Morgunblaðið - 16.03.1988, Síða 19
19
Friðrik Haraldsson
„Ferskustu dæmin um
lagalega nauðsyn þess,
að útlendingar haf i at-
vinnuleyfi handbært
við komu til landsins,
hyggist þeir starfa hér-
lendis, er erlenda
starfsfólkið í fisk-
vinnsiunni, pólska
áhöfnin á einu farskip-
anna okkar og dávaid-
urinn, sem ætlaði að
lækna með dáleiðslu.
Þetta er vafalaust það,
sem Einar Guðjohnsen
nefnir „einkarétt“
þann, sem leiðsögu-
menn krefjast."
Hverja er verið að útiloka?
Einar segir, að barátta okkar
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
fyrir því að landslög séu í heiðri
höfð stuðli að útilokun einhvers eða
einhverra hópa. Þetta er eitt þeirra
röklausu og heimskulegu slagorða,
sem gripið er til, þegar menn verða
blankir. Hingað mega og geta
komið allir, sem hirða um að fylgja
settum reglum. Hinir eru bezt
geymdir heima hjá sér.
Það eru engar nýjar fréttir, að
hingað komi gestir, bæði í hópum
og sem einstaklingar, sm vilja ferð-
ast um á eigin vegum. Vonandi
verður svo áfram og veri allir vel-
komnir. Hin hliðin á málinu er sú,
að fjöldi ferðaútgerða erlendis þyk-
ist hafa fundið lausn frá íslenskum
lögum á þessum vettvangi og það
með dyggri aðstoð örfárra hér-
lendra fyrirtækja sem byggja af-
komu 'sína á ferðaþjónustu eins og
hinir. Þetta kallast að éta útsæðið
sitt, svo að ekki sé meira sagt.
Menntun leiðsögnmanna
Bókvitið eitt gerir engan full-
færan til starfa og sumir verða
aldrei hæfir í því starfi, sem þeir
hafa menntað sig til. Leiðsögu-
menn þurfa að ljúka eins vetrar
ströngu grunnnámi, sem er upp-
hafið að stöðugri viðbótar- og end-
urmenntun. Nám þetta stunda þeir
í skóla Ferðamálaráðs, sem þar að
auki heldur endurmenntunamám-
skeið af og til. Félag leiðsögu-
manna heldur auk þess uppi öflugri
fræðslustarfsemi, sem er stunduð
af alúð og áhuga meðal þeirra, sem
vilja leggja sitt af mörkum til að
gera landið okkar aðlaðandi og
vinalegt á fleiri sviðum en náttúra
þess sjálfs býður upp á.
Samkvæmt ummælum þúsunda
gesta okkar er vandleitað að jafn-
góðri eða betri leiðsögu en á Is-
landi.
Hveijir eru leiðsögumenn
Þeir eru breiðfylking velmennt-
aðs fólks úr öllum þrepum þjóð-
félagsins og búa þar af leiðandi
yfir kunnáttu og þekkingu, sem
nægir til að sinna þeim verkefnum,
sem þeim eru falin hveiju sinni.
Hingað til hafa verkefnin verið
fleiri en virkir félagar eru margir
og m.a. þess vegna hefur verið til-
tölulega auðvelt fyrir útlendinga
að fá jákvæðar umsagnir stéttarfé-
lags leiðsögumanna vegna um-
sókna um atvinnuleyfi. Því má ljóst
vera, að styrinn stendur ekki um
útilokun útlendinga frá því að
starfa við hlið okkar, heldur um
það að fara eftir landslögum.
Frá eigin hjarta
Hvað varðar umfjöllun Einars
um persónulegar athafnir mínar,
bendi ég honum á að kynna sér
betur lög og reglur um dvalar- og
atvinnuleyfi í aðalviðkomulöndum
íslendinga, ef hann hefur lyst á,
en muna samt, að íslenzk lög gilda
á íslandi líkt og þýzk lög gilda í
Þýzkalandi.
Hvers vegna?
Það kemur spánskt fyrir sjónir,
að talsmenn þessara örfáu fyrir-
tækja, sem áttu málsvara í DV
mánudaginn 15. febrúar sl., skuli
ekki þora að taka þátt í opinberri
umræðu um þessi mál en beita
Einari Guðjohnsen fyrir sig í stað-
inn. Skýringin kann að vera sú,
að Einar er vel ritfær og þekktur
á síðum blaðanna en hinir vilja
ferðast í skugganum. Samt held
ég að illa sé gert, að fá jafnréttsýn-
an mann og Einar til að leggja
svona slæmum og ólöglegum mál-
stað lið. Bezt væri, að hann reyndi
að hrista þessa óværu úr pilsfaldin-
um sínum hið allra fyrsta.
Höfundur er formaður Félags
leiðsögumanna.
Gódan daginn!
VARAHLUTIR
Verðkönnun Verðlagsstofnunar sýnir
hagstætt varahlutaverð okkar.
Eigum ávallt fyrirliggjandi varahluti í
fíestar tegundir bifreiða og vinnuvéla,
m.a. þurrkublöð, síur, kveikjuhluti o.fí.
DÆMI UM OKKAR VERÐ:
Daihatsu Lada MKsubishi
Charade Lux Galant
Olíusíur kr. 216 200 200
Viftureimar kr. 155 158 127
Vatnsdælur kr. 1.430 1.250 2.145
Startarar kr .4.620 7.957 5.825
Bremsuklossar kr. 1.075 836 800
Geríð verðsamanburð.
n
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687BOO
Þéttni og þykkt beina eykst þar til um
fertugsaldur. Mikilvægt erað bein hafi
náð fullum styrk og þroska þegar
úrkölkun ágerist. Einnig verðurað
gæta þess að fá nægilegt kalk úr
fæðunni tilað hamla á móti
beingisnun.
\
V
Víð eðlilegar aðstæður getur
mjólk dregið úr tannskemmd-
um. Hið háa hlutfall kalks,
fosfórs og magnium er
verndandi fyrir tennurnar.
Tilþess að beinabygging verði eðlileg
þarfhlutfall hinna ýmsu steinefna í
fæðunni að vera rétt.
I mjólk eru þessi hlutföll mjög
hagstæð.
Hvernig
ertu inn
viö beiniö?
Hefurðu hugsað út í það að beinin eru kalkbanki
líkamans-banki sem er í stöðugri endumýjun, líka
á fullorðinsárum. Ef líkaminn fær ekki nægilegt kalk
úr fæðunni gengur hann á forða kalkbankans
og úrkolkun beina (beingisnun) á sér stað. Þess
vegna er afar mikilvægt að tryggja sér nægilegt
magn af kalki úr fæðunni alla ævi.
Mjólk og mjólkurvörur eru lang mikilvægasti
kalkgjafinn og alhliða næringargildi mjólkurinnar er
með því besta sem við þekkjum.
Kalkþörfin er mismunandi eftir kyni og aldri frá 2-4
mjólkurglös á dag.
MJOLKURDAGSNEFND