Morgunblaðið - 19.02.1988, Side 58
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1988
QQQ Vetrarólympíuleikarnir í Calgary 1988
StefflWalter
varði titilinn
„STEFFI er stórkostleg og hún
á sigurinn skilió,u sagði Bonny
Warner, Bandarfkjunum, sem
varð í sjötta sœti f sleðakeppni
kvenna f gærkvöldi. Steffi Wait-
er sigraði og varð þar með sú
fyrsta, sem ver ólympíutftil í
sleðakeppninni.
En það var ekki eina metið, því
austur-þýskar stúlkur höfnuðu
í þremur fyretu sætunum eins og á
síðustu Ólympíuleikum, og slíkt
hefur ekki geret fyrr. „Við hefðum
allar getað sigrað, svo jafnar erum
við, en vegna ffestunarinnar var
þetta ef til vill spuming um taug-
amar,“ sagði sigurvegarinn, sem
var ekki valinn í austur-þýska hóp-
inn fyrr en eftir Evrópukeppnina í
janúar.
Walter, sem er nýbyijuð að keppa
eftir að hafa tekið sér áre frí vegna
bamsburðar, fór ferðimar Qórar á
samtals 3:3.973 mínútum. Evrópu-
meistarinn Ute Oberhofftier hafnaði
í öðru sæti og heimsmeistarinn
Ceretin Schmith fékk bronsið.
Úrsllt f slaAa-
keppni lcvenna
1. Steffi Walter, A-Þýskalandi,
(45.828/46.173/45.969/46.003) 3:03.973
2. Ute Oberhoffner, A-Þýskalandi,
(45.906/46.057/46.150/45.992) 3:04.105
3. Cerstin Schmidt, A-Þýskalandi,
(46.078/46.020/46.069/46.024) 3:04.11
i U/eronika Bilgerí, V-Þýskalandi,
t56.321/46.375/46.369/46.605) 3:05.670
5. Julia Antipova, Sovétrfkjunum,
(46.449/46.425/46.610/46.303) 3:05.787
6. Bonny Wamer, Bandaríkjunum, 3:06.056
7. Marie Claude Doyon, Kanada,... 3:06.211
8. Nadezhda DanUina, Sovétr.,...3:06.364
9. Cameron Myler, Bandar.,......3:06.835
10. Irína Kousakina, Sovétr.,...3:07.043
11. Eríca TerwiUegar, Bandar.,..3:07.291
12. Andrea Tagwerker, Austurr.,.. 3:07.501
13. Veronika Oberhuber, Italfu..3:07.516
14. Gerda Weissensteiner, ítalfu,... 3:07.665
16. Maria Rainer, ítalfu,....... 3:08.145
16. A. Abemathy, Jómfrúarcyjum, 3:09.237
17. Iivia Pelin, Rúmenfu,........3:09.651
18. Mina Tanaka, Japan..........3:11.242
19. Kathy Salmon, Kanada,.......3:11.707
20. Alyson Wrefoiid, Bretlandi,.3:13.730
21. Hitomi Koshimizu, Japan,....3:14.126
22. Laurence Bonici, Frakklandi,... 3:14.406
23. Simoneta Racheva, Búlgarfu,.. 3:14.857
2A. ^Bihuei Teng, Taiwan,........3:17.127
S«rgel Makarov i lausu lofti eftir að hafa skorað fyreta mark Sovétmanna gegn Bandarfkjamönnum.
Reuter
Reuter
Staffl Waltar á fleygiferð í braut-
inni í gær.
Reuter
Staffl djúpt hugsi áður en hún leggur
af stað í gær.
Fetissov hetja Sovétmanna
- er þeir sigruðu Bandaríkjamenn í íshokký í gær
SOVÉTMENN unnu Banda-
ríkjamenn 7:5 f æsispennandi
leik í b-riðli fsknattleikskeppn-
innar f fyrri nótt og eru þvf enn
ósigraðir eins og Vestur-Þjóð-
verjar, sem unnu Austurrfki
3:1. Viatcheslav Fetíssov, fyrir-
liði Sovótmanna, skoraði
tvfvegis og átti þrjár stoðsend-
ingar.
Fetissov gerði út um leikinn, er
tvær mínútur voru til leiksloka,
en áður höfðu Bandaríkjamenn sett
þijú mörk í röð og átt eitt stangar-
skot.
Leikurinn var hraður og skemmti-
legur og að loknum fyreta leikhluta
var Btaðan 2:0 fyrir Sovétmenn, en
þá höfðu Bandaríkjamenn farið illa
með tvö góð færi. f miðhlutanum
voru Sovétmenn mun ákveðnari og
skoruðu Qögur mörk, en Banda-
ríkjamenn tvö. Bandaríkjamenn
náðu að minnka muninn í eitt mark
í síðasta hlutanum, en Fetissov
gerði vonir þeirra að engu.
Austurríkismenn náðu óvænt for-
ystu gegn Vestur-þjóðveijum eftir
tæplega tvær mfnútur, en Gerd
Truntschka jafnaði skömmu síðar.
Vestur-íjóðveijar skoruðu síðan
tvívegjs í miðhlutanum, en síðasti
hlutinn var markalaus.
