Morgunblaðið - 16.03.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
Frá IBM bama- og unglingamótinu í skák um síðustu helgi. Spennandi tafllok draga að sér at-
hygli áhorfenda.
IBM barna- og unglingamót í skák:
Þátttakendur
voru 475 talsins
Gunnar Hansson forstjóri IBM afhendir einum yngstu keppend-
anna viðurkenningu fyrir góða frammistöðu.
Arnar Gunnarsson, sigurvegari i flokki níu ára og yngri. Hann
fékk að sigurlaunum þetta myndarlega taflborð og taflmenn að
auki.
Frábært samstarf við Skáksambandið og TR segir forstjóri IBM
UM helgina var haldið í Reykjavík bama og unglingamót í
skák. Það var IBM á íslandi sem stóð að mótinu í samstarfi við
Skáksamband Islands og Taflfélag Reykjavíkur. Að sögn Gunn-
ars Hanssonar forstjóra IBM var mótið mjög vel heppnað í alla
staði og komust færri að en vildu.
Mótinu var skipt í þijá aldurs-
flokka: 9 ára og yngri, 10 til 12
ára og 13 til 16 ára. I elsta flokkn-
um sigraði Hannes Hlífar Stef-
ánsson með fullt hús vinninga,
hann vann allar níu skákirnar. I
næstu sætum voru Héðinn
Steingrímsson, Sigurður Daði
Sigfússon, Þröstur Arnason,
Magnús Teitsson og Eyjólfur
Gunnarsson. í flokki 10 til 12 ára
sigraði Helgi Áss Grétarsson.
Hann hafði einnig fullt hús, níu
vinninga. Næstir komu Magnús
Öm Úlfarsson, Páll Agnar Þórar-
insson, Hálfdan Daðason, Kjartan
Maack og Þórleifur Karlsson. í
flokki níu ára og yngri sigraði
Amar Gunnarsson með átta og
hálfan vinning. Næstir komu Pét-
ur Oskar Sigurðsson, Bergsteinn
Ó. Einarsson, Jóel Karl Friðriks-
son, Bjöm Margeirsson og Torfi
Leósson. Veitt vom verðlaun fyr-
ir sex efstu sætin í hveijum
flokki.
Þátttakendur á mótinu voru
alls 475, þar af 119 í elsta flokkn-
um, 199 í flokki 10 til 12 ára og
167 í yngsta flokki. Að sögn
Gunnars Hanssonar var ekki
hægt að skrá fleiri keppendur
vegna skorts á töflum. Sagði
hann fjölmarga skákklúbba og
skákfélög víða um land eiga
þakkir 'skildar fyrir að hlaupa
undir bagga og lána töfl, án
þeirra aðstoðar hefði þetta mót
ekki getað orðið svo flölmennt.
Hætt var skráningu þátttakenda
þegar sýnt þótti, að ekki væri
•fleiri töfl að hafa og sagði Gunn-
ar, að annars hefði mótið getað
orðið mun fjölmennara miðað við
ásókn.
Gunnar Hansson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að mótið
hefði verið einstaklega vel heppn-
að. „Þetta var einstaklega
ánægjuleg helgi, það var gífur-
Moryunblaðið/ÓI.K.M.
Hannes Hlífar Stefánsson.
Hann sigraði flokki 13 til 16
ára með fullt hús, niu vinninga.
legur áhugi bamanna og margar
skemmtilegar skákir tefldar. Það
kom mér á óvart hvað þau tóku
þessu af mikilli alvöru og sýndu
mikla prúðmennsku. Ef upp kom
ágreiningur, þá réttu þau upp
hönd og kölluðu á skákstjóra. Þá
var gaman að sjá hvað foreldrar
vom duglegir að koma og fylgj-
ast með bömunum," sagði Gunn-
ar og bætti því við, að samstarfið
við Skáksambandið og TR hefði
verið frábært, sömuleiðis við
skákfélög á landsbyggðinni. Ekki
hefur, að sögn Gunnars, enn ver-
ið ákveðið hvort aftur verður
haldið samskonar mót á vegum
IBM.
IBM bama og unglingamótið
fór fram í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur og í Breiðagerðis-
skóla. Skákstjóri var Ólafur H.
Ólafsson.
12. áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands:
Sigrún Eðvaldsdótt-
ir leikur einleik
SIGRÚN Eðvaldsdóttir, hinn ungi
og efnilegi fiðluleikari, verður
einleikari á 12. áskriftartónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar íslands,
sem haldnir verða nk. fimmtudag,
17. mars, i Háskólabíói og hefjast
kl. 20.80. Stjómandi er Pólveijinn
Zygmunt Rychert.
