Morgunblaðið - 16.03.1988, Side 60

Morgunblaðið - 16.03.1988, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1988 KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN Arnór Guðjohnsen verður í sviðs- ljósinu í Briissel í kvöld. Mm FOLK ■ ARNÓR Guðjohnsen og fé- iag'ar hjá Anderlecht mæta Benfica frá Portúgal í dag í síðari leik liðanna í Evrópukeppni meist- araliða. Anderlecht hefur gengið vel í síðstu leikjum sínum og hefur leikið vel undir stjóm nýja þjálfar- ans Raymond Goethals. Benfica hefur hinsvegar ekki gengið jafn vel og varð að sætta sig við jafn- tefli gegn Elvas um helgina. Nokkr- ir lykilmenn í liði Benfica eru meiddir, þ.á.m. brasilíumaðurinn Elzo, en læknir liðsins vonast til ^hð hægt verði að stilla upp sterk- asta liðinu í dag. Benfica sigraði í fyrri leiknum, 2:0. I PSV Eindhoven frá Hollandi mætir franska liðinu Bordeaux í dag í síðari leik liðanna í Evrópu- keppni meistaraliða.. Fyrri leiknum lauk með jafntefli, 1:1, en þá var leikið í Frakldandi. PSV hefur Ieikið mjög vel, en tapaði sínum fyrsta leik í deildinni, um helgina, gegn Feyenoord 1:2. Guus Hidd- ink, þjálfari PSV segir að tapið gegn Feyenoord hafi ekki slæm áhrif. „Það hefði verið verra ef að Feyenoord hefði verið betra liðið, en við vorum mun sterkari og höf- um ekki glatað sjálfstraustinu." Lið " S*SV á við mikil meiðsli að striða. Hans Gillahus leikur líklega ekki með, en Eric Gerets og Sören Lerby verða líklega í byijunarliðinu þrátt fyrir meiðsli. Bordeaux mun líklega leika án markakóngsins Jose Toure og Jean Tigana er einnig meiddur, en mun þó líklega verða með í dag. ■ MILUÓNALIÐIÐ Glasgow Rangers á erfiðan leik fyrir hönd- um í dag gegn Steua Bukarest í síðari leik liðanna í Evrópukeppni meistaraliða. Steua sigraði í fyrri leiknum 2:0 og hefði sá sigur getað verið mun stærri. Rangers leikur án Terry Butcher sem er meiddur _ og nýliðamir Mark Walters, Jan ■feartram, Ian Ferguson og John Brown eru ólöglegir fyrir Evrópu- keppnina. Það verður því ekki auð- velt fyrir skosku meistarana að sigra Steua sem hefur ekki tapað leik í ungversku deildinni í 18 mán- uði og leikið 53 leiki í röð án taps. Gheorgi Hagi, sem er tvímæla- laust besti leikmaður Steua, hefur m.a. fengið tilboð frá ítalska liðinu Fiorentina, sem hljóðaði upp á 5 milljónir dollara. Hann segir að Rangers fái að sjá sterkara lið hjá Steua en í fyrri leiknum. „Rangers ieikur mjög gróft og við vorum hræddir við að halda boltanum of lengi. En nú þarf Rangers að sækja og þá munum við fá meira pláss til að athafna okkur og getum beitt skyndisóknum." Graeme Souness segir þó að Rangers eigi mögu- leika: „Tveggja marka munur er ekki ýkja mikið og lið hafa oft unn- íð upp meiri mun en það í Evrópu- keppninni." , Ellert B. á sögulegum fundi á flugvellinum í Ziirich Þarsem leikmaðurVeróna vardæmduríeins árs og félagið í sekt „ÞAÐ var rætt um að vísa Veróna út úr UEFA-keppn- inni. Fallið var frá því, þar sem forráðamenn fólagsins lögðu fram skýrslu um að Sil- vano Fontolan hafi ekki tekið inn lyfið viljandi - ekki sem örvandi iyf fyrir leikinn gegn Werdér Bremen. Einnig hefði það skaðað Werder Bremen. Uppselt er á leik liðsins gegn Veróna og þá hefur félagið selt sjónvarpsrétt á leiknum," sagði Ellert B. Schram, form- aður Knattspyrnusambands íslands, sem á sæti í aga- nefnd Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA. Ellert tók þátt í mjög söguleg- um fyndi aganefndar UEFA, sem kom saman mjög snöggt í Ziirich um sl. helgi. Fundurinn var haldinn á flugvellinum í Zurich. „Okkur fannst þetta það alvarlegt mál að ekki væri hægt að afgreiða það í gegnum síma. Þess vegna