Morgunblaðið - 16.03.1988, Side 43

Morgunblaðið - 16.03.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988 43 Jóna Guðný Frans- dóttir-Afmæliskveðja 90 ára er í dag, Jóna Guðný Fransdóttir, Skógargötu 17b, Sauð- árkróki. Hún er fædd 16. mars 1898 í Garðhúsi á Höfðaströnd. Hún flutti með foreldrum sínum út í Málmey 1910. Þegar bróðir henn- ar verður fyrir voðaskoti 1914 og foreldrar hennar kaupa Skálá og flytja í land, fer hún að vinna fyrir sér og var m.a. í Kolkuósi hjá Hart- manni og Kristínu. Þar átti hún á þessum árum sitt annað heimili. Til Reykjavíkur fer hún þrisvar fót- gangandi til að leita sér lækninga og er þá í vist á góðum heimilum. Hún menntast þar og lærir hjá „góðum konum" og sækir hann- yrðanámskeið. 13. dsember 1928 giftist hún Kristjáni Sigfússyni f. 17.01.1902 og hófu þau búskap að Geirmundar- hóli í Hrolleifsdal 1929, en að Bræðraá bjuggu þau 1930—1932, er þau fluttu búferlum að Róðhóli. Á Róðhóli bjuggu þau síðan í 37 ár eða þar til þau brugðu búi 1969 og fluttu til Sauðárkróks. Kristján lést 5. maí 1982. Foreldrar Jónu voru: Frans Jóna- tansson bóndi Málmey, leiðsögu- maður, forsöngvari og kennari Jónatanssonar bónda Bæ Höfða- strönd, Ögmundssonar („ýmsir telja son sr. Jóns á Bægisá) b. í Litla Árskógi Árskógsströnd og Jóhanna Gunnarsdóttir, Guðmundssonar Vatni Höfðaströnd, Jónssonar Orm- staðahjáleigu í Norðfirði, en Verón- ika kona Gunnars var Eiríksdóttir, Sigurðssonar b. Hofi í Mjóafírði sem var sonur Ingibjargar dóttur Her- manns í Firði í Mjóafirði. Systkini Jónu eru: Guðlaug Verónika f. 16.03. 1896, bús. í Reykjavík, g. Eiði Siguijónssjmi kennara og hreppstjóra Skálá. Eiður dó 1964. Hjálmar, f. 24.08. 1901, d. 09.01. 1914. Böm: Áður en Jóna giftist átti hún: Stefán Stefánsson smið á Reykjalundi, f. 14.01. 1928, bús. í Mosfellsbæ ókvæntur og bamlaus. Jóna og Kristján eignuðust 4 böm. Þau eru: Valgerður húsfreyja Þrastastöðum Höfðaströnd f. 27.10. 1929, gift Þorvaldi Þórhallssyni bónda og eiga þau 4 börn og 9 bamaböm. Dagmar Valgerður húsfreyja Sauðárkróki, f. 15.02. 1931, gift Kára Steinssyni íþróttakennara og sundlaugarstarfsm. og eiga þau 5 böm og 10 bamaböm. Jóhanna húsfreyja Róðhóli Sléttuhlíð, f. 07.07.1934, gift Jóni Bimi Sigurðs- syni bónda og bifreiðastjóra og eiga þau 6 börn 13 bamaböm. Sigmund- ur Franz heildsali í Reykjavík, f. 14.01. 1941, giftur Hrafnhildi Vil- helmsdóttur snyrtifræðingi og eiga 2 böm. Eitt bam á Sigmundur frá fyrra hjónabandi og 1 barnabam. Alls eru afkomendur Jónu nú orðnir 56. V.K. Jóna tekur á móti gestum í Safnaðarheimili Sauðárkróks- kirkju á afmælisdaginn frá kl. 4 sd. Dagskrárbrot síðustu tíma eftirJónas Pétursson Mikið var spjallað um halla á ríkis- sjóði síðari hluta hins liðna árs. Við stjómarmyndun, sem telja má mjög eðlilegt, og rekur þá minni til stórra orða áður fyrr, ekkert síður úr munni eða penna þeirra, er nú töldu halla á ríkissjóði með minni háttar punkt- um. Og eins og fyrr þá frusu sumir fastir við fyrirheit, að hækka ekki skatta. En hallarekstur á ríkissjóði á tveimur mestu tekjuárum þjóðar er samkv. bamalærdómi hin glæfra- legasta glópska. Svo fór einnig er alvara þingstarfanna sagði til sín og stjómin fór að hugsa, — að ákvörðun kom um jafnvægi fjárlaga. Mörgum álengdar mun hafa komið til hugar að leitað yrði á mið gróð- ans í góðærunum. Niðurstaðan varð þó á þá lund, sem tuggið hefír verið ótæpilega, matarskattur — og nógu mikið til að eyru eru að hætta að heyra og augu að sjá. Flestir sjá þó að undir engum kringumstæðum gat stjómin staðið að fjárlögum með halla. Gróðaöflin virðast hingað