Morgunblaðið - 05.02.1988, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988
21
Hótel Saga borgar bílinn
Hótel Saga býður nú
hótelgestum, sem koma
utan af landi, ókeypis
akstur með leigubíl til og
frá afgreiðslu innan-
landsflugs Flugleiða og
Arnarflugs og afgreiðslu
BSÍ i Umferðarmiðstöð-
inni. j
Samkomulag var nýlega
undirritað milli Hótel Sögu
og bifreiðastöðvarinnar
Hreyfils, sem annast þenn-
an akstur. Hótelgestir, sem
koma utan af landi, geta
því tekið leigubíl frá Hreyfli,
á kostnað hótelsins og gild-
ir það jafnt um komu sem
brottför. Samkomulagið
gildir til sumars.
Konráð Guðmundsson, hótelstjóri, og Einar Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Hreyfils, undirrita samstarfssamning um þjónustu við
hótelgesti.
Lögreglumenn í Kópavogi óánægðir
með skipan aðstoðaryfirlögregluþjóns:
Telja gengið framhjá hæfum
umsækjendum innan liðsins
MIKIL óánægja er nú meðal lögreglumanna í Kópavogi vegna
skipunar í stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóns. Telja lögreglumennirn-
ir að gengið hafi verið framhjá þeim við ráðninguna, en starfsmaður
Rannsóknarlögreglu ríkisins hefur verið ráðinn í stöðuna. Þeir
hafa óskað eftir að Landssamband lögreglumanna láti þetta til sin
taka og hafa einnig lýst óánægju sinni og furðu í bréfi til dóms-
málaráðherra.
Jóhannes Viggósson, formaður
Lögreglufélags Kópavogs, sagðist
vilja taka það skýrt fram að lög-
reglumenn í Kópavogi hefðu ekkert
út á nýja aðstoðaryfirlögregluþjón-
inn að setja og umkvörtunum þeirra
væri ekki beint gegn honum. „Við
höfum hins vegar sent Landssam-
bandi lögreglumanna bréf, þar sem
segir að við teljum að gengið hafi
verið framhjá hæfum umsækjend-
um innan liðsins með því að skipa
í stöðuna eina umsækjandann sem
ekki er starfandi lögreglumaður í
Kópavogi," sagði Jóhannes. „Við
óskuðum eftir að Landssambandið
leiti svara við því hjá dómsmálaráð-
herra hvaða ástæður voru fyrir því
Þorbjörn Sigurðsson
Þorbjörn
Signrðsson
sjötugur
Á morgun, laugardag 6. febrú-
ar, er sjötugur Þorbjörn Sigurðs-
son á Höfn í Hornafirði. Hann
var þar umboðsmaður Flugfé-
lags Islands og síðan Flugleiða
til fjölda ára. Kona hans er frú
Ágústa Vignisdóttir. Sonur
þeirra, Vignir er nú umboðsmað-
ur Flugleiða þar í bænum.
að þessi ákveðni umsækjandi var
talinn hæfari en þeir sem voru starf-
andi innan liðsins."
Jóhannes sagði að lögreglumenn-
irnir hefðu einnig ritað dómsmála-
ráðherra bréf þar sem þeir lýstu
furðu sinni og megnri óánægju með
skipan í stöðu aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns. „Við teljum að starfsmenn
lögregluliðsins eigi siðferðilegan
rétt á því að ganga fyrir um þær
stöðuhækkanir sem bjóðast innan
liðsins," sagði hann. „Starfsreynsla
heimamanna hefur verið sniðgeng-
in, svo og réttur okkar til að hljóta
sanngjaman frama og aukna
ábyrgð á starfssviði okkar. í rúmt
ár hefur reyndur lögreglumaður
sinnt þessu starfi og það hefði ver-
ið eðlilegast að hann fengi stöðuna.
Nú er hann hins vegar færður aftur
niður í stöðu varðstjóra," sagði Jó-
hannes Viggósson, formaður
Lögreglufélags Kópavogs.
Krístniboðsvíka í Hafn-
arfirði um helgina
Kristniboðsvika hefst í Hafn-
arfirði nú um helgina. Verða
samkomur haldnar í húsi
KFUM og K við Hverfisgötu
alla vikuna og fram á næsta
sunnudag. Þær hefjast kl. 20.30
og er öllum heimill aðgangur.
Það er Kristniboðsdeild KFUM
og K í Hafnarfirði sem stendur
fyrir samkomúvikunni. Kristni-
boðar. sem unnið hafa á vegum
Kristniboðssambandsins í Afríku
munu hafa á vegum Kristniboðs-
sambandsins í Afríku munu kynna
starfið í máli og myndum. Einnig
verða fluttar hugvekjur. Þá verður
mikið sungið og meðal þeirra sem
láta til sín heyra er blandaður kór
félaganna í Reykjavík. Tekið verð-
ur við gjöfum til starfsins.
Nú eru 35 ár síðan fyrstu
íslensku kristniboðahjónin fóru til
Eþíópíu. Þau hófu að byggja
kristniboðsstöðina í Konsó í suð-
urhluta landsins. Þar eru nú
margir söfnuðir, skólastarf og
stórt sjúkraskýli auk fleiri starfs-
þátta. Engir Islendingar eru við
kristniboðsstörf í Eþíópíu um
stundar sakir en ung hjón sem
eru hér heima í hvíldarleyfí gera
ráð fyrir að fara þangað aftur
síðar á þessu ári.
í Kenýu er vaxandi starf á vett-
vangi íslensku kristniboðanna
meðal Pókotmanna vestur undir
landamærum Úganda. Þar dvelj-
ast tvær íslenskar fjölskyldur.
Landsbúar taka þeim vel og eru
verkefnin óþijótandi.
Eins og fyrr segir hefjast sam-
komurnar í Hafnarfirði kl. 20.30
hvert kvöld. Á fyrstu samkomunni
sunnudaginn 7. febrúar verður
Kristniboðar í Afriku hafa jafn-
an lagt áherslu á hvers konar
líknarstarf enda heija þar
margvíslegir sjúkdómar. í
Konsó í Eþiópíu reistu islenskir
kristniboðar stórt sjúkraskýli.
Þangað leita tugir þúsunda á
ári hveiju. Myndin er frá
Afríku.
fluttur kristniboðsþáttur og sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson hefur
hugleiðingu. Inga Þóra Geirlaugs-
dóttir syngur einsöng. Allir eru
velkomnir á samkomur kristni-
boðsvikunnar.
(Fréttatilkynningf)