var ákveðið að koma saman snöggt í Ziirich. Við feng- um aðstöðu í flugstöðinni og stóð fundurinn yfir í einn og hálfa klukkustund. Eftir það héldu riefndarmenn heim til sín,“ sagði Ellert. Eins og hefur komið fram í Morg- unblaðinu, þá dæmdj aganefndu UEFA, Silvano Fontolan, leik- mann Veróna, í eins árs barin, eftir að hann hafði fallið á lyíja- prófí eftir leik Veróna og Werder Bremen. „Lyf sem á bannlista hjá UEFA, er ekki á bannlista á It- alíu. Forráðamenn Veróna segja að Fontolan hafí tekið lyfíð sam- kvæmt læknisráði, en lyfíð er gefíð t.d. vegna lungnabólgu. Okkur fannst það hart að félag sem hefur lækna á sínum snær- um, skuli leyfa leikmönnum sínum að taka lyf sem er á bannlista hjá UEFA. Því töldum við að félagið bæri ábyrgðina. Við sektuðum Veróna um 1.5 millj. ísl. kr. Sem betur fer er það nær óþekkt í alþjóðlegri knattspymu að leik- menn taki inn lyf sem er á bann- lista hjá UEFA og FIFA. Þetta er í fyrsta skipti sem knattspymu- maður fellur á lyfjaprófi í Evrópu- keppninni," sagði Ellert B. Schram. Ellert B. Sehram Reuter. Fagna leikmenn Bayem Miinchen aftur sigri yfir Real Madrid í Evrópukeppninni í kvöld? Hér sjást þeir Klaus Aug- enthaler, Michael Rummenigge og Hans Dofner fagna. Öflugur lögregluvörður verður á Santiago Real Madrid fær Bayern Múnchen í heimsókn ÖFLUG gæsla verður á hinum fræga Santiago Bernabeu- leikvelli í Madrid í kvöld þegar Real Madrid og Bayern Munchen mætast í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Evr- ópukeppni meistaraliða. Sextíu sérþjálfaðir karatemenn verða á meðal áhorfenda og þá verða 400 lögreglumenn inn á vellin- um og annað eins fyrir utan völlinn. F orráðamenn Real Madrid, sem em hræddir um að til óspekta komi, hafa látið reisa háar girðing- ar fyrir aftan mörkin á vellinum. Þeir vita að ef tii uppþots kemur á meðal áhorfenda, þá getur það þýtt að Real Madrid, yerði Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni ÍV-Þýskalandi dæmt í þungt heimaleikjabann í Evrópukeppni. Bayem vann fyrri leikinn, 3:2, í Munchen, eftir að hafa haft yfir, 3:0, þegar tvær mín. vom til leiks- loka. Leikmenn Real, sem sýndu stórleik þegar þeir lögðu Bilbao, 5:0, að velli um sl. helgi, em bjartsýnir. „Við vinnum 8:0,“ segir miðvallar- spilarinn Rafael Gordillo. „Við verð- um kominn með leikinn í okkar hendur eftir 15. mínútur," sagði Emilio Burtragueno. Leikmenn Bayern hafa ekki verið eins kokhraustir. „Ahorfendur hér verða ekki til vandræða. Við emm með mjög leikreyna leikmenn, sem em vanir ýmsu mótlæti," sagði Jupp Heunckes, þjálfari Bayem. Jean-Marie Pfaff, markvörður Bay- em, sem átti stórleik í Madrid sl. keppnistímabil þegar Bayern sló Real Madrid út úr Evróþukeppn- inni, sagði: „Ég er ákveðinn að bæta fyrir mistökin í Miinchen. Við munum leika sterkan varnarleik og slá leikmenn Real Madrid út af lag- inu - vinnum sigur, 1:0. Uppselt er á leikinn. 100 þús. áhorf- endur sjá þessi tvö sterkustu félags- lið Evrópu leika. Ef leikmenn Real ná að tryggja sér rétt til að leika í undanúrslitum, fá þeir allir 1.350 þús. ísl. kr. í vasann og einnig Mercedez Benz-bifreið í verðlaun. Schuster verður ekki tekinn úr umferö Þjálfari Bayer Leverkusen hefur sagt að Bernd Schuster verði ekki tekinn úr umferð, þegar Leverkusen leikur gegn Barcelona í kvöld í EFA-bikarkeppninni. Leikmenn l Eða fagnar Emilio Butragueno og félagar hans hjá Real Madrid? félagsins vildu ólmir að Schuster yrði tekinn úr umferð. Þess má geta að > Leverkusen hefur aldrei tapað leik í Evrópukeppni, eða í þau tvö ár sem félagið hefur leikið í UEjFA-keppninni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.