Tónleikamir heflast með Orpheus
eftir Franz Liszt og því næst verður
fluttur fiðlukonsert eftir Sibelius, þar
sem Sigrún leikur einleik. Tónleikun-
um lýkur með Sinfóníu nr. 3 eftir
Lutoslavsky, en þetta er nýlegt verk
eftir eitt merkasta tónskáld tuttug-
ustu aldar. Lutoslavsky stendur nú
á sjötugu. Við flutning þessa verks
þurfti að fjölga verulega flytjendum
í hljómsveitinni, þannig að þeir verða
um 90. Þeir, sem bætast nú í hljóm-
sveitina, hafa flestir að undanfömu
verið í prófum hjá hljómsveitinni.
Sigrún Eðvaldsdóttir er vaxandi
einleikari, þótt hún sé ung að árum,
rétt rúmlega tvítug. Hún hóf fiðlu-
nám 5 ára og 11 ára fór hún í Tón-
listarskólann í Reykjavík og lærði
þar hjá Rut Ingólfsdóttur og Guðnýju
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari.
Guðmundsdóttur, þar til hún útskrif-
aðist 16 ára með einleikaraprófl. Hún
hefur leikið einleik með mörgum
unglingahljómsveitum, m.a. í Svíþjóð
og Michigan í Bandaríkjunum. Hún
stundar nú nám við „The Curtis Inst-
itute of Music" í Philadelfíu í Banda-
ríkjunum og lýkur BM-prófl þaðan í
Grænlendingar
heimsækja ASI
ÞRJÁTÍU grænlenskir nemendur í vetrarskóla grænlensku verka-
lýðshreyfingarinnar eru væntanlegir hingað til lands í kvöld. Þeir
eru í námsferð og munu kynna sér íslenskt atvinnulif, hlýða á
fyrirlestra og heimsækja vinnustaði. Alþýðusamband íslands tekur
á móti þeim og héfur skipulagt dvöl þeirra hérlendis sem stendur
Zigmunt Rychert
vor.
Pólski stjómandinn, Zygmunt
Rychert, nam tónsmíðar og hljóm-
sveitarstjóm við opinbera tónlistar-
háskólann í Posnan. 1970 hlaut hann
verðlaun í pólsku samkeppninni í
þessum greinum.
Hann hefur stjómað hljómsveitum
innan Póllands og utan, s.s. í Sov-
étríkjunum, Tékkóslóvakíu, Austur-
og Vestur-Þýskalandi og flölmörgum
öðrum löndum Evrópu, auk Banda-
ríkjanna og Japans. Hann er stofn-
andi Baltycka fílharmóníuhljómsveit-
arinnar og listrænn leiðbeinandi
hennar. Hann hefur hlotið verðlaun
fyrir framlag sitt í þágu listarinnar
í Póllandi.
(Fréttatilkynning)
í 11 daga.
Nemendumir em á aldrinum
19-33 ára og stunda nám við Sulis-
artut Höjskoliat, sem er nokkurs
konar lýðháskóli, rekinn á vegum
grænlensku verkalýðshreyfingar-
innar, SIK, í Julianehaab. Að sögn
Ragnhildar Ingólfsdóttur hjá ASÍ,
sem hefur unnið að skipulagningu
heimsóknarinnar í samvinnu við
MFA, er ein ástæðna námsfarar-
innar sú að SIK þurfti að nota
skólahúsið fyrir þing á vegum
þess. Því hafi nemendumir tekið
á það ráð að fá að koma í náms-
ferð hingað.
Hópurinn mun m.a. hlýða á fyr-
irlestra um sögu íslands og sjálf-
stæðisbaráttu, atvinnulíf, byggða-
þróun og íslensk stjómmáL Þá
mun hann skoða nokkra fjölmiðla;
útvarp, sjónvarp og blöð. Nemend-
umir munu einnig kynna sér
íslenskan landbúnað, fara til Sel-
foss og Flúða auk þess sem þeir
munu skoða Gullfoss og Geysi.
Þá fara þeir til Akraness, þar sem
þeir kynna sér fískveiðar og iðnað.
Síðasta dag heimsóknarinnar
munu nemendur hitta þingmenn í
Vestnorræna þingmannaráðinu.
Ragnhildur sagði Alþýðusam-
bandið ekki áður hafa tekið á
móti hópi í námsferð en sagði að
ef vel tækist til nú, gæti orðið um
frekari heimsóknir að ræða. ASÍ
hefur átt samstarf við SIK á und-
anfömum ámm, en þessar hreyf-
ingar, auk verkalýðshreyflngunni
í Færeyjum, mynda Verkalýðs-
hreyfinguna í Norður-Atlantshafi.