Morgunblaðið - 16.03.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
17
Svívirðileg aðför að fræðilegri þekk-
ingu og áratuga starfi vísindamanna
eftír Grím E.
Ólafsson og
Ólaf Sigurðsson
Guðni Gunnarsson, ritstjóri tíma-
ritsins Líkamsrækt og næring, fjall-
aði um „vísindaleg" málefni í grein
sinni í Morgunblaðinu um daginn
(25.2). J'éllu þar stór orð um niður-
stöður sem eiga sér enga stoð í
raunveruleikanum. Að öðru leyti
var vanþekking greinarhöfundar
mjög áberandi, en verst þótti mér
stærilætið.
Deyr maður ef maður
borðar fitu?
Guðni fárast mikið yfir því hversu
vel ríkisstjómin styrkir „sjúkdóms-
kerfið" m.þ.a. greiða niður dýrafit-
una. Það telur Guðni vera mjög
slæmt vegna þess að: „Lengi hefur
verið viðurkennt að dýrafíta, hvort
sem hún kemur úr mjólkurafurðum
eða af kjöti, inniheldur kólesteról
sem sannað er að veldur hjarta- og
æðasjúkdómum, svo ekki sé minnst
á offítu."
Það hefur aldrei tekist að sanna
beint samband milli kólesteróls-
neyslu eingöngu og tíðni hjarta- og
æðasjúkdóma. Það hefur aftur á
móti verið varað við því að fullyrða
um svo einhæf tengsl. Þetta er álit
færustu sérfræðinga í heimi í þess-
um málum. Læknar og rannsóknar-
menn hafa ætíð bent á að þetta sé
flókið mál sem ekki megi einfalda.
Taka verður tillit til arfgengni sjúk-
dómsins, reykinga, hreyfíngar,
streitu, offítu, aldurs og fæðu að
sjálfeögðu — auk fleiri þátta.
Hvað varðar offítuna, þá er ýmis-
legt sem getur valdið henni. Oft
hefur verið talað um ofát eða neyslu
umfram brennslu. Þá gildir einu
hvort borðað er of mikið af fítu,
kolvetnum, próteinum eða sykri.
Einnig hefur mikið verið rætt um
erfðir nýlega.
í raun getur sú falskenning að
kólesteról eitt og sér valdi hjarta-
dauða eða álíka orðið til þess að
fólk, sem hefur fulla þörf fyrir
næringarríka fæðu, verði fyrir nær-
Gervigreind
og aðgerða-
rannsóknir
PÁI.I. Jensson, prófessor í véla-
verkfræði, mun fjalla um gervi-
greind og aðgerðarannsóknir á
félagsfundi sem haldinn verður
fimmtudaginn 17. mars 1988 kl.
17.15 tii 19.00 í kaffistofu Raun-
vísindastofnunar Háskólans að
Dunhaga 3. Kaffi og meðlæti
verður á borðum frá kl. 16.45.
Gervigreind eða tölvuvit (Artific-
ial Intelligence) hefur á undanförn-
um árum verið í mjög örum vexti
og víða eins konar tískuorð. Ein af
hagnýtustu afurðum hennar eru
þekkingarkerfí (expert systems).
Stundum er þeim beitt á svipuð
viðfangsefni og aðgerðarannsókn-
um, þótt aðferðafræðin sé ólík.
Páll Jensson dvaldi vestan hafe
í rannsóknaleyfi síðastliðið haust
og kynnti sér nýjustu þróun í þess-
um fræðum. Hann mun m.a. fjalla
um tengsl og mögulega samnýtingu
gervigreindar og aðgerðarann-
sókna.
Pundurinn er öllum opinn.
(Fréttatilkynniníf)
u<niii*iUBIX
UÓSRITUNARVÉLAR
ingarskorti, m.þ.a. forðast áður-
nefndar matvörur.
Eitur í hverju horni
En áfram heldur Guðni: „Þá má
einnig nefna þá umræðu sem mjólk-
urafurðir hafa fengið útí heimi. Þá
á ég bæði við ókosti gerilsneyðing-
ar, sem hefur áhrif á allt lífrænt
ferli mjólkurinnar, og fituspreng-
ingu, sem er talin mynda niturbasa
(xanthine oxidase X-O), sem sér-
fræðingar telja að hafí ekki minna
að segja í sambandi við hjarta- og
æðasjúkdóma."
