Morgunblaðið - 15.03.1988, Page 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
KVIKMYNDIR
Úr
Djörfum
dansi
til Mars
Patrick Swayze lék
danskennara og
hjartaknúsara í myndinni
„Dirty Dancing" eða Djörf-
um dansi. Hann er nú
staddur í Astralíu þar sem
tökur myndarinnar „Total
Recall" eru nýhafnar.
Myndin er mjög í anda
vísindaskáldsagna og leik-
ur Swayze mann sem fer
til plánetunnar Mars árið
2040. Enn veit Fólk í frétt-
um lítið meira um mynd-
ina, sem frumsýnd verður
um næstu jól.
BRETLAND
Enn af hátignum
Ameðan erfingi bresku krún-
unnar lendir í lífsháska í
Sviss og hertogaynjan af York
sætir ámæli fyrir að renna sér
þunguð á skíðum, sinnir Anna
Bretaprinsessa skyldustörfum
við lítinn orðstír. Þessi eina dótt-
ir Elísabetar drottningar fellur
i skuggann af Karli, Díönu og
Fergie sem eru í skíðafrii i Sviss.
Eins og sagt hefur verið frá í
blaðinu slapp Karl Bretaprins
naumlega og einn maður lést í
snjóflóði skammt frá bænum
Klosters síðastliðinn fimmtudag.
Fólk í fréttum hyggst rétta
hlut Önnu og birtir í þvi skyni
mynd af henni við kynningarat-
höfn kandidata frá Lundúnahá-
skóla. Prinsessan er heiðursrekt-
or háskólans og voru þeir sem
útskrifuðust síðastliðið ár við-
staddir athöfnina í Royal Albert
Hall í vikunni sem leið. Árlega
Ijúka um 15.000 nemendur námi
við skólann.
Nokkrir sjöttubekkingar notuðu tækifærið til myndatöku fyrir
skólablaðið. Á innfeldu myndinni sjást slökkviliðsmenn en þeim
gekk erfiðlega að þagga niður í brunabjöllunni.
Brunabjöllu-
hrellingar í MR
MÖRGUM nemenda við
Menntaskólann í
Reykjavík varð heldur bilt við
í síðustu viku, er brunabjalla
skólans fór í gang. Þusti hluti
þeirra út úr skólastofunum og
beið komu slökkviliðsins sem
birtist skömmu síðar. Ekki
reyndist um eld að ræða heldur
hafði einn nemenda ýtt óvart á
rofann
Að sögn Jens Jenssonar gekk
slökkviiiðsmönnum erfíðlega að
þagga niður í bjöllunni þar sem
vír í henni slitnaði þegar átti að
slökkva á henni. Það hafðist þó
að endingu og voru nemendur
sendir aftur til kennslustofa sinna.
Þetta mun vera í annað skipti á
einu ári sem téð brunabjalla fer «
í gang. Tæmdist skólinn á
mettíma í fyrra skiptið.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Guðni Guðmundsson rektor
sagði nemendum að snúa til
kennslustofanna og halda
áfram námi eins og ekkert
hefði í skorist.
■