Morgunblaðið - 13.02.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1988
31
Forsetaframboð í Bandaríkjunum:
Haig hættir við
að bjóða sig fram
-lýsir yf ir stuðningi við Dole
Manchester f New Hampshire, Reuter.
ALEXANDER Haig', fyrrverandi
utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, tilkynnti i gær að hann
drægi sig í hlé í baráttunni fyrir
útnefningu Repúblikanaflokks-
ins til forsetaframboðs. Sagðist
hann styðja Robert Dole og sagði
hann bera höfuð og herðar yfir
George Bush, varaforseta.
„Ég tilkynni hérmeð að ég hef
dregið mig í hlé sem frambjóðandi
til forsetatilnefningar Repúblikana-
flokksins og lýsi yfir stuðningi
Ítalía:
Abu Nidal
dæmdur til
lífstíðar-
fangelsis
Rómaborg, Reuter.
ABU NIDAL, hryðjuverkamaður-
inn illræmdi, var i gær dæmdur
til lífstíðarfangelsis af ítölskum
dómstóli fyrir hryðjuverkaárás
flokks hans á Rómarflugvöll árið
1985. Dómurinn var kveðinn upp
að Nidal fjarstöddum, en i árá-
sinni létu 16 manns lifið og fjöldi
annarra særðist illa.
Rétturinn féllst ekki á kröfu sak-'
sóknara um lífstíðarfangelsi yfir hin-
um eina árásarmannanna, sem
komst lífs af úr árásinni, og dæmdi
hann til 30 'ára fangelsis. Maðurinn
heitir Ibrahim Mahmoud Khaled og
er 20 ára gamall, en alls voru árásar-
mennimir Qórir.
Auk Abu Nidals sjálfs var næst-
ráðandi hans, Rashid A1 Hamieda,
dæmdur til lífstíðarfangelsis að hon-
um fjarstöddum, en talið er sannað
að þeir félagar hafí skipulagt ódæðið.
Hryðjuverkið átti sér stað á Leon-
ardo da Vinci-flugvelli hinn 27. des-
ember 1985 og réðust hryðjuverka-
mennimir á afgreiðslur bandarísks
og ísraelsks flu^félags með vélbyssur
og handsprengjur að vopni.
mínum við þann frambjóðanda, sem
ég tel hæfastan til þess að leiða
þjóðina," sagði hershöfðinginn fyrr-
verandi á blaðamannafundi í gær —
aðeins fjómm dögum áður en for-
kosning fer fram í New Hampshire,
en hún er talin geta skipt sköpum
um gengi hinna ýmsu frambjóðenda
í öðmm ríkjum.
Haig, sem eitt sinn var yfírmaður
herafla Atlantshafsbandalagsins og
utanríkisráðherra um skeið í ríkis-
stjóm Ronalds Reagans, hvatti
stuðningsmenn sína til þess að snú-
ast á sveif með öldungadeildar-
þingmanninum Robert Dole.
Samkvæmt síðustu skoðana-
könnunum er Bush nokkm vinsælli
en Dole í New Hampshire, en þar
munar þó ekki miklu. Fréttaský-
rendur telja að í herbúðum Repú-
blikana kunni úrslitin um endanlega
tilnefningu flokksins að ráðast í
New Hampshire, en segja stöðuna
hjá demókrötum enn svo óljósa að
vonlaust sé að ráða í úrslitin á
þriðjudag, hver sem þau annars
verða. Líklegast er talið að Michael
Dukakis, ríkisstjóri nágrannaríkis-
ins Massachusetts, verði hlutskarp-
astur.
Haig viðurkenndi á blaðamanna-
fundinum að stuðningur sinn hefði
takmarkað gildi, en sagði að ef
stuðningsmenn sínir fæm að ráðum
hans, kynni það einmitt að valda
þeim gæfumuni, sem Dole þyrfti á
að halda.
