Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988 37 Aslaug Guðjóns- dóttir - Minning Fædd 15. september 1903 Dáin 29. janúar 1988 Amma á Snorró eins og við krakkamir kölluðum hana því lengst af bjó hún á Snorrabraut 34. Það var því sjaldnast farið í bæinn öðruvísi en að koma við hjá ömmu en þangað var alltaf gott að koma, amma var mjög jákvæð og hress og naut lífsins þó ekki hafi það allt- af verið dans á rósum, hún var aðeins 36 ára þegar hún varð ekkja með þijár litlar dætur og nýbúin að festa kaup á íbúð en amma var dugnaðarforkur og tóks að halda íbúðinni. Hennar stolt var að bjarga sér og sínum og skulda engum neitt. Sem bam minnist ég jólanna að amma var svo spennt að gefa okkur bamabömunum gjafimar að vart mátti á milli sjá hvort hún eða við vorum spenntari. Amma var mjög heilsuhraut og vann úti til 72 ára aldurs, lengst hjá Nóa Síríus. En fyrir þremur ámm veiktist hún en náði sér furðu vel, en það var mjög erfitt að vita hvemig henni leið þvf það var ekki hennar að kvarta. Við áttum margar ánægjustundir nú síðast um jólin þegar allir dáð- ust að hvað hún leit vel út. Blessuð sé minning elskulegrar ömmu minnar, Áslaugar. Áslaug Sigurðardóttir Elsku langamma er dáin. Við munum alltaf minnast hennar, það var gott að fá að bíða hjá henni á Snorrabrautinni þegar mamma þurfti að skreppa í búðir, amma átti alltaf eitthvert góðgæti að stinga upp í okkur. Við munum sakna góðu sokkanna sem hún var alltaf að prjóna handa okkur. Við biðjum góðan Guð að geyma ömmu. Siggi, Andrea, Helga Björk. í dag, föstudag, verður til moldar borin frá Fríkirkjunni í Reykjavík sæmdarkonan Áslaug Guðjónsdótt- ir. Við. tengdasynirnir viljum minnast hennar með nokkrum orð- um. Áslaug var fædd og uppalin á Isafirði og voru foreldrar hennar hjónin Sigríður Halldórsdóttir og Guðjón Magnússon. Þau Sigríður og Guðjón áttu tólf böm og komust tíu þeirra til fullorðinsára. Af þeim systrum eru nú aðeins á lífi systum- ar Þórdís og Anna. Svo sem títt var í þá daga um ungar stúlkur, fór Áslaug til Reykjavíkur. Þar hitti hún ungan verslunarmann, Andrés Einarsson og er ekki að orðlengja það að 11. október 1930 gengu þau í hjóna- band. Andrés fæddist 17. janúar 1904 og voru foreldrar hans hjónin Jó- hanna Magnúsdóttir og Einar G. Einarsson. Andrés vann til margra ára í versluninni Vísi á Laugavegi 1 og trúlega muna gamlir Reyk- vfkingar eftir hinum unga og lipra verslunarmanni þar. Áslaug og Andrés eignuðust þijár dætur, Öldu, Jóhönnu og Sigríði. Vorið 1940 veiktist Andrés, þá aðeins þijátíu og fimm ára að aldri, og tíunda janúar 1941 lést hann. Þá stendur ekkjan unga uppi með þijár ungar dætur og að auki ný- keypta íbúð á Laugavegi 85, 'alla í skuld og engin lán að fá. Þá sýndi Áslaug hvað í henni bjó og ekki hvarflaði að henni að gefast upp. Næstu árin vann hún nánast myrkranna á milli og til margra ára var hún t.d. í Sjálfstæðishúsinu gamla við Austurvöll öll kvöld. Áslaug vann úti allt til þess að hún var sjötíu og tveggja ára og seinustu sautján árin var hún hjá Nóa, Síríus og Hreini. Með þessari miklu vinnu og dugnaði tókst Áslaugu að koma dætrum sínum til þroska og einnig að halda íbúðinni. Nútíma fólk gerir sér varla grein fyrir því, hve þetta í rauninni var mikið átak fyrir einstæða útivinn- andi móður. Áslaug bjó á Laugaveginum allt fram til ársins 1952 er hún keypti íbúð á Snorrabraut 34. Þar bjó hún þar til fyrir einu ári að hún flutti til Jóhönnu dóttur sinnar, enda þá farin að finna fyrir lasleika. Áslaug var einstök mannkosta- kona, lífsglöð, sjálfstæð og mikil húsmóðir. Og meðan hún bjó á Snorrabraut- inni var það fastur íiður að koma við hjá ömmu á Snorró, þegar bamabömin vom á ferð í bænum. Það var mikill lærdómur í því að kynnast Áslaugu og þeim mann- kostum sem hún var búin, hún kvartaði aldrei og má segja að stundum fanrist okkur, sem næst henni stóðum, einum of mikið. En þrátt fyrir hörkuna við sjálfa sig var annað uppi á teriingnum gagnvart hennar nánustu. Það var mikil reisn yfir Áslaugu allt hennar líf og sama var þegar hún kvaddi þennan heim. Hún fór á spítala sl. föstudags- kvöld um kl. 10, klukkustund síðar var hún öll. Blessuð sé minning hennar. Tengdasynir Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. KÓPAVOGSBÚAR ! STÓRBÆTT ÞJÓNUSTA OPIÐ KL 08.00 - 20.00. MÁNUDAGA TIL LAUGARDAGA o — NÓATÚN Wmmá HAMRABORG TOYOTA Toyota bflasýning í Kópavogi Bflasýning á öflum tegundum Toyota verður nú um helgina í Toyotasalnum, Nýbýlavegi 8. Laugardaginn 6. febrúar kl. 10:00 til 17:00. Sunnudaginn 7. febrúar kl. 13:00 til 17:00. Bílarnir verða til sölu og afgreiðslu strax. Fjórhjóladrifinn Toyota Tercel verður einn sýningarbíla okkar. Hann er frábær í snjó, mmgóður, eyðslugrannur og ...laglegur. TOYOTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.