Tékkar hreinlega skautuðu yfir
Norðmenn, höfðu mikla yfirburði á
öllum sviðum og unnu 10:1.
Bojan Krizaj fötbrotnaði
Júgóslavinn Bojan Krizaj, hand-
hafi heimsmeistaratitilsins í
svigi, fótbrotnaði á miðvikudag-
inn. Hann var á æfingu í Calg-
ary, þar sem hann undirbjó sig
fyrir alpagreinakeppni Ólympíu-
leikanna f næstu viku.
Þetta eru sorgarfregnir fyrir
íslenaka skíðamenn, því til stóð
að Bojan kæmi hingað til lands
og keppti sem gestur á Landsmót-
inu sem fram fer á Akureyri f
byijun aprfl, hafði reyndar tekið
boði Akureyringanna vel.
Krizaj fór út úr æfíngabrautinni,
rakst á tré og sköflungur hægri
fótar brotnaöi.
Ennfrekari
frestanir I gær
KEPPNI f bruni kvenna á
vetrarólympíuleikunum f
Caigary f Kanada var
frestað f gœr vegna vinds,
en vindhraðinn á Aiian-
fjalii, þar aem keppnin á
að fara fram, mœldlst
mest 70 km á klukku-
stund. Mótshaldarar létu
samt keppnina hefjast, en
fyrsti keppandinn, Birgitte
Oertli frá Sviss, sleppti
hliði f byrjun og var greini-
' *<égt að vindur var of mikill.
Oertli var ekki dæmd úr leik
og fær því að byija á ný. Ef
aðstæður leyfa fer brun-
keppnin fram í dag. Ef ekki
verður keppt í tvíkeppnisbruni
eða tvíkeppnissvigi kvenna.
Pam Ann Fletcher, Banda-
rflqunum, var fyrst í rásröð-
inni í gær, en hún var flutt á
sjúkrahús klukkustund áður
en keppnin átti að htfyast eft-
ir að hafa fótbrotnaði. Starfs-
maður mótsins skiðaði á hana,
þar sem hún var að hita upp,
með fyrmefndum afleiðing-
um.
Sveitakeppni í stökki af 90 m
palli var einnig frestað, annan
daginn í röð, vegna vinds. Nú
hefur verið ákveðiö að keppn-
in verði næstkomandi mið-
vikudag.
HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNIN
Getum sigrað
þettaliðhér
- segir Hallur Hallsson, formaður
handknattleiksdeildarVíkings, um
viðureignina við ZSKA Moskvu
„VIÐ höfum oft náð góðum ár-
angri í Evrópukeppninni. Þaö
er allt annaö andrúmsloft í
hópnum f kringum þá leiki en
deildarieiki. Ég tala nú ekki um
ef Höllin er full af fólki — þá
er alltaf virkílegur hugur f
mönnum," sagði Siguröur
Gunnarsson, stórskytta úr
Vfkingi, á fundi með blaða-
mönnum, f tilefni viðureignar
fólagaina viö ZSKA Moskvu í
8-liða úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða á sunnudags-
kvöldið.
Leikurinn liðanna hefst kl. 20.30
og verður honum sjónvarpað í
heild í ríkissjónvarpinu. „Við teljum
það styrk fyrir okkur að leiknum
verði sjónvarp beint. Við tökum að
vísu nokkra áhættu með því en það
er mikill áhugi fyrir leiknum og
þetta er góð auglýsing fyrir félag-
ið,“ sagði Hallur Hallsson, formaður
handknattleiksdeildar Víkings.
„Möguleikar þeirra á sigri eru meiri
en við eigum engu að síður mögu-
leika. Við eigum að geta sigrað
þetta lið hér. Við förum inn á með
því hugarfari að vinna og fara
áfram. Það er styrkur Víkings í
gegnum árin að hugarfarið hefur
alltaf verið mjög gott — það er lyk-
illinn að velgengninni," sagði Hallur
ennfremur.
Sigurður Gunnarsson benti á að við
ramman reip yrði að draga á sunnu-
daginn. „Menn mega ekki horfa
fram hjá þvf að að ZSKA Moskva
er eitt besta lið sem hingað hefur
komið. En þeir eru þó ekki örugg-
ari en það að þeir þora ekki að
spila báða leikina hér. En ég lít svo
Sovéski risinn Valeri Savko ásamt Ingvari Viktorssyni, stjómarmanni i HSÍ
og nefndarmanni f U-18 ára landsliðsnefnd. Þjálfari sovéska piltalandsliðsins
tók þessa mynd á heimsmeistarakeppninni í Júgóslavfu í haust. Ingvar (sem er
til hægri!) er tæplega 1,80 m á hæð en virkar ekki stór við hliðina á Savko, enda
er sá sovéski 2,20 metrar. Hann verður í sviðsljósinu á fjölum Laugardalshallar
á sunnudagskvöldið.
á að hlutur áhorfenda verði jafn
stór okkar. Með þeirra aðstoð get-
um við unnið þetta sovéska lið,“
sagði Sigurður Gunnareson.
Foreala aðgöngumiða á leikinn
verður í Laugardalshöll á morgun,
laugardag, kl. 12.00-16.00 og á
sunnudag frá kl. 18.00.