til nokk- uð „stikkfrí" og hvað var þá til ráða? Eins og alltaf reynist, þá verður það almenningur, þjóðarþunginn, sem tekur á sig að bjarga. Sá stóri hluti, megin þjóðarinnar, sem skilur fjár- hagslegt sjálfstæði. Ifyrst er að rétta ríkissjóðinn — næst er að borga erlendu skuldirnar! Venjulegum íslendingi er^það óþægileg vitneskja að skuldir islendinga við erlenda kröfuhafa skuli stórhækka bæði þessi mestu framleiðsluár, sem auk þess nutu hagstæðra viðskiptakjara. Orsökin er stjómieysi! ótakmarkað frelsi til að eyða, — gjaldeyrinum beinlínis rænt með atbeina ríkis- Jónas Pétursson „Venjulegnm íslendingi er það óþægileg vitn- eskja að skuldir íslend- inga við erlenda kröfu- hafa skuli stórhækka bæði þessi mestu fram- leiðsluár, sem auk þess nutu hagstæðra við- skiptakjara.“ stjómar, langt undir sannvirði. Eng- in ríkisstjóm hefír kosið að míga svo hroðalega ( skóinn! (Haraldur Guð- mundsson nefndi það að pissa í út- varpsræðu, líkl. árla 1939!). Ögn meira um söluskattinn. Skömmu eftir 1980 var horfíð að því ráði að undanþiggja matvörur söluskatti. Ég man það að mér fannst þetta óráð og af þeirri ástæðu að mismunandi regla torveldaði eft- irlit og myndi leiða af sér söluskatt- svik, — með almennri nafngift. Ég hefí að vísu aldrei í alvöru búist við söluskatti á innlenda matvöru. Nú eru uppi heitstrengingar um þrepaskatt, gefið heitið virðisauka- skattur. í 20 ár hefir hann verið á döfinni. Á síðustu þingmannsárum mínum virti ég fyrir mér þá hug- mynd. Mergur málsins í mínum huga var að sá skattur kæmi ekki með þunga á búvöruframleiðsluna, sem ég eygði í því að framleiðslustig vörunnar, sem nefnt er verð til fram- leiðenda, væri undanþegið. En sölu- meðferð eftir það, fengi þann þrepa- skatt, sem þar gilti á sama hátt og aðrar vörur. Ekki ætti að þurfa fjöl- yrði um þá sjálfsögðu málsmeðferð að innlend framleiðsla sé vemduð við hlið innfluttrar, svo sem kostur er og á þennan hátt má það vera einfalt mál í framkvæmd. Ef að sú hugsun er á sveimi meðal íslenzkra þegna nú, að sömu reglur eigi að gilda um íslenzka framleiðslu og innflutta vöru, þá er það hrein landráðahugsun. Mig langar að segja alþingis- mönnum — já íslenskri þjóð einföld sannindi! Boðorð Kfsins! Orða það ekki upp á nýtt. Tæpast gert skýrar: Starfið er margt, en eitt er bræðra bandið, boðorðið, hvar sem þér í fylking standið, hvemig sem striðið þá og þá er blandið, það er Að elska, byggja og treysta á landið. HH. í hlaupársmánuði 1988. Höfuadur er fyrrverandi alþingis- maður. Þegar Gunnar Bjarnason heim- sótti Búnaðarþing eftirHjörtE. Þórarinsson í Morgunblaðinu og Tímanum 1. mars er skýrt frá því, er Gunnar Bjamason fyrrverandi hrossaræktar- ráðunautur snaraði sér inn á Búnað- arþing í byijun fundar og útbýtti því sem hann kallar starfsskýrslu sína til Búnaðarfélags íslands fyrir árin 1986 og 1987. „Starfsskýrsla" Gunnars með fylgiskjölum er býsna löng, einar 20 vélritaðar síður, og er þar rakin starfssaga hans við hrossaræktar- málin og sér í lagi útflutning hrossa. Það er skemmst frá því að segja að í „starfsskýrslunni" er sveigt all- hressilega að Búnaðarfélagi íslands fyrir afskipti þess af hrossaútflutn- ingi. í fréttagreinum blaðanna kemur raunar fram aðeins örlítið brot af gagnrýninni. Þó er það nóg til þess að lesandinn má skilja að félagið hafi alltaf verið hinn versti þrándur í götu skynsamlegrar stefnu í þessum málum. Ef fyrirmælum þess hefði verið hlýtt „hefði fslenska gæðinga- kynið lent í saurþró landsmanna á sjötta áratugnum", hvað sem það nú þýðir. Búnaðarþing tók þessari óvenju- legu skýrslugjöf með