Róttækasta leiðin til bankasamkeppni,
segir ráðherra bankamála í þingræðu
„íslenzka bankakerfið er óhagkvæmt sem kemur fram i þvi að
vaxtamunur virðist almennt vera meiri hér á landi en i nágrannalönd-
um. Með minni afskiptum rikisins af rekstri banka og samruna banka
og sparisjóða i færri og öflugri lánastofnanir er von til þess að vaxta-
munur minnki,” sagði Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, i umræðum
á Alþingi í gær.
„Róttækasta leiðin til þess að
tryggja samkeppni í slíku banka-
kerfi og þar með aðhald að vaxta-
mun er að leyfa erlendum fjármála-
stofnunum starfsemi hér á landi í
gegnum umboðsskrifstofu eða með
þátttöku í íslenzkum hlutaflárbönk-
um, sagði Jón.
„Þetta er í raun eina skynsama
leiðin,“ sagði ráðherra, „til að gera
hvorttveggja í senn, bæta ávöxtun
sparifjár í bönkum og stuðla að
lækkun útlánsvaxta."
Sjá nánar á þingsiðu blaðsins i
dag.
DANSKA flutningskipið Katrine,
sem SOdarverksmiðjur ríkisins
höfðu leigt tíl að flytja loðnumjöl
frá Siglufirði, fór frá landinu i
gær áleiðis til Bretlands án þess
að taka farminn á Siglufirði og
án þess að tílkynna það tU toll-
gæslunnar eins og lög mæla fyrir
um. Hvorki skipstjóri né útgerð
hafa gefið skipamiðiaranum
skýringu á ferðum skipsins.
Danska skipið kom með bíla til
Keflavíkur og Hafnafjarðar í
síðustu viku en hreppti slæmt veður
á leiðinni til Siglufjarðar og lá í
Aðalvík frá því aðfaranótt laugar-
dags. Skipamiðlarinn hafði síðast
samband við skipið á miðvikudags-
morgun þar sem það lá í Aðalvík
en eftir það svaraði skipstjórinn
ekki kalli hans.
Var farið að óttast um skipið og
hafin eftirgrennslan. Það svaraði
ekki kalli, en sjómaður varð var við
það á suðurleið í fyrradag. Einnig
töldu menn sig hafa séð það út af
Gróttu í gærmorgun. Slysavamafé-
laginu tókst að lokum að komast í
samband við skipið síðdegis í gær
með telexskeyti í gegn um Dan-
mörku. Tilkynnti Katarina sig þá
30 sjómflur vestur af Vestmanna-
eyjum, eða undan Stokkseyri, á leið
til Bretlands, og neitaði að snúa við.
Spurt og
svaraðum
skattaog
nýju hús-
næðislánin
MORGUNBLAÐIÐ mun á
næstunni gefa lesendum
sinum kost á að fá svarað á
síðum blaðsins spumingum
um nýju húsnæðislánin. Jafn-
framt mun blaðið að veqju
aðstoða fólk við gerð skatt-
framtala með því að leita
svara við spumingum þess um
það efni.
Lesendur geta hringt í síma
Morgunblaðsins, 691100, milli
klukkan 10 og 12 á morgnana
og spurt um umsjónarmann við-
komandi þátta. Hann tekur
spumingarnar niður og kemur
þeim til embættis ríkisskatt-
stjóra og Húsnæðisstofnunar
ríkisins. Svör við spumingunum
birtast síðan í blaðinu.
í dag
JBorflunblnbiti
JRorönnblnbit)
Aldur&
bameign