Morgunblaðið - 16.03.1988, Síða 59

Morgunblaðið - 16.03.1988, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988 59 Slæm umgengni við Tjörnina Til Velvakanda. Hafa ráðamenn borgarinnar gengið niður að Tjörn á sunnudegi þegar sólin skín og horft á öll litlu bömin með foreldrum sínum og fóstrum gefa fuglunum brauð, og hvað það er falleg sjón. En líti maður svo niður á gang- stéttina og tjarnarbakkann, hvað blasir við augum. Pl^stpokar og aftur plastpokar frá öllum stór- mörkuðum borgarinnar og öllum kaupmönnum á horninu og senni- lega öllum sjoppunum líka, og þvílíkt úrval af plastpokum, annað eins hef ég varla séð áður. Og þar sem ég stend þarna og velti vöngum sé ég af hveiju þetta er svona slæmt, því þarna bar að tvær konur (ekki með fuglamat) og þær hafa líklega hugsað líkt og ég, af hveiju setur fólkið þetta ekki í ruslakassana, sem eru þarna á staurunum, þeim ofbýður og tína upp nokkra poka og ætla að setja þá í ruslakassana, nema hvað, þeir em þá alveg stútfullir af plast- pokum, svo þær settu nokkra í tóma poka og bundu fyrir, og það varð aðeins skárra yfir að líta. En af hveiju em nú ekki hafðir pokar í grind einhvers stáðar þarna nálægt, og þó öllu frekar, af hyeiju er ekki'.einhver þarna á staðnum sem sér til þess að þetta líti ekki svona út, ég er viss um að það er einhvers staðar í borginni einhver afinn sem er hættur störfum, en myndi hafa ánægju af að vera þarna stund úr degi og sjá um að hafa allt í röð og reglu, og fá smá viðbót við ellilífeyrinn sinn fyrir viðvikið, en hafa ánægjuna af því að vera þarna að auki. Það væri nú líka hægt að hafa skilti: „Ekki henda pokum eða msli í Tjörnina eða á gangstéttina“, þó ekki væri nema rétt til að minna iolk á að ganga vel um, og ég er viss um að eftir ekki langan tíma myndi fólk skammast sín fyrir að láta þetta msl sjást þarna, og hvað það væri þá gaman að fara niður að Tjörn. Þennan góða dag var ís á tjörn- inni, svo allir fuglarnir héldu sig á sama staðnum, og kannski var þetta bara það magn af msli sem myndi dreifast útum alla Tjörn í annan tíma, en hvað um það, þetta var eins og bömin segja „alveg ógeðslega ógeðslegt". Og svo hélt ganga mín áfram og inn í Listasafn íslands, og þvílíkur léttir að hafa þetta rusl ekki í sjón- máli lengur. O.S. Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, em ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfti, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski naftileyndar. , Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér ! dálkunum. Ofbeldi í skólum: SjáKstædar hillur eðaheðar samslæour Leitið upplýsinga UMBOÐS- OG HEILDVBfíSL UN BÍLDSHÖFDA 16 SÍMI 6724 44 0DEXION IMPEX-hillukerfi án boltunar Útsölustaölr: LANDSSMIÐJAN HF. — Verslun Ármúla 23 - Slmi (91)20680 STRAUMRÁS SF. — Akureyri Sími (96)26988 LANDSSMIÐJAN HF. SKIPASALA HRAUNHAMARS <i Þessi bátur, sem er 8,6 tonn, byggður 1987 með 130 ha vél og vel búinn siglinga- og fiskileitartækj- um, ertil sölu. Greiðsluskilmálarmjög hagkvæmir. SKIPASALA HRAUNHAMARS, Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði, sími 54511. Fleiri afa og ömmur í skólana Velvakandi góður. Tilefni þess að undirritaður ávarpar þig er grein foreldris í dálk- um þínum um daginn um ofbeldi í skólum og einelti. Greinarhöfunciur talar um að hér sé um að ræða eitt af földu