Morgunblaðið - 29.04.1988, Qupperneq 2
2_______
S-Afríka
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988
Tillaga um
innflutn-
ingsbann
SteingTimur Hermannsson, ut-
anríkisráðherra, lagði það til á
ríkisstjómarfundi á þriðjudag að
innflutningur til íslands á vörum,
sem framleiddar eru í Suður-
Afríku, yrði bannaður.
Ríkisstjómin ákvað á fundi sínum
á þriðjudag að fresta málinu og það
var tekið fyrir á fundi hennar í
gær. Eftir stuttar umræður var
ákveðið að vísa því til utanríkis-
málanefndar Alþingis.
í félagsheimili Seltjamarness snæddu 9. bekkingar úr Valhúsaskóla hátíðarkvöldverð og stigu síðan dans fram á nótt.
Skoskur sjó-
maður fannst
látinn í Ejjum
SKOSKUR sjómaður fannst lát-
inn í V estmannaeyj um á miðviku-
dagskvöld. Dánarorsök hans er
ókunn, en að sögn lögreglu er
ekki ástæða til að halda að mann-
inum hafi verið ráðinn bani.
Vegfarandi fann manninn látinn
í austurhluta bæjarins á miðviku-
dagskvöld og lá hann á hraun-
kambi fyrir ofan Vestmannabraut.
Maðurinn var skipveiji á færeysku
skipi, sem lá í höfn í Vestmannaeyj-
um, en óvíst er hvort hann var einn
á ferð um kvöldið. Lík hans var
flutt til Reykjavíkur til krufningar.
Lögreglan í Vestmannaeyjum vinn-
ur nú að rannsókn málsins.
Morgunbladið/ÐAR
Fjórir kátir félagar tóku dansspor í miðborginni til að fagna
lokum samræmdu prófanna.
Lokum samræmdu
prófanna fagnað
Níundubekkingar um allt land luku í gær samræmdum prófum
og var að vonum glatt á fajalla. Unglingar í Reykjavík og frá
nágrannabyggðunum hafa undanfarin ár haldið upp á próflok
með þvi að safnast saman i miðborginni til að sýna sig og sjá
aðra. Þeir brugðu ekki út af vananum í gær. Þá var mikið fjöl-
menni i miðborginni, en að sögn lögreglu fór allt að mestu frið-
samlega fram þegar Morgunblaðið hafði siðast spurnir af.
Á Seltjamamesi bauð tómstundaráð bæjarins öllum 9. bekkingum
úr Valhúsaskóla til próflokahófs í félagsheimili Seltjamamess, þar sem
byrjað var með borðhaldi en síðan dansað fram eftir nóttu. „Þetta er
okkar viðleitni til að halda krökkunum frá látunum niðri f bæ,“ sagði
Petrea Jónsdóttir, formaður tómstundaráðs. „Þetta var líka gert í fyrra
og gaf góða raun, krakkamir skemmtu sér stórvel."
Forsætisráðherra 1 umræðum um vantraust á ríkisstjórnina:
Ástæða til vantrausts hefði ráðum
stj órnarandstöðu verið fylgt
Fjármálaráðherra: Tal atvinnurekenda um
gengisf ellingn ábyrgðarlaust og hættulegt
Deilt um
breytingar
á miðlun-
artillögu
FULLTRÚAR vinnuveitenda og
verslunarmanna deildu um
breytingar á miðlunartillögu
ríkissáttasenyara í fyrrakvöld
vegna meintra mistaka við gerð
hennar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins töldu verslunarmenn að
ákvæði um 400 króna álag til skrif-
stofufólks vegna yfírvinnu, sem
verið hafði í felldu samningunum,
hefði fallið niður úr miðlunartillög-
unni. Vinnuveitendur kröfðust þá
að nýtt „rautt strik" yrði fellt niður
úr tillögunni, ef bæta ætti inn í til-
löguna að beiðni verslunarmanna.
Ekki náðist samkomulag um þetta
og verður tillagan þvl borin óbreytt
undir atkvæði.
Meðal þess sem um var deilt var
misritun á ártali á rauða strikinu
svokallaða, þar stóð 1988 í stað
1989.
Graftarleyfíð löglegt
BYGGINGANEFND Reykjavík-
ur samþykkti lokateikningar af
ráðhúsínu á fundi sínum i gær,
sem stóð í fimm tíma. Þar var
einnig samþykkt umsögn skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings
um veitingu graftarleyfis fyrir
ráðhúsið. Samkvæmt umsögninni
er graftarleyfið í fullu samræmi
við lög og reglugerðir.
„Teikningamar voru samþykktar
eins og þær liggja fyrir, með þrem-
pr atkvæðum gegn tveimur, og þvl
var byggingarleyfi raunar veitt á
UMRÆÐUR um vantraust á
rikisstjómina fóru fram í sam-
einuðu þingi í gærkvöldi og at-
kvæðagreiðsla að þeim loknum.
Tillagan var felld með 41 at-
kvæði gegn 22. Þorsteinn Páls-
son forsætisráðherra sagði í
umræðunum að ef farið hefði
verið að tiliögum stjómarand-
þessum fundi,“ sagði Hilmar Guð-
laugsson, formaður bygginga-
nefndar. Hann sagði að umsögn
skrifstofustjóra borgarverkfræð-
ings hefði að mestu leyti verið sam-
hljóða umsögn Skipulágsstjómar
rfkisins frá f fyrradag; graftarleyfí
fyrir ráðhúsið styðjist ótvírætt við
lög og reglugerðir.