jafnaðargeði þess, sem telur sig hafa góða sam- visku. En hin góða samviska Búnað- arþings og þar með Búnaðarfélags íslands byggist í þessu tilfelli á því, að það hefur aldrei lagst gegn út- flutningi hrossa, en hins vegar haft forgöngu um mótun lagaákvæða í sambandi við útfíutninginn, sem eru til þess ætluð að draga úr Ifkum á skaðlegum áhrifum hans á ræktun reiðhestakynsins hér innanlands. Mismunandi skoðanir á fram- kvæmd þessarar stefnu sem flestir eru f rauninni sammála um, er ein meginorsök þess ágreinings sem stundum hefur verið milli Gunnars Bjamasonar og Búnaðarfélagsins. Og þó að það skuli fúslega viður- kennt að Gunnar Bjamason hafi unn- ið ágætt starf í hrossaútflutningsmál- um og skapað sér heiðursnafn í fé- lagsskap eigenda og unnenda íslenskra hesta erlendis, þá er fráleitt að hægt sé að samþykkja að án hans tilverknaðar hefðu mál þróast á ein- hvém allt annan og ógæfulegri veg og fslenska hestakynið glatað gildi sínu fyrir þjóðina, (sbr. „lent í saur- þijó Þjóðarinnar".) En þjóðfélagslegt hlutverk hestsins hér heima á Fróni er þó væntanlega það sem mestu máli skiptir f þessu sambandi með allri virðingu fyrir gildi hans sem útflutningsgreinar og aug- lýsingar erlendis á landi okkar og þjóð. Samskiptum Búnaðarfélags Is- lands og Gunnars Bjamasonar er nú lokið og hafa staðið f nærri hálfa öld, oft í góðum friði og sátt, stundum töluverðum brösum. Stjóm Búnaðar- félags íslands vill ekki að þessar frá- sagnir blaðanna þann 1. mars, verði Hjörtur E. Þórarinsson það síðasta, sem á prent kemur um þessi samskipti. Nú er útfiutningur hrossa aðallega f höndum félags hrossabænda og enn þykir nafh Gunnars Bjamasonar skipta máli f sambandi við þessa verslun. Hlutverk Búnaðarfélags ís- lands er þar einvörðungu að votta um ætt og uppruna hrossanna og gefa útflutningnum opinberan stimp- il. Um það er nú ekki ágreiningur milli þessara aðila. Sfjóm Búnaðarfélags íslands end- urtekur því bókun sína frá 3. desemb- er 1987, sem Gunnar vitnar f, þar sem segir að búnaðarmálastjóra sé falið að „tjá honum (G.B.) þakklæti sitt fyrir langa þjónustu við félagið". Gunnar Bjamason dregur í efa ein- lægni þessara orða í „starfsskýrslu" sinni. Það er algjör óþarfi. Allir landsmenn og margir aðrir hafa fylgst með því ævintýri sem er framför íslenska reiðhestakynsins hér innanlands sfðustu hálfa öld eða svo og vaxandi og batnandi hesta- mennska f víðustu merkingu. Jafn- framt virðast menn, með ýmsum undantekningum þó, sætta sig bæri- lega við þá staðreynd að fslensk hross em nú ræktuð f miklum mæli á er- lendri gmnd, sem er óhjákvæmileg afieiðing af útflutningi tímgunar- hæfra gripa. Búnaðarfélag tslands gengst ekki við neinum sakargiftum Gunnars Bjamasonar þó að það sé viðurkennt að hann eigi gildan þátt f þessari ævintýrasögu. Það verður aldrei af honum tekið. Búnaðarfélag íslands tjáir honum þakklæti fyrir þetta mikilvæga fram- lag hans. Það er engum vafa undir- orpið að nafn hans verður alltaf tengt þeim ómetanlega þætti þjóðlffsins sem er hrossarækt og hestamennska. Höfundur er formaður Búnaðar- félags íslaads. Verðfrá 37.736 kr.* 4 í íbúð 45.156 kr.* 2 í íbúð 48.972 kr.* Hammamet er nýtískulegur bær með endalausar baðstrendur og glæsileg hótel. í Túnis er hagstætt verðlag og þróuð fermannaþjón- usta. En þar er líka að finna fram- andi andrúmsloft og spennandi arabíska markaði. Stuttar skoðun- arferðir „aftur í tímann" til Karþagó eða um Sahara eyðimörkina eru áhugaverðar og heillandi. 2-3 vikur, áætlunarflug um Kaupmannahöfn. FERDASKRIFSTOFAN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.