Morgunblaðið - 05.02.1988, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988
42
9r
fclk f
fréttum
SÖNGFÖR
Pavarotti í
Kína
Hetjutenórinn Luciano Pavar-
( _ otti ætti að vera kunnur
Islendingum og þá af góðu einu,
eftir eftirminnilega tónleika hans á
listahátíð fyrir nokkrum árum.
Hann er þó víðar vinsæll en á
Vesturlöndum og í næst viku verður
sýnd kvikmynd sem gerð var þegar
hann var á tónleikaför um Kína
1986. Þar gefur að líta gífurleg
fagnaðarlæti Kínveija í hvert sinn
er Luciano tók lagið, en hann sagði
einmitt fyrir skemmstu að kínversk-
ir áheyrendur fögnuðu líkt og
ítalskir áheyrendur gerðu fyrir 20
til 30 árum.
í myndinni er því einnig gerð
skil er Pavarotti sminkar sig hvítan
í framan og spreytir sig við óperu-
- söng að hætti Kínveija, en um það
sagði hann að það væri ógjömingur
að skilja þá tónlistarhefð, hán yrði
að vera meðfædd.
TÍSKA
Nýr
tískukóngur
Tískan virðist öllu fremur ein-
kennast af ófyrirséðum stökk-
breytingum en hægfara darvinískri
þróun og öðru hverju koma fram á
sjónarsviðið byltingarmenn sem
varpa fyrir róða viðteknum hug-
myndum um litasamsetningu og
fatagerð og sem skapa um leið
nýja tískulínu sem allir fylgja fljót-
lega. Einn slíkur er á ferð í París
þessa dagana, fatahönnuðurinn
Christian Lacroix.
Lacroix, sem er 37 ára, og kallað-
ur hefur verið hinn nýi konungur
tískunnar, opnaði tískuhús sitt fyrir
ári og þegar hefur hann skyggt á
flesta aðra sem hafa af því sitt lifí-
brauð að teikna flíkur sem dauðleg-
um fínnst oftar en ekki vera
afkáralegar. Fötin sem Lacroix
hannar einkennast af blöndu hans
af kímni, dirfsku og meðvituðum
þjófnaði á hugmyndum frá fortíð-
inni. Mesta hrifningu vekur þó
litaval hans og það hve hann heftir
næmt auga fyrir litasamsetningu
sem öðrum hefur ekki komið til
hugar að væri möguleg.
I síðustu viku kynnti hann vor-
og sumartísku sína fyrir 1988 og
hrifningunni sem hún vakti fylgdi
straumur pantana. Sem stendur
virðist því helsta hættan sem stafar
af velgengni Lacroix og tískuhúss
hans vera sú að fyrirtækið anni
ekki hinni gífurlegu eftirspum sem
er eftir fötum sem hann hefur hann-
að, en það hlýtur þó að vera
ánægjulegra en að hafa ekki í sig
eða á. Ahugasömum má benda á
það að fötin hans eru ekki ætluð
öðrum en þeim sem eiga gnægð
íjár til að kaupa sér flíkur, enda
er meðalverð á einum kjól af ódýr-
ari gerð rúmir 4000 dollarar, um
150.000 íslenskar krónur.
DUKKUFIKN
924
Barbie dúkkur
frá Hawaii
Ollum er hollt að hafa eitthvað
fyrir staftii og
söfnunarárátta getur stytt
mörgum stundimar. Þó á öU slík
árátta einkar auðvelt að fara úr
böndum og Florence Delos
Santos-Lot frá Hawaii er kannski
gott dæmi um það.
Florence er á sextugsaldri og
hefur þá áráttu að safna dúkkum,
nánar tilgreint Barbie dúkkum.
Allt byijaði þetta með að dóttir
hennar flutti að heiman og lét
eftir sig 32 slíkar dúkkur sem hún
hafði viðað að sér fram á
gelgjuskeið. Florence sló eign
sinni á dúkkumar og hófst handa
við að fjölga í safninu. Hún lýsir
þvi að heitasta óskin sé að ná
1000 dúkku markinu, en í fórum
hennar em nú 924 Barbie dúkkur.
Það fylgir einnig sögunni að
Qögur böm hennar em flutt að
heiman og hún sé skilin við
eiginmann sinn en ekki er ljóst
hvort var orsök og hvort afleiðing.
COSPER
— Maðurinn minn getur farið hvert sem hann vill, bara
ef hann er í garðinum.
SIR CAP?
Weinberger sleginn til
riddara á Bretlandi
Talsmaður bresku krúnunnar
skýrði frá því á mánudag að
Caspar Weinberger, fyrmm varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, yrði
sleginni til heiðursriddara fyrir
framlag sitt til vamarsamstarfs
Bandaríkjanna og Bretlands. Wein-
berger gegndi stöðu vamarmála-
ráðherra í ríkisstjóm Reagans um
sex ára skeið og þótti ötull talsmað-
ur öryggis Vestur-Evrópu og
vamarsamstarfs vestrænna lýðræð-
isþjóða.
Weinberger verður sæmdur
stórrriddarakrossi af Bretadrottn-
ingu í enduðum febrúar, en sá
böggull fylgir skammrifi að hann
fær ekki að bera titilinn „Sir“, enda
Sir Cap.
er sú upphefð aðeins ætluð breskum
þegnum. Er því ljóst að aðdáendum
Weinbergers, hérlendis sem annars
staðar, gefst ekki færi á að kalla
kempuna „Sir Cap“ eins og þeim
hefði annars verið hvað mest og
ljúfast að skapi.