Á fundinum var einnig tekin fyr-
ir kæra Tjamargötubúa vegna
stækkunar á lóð ráðhússins. Henni
var vísað til skrifstofustjóra borgar-
verkfræðings til umsagnar.
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, fékk samþykkt
byggingánefndar í héndur í gær
stöðunnar þá værum við nú í
vaxandi skuldasöfnun, stóraukn-
um erlendum lántökum og óáran
og ringulreið í efnahagsmálum.
Þá hefði verið ástæða til þess að
flytja tillögu um vantraust á
ríkisstjóraina.
Steingrímur J. Sigfússon, fyrsti
flutningsmaður tillögunnar, sagði
ásamt áliti minnihluta nefndarinn-
ar. Hún sagði að úrskurður hennar
í kæm Tjamargötuíbúa vegna veit-
ingar graftarlejrfís mjmdi ekki
liggja fyrir strax, fyrst þyrfti hún
að skoða fyrmefnd plögg, auk um-
sagnar Skipulagsstjómar rfkisins.
Davíö Oddsson, borgarstjóri,
sagði í gærkvöldi að nú þegar stað-
festing bygginganefndar á teikn-
ingunum lægi fyrir, myndi fátt
hamla byggingu ráðhússins. í dag
verður haldið áfram undirbúnings-
vinnu á byggingarsvæðinu, en eig-
inleg jarðvinna getur ekki hafist
fyrr en eftir helgi, að sögn borgar-
Stjóra.
að auk þess sem væri nefnt í tillög-
unni lækkandi kaupmáttur, skulda-
söfnun, byggðaröskun, staða at-
vinnuveganna, viðskiptahalli og
verkföll væm það hinar almennu
aðstæður í efnahags- og stjóm-
málum sem hefðu kallað fram þessa
tillögu.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, sagði að það eina sem flutn-
ingsmenn tillögunnar sæju væri það
sem úrskeiðis hefði farið og sú
freisting að ala á sundmngu og
úlfúð.
RökBtuðningurinn með tillögunni
væri meðal annars sá að kjör fæm
nú versnandi. Forsætisráðherra
sagði að kaupmáttur hefði á sfðasta
ári aukist meir en nokkm sinni fyrr
og meira en f nokkm öðm landi.
Laun væm orðin stærri hluti af
þjóðartelqum en á öðmm Norður-
íöndum. Hins vegar fæm nú þjóðar-
tekjur minnkandi og við slfkar að-
stæður minnkaði kaupmáttur.
Það væri talað um að nú væm
verkföll. Meginhluti kjaradeilna
hefði þó leysts án verkfalla. Einnig
væri talað um viðskiptahalla og
skuldasöfnum. Forsætisráðherra
sagði að f fjármálaumræðunni á
sfðasta ári hefði stjómarandstaðan
flutt tillögur um að reka ríkissjóð
með halla sem hefði aukið skulda-
söfnun.
Sfðan sagði forsætisráðherra:
„Ef farið hefði verið að tillögum
sljómarandstöðunnar þá væmm við
nú f vaxandi skuldasöfnun, stór-
auknum erlendum lántökum, óáran
og ringulreið f efnahagsmálum. Ef
við hefðum farið að ráðum stjómar-
andstöðunnar þá hefði verið ástæða
til að flyfja tillögu um vantraust á
ríkissfjómina."
Jón Baldvin Hannibalsson, §ár-
málaráðherra, ræddi ástand efna-
hagsmála og sagði að ef versnandi
ytri skilyrði krefðust þess að fómir
yrðu færðar þá skyldu allir fá að
færa þær, atvinnurekendur, ríkis-
vald og launþegar en ekki launþeg-
ar einir.
Hvemig væri nú að útgerðar-
menn myndu fresta fjárfestingar-
áformum upp á 4 milljarða ef eigin-
fjárstaðan lejrfír það ekki? Hvemig
væri að hætta að undirbjóða okkur
með óheftum gámaútflutningi, t.d.
með gjaldtöku sem rynni til físk-
vinnslunnar? spurði fjármálaráð-
herra.
Hann beindi einnig orðum sínum
til atvinnurekenda og bað þá um
að fella niður allt tal um gengis-
fellingu, það væri ábyrgðarlaust og
hættulegt og gæti magnað upp spá-
kaupmennsku og gjaldeyrisbrask.
Fjármálaráðherra spurði hvort „for-
stjóraveldið" myndi ganga á undan
með góðu fordæmi og selja eitthvað
af þeim 1.600 „lúxuskerrum" sem
það keypti á kaupleigukjörum á
síðasta ári undir því yfírskyni að
þama væri vaxtarbroddurinn í at-
vinnulífinu. Síðan sagði Qármála-
ráðherra: „Em nokkur merki þess
að lát sé á annáluðum flottræfíls-
hætti í þrengingunum áður en þeir
koma með bakreikningana um að
lækka launin? Vilja þeir lækka sfn
eigin laun? Hefur einhveijum lax-
veiðileyfum verið skilað upp á
síðkastið?"
Bygginganefnd Reykjavíkur:
Lokateikningar af ráð-
húsinu samþykktar