málunum í þjóðfélagi okkar. Jafnfrarfit er talað um að komast megi fyrir rætur vandans með hjálp sálfræðinga og félags- fræðinga. Þetta má vel vera rétt þar sem slíkt fólk og fjármunir eru fyrir hendi. Og ekki skal dregin dul á að slíkir fræðingar vinna oft gott starf. Hitt er annað að stundum förum við jifír lækinn að sækja vatn í þessum efnum sem öðrum. Varsla í frímínútum er eitt óvin- sælasta verk sem kennarar eru skikkaðir til að vinna, jafnvel þó það sé greitt með yfírvinnu. Sums staðar hefur þessu oki verið létt af kennurum við miklar vinsældir meðal þeirra. Hefur þá verið ráðinn „afí“ að skólunum til að gegna starfí ganga- og húsvarðar. Starfs- heitið „afí“ er gamalt og gott í skólum landsins og má vera að eins- hvers staðar séu einnig „ömrnur" þar innan veggja. Á Þingeyri var ráðinn „afi“ að grunnskólanum á síðastliðnum vetri. Þetta tel ég að hafi verið gæfuSpor. Hlutverk hins nýráðna starfsmanns er m.a. að sjá til með nemendum þegar þeir eru ekki í kennslustundum. Veita huggun, ráð og hjálp þegar eitthvað bjátar á. í stuttu máli sjá til þess að það sem hér er til umræðu, ofbeldi og ein- elti, eigi sér ekki stað, hvorki innan skólans né utan. Hér er um að ræða lífsreyndan eldri mann sem farinn er að minnka við sig vinnu. Heita má að árekstrar milli nem- enda, sem nokkuð bar á áður, að ekki sé talað um jafn alvarlegan hlut og einelti, hafí algjörlega horf- ið með tilkomu þessa starfsmanns, sem allir kalla „afa“. Kæri Velvakandi Þegar mér barst í hendur tímaritið Varðturninn sem Vottar Jehóva gefa út, rakst ég á merki- lega og jafnframt sláandi stað- hæfingu í desemberhefti blaðsins 1987. Þar las ég eftirfarandi: „Margir hafa borið því vitni, að þeir hafí beðið Guð um hjálp rétt áður en votturbarði dyra hjá þeim.“ (bls. 28). I •'i, »s . Þá minnist ég þess að þrisvar hef ég beðið Guð um hjálp og leið- sögn til að benda mér á þann hóp manna sem eru honum velþóknan- legir í öllum þessum frumskógi trú- flokka og trúarbragða. í öll skiptin var dagur að kvöldi kominn þegar Nú er það spurningin hvort þeir aðilar, sem þetta mál varðar, skóla- yfírvöld, foreldrar og sveitarfélög, séu nógu vakandi fyrir því hvort ekki megi virkja gamla fólkið meira til starfa í skólum landsins en geit er. Lífsreyndur „afí“ eða „amma“, með hjartað á réttum stað, getur verið ómetanlegur starfskraftur í skólastarfí ef rétt er á haldið. Hallgrímur Sveinsson skólastjóri Grunnskólans á Þingeyri. Vottar Jehóva knúðu á dyr heimilis míns. Lengi hef ég haft andstyggð á flokkadráttum og stælum milli kristina safnaða þegar hver flokk- urinn hefur álitið sig vera guðsút- valdan. Þá er mér spurn. Hvers vegna sendi Guð einmitt Votta Je- hóva sem svar við einlægri bæn? Þessi hópur manna er fyrirlitinn af mörgum. Þeir ganga þröngan og mjóan veg, en einmitt svo hefur Kristur lýst fylgjendum sínum. Verðugt umhugsunarefni ef hér er um líf eða dauða að tefla, ekki satt? Margir biðja þessarar bænar í frum- skógi trúflokka og synda þessa síðustu og verstu tíma. Einar Ingvi Magnússon Verðugl umhugsunarefni 0f 'MW' Cosmetic AB Gervineglur, styrking á eigin nöglum, viðgerðir. Nýtt efni sem ekki skemmir eigin negl- ur, heldur styrkir og verndar. Pantið tímanlega í síma 19660 Snyrtistofan NN Laugavegi 27 - Sími 19660

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.