Bandaríkin:
Reuter
Táningar skotnir á vesturbakkanum
Lík 14 ára pilts, sem israelskir
hermenn skutu á vesturbakk-
anum í gær, borið burt. Piltur-
inn er annar tveggja Palestínu-
manna, sem féllu þar í gær.
Fimm ungmenni særðust er
hermenn hófu skothríð á ungl-
inga, sem köstuðu gijóti, flösk-
um og eldsprengjum. Talsmað-
ur ísraelska hersins sagði að
hermennirnir hefðu skotið á
unglingana í nauðvöm i mið-
borg Nablus. Annar hinna látnu
var 17 ára gamall fjarskyldur
frændi utanríkisráðherra Jórd-
aníu. Tilkynnt var í Washington
í gær að Georg Shultz, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna,
myndi fara til Miðausturlanda
í lok mánaðarins til þess að
reyna að koma skrið á tilraunir
til að stuðla að friði í þessum
heimshluta.
Endurheimta frumkvæði í geimrannsókmim
Washington. Reuter.
STJÓRN Ronalds Reagans,
Bandaríkj aforseta, birti i gær
nýja stefnu sína á sviði geimvís-
inda. Tilgangur hennar er að
Bandaríkjamenn nái aftur frum-
kvæðinu í geimrannsóknum.
Hin nýja stefna stjómarinnar ger-
ir ráð fyrir aukinni þátttöku einka-
fyrirtækja í geimferðum og geim-
rannsóknum, sem verið hafa nær
eingöngu á hendi NASA, ríkisgeim-
vísindastofnunarinnar.
Samkvæmt þessu er NASA ætlað
að leigja rannsóknaraðstöðu um borð
í geimstöð, sem fyrirtækið Space
Industries í Houston hyggst koma á
braut um jörðu í síðasta lagi árið
1991. Þá fá einkafyrirtæki í fyrsta
sinn afnot af skotpöllum á Kanaver-
alhöfða og í Edwards-flugstöðinni.
Tilgangurinn með þvi að örva einka-
fyrirtæki til geimferða er að laða
aftur viðskiptavini, sem snúið hafa
sér til fransk-evrópsku stofnunar-
innar Ariane, og nú nýlega til Jap-
ans, Kína og Sovétríkjanna.
Að sögn James Fletcher, forstöðu-
manns NASA, gera markmið hinnar
nýju stefnu ráð fyrir því að banda-
rískir geimfarar lendi aftur á tungl-
inu og að þeir stigi á fjarlægari
hnetti upp úr aldamótum. Þá verður
fljótlega ráðist í smíði mannaðrar
geimstöðvar, sem áætlanir hafa ver—
ið um að smíða.
LAUNAMISRETTIÐILANDINU
Þórir
Stella
Ásmundur Friðrik
Þorsteinn Guðmundur Sigurður Grétar
Ólafía
KVQLDRADSTEFNA
IHOTEL SELFOSSI
MIÐVIKUDAGSKVOLDID
17.FEBRUARKL20.30
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi boðartil opins
fundar í Hótel Selfossi þar sem rætt
verður um launamisréttið í landinu.
Ræðumenn:
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Stefánsson, forseti
Alþýðusambands íslands.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannasambands ís-
lands.
Friðrik Sóphusson, iðnaöarráðherra
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins.
Stella Steinþórsdóttir, verkamaður,
Ólafía M. Guðmundsdóttir, Ijósmóð-
ir, Selfossi
Þórir N. Kjartansson, framkvæmda-
stjóri, Vík í Mýrdal.
Geir Grétar Pétursson, verkamaður,
Þorlákshöfn.
Sigurður Óskarsson, forseti Alþýðu-
sambands Suðurlands.
Að loknum framsöguræðum verða
umræður og fyrirspurnir, en á fund-
inum geta menn skráð sig í vinnu-
hóp, sem mun fjalla um efni
fundarins á næstu vikum.
Fundarstjóri verður Árni Johnsen,
formaður kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurlands kjördæmi.
ritari Verkalýðsfélags Norðfjarðar.
Kjördæmisráð Sjáifstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi