Morgunblaðið - 16.03.1988, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988
49
USÚ-þing á Höfn
Iþróttadeild hestamanna-
félagsins tekin í Ulfljót
Höfn, Homafirði.
Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson
Frá þingi ungmennasambandsins Ulfljóts, sem haldinn var á Höfn
í Hornafirði í byijun mars.
FIMMTUGASTA og sjötta ársþing
ungmennasambandsins Úlfljóts í
Austur-Skaftafellssýslu var haldið
á Höfn 6. mars. Um þijátíu fulltrú-
ar 9 félaga sátu þingið _ ásamt
tveimur gestum frá UMFÍ, Þóri
Haraldssyni og Herði Óskarssyni.
Fyrir þinginu lá inntökubeiðni
íþróttadeildar hestamannafélags-
ins Hornfirðings, og var hún sam-
þykkt.
Fráfarandi formaður, Helga V.
Sigjónsdóttir, flutti skýrslu stjómar.
Stærsta verkefni síðasta árs var þátt-
taka í landsmóti UMFÍ á Húsavík,
en 50 manna hópur fór á landsmótið
frá Úlfljóti. Sambandið stóð fyrir sex
innanhéraðsmótum, og tók einnig
þátt í sex mótum utan héraðs. A
meistaramóti 14 ára ogyngri eignað-
ist sambandið einn Íslandsmeistara,
það var Kristinn Fjölnisson i lang-
stökki. Á meistaramóti 15—18 ára
varð Sigurður Eiríksson svo tvöfald-
ur íslandsmeistari í 100 m og 200 m
hlaupum.
í skýrslu stjómar kom fram að
aðstaða til fijálsíþróttakeppni er
fremur bágborin í sýslunni, en í Nesj-
um hefur verið hafist handa við gerð
íþróttavallar, sem verður byggður
sérstaklega með fijálsar íþróttir í
huga.
Mörg málefni vcru til umfjöllunar
á þinginu, en skipting tekna af lottó-
hagnaði einna mest áberandi. Þó
vom fulltrúar fljótir að koma sér
saman um skiptinguna, og gekk það
mjög árekstralaust. Undir lok þings-
ins var svo einnig samþykkt þakkará-
lit til ýmissa styrktaraðila sambands-
ins svo sem hreppsfélaga sýslunnar
og atvinnufyrirtækja.
Formaður nýrrar stjómar Úlfljóts
og var kosinn Ari G. Hannesson frá
Umf. Val á Mýrum. Með honum sitja
í stjórn: Steinunn Benediktsdóttir,
Magnhildur Gísladóttir, Zophonías
Torfason og Sigurður Guðnason.
Varastjóm skipa: Ágúst Ólafsson,
Inga Kristín Sveinbjömsdóttir og
Skúli ísleifsson. Fundarstjóri var Jón
Gunnar Gunnarsson.
- JGG
Ótótlegir uppvakningar
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
REGNBOGINN:
VÍTISKVALIR - HELLRAISER
Leikstjóri og handritshöf-
undur: Clive Barker. Brellur:
Bob Keen. Klipping: Richard
Marden. Tónlist: Christopher
Young. Kvikmyndatökustjóri:
Robert Vidgeon. Aðalleikend-
ur: Claire Higgins, Andrew
Robinson, Ashley Laurence,
Sean Chapman, Oliver Smith,
Robert Hines. Bresk. New
World Pictures 1987. 92 mín.
Fyrir rösku ári, eða svo, sá ég
Stephen King bera lofsorð á nýja
bók eftir (þá) lítt kunnan, breskan
starfsbróður. Mér varð svo mikið
um orð hins glúrna metsölu-
skálds, „Eg hef séð inní framtíð
hrollvekjunnar og hún heitir Clive
Barker", og ennfremur: „Hann
(Barker) er betri en ég um þessar
mundir og mun röggsamari," að
ég rauk til og pantaði kverið.
Þessi orð em nú orðin fleyg og
vel að merkja, þá áttu þau við
bókina „In the Flesh“, og gátu
svo sem vel staðist, hinsvegar er
hæpið að finna þeim stað í um-
fjöllun um kvikmyndagerðina.
Myndin „Hellraiser" er nefnilega
engin framúrstefnumynd á einn
né neinn hátt, við emm einfald-
lega stödd í kunnuglegu umhverfi
juiia er ídin við að mata uppvakninginn sinn á mannsblóði i
hryllingsfantasíunni Vítiskvölum.
tómatsósu, matarlíms og vel
þekktra bellibragða.
Hér segir af vonda bróðurnum,
Frank, sem fyrir tilstuðlan dular-
fullrar öskju vekur upp ára úr
víti sem tortíma honum. Eldri
bróðir hans, Larry (Andrew Rob-
inson), flytur nokkm síðar á ætta-
róðal bræðranna ásamt Juliu,
konu sinni. Hafði hún áður átt
vingott við mág sinn. Blóð sem
drýpur úr sári Larrys verður til
að kveikja aftur líf með illyrminu
Frank og tekur nú frygðarfull
mágkona hans til við að færa
honum fómarlömb, svo hann megi
ná fyrri reisn og bólfimi.
Barker kemur óneitanlega inná
flesta þá þætti sem er að finna í
góðum hrollvekjum, óyndisleg
skúmaskot í kjöllumm og á háa-
loftum, blóðsugur, skrýmsli,
drauga, djöfla, uppvakninga. En
þrátt fyrir svona litskrúðugt rosa-
lið saknar maður spennunnar,
hræðslunnar. I mesta lagi fyllir
leikstjórinn mann ógeði í sóðaleg-
ustu atriðunum. En leiktjöldin,
munimir og sviðssetningarnar em
góðar og gálgahúmorinn er góð-
ur, þó hann minni óneitanlega á
„Eating Raoul", eftir Bartel. I það
heila tekið held ég að næsta mynd
komi til með að skera úr um hvort
hryllingsframtíðin sé í höndum
Barkers eður ei.
Félags-
manm fundUT
Haldinn verður áríðandi félagsfund-
ur í Sóknarsalnum, Skipholti 50a, í
dag kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Samningamálin.
2. Önnurmál.
Stjórn FBM.
Vöítvamótorar
= HEÐINN =
VÉtAVERSLUN SlMI 624260 o
SÉRFRÆÐIÞJÚNUSTA - LAGER <
LDJ
Höfðabakka 9
Sími 685411
Sendum myndalista
— póstkröfuþjónusta
*
BÆKUR BEINT FRA NEW YORK
BAN DARISKI
EINSTAKT IÆKIFÆRI - EINSTAKT VERO
I VERSLUN OKKAR
MARKADURINN
1 'ÖSTI iGJ ii r í 18. M 1A RS
EYMUNDSSON
Austurstræti 18-