Morgunblaðið - 16.03.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
9
AlúÖarþakkir til þeirra, sem glöddu mig á átta-
tíu ára afmœlinu þann 6. mars sl. meÖ heim-
sóknum, blómum, heillaskeytum og gjöfum.
Guö blessi ykkur öll. ólafsson,
Akureyri.
T^^m//////®^^m//////////í!,
I
i
HERRAFRAKKAR
Vinsælu dönsku herrafrakkarnir
komnir, einnig með lausu ullarfóðri.
I
/////////i^^^m///////////m/A
GEISíPf
Greiðslukjör í sérflokki á bílum í eigu Heklu
15% út - eftirstöðvar í allt aö 18 mánuöi
VW QOLF QTI '88
Ek. 1.6 þ/km., 5 gfra, 3 dyra, 1800
cc. Vökva8tstýri. Steingrár.
VerÖ: 900 þúa.
VW QOLF GTI ’87
Ek. 26 þ/km., 5 gíra, 3 dyra, 1800
cc, Vökvast. Topplúga. Hvítur.
Verö: 700 þús.
VW QOLF QL ’88
Ek. 4 þ/km. 5 gíra, 3 dyra, 1600cc.
Vökvast. Blásans. VerA: 700 þús.
VW JETTA GL '87
Ek. 13 þ/km. Beinsk. 4ra dyra.
1600cc. Vökvast. Gullsans.
Verö: 030 þús.
MMC PAQERO ST '85
Ek. 55 þ/km. 5 gíra. 3ja dyra. Vökva-
stýri. Útvarp/segulb. Silfursans.
Verð: 780 þús.
AUDI lOO CP '83
Ek. 98 þ/km. 5 gfra. 4 dyra. 2200cc.
Vökvastýri. Steingrár. Verö: 800
Þ*«-
MAZDA 626 QLX '87
Ek. 21 þ/km. B gíra. 4 dyra. Vökva-
stýri. 2000cc. Hvítur. V.rð: SBO
ÞÚ».
MMC PAJERO ST '87 TURBO
VW JETTA CL '87
Ek. 28 þ/km. Beinskiptur. 4 dyra.
1600cc. Grænsans. V«rA: 080
|>ús.
MMC PAJERO ST '84 BENSÍN
Ek. 51 þ/km. 5 gíra. 3 dyra. Vökva-
stýri. Hvftur Verö: 820 þús.
MMC PAJERO SW '87
TURBO DIESEL
Ek. 3 þ/km. 6 gíra. 5 dyra. Vökva-
stýri. Dökkblár. Verö: 1.300 þús.
MMC GALAIMT QL ’86
Ek. 22 þ/km. 5 gfra. 4 dyra. 1600cc.
Vökvastýri. Grábrúnn. VerÖ: 480
t»ús.
DAIHATSU CHARADE CS
•88
Ek. 14 þ/km. Beinsk. 5 dyra.
Útv./segulb. Rauöur.
Verö: 420 þús.
BRAUTARHOLTI33 - SÍMI69 56 60
Kyrrstaða
í skoðana-
könnunum
Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, er
þessa dagana sjálfskipað-
ur skólastjóri í einhvers
konar bréfaskóla fyrir
ráðherra Alþýðuflokks-
ins, og þá fyrst og fremst
félagsmálaráðherra, Jó-
hönnu Sigurðardóttir.
Alþýðublaðið bregst
hið versta við þessu vel
meinta framtaki. Orðrétt
segir það í forystugrein
í gæn
„Bréf Ólafs Ragnars
er ekkert nema áróðurs-
bragð, tímasett og fram-
sett i ládeyðu sjónvarps-
miðlanna á sunnudegi.
Staðreynd málsins er sú,
að formanni Alþýðu-
bandalagsins hefur mis-
tekist hrapallega að auka
fylgi sitt frá þvi að hann
tók við völdum i flokkn-
um. Alþýðubandalagið er
kyrrstætt samkvæmt
skoðanakönnunum.
Ólafur Ragnar gerði
að öllum líkindum mikla
skyssu með þvi að snúa
sér að innri vandamálum
flokksins eftir formanns-
kosningu, í stað þess að
halda fundi um land allt
í þvi skyni að kynna sjálf-
an sig sem nýjan for-
mann og hina nýju stefnu
Alþýðubandalagsins.
Þess i stað kaus Ólafur
Ragnar að leggjast í Ind-
landsferðir. Það er hins
vegar Ijóst að formenn
íslenzkra stjómmála-
flokka auka ekki fylgi
sitt með þvi að leggjast
í Bjarmalandsferðir."
