Morgunblaðið - 05.02.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988
25
Manuel Norieaga, einræðisherra Panania.
Bandaríkin:
Noriega ákærður fyr-
ir aðild að eiturlyfjasölu
Washington, Reuter.
TALIÐ ER að birt verði formleg' ákæra á hendur Manuel Noriega,
einræðisherra Panama, í dag. Talsmenn bandaríska dómsmálaráðu-
neytisins neituðu að gefa upplýsingar um ákæruna, en sjónvarpsstöð
í Bandarikjunum greindi frá því að Noriega yrði kærður fyrir aðild
að eiturlyfjasölu.
í sjónvarpsstöðinni var sagt að
um ellefu menn jrðu ákærðir auk
Noriegas, þar á meðal embættismað-
ur frá Panama, Bandaríkjamenn og
Kolombíumenn. Noriega, sem er
yfirmaður herráðs Panama og í raun
einræðisherra landsins, hefur vísað
þeim ásökunum á bug að hann sé
sekur um vopnasölu og hefur sagt
að ákærumar á hendur sér séu liður
í viðleitni bandarískra embættis-
manna til að bola sér frá völdum.
Fyrrum ráðgjafí Noriega, Jose
Blandon, sagði kviðdóminum í Miami
að kolombískir eiturlyfjasalar, sem
væru eftirlýstir vegna morðsins á
yfirmanni dómsmálaráðuneytisins í
Kolombíu árið 1984, hefðu greitt
Noriega sjö milljónir dala til að fá
flugvöll og öruggt athvarf í Pa-
nama, að því er fram kom í annarri
sjónvarpsstöð. Blandon, sem var rek-
inn sem aðalræðismaður Kolombíu
í New York, er nú undir lögreglu-
vemd í Bandaríkjunum.
Morgunblaðið/RAX
James Webb, flotamálaráðherra Bandaríkjanna, og Steingrímur
Hermannsson utanríkisráðherra svara spurningum blaðamanna í
Ráðherrabústaðnum í gær.
setning herafla Bandaríkjanna víða
um heim yrði tekin til endurskoðun-
ar í samræmi við vígvæðingu
Sovétmanna einkum á Kyrrahafi og
í Asíu. Kvaðst hann jafnframt hafa
hvatt til þess að framlög einstakra
aðildarríkja til hinna sameiginlegu
vama yrðu tekin til athugunar. Ja-
mes Webb benti hann á að framlög
til vamarmála hefðu verið skorin
niður í Bandaríkjunum vegna fjár-
lagahallans þar í landi. Hins vegar
hefðu ríki Vestur-Evrópu og Japan
notið efnahagslegrar hagsældar um
langa hríð og því hefði hann í ljósi
þessa lagt til að framlög þessara
ríkja til vamarmála yrðu tekin til
endurskoðunar sem og staðsetning
herafla Bandaríkjamanna víða um
heim. Sagði hann að Bandaríkja-
menn þyrftu skuldbindinga sinna
vegna að leggja mat á þá ógn sem
stafaði af herafla Sovétmanna um
heim allan en því væri ekki unnt að
horfa sérstaklega til Evrópu í þessu
samhengi.
Á blaðamannafundinum, sem
Steingrímur Hermannsson utanrík-
isráðherra sat einnig, var greint frá
því að viðræður Webbs við íslenska
ráðamenn hefðu einkum snúist um
vamarsamstarf íslendinga og
Bandaríkjamanna. Fram kom að
minnst hefði verið á ágreining
ríkjanna vegna hvalveiða íslendinga
og sagði Webb að Bandaríkjamenn
litu á hvalveiðar og vamarsamvinnu
sem tvö öldungis aðskilin mál.
Steingrímur Hermannsson tók undir
þetta og bætti við að mál þessi væm
aðeins tengd að því leyti sem deilur
um hvalveiðar hefðu áhrif á almenn-
ingsálitið eins og fram hefði komið
í skoðanakönnunum hér á landi.
Iðnaðarráðherra Finnlands:
Norðurlöndin ræði
viðskipti við EB-ríki
Helsinki. Reuter.
Iðnaðarráðherra Finnlands,
Ilkka Suóminen, lagði til í ræðu
á verkfræðingaþingi í Helsinki i
gær að Norðurlöndin settu á fót
nefnd til að ræða viðskiptatengsl
við önnur Evrópuríki.
Suominen sagði að slík umræðu-
nefnd gæti eflt viðskipti Norðurland-
anna við önnur Evrópuríki en
fjárframlög til hennar yrðu fijáls.
Finnar sem eru í Fríverslunar-
bandalagi Evrópu (EFTA) eins og
íslendingar hafa áhyggjur af því að
vaxandi innbyrðis viðskipti Evrópu-
bandalagsríkja muni loka mörkuðum
fyrir ríkjum sem standa utan banda-
lagsins. Hann sagði ennfremur að .
nefndin gæti verið fulltrúi aðilja úr
stjómmálum, rannsóknastarfsemi,
verkalýðssamtökum og viðskiptalíf-
inu. Ef viðbrögð við hugmyndinni
yrðu jákvæð þá sagðist Suominen
reiðubúinn að vinna að nánari út-
færslu hugmyndarinnar.
kaffi&Stf
&,<£M
IBÍP
ö\uno\
úts
^sssssss-**'“
VSi&iSt&Z?
—s&ftera-
petta tee*ó.va*ram h\a s b-6a.
bÓKahaö et'eKK' ett'anetu aöe"13
OQP30 eL tvttanoa e[“
VisA
Siro'