Hvemig væri að nefna þá um-
ræðu sem mjólkurafurðir hafa feng-
ið hér á íslandi?
_A alþjóðlegri ráðstefnu um
„Ahrif vinnslu á næringargildi mat-
væla“ sem haldin var á Hótel Sögu
í september 1987 var gerð fyrir-
spum um áðumefnt atriði og xant-
hin oxidasa. Þar var ráðstefnugest-
um tjáð að þetta væri ósannað en
þessu hefði verið haldið fram fyrir
um 20 árum. Einnig var greint frá
því að í blóðinu væri töluvert af
mótverkandi efni gegn xanthin
oxidasa (10% af IGG). Þessi kenn-
ing var sem sagt talin umdeild og
því er ekki von á banni við mjólkur-
drykkju í bráð.
Það er mesti misskilningur hjá
Guðna að xanthin oxidase sé nitur-
basi. Þetta er svonefnt flavoprótein
(lífhvati), sem m.a. breytir nitur-
basa í þvagsým sem við losum okk-
ur svo við í þvagi.
Ahrif gerilsneyðingar em hita-
áhrif. Þau verða helst á mjólkurpró-
teinin, þ.e. þau brotna niður að ein-
hverju leyti og verða því meltan-
legri. Vegna vægra hitunaráhrifa
gerilsneyðingar er óvíst að þetta
gerist að neinu marki. Þetta gæti
frekar átt við um niðursuðu mjólk-
ur.
Að sjálfsögðu er það heldur ekki
rétt að það sé ókostur að geril-
sneyða mjólk og hafa áhrif á allt
lífrænt ferli mjólkurinnar. Það verð-
ur að drepa alfa sjúkdómsvaldandi
gerla ef mjólkin á að fást í búðum
á annað borð og vera hæf til dreif-
ingar og neyslu. Það er því tví-
mælalaust kostur að gerÚsneyða
mjólk, við getum þá neytt hennar.
Að lokum
Ef þetta hefur átt að vera fræði-
legi gmnnurinn, sem gagnrýni á
ríkisstjómina byggist á,- í grein
Guðna er aðeins eitt hægt að segja
að lokum:
Ríkisstjómin getur setið skamm-
„Hvernig' væri að nefna
þá umræðu sem mjólk-
urafurðir hafa fengið
hér á íslandi? Á alþjóð-
legri ráðstefnu um
„ Ahrif vinnslu á nær-
ingargildi matvæla“,
sem haldin var á Hótel
Sögu í september 1987,
var gerð fyrirspurn um
áðurnefnt atriði og
xanthin oxidasa. Þar
var ráðstefnugestum
tjáð að þetta væri
ósannað en þessu hefði
verið haldið fram fyrir
um 20 árum.“
laust áfram, hvað sem Guðna Gunn-
arssyni líður.
Höfundar eru matvælafræðiagar.
FÉLAGAR { FÉLAGI ELDRIBORGARA
NJÓTIÐ ÆVIKVÖLDSINS
í ÖRUGGU OG GÓÐU UMHVERFI
(við Sólarlagsbrautina)
íbúðir í mismunandi stærðum og gerðum.
Allar íbúðimar henta fótluðum.
Þvottaaðstaða í hverri íbúð.
Svalir fylgja öllum íbúðunum.
Fullkomið eldhús í hverri íbúð.
Fullkomið öryggis- og eldvamakerfi er í íbúðunum.
Stór og fallegur garður er umhverfis húsið.
Fullbúin setustofa á hverri hæð.
Fullkomið sjónvarpskerfi - (tengt dyrasíma).
Húsvörður býr í húsinu.
Fyrirhuguð þjónusta:
Tannlæknir.
Sólbaðs-, nuddstofa og gufubað.
Snyrti- og hárgreiðslustofa.
Þvottahús og efnalaug.
Sölutum.
Til sölu Grandavegur 47.
Félagsmenn, sem hafa
skráð sig fyrir íbúðum
skulu hafa staðfest um-
sóknir sínar fyrir 1. apríl
nk.
FIjLVCí
ELDIU
BOIK JAR4
Leitið upplýsinga hjá Félagi eldri börgara í Reykjavík,
Borgartúni 31, símar 621477 og 20812.