Morgunblaðið - 05.02.1988, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988
KARATE
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Skof landsmeistari þjálfar
karate hér á landi
Jim Martin (4. dan), sem meðal annars hefur orðið Skotlandsmeistari í kata, hefur verið hér á landi
með kennslu á vegum shotokan karatefélaganna. Hann dvelur hér í vikutíma og verður með æfíngar
tvisvar á dag. Þátttakendur eru um 70 frá Þórhamri, Gerplu og Breiðabliki.
Unglingameistaramótið í karate fer fram á laugardaginn kl. 14 í íþróttahúsi Hagaskólans. Búist er við
að keppendur verði um 100 frá 8 félögum og er þetta fjölmennasta karatemót sem fram hefur farið hér á landi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skoskur mslstarl í kata, Jim Martin, hefur verið með kennslu á vegum shotokan karatefélagnna. Hér glímir
Martin við Karl Gauta Hjaltason, formann Karatefélags íslands.
Asgeir er talinn
betri en Pfaff
Asgeir Sigurvinsson er nú talinn
næst besti útlendingurinn sem
leikur í v-þýsku knattspymunni.
Landsliðsmarkvörður Belgíu, Jean-
Marie Pfaff, sem ver mark Bayem
Munchen, er í þriðrja sæti, en í
fyrsta sæti er Norðmaðurinn Rune
Bratsth, sem hefur leikið mjög vel
með toppliðinu Werder Bremen.
Þessir leikmenn em allir í landsliðs-
gæðaflokki, en enginn útlendingur
er í heimsgæðsglokki að þessu
sinni. Þeir Ásgeir og Pfaff eru ekki
ókunnugir á listanum sem bestu
leikmenn - þeir hafa átt fast sæti
þar undanfarin ár og þá oft í heims-
gæðaflokki. Það er hið virta og
víðlesna knattspymutímarit „Kic-
ker“ sem flokkar leikmenn sem
leika í V-Þýskalandi - reglulega
niður.
Svíinn Robert Plytz, sem leikur með
Bayer Uerdingen og síðan kemur
Morten Olsen, fyrirliði danska
landsliðsins - leikmaður með Köln,
koma næstir á blaði.
Ásgelr Slgurvlnsson er nú talinn næst besti útlendingurinn sem leikur í
vestur-þýsku knattspymunni.
REYKJAVÍKURBORG / FJÁRHAGSÁÆTLUN
Reiknað með 203 milljónum
króna til íþróttamála á árinu
Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar munu lö mil\jónir renna til
framkvæmda við Laugardalslaug.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja-
víkurborgar kom til síðari
umræðu í gær og átti að af-
greiða hana inótt. í tillögum
meirihlutans var gert ráð fyrir
203 milljónum króna til
íþróttamála
Asama tíma og ríkisvaldið
sker niður framlög til
íþróttamála eykur Reykjavíkur-
borg þau. Framlög til íþróttafé-
laganna í borginni — rekstrar- og
framkvæmdastyrkir — hækka um
34-85% & milli ára,“ sagði Júlíus
Hafstein, borgarfulltrúi, í samtali
við Morgunblaðiö vegna fjár-
hagsáætlunarinnai-.
k>27 milljónir króna eru veittar
ti! svæðisbundu félaganna í borg-
inni, í geró valla, bað- og búnings-
aðsíöðu.
■ÍBP. fær 33 milljónir króna og
sú upphæð skiptist þannig að 16
milijónir fara í framkvæmdir og
22 í rekstur. Rekstursféð skiptist
aðallega niður í húsaleigu, ferða-
og kennslustyrki.
■3,5 milljónir króna eru áætlaðar
í rekstur félagavalla, en borgin
sér um undirbúning þeirra fýrir
sumarið og viðhald á keppnistíma-
bilinu.
■2,5 milljónir króna fara í Af-
reks- og styrktarsjóð Reykjavík-
urborgar.
■Ýmsir aðrir eru upp á
1.360.000 krónur.
„Þetta eru allt fjármunir sem
renna beint til félaganna. Mér er
til efs að nokkurt sveitarfélag
styrki íþróttahreyfínguna bétur
en Reykjavfk„“ sagði Júlíus.
Áður eru nefndar 27 milljónir
króna til félaganna, en þá var
ekki talið það fé sem fer í Sþrótta-
hús, skíðaaðstöðu eða félagsað-
stöðu. Að sögn Júlíusar er nú
verið að greiða upp framkvæmdar
á völlum á Valssvæði, ÍR er að
byggja grasvöll, unnið er aö böð-
um og búningsaðstaða á nýja
Víkingssvæðinu og verður byrjað
á þeim fljótlega. Þá er veriö að
endurskipuieggja Þróttarsvæðið
— verið að endurbæta grasvöll og
unnið verður áfram að því í sum-
ar. Þar verða einnig handbolta-
og blakveilir utanhúss, og stefnt
að því að svæðið verði fullklárað
1989, á 40 ára afmæli félagsins.
Júlíus nefndi einnig böð og bún-
ingsaðstöðu fyrir Leikni, sem
væri verið að ljúka við, einnig
væri verið að klára endurbygg-
ingu grasvalla Ármanns og
bygging grasvallar Fylkis væri
lokið.
■ÍBR leggur fram 16 milljónir
til framkvæmda, sem fyrr segir.
Sú upphæð fer til framkvæmda
við íþróttahús Vals, TBR-húsið,
skíðalyftur o. fl.
■50 milljónir fara til borgar-
mannvirkja á vegum fþróttaráðs
Reykjavíkur:
■7 milljónum verður veitt I ný
gufuböð í Sundlaug Vesturbæjar
og verður því verkefni lokið á
vordögum.
■ 10,5 milljónir fara í að loka
stúkunni við aðalvöllinn í Laug-
ardal. Hliðunum verður lokað,
bæði til að verja gólflöt Baldurs-
haga, íþrótthússins undir stú-
kunni, og til að bæta aðstöðu
stúkugesta.
■3,5 milljónir fara í endurbætur
á ftjálsíþróttavelli — hlaupabraut,
og atrennubrautum.
■3 milljónir eru áætlaar til byij-
unarframkvæmda við gufuböð í
Laugardalslaug.
■5 milljónir fara í frágang (kjall-
ara við Laugardalssundlaugina —
þar sem væntanlega verður æf-
ingaaðstaða fyrir Júdófélag
Reykjavíkur og Karatefélag
Reykjavikur, og einnig þrekæf-
inga aðstaða fyrir sundféiögin í
borginni.
■7 milljónir eiga að fara í að
koma vatnsrennibraut í Laugar-
dalslaugina.
■4,5 milljónir fara í að ljúka
byggingu áhorfendastúkunnar við
gervigrasvöllinn í Laugardal.
■8 milljónir fara í framkvæmdir
í Bláfjöllum.
■Þá iná geta þess að 81 milijón
króna fer í rekstur íþróttamann-
virkja borgarinnar, sundlauga,
Laugardalsvallar, Fólkvangs í
Bláfjöllum, skíða- og skautaað-
stöðu. Alls er því gert ráð fyrir
203 milljónum króna til íþrótta-
mála á árinu. Að auki má geta
þess reiknað er með 30 milljónum
króna á árinu í byggingu íþrótta-
húss við Fjölbrautarskólann í
Breiðholti, við hlið sundlaugarinn-
ar.