Morgunblaðið - 19.02.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988
35
Jómfrúræða Jóns Sæmundar Sigurj ónssonar:
Sovéskum fuUvirðisrétti
deilt niður á trilluhorn
HÉR fer á eftir jómfrúræða Jóna Sæmundar Sigurjónssonar (A/Nv)
sem flutt var í umræðum um kvótamál 28. desember sl.: Herra
forseti. Mér er það mikill heiður að í fyrsta skipti sem ég tek til máls
á hinu háa Alþingi skuli ég tala í sambandi við málefni sjómanna.
íslenskur sjávarútvegur er undirstaðan að okkar efnahagslífi. Sjó-
mennirnir eru driffjöðrin þar sem án þeirra verður ekkert og er
ekkert. Þegar við erum að ræða um stjóm fiskveiðistefnu, fiskveiði-
mála, verðum við að vanda vel til. Við verðum að gera vel við þessa
Ekki í anda starfsáætlunar
ríkisstjórnarinnar
Ríkjandi kvótakerfi hefur iengi
verið undirorpið mikilli gagnrýni í
mínum flokki, Alþfl., þannig að
þegar við alþýðuflokksmenn geng-
um til kosninga á sl. vori vorum
við með stefnu sem gekk nokkum
veginn þvert á ríkjandi lög, kvóta
í sjávarútvegi, allt öðm vísi að upp-
byggingu og anda. í stómm drátt-
um vildúm við að í sjávarútvegi
kæmi á stjómkerfi sem lagaði sig
að frjálsum fiskverðsákvörðunum.
Stefnt yrði að sveigjanlegri beitingu
veiðileyfa með veiðiréttindum sem
komi í hlut útgerðar en ekki á hvert
skip, þannig að aflamönnum sé
gert kleift að njóta sín og byggðar-
lögum sé tryggð öflun hráefnis bet-
ur en nú er gert. Við hugsuðum
að sveigjanlegt veiðileyfakerfi af
þessu tagi skapaði svigrúm fyrir
eðlilega endumýjun fiskiskipaflot-
ans.
Við lögðum sem sagt áherslu á
þrennt. Við vildum losa kvóta frá
skipi, við vildum leggja áherslu á
byggðaatriðið og við vildum leggja
áherslu á að eðlileg endumýjun
fiskiskipaflotans ætti sér stað.
Þetta vom einnig atriði sem
fundu sér stað í starfsáætlun ríkis-
stjómarinnar. í kaflanum um sjáv-
arútveg segir að skipa skuli nefnd
sem m.a. skyldi taka afstöðu til
eftirfarandi atriða, með leyfi for-
seta:
„Hvemig og hverjum veiðiheim-
ildir skuii veittar. M.a. verði athug-
að hvort veiðiheimildir verði ein-
vörðungu bundnar við skip.
Hvemig taka megi meira tillit til
byggðasjónarmiða við mótun fisk-
veiðistefnu, auka athafnafrelsi og
svigrúm til endumýjunar í sjávarút-
vegi, hvers konar reglur skuli setja
um færslu veiðiheimilda milli aðila
og hve lengi meginreglur um stjom
fiskveiða skuli gilda.“
Bæði þessi plögg, starfsáætlun
ríkisstjómarinnar og stefnumál
Alþfl., em ekki í anda ríkjandi laga
um kvóta og þau em ekki í anda
þess frv. sem hér hefur verið lagt
fram um væntanlegt fyrirkomulag
í stjom fiskveiða.
Mikil gagnrýni
Helstu gagnrýnisatriði á ríkjandi
kerfi em e.t.v. þessi:
Kerfið er staðnað og miðstýrt og
minnir á sovéskt framleiðslukerfí
þar sem kvaðir em settar á fram-
leiðslueiningamar, þar sem menn
stijúka ekki um frjálst höfuð, þar
sem frjálst framtak er steypt í
helsi. Einnig er kvótinn í þessu
kerfí bundinn við skip. Byggðasjón-
armiðið fær ekki að njóta sín. í
mínu byggðarlagi urðum við fyrir
því að allt í einu vom seldir tveir
togarar öllum að óvömm í byggðar-
laginu. Þetta dundi yfír eins og
reiðarslag. Kvótinn hvarf úr bæn-
um. Atvinnupláss hurfu úr bænum.