Ófijóar hug-
myndafræði-
legar útrásir
Alþýðublaðið hefur
meira að segja:
„Sigur Ólafs Ragnars
í formannsslagnum
byggðist mikið á þvi að
hann átti að vera hinn
mikli hreyfanleiki og
ferskleiki í Alþýðubanda-
laginu. Það hefur hins
vegar emi ekki komið i
ljós og það má spyija
hvað Olafur Ragnar hafi
Bréfaskóli Ólafs Ragnars Grímssonar
Ólafur RagnarGrímsson, formaður Alþýðubandalagsins, stendur
í bréfaskriftum til félagsmálaráðherra Alþýðuflokksins. Tilgang-
urinn virðist sá að ná athygli fjölmiðla; rjúfa þagnarmúrinn um
nýjan formann Alþýðubandalagsins; staðfesta að flokkurinn sé
enn með lífsmarki. Að efni til er bréf Ólafs Ragnars einhvers
konar forskrift að hegðan ráðherra, einkum og sér í lagi félags-
málaráðherra og fjármálaráðherra, í kjaraviðræðum. Staksteinar
staldra við viðbrögð Alþýðublaðsins sem koma fram í leiðara
þess í gær.
til að bera og hvað hann
hafí framkvæmt sem
Sigríður Stefánsdóttir
hefði ekki getað leild vel
eftir og meira til? Að vísu
hefur Ólafur Ragnar
reynt að pota eitthvað í
NATO-stefnu Alþýðu-
bandalagsins með þeim
afíeiðingum að flokks-
menn risu upp á aftur-
fæturna með þingflokks-
formanninn i broddi
fylkingar. Ólafur Ragnar
hefur reynt aðrar útrásir
en þær hafa bæði reynst
máttvana og ófijóar hug-
myndafræðilega séð.
Bréfíð til Jóhönnu er
ný, örvæntingarfull til-
raun til að marka stefnu,
til að láta bera á sér. Það
má að vísu segja að þama
rétti formaður Alþýðu-
bandalagsins krötum
höndina og ber að virða
það eftir að hafa stjómað
vanhugsuðum upphlaup-
um Alþýðubandalagsins
gegn kerfísbreytingum
Alþýðuflokksins sem
tryggt hafa ömggar
tekjuleiðir rikissjóðs til
uppbyggingar velferðar-
kerfisins. Þá réðist Ólaf-
ur gegn félagshyggjunni
og raunhæfum leiðum til
jöfnunar f þjóðfélaginu
og stóð meira sð segja
uppi á goskassa i Mikla-
garði til að beijast gegn
þvi að stoðum yrði rennt
undir velferðarríkið.
Þótt bréf Olafs Ragnars
tíl Jóhönnu sé auglýs-
ingaplagg er það þó und-
irritað með jafnaðar-
mannakveðju. Það er
spor í rétta átt.“
Matarskattar
og ferða-
kostnaður
Ólafur Ragnar
Grímsson er ekki aleinn
um efasemdir þegar
vinnulag og starfsað-
ferðir félagsmálaráð-
herra em annarsvegar.
Hann bregst snarlega við
vandamálinu, eins og
hans var von og vísa.
Bréfaskóli Ólafs Ragnar
fyrir ráðherra Alþýðu-
fíokksins er settur á
laggir og félagsmálaráð-
herra sldkkaður sérstak-
lega til endurhæfingar.
Raunar fær fjármála-
ráðherra Alþýðuflokks-
ins líka sina lexíu. Ólafur
Ragnar bendir honum
með indverskri háttvfsi á
farveg fyrir matar-
skatta, sem hlaðast upp
f fjárhirslum ríkisins. Þá
á sum sé að nýta til að
greiða ferðakostnað fyr-
ir samningamenn verka-
lýðsfélaga af lands-
byggðinni þegar þeir
halda til kjarasamninga
til Reykjavíkur. ítem fyr-
ir sáttasenyara ríkisins
og kompani — ef samn-
ingaviðræður verða
færðar heim í hémð.
Það er ekki amalegt
að hafa slíkan tillögu-
smið við hendina þegar
efnahagsvandi heillar
þjóðar er annarsvegar,
viðskiptahalli, verðbólga
og erlendar skuldir. Það
er misskHningur af Al-
þýðublaðinu að setja upp
yglibrún gagnvart
Bjarmalandsfara Al-
þýðubandalangsins og
hugsýnum hans uppljóm-
uðum, póstsendum f fé-
lagsmálaráðuneytið.
Nær væri blaðinu að hafa
væntingar um betri tíð
með blóm i haga, bjarta
langa sumardaga, að
minnsta kosti ef treysta
má þvi að pósturinn
hringi alltaf tvisvar!
SJÓÐSBRÉFVEB:
Nú 11,5-11,9% ávöxtun umfram verðbólgu.
□ Sjóðsbréf 1 eru fyrir þá sem eru að safna og ætla að nota
peningana ásamt vöxtum og verðbótum síðar.
□ Sjóðsbréf 2 em fyrir þá sem þurfa að lifa af vöxtunum en
þeir eru greiddir út í mars, júní, september og desember á ári
hverju.
□ Ávöxtun sjóðsbréfa 1 og 2 eru nú 11,5-11,9% umfram
verðbólgu sem jafngildir 39 - 40% ársvöxtum.
□ Síminn að Ármúla 7 er 68 15 30. Heiðdís, Ingibjörg,
Sigurður B., Vilborg og Þórólfur gefa allar nánari upplýsingar.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármula 7, 108 Reykjavik. Simi68 15 30 .