Og þó það væri einungis fyrir dugn-
að og atorku manna að kvótinn
minnkaði ekki, þá er það kerfi engu
að síður slæmt sem getur valdið
þessu.
Gagnrýnispunktur er einnig, að
öll framkvæmd á þessu kerfi er í
höndum ráðherra. I 21. grein í því
frv. sem hér er lagt fram em 25
málsgreinar þar sem segir: Sjávar-
útvegsráðherra skal ákveða með
reglugerð .. . Ráðherra er heimilt
aðp ákveða í reglugerð... í reglu-
gerð má ákveða ... Ráðherra getur
í reglugerð... Getur ráðherra
ákveðið ... Jafnframt getur ráð-
herra gefið kost á... 25 sinnum
kemur þetta fyrir í frv. sem er að-
eins 21 grein og þar af er ein heil
grein sem segir einungis: Ráðherra
skal setja nánarí reglur varðandi
framkvæmd þessara lagá — mitt í
milli 25 annarra setninga. Þó segir
í athugasemdum með þessu frv.,
með ieyfi forseta: „Raunar má segja
að óeðlilegt sé að sjávarútvegsráð-
herra axli einn ábyrgð á slíkum
ákvörðunum." Nú má vera að í
augnablikinu búum við við mjög
traustan sjútvrh., en við getum
ekki sniðið lög frá Alþingi í kringum
einn mann. Það getur ekki verið.
Það má segja í þriðja lagi að
ríkjandi kvótakerfi hafí valdið því
að stækkun flotans sé komin úr
böndum. Við þekkjum þá gagnrýni
sem beinst hefur að smábátamönn-
um og smábátaflotanum, um hversu
óeðlileg stækkun flotans hafí orðið.
A ráðstefnu um öryggismál sjó-
manna, sem haldin var 18. septem-
ber á þessu hausti, segir í grein
eftir Steinar Viggósson skipatækni-
fræðing, með leyfi forseta, að
reyndar hafi verið alls konar ieiðir
til að finna út úr þessu kerfi. Reynt
hafi verið að koma upp reglu: Skip
á móti skipi. Ef keypt væri nýtt
skip skyldi annað tekið úr. Gallinn
væri bara sá að alltof mörg skip,
sem sett voru upp í ný, lentu á ein-
hvem hátt aftur inn í landið, þann-
ig að flotinn hélt áfram að stækka.
Það var reynt við 20 tonna reglu,
sem ekki reyndist vel. Síðan var
sett upp 33%-regla og um það seg-
ir Steinar Viggósson: „Hafi iyrri
reglugerðir haft slæm áhrif á mögu-
íeika manna til að endumýja skip
sín með nýjum fullkomnum skipum
þá var þessi hálfu verri. Á það sér-
staklega við um þá sem eiga minni
og meðalstóra báta.“
Veígamiklar umbætur
Gagnrýni á ríkjandi kvótakerfi
er því mikil og að því er mér virðist
á öllum veigamestu punktum kerf-
isins. Þó er ekkert svo með öllu illt
að ekki boði nokkuð gott. Nokkrar
breytingar hafa orðið á ríkjandi
kerfi sem vel em þess virði að eftir
sé tekið þannig að menn geti vel
við unað. T.d. hljóðar 3. málsgr. 5
gr. svo, með leyfi forseta:
„Geti skip, sem fengið hefur leyfí
með sóknarmarki, vegna óviðráðan-
legra atvika ekki nýtt sóknardaga
í fjóra mánuði samfellt eða iengur,
er heimilt að úthluta því botnfisk-
ieyfí með því aflamarki sem það
hefði fengið í upphafí árs hefði það
valið þann kost.“
Það hefði verið mjog gott ef þessi
regla hefði verið til þá þrír togarar
með sóknarmarki af flómm togur-
um í sama byggðarlagi í mínu kjör-
dæmi vom í lamasessi og varð fisk-
vinnslan að kaupa sér kvóta annars
staðar frá, kaupa sér kvóta, sem
aðrir höfðu fengið gefíns. Hin fyrir-
hugaða breyting á meiri sveigjan-
leika sýnir að kerfið stefnir í rétta
átt.
í 1. gr. þessa frv. segir að fiski-
stofnar á Islandsmiðum séu sam-
eign íslensku þjóðarinnar. Þetta er
e.t.v. gott veganesti fyrir þriðja
atriðið, sem er verulega til bóta,
Jón Sæmundur Siguijónsson
en það er ákvæði til bráðabirgða
þar sem segir að sjútvrh. skuli skipa
nefnd samkvæmt tilnefningu þing-
flokka og skuli sú neftid móta tillög-
ur um breytingar á þessum lögum
á gildistíma þeirra eftir því sem til-
efni verður til. Nefndin skuli m.a.
kanna áhrif laganna á afkomu og
hagkvæmní í sjávarútvegi og skyn-
samiega nýtingu fiskistofna. Þetta
atriði tel ég vera það mikilvægt að
það bjargi þessu máli, sem hér
stendur til atkvæða: Hvort við vilj-
um eða viljum ekki.
Alvarlegir ágallar
Einhvem tímann var hér frv. til
atkvæðagreiðslu, þar sem einn
stuðningsmaður ríkisstjómarinnar
kvað já við með semingi, e.t.v. not-
færi ég mér þennan seming þegar
ég segi já við þessu frv. og sam-
þykki það til laga. Ég held að þetta
ákvæði til bráðabirgða sé bað mikil-
vægt að við getum samþykkt frv.
Þó er eitt atriði í frv. sem ég get
alls ekki fellt mig við, eins og kom
fram hjá flokksbróður mfnum, Áma
Gunnarssyni, hér áðan, og þá á ég
við 10. gr. laganna. Hún er þess
eðlis, bæði eins og hún var i upphaf-
iegum drögum frv. og eins og hún
. kemur frá Ed., að ég get alis ekki
fellt mig við hana í þvf horfi sem
hún er í dag.
Menn hafa sagt að þessi ströngu
ákvæði varðandi báta undir 10 brl.
séu tilkomin vegna fjölgunar bát-
anna. Sérstaklega hefði orðið að
grí'pa til ráðstafana til að spoma
við þessari flölgun. Ég er sammála
því að fjölgunin hefur verið gífur-
leg. Það verður að stemma stigu
við þessu því að þróunin á þessu
sviði hefur, keyrt um þverbák. Það
er rétt. Hins vegar er ég þeirrar
skoðunar að hér sé skotið með fall-
byssum á spörfugla. Mér finnst
ráðstafanir það strangar, að þær
séu úr öllu lagi. Við verðum nefni-
lega að gera greinarmun á áhuga-
veiðimönnum, sem stunda veiðar
einungis hluta úr ári, og svo hinum,
sem em mun færri og era eiginlega
minnihlutahópur meðal trillukarla,
þ.e. þeim sem eiga sína afkomu
undir sjósókn á þessum litlu bátum
árið um kring.
í grg. Landssambands smábáta-
eigenda segir, með leyfí forseta:
„10. gr., í þeirri mynd sem hún
er, flækir veiðifyrirkomulag smá-
báta til mikilla muna. í núverandi
fyrirkomulagi er hópnum skipt í
tvennt:
í fyrsta lagi handfæra- og línu-
veiðar í banndagakerfí.
í öðra lagi netabátar með sóknar-
marki yfir hávertíðina.
En það sem nú er boðið upp á er
í fimm greinum:
1. Handfæra- og línubátar undir 6
brl., sem era í banndagakerfí.
2. Aðilar undir 6 brl., sem geta
fengið netaveiðileyfí eftir ákveðinni
uppskrift.
3. Veiðileyfí handa bátum yfir 6
brl., sem eingöngu stunda hand-
færa- og línuveiðar.
4. Veiðileyfi með aflahámarki
handa bátum yfir 6 brl., sem neta-
veiðar stunda og er þeim skipt í
6—8 brl. og 8—10 brl.
5. Sérstök reglugerð fyrir botnfisk-
veiðar báta sem stunda skel- og
rækjuveiðar.
Kerfið allt er gert miklu flókn-
ara.“
Frelsi fyrir trillukarla
Eins og áður sagði í starfsáætlun
núv. ríkisstjómar, þá er tekið fram
um sjávarútvegsmál, að sérstakt
tillit skuli tekið til byggðarsjónar-
miða og athafnafrelsis manna í
sjávarútvegi. 10. gr., sú sem hér
er fjallað um, gengur í þveröfuga
átt þegar athafnafrelsi manna er
skert með jafnveigamiklum hætti
og raun ber vitni. Öllum ætti að
vera ljóst, að því minni höft sem
lögð era á smábátana, þvi hagstæð-
ara verður það fyrir atvinnu og
lífsafkomu smæstu sjávarpláss-
anna. Enginn ætti að takmarka sjó-
sókn þessara fiskimanna nema höf-
uðskepnumar sjálfar. Og til þeirra
telst ekki hæstv. sjútvrh. Þessir
menn era sfðustu fulltrúar þessa
frelsis, sem einu sinni ríkti í útgerð
á íslandi. Við skulum varðveita
þessar leifar vel og ekki færa þessa
góðu menn í ónauðsynlega fjötra
kerfísins. Ég er sérstaklega á móti
því, að takmörk séu sett á sjósókn
trillukarla á meðan stundaðar era
önglaveiðar, þ.e. línu- og hand-
færaveiðar.
í grg. Landssambandsins segir
einnig, með lejrfi forseta, að gert
sé ráð fyrir að skipta hópnum í
tvennt. Annars vegar þeir, sem
geta fengið netaveiðileyfi og svo
þeir, sem ekki geta fengið þau.
Þeir síðamefndu era settir í
banndagakerfí með svipuðu sniði
og verið hefur sl. tvö ár. Þá er tal-
að um að flölga banndögum um 30%
á sama tíma og talað er um að
draga 10% úr þorskafla. Mér finnst
öðra máli gegna, þegar um þorsk-
fisknetaveiðar er að ræða, enda er
þar þegar um stórvirkari veiðiað-
ferð að ræða. Veiðarfærakostnaður
þeirra sem eiga allt sitt undir sjó-
sókn allt árið hlýtur að vera meiri.
Það skal bent á, að grásleppuvertíð
hefst undir vertíðarlok á vetrar-
vertíð við Vesturland, en grásleppu-
vertíð á Norður- og Austurlandi er
samtímis vorvertíðinni. Flestir ef
ekki allir þeir aðilar á Norður- og
Austurlandi eiga úthald á hvort
tveggja. En úthald þeirra til þorsk-
fisknetaveiða yrði með þessu gert
verðlaust og ónýtt. Þessir menn
hljóta að spyija hversu langt stjóm-
völd geti gengið 'i að gera eigur
þeirra verðlausar.
Lífvænlegt aflahámark^
Ef hins vegar er sett aflahámark
á þessa báta, þá á það ekki að
skipta máli hvemig þessum afla er
náð, hvort heldur er með netum eða
önglum. Ef aflahámark er hins veg-
ar einungis sett á þorskfískneta-
veiðar, þá hljóta ákvæði 4. mgr.
5. gr. einnig að gilda um báta und-
ir 10 brl., en þar segir, með leyfí
forseta:
„Ráðherra getur ákveðið að fisk-
ur undir ákveðinni stærð eða fískur
sem veiðist á línu skuli ekki aðeins
að hluta talinn með í aflamarki eða
sóknarmarki fiskiskips."
Mjög mikilvægt er og raunar
skiptir öllu máli að þeir sem hafa
sína aðalatvinnu af sjósókn á trillum
geti þá líka lifað af bvf. Alþingi
getur ekki sent frá sér lög þar sem
það er undir hælinn lagt eða háð
svokallaðri „nánari ákvörðun ráð-
herra" hveiju sinni hvert verður
væntanlegt aflamark hverrar trillu
fyrir sig. Það nær ekki nokkurri
átt að einungis hjá þessum hópi
sjómanna sé aflahámark miðað við
ósíægðan físk, eins og fram kemur
i framdrögum að reglugerð frá 11.
des. um veiðar smábáta árið 1988.
Þama verður að koma viðmiðun
sem er mælanleg í landi og menn
vita um hvað er að ræða og þar á
ég við þolanlega tölu af slægðum
fiski. Fram að þessu hefur verið
um 80 tonn að ræða, en út frá
þeim granni er hægt að tala um
afkomuöryggi trillukarla, sem
stunda sjómennsku sína af alvöra.
Setning aflahámarks til báta
undir 10 brl. verður að vera með
skýram hætti, þannig að vilji Aþing-
is komi ljóslega fram og þar með
sé tekin sú kvöð af hæstv. ráðherra
að deila niður sovéskum fullvirðis-
rétti á hvert og eitt trilluhom f
iandinu. Ég mun bíða og sjá hvaða
ameðferð þes§i grein fær í sjútvn.
Nd. og áskil mér rétt til að flyfya'
brtt. við þessa grein, ef hún verður
ekki þannig að sómi verður af.
Gallerí Svart á hvítu
opnar í nýju húsnæði
GALLERÍ Svart á hvitu hefur frá stofnun, haustið 1986, verið til
húsa við Óðinstorg. Strax frá upphafi var ljóst að of þröngt var um
galleríið á þessum stað og þegar stærri salur stóð til boða við Laufás-
veg 17 var þegar ákveðið að flytja starfsemina um set. Galleríið opnar
í dag, föstudaginn 19. febrúar, kl. 20.
Nýja húsnæðið er á tveim hasðum,
á jarðhæð er rúmgóður sýningarsal-
ur og á efri hæð verður umboðssala
gallerísins í björtum og vistlegum
húsakynnum. Ætlunin er að leggja
meiri áherslu á þátt umboðssölunnar
í starfsemi gallerísins framvegis.
Listamenn sem hafa verk í umboðs-
sölu gallerísins era: Gunnar Öm,
Sigurður Guðmundsson, Jón Óskar,
Sigurður Örlygsson, Björg Örvar,
Erla Þórarinsdóttir, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Hulda Hákon, Bryn-
hildur Þorgeirsdóttir, Georg Guðni,
Stefán Axel, Edda Jónsdóttir, Halld-
ór Ásgeirsson, Halldór Bjöm Run-
ólfsson, Borghildur Óskarsdóttir,
Guðmundur Thoroddsen, Eggert
Pétursson, Margrét Á. Auðuns, Kees
Visser, Tumi Magnússon, Krist-
bergur Pétursson, Björg Þorsteins-
dóttir, Grétar Reynisson, Sveinn
Bjömsson, Sigurður Þórir, Guðrún
Kristjánsdóttir, Ómar Stefánsson,
Karl Kvaran, Jón Axel, Tolli, Guðrún
Tryggvadóttir, Kristinn Guðbrandur
Harðarson og Pieter Holstein.
Sýningarhald verður með svipuðu
sniði og var við Óðinstorg — meginá-
hersla verður áfram iögð á að sýna
það besta sem er að gerast S Sslenskri
myndlist á hveijum tíma og kynna
erlenda listamenn efir því sem kost-
ur gefst.
Fyrsta sýning í nýja salnum að
Laufásvegi verður á verkum Ólafs
Lárassonar. Þá tekur við sýning á
verkum Rönku (Ragnheiðar Hrafn-
kelsdóttur). .
Af öðram listamönnum sem fyrír-
hugað er að sýna á næstunni má
nefna Karl Kvaran, Saskja de Viijed-
endt (Hollandi), Jón Óskar, Boang
Kyu Im (S-Kóreu), Jón Óskar, Stef-
án Axel, Brynhildi Þorgeirsdóttur,
Jón Axel o.fl.
Gallerí Svart á hvítu er opið alla
daga nema mánudaga frá kl. 12—18.
(Fréttatilkynning)""