Morgunblaðið - 29.04.1988, Page 16

Morgunblaðið - 29.04.1988, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988 Á hveiju lifum við? eftirPálKr. Pálsson Að undanfömu hefur mikið verið rætt og ritað um lífskjörin í landinu. Inn í þessa umræðu fléttast ýmsir atburðir, svo sem kjarasamningar og versnandi staða fyrirtækja og í framleiðslugreinum. Staða fyrirtækjanna Ýmsir virðast hafa gleymt því að fyrirtækin í framleiðslugreinun- um, sem skapa verðmæti með því að mæta eftirspum á heimamarkaði og stunda útflutning, eru forsenda þess að við getum lifað í þessu landi. Og meira en það, fyrirtækin verða að skila hagnaði því hagnað- ur þeirra er undirstaða vömþróunar og markaðssóknar, sem aftur er forsenda bættra lífskjara. Nú er svo komið að fá fyrirtæki skila hagnaði og eiginfjárstaða fyr- irtækjanna fer síversnandi. Tökum dæmi úr umhverfí atvinnulífsins: Fyrirtæki skuldar í árslok 1986 60 milljónir. Raunverulegt andvirði eigna á þessum tíma er 65 milljón- ir. Eigið fé fyrirtækisins er því já- kvætt um 5 milljónir. í árslok 1987 er staðan sú að skuldir hafa hækk- að um 18 milljónir. Raunverulegt andvirði eigna er 76 milljónir (hefur lækkað hlutfallslega vegna af- skrifta á grundvelli tækniþróunar og slits). Eigið fé fyrirtækisins er nú neikvætt um 2 milljónir. Á einu ári hefur staðan versnað um 7 millj- ónir. Gefum okkur að þetta fyrirtæki velti um 90 milljónum á árinu 1987 og greiði í laun 20 milljónir. Heild- aifyármagnskostnaður á árinu að frádregnum Qármagnstekjum er um 15 milljónir (25% af heildar- skuldum). Þar af eru raunvextir um 5 milljónir. Fjármagnskostnaðurinn er því næstum jafnhár og launa- kostnaðurinn. Til að standa í sömu sporum og ári áður þyrfti þetta fyrirtæki að skila 7 milljónum í framlegð til fjármagnskostnaðar. Þeir sem til þekkja vita að það er erfítt í þvf rekstrarumhverfí sem fyrirtækin í framleiðslugreinunum búa við í dag. Þetta dæmi er engin undantekning og langt frá því að vera í „verri kantinum". Það verður þvf miður að segjast, að oft fínnst manni opinber umræða um þessi mál út f hött. Jafnvel færustu sérfræðingar virðast vera búnir að gleyma því að hvorki fólk né fyrirtæki lifa á vísitölum eða prósentum, heldur krónum og aur- um. Raunvextirnir í viðskiptablaði Morgunblaðsins nú fyrir skömmu, mátti sjá töflu þar sem fram kemur að raunvextir hér eru með því hæsta sem þekkist innan OECD og mun hærri en í helstu samkeppnislöndum okkar (þ.e. þeim löndum sem við flytjum mest inn frá og mest út til). Fulltrú- ar þeirra sem mest hafa talað um að raunvextir væru hér ekki hærri en gerist og gengur meðal sam- keppnisþjóða okkar hafa ekki gagn- rýnt þennan samanburð. Verður ekki annað séð en menn séu nú almennt sammála um að atvinnulíf- ið geti ekki lengur staðið undir þeim UM SÍÐUSTU helgi barst GaUerí Borg sending frá Louisu Matt- híasdóttur; tólf litlar og miðl- ungsstórar olíumyndir, sem flestar eru nýjar og hafa ekki sést hér á landi áður. Þessar Louisu-myndir hafa verið hengdar upp í neðri kjallara Gall- erísins í Pósthússtræti og eru þar til sölu. flármagnskostnaði sem hér er. Vissulega er margt til í því sem menn segja um að eigið fé íslenskra fyrirtækja sé almennt of lítið. Hins vegar er út í hött að kenna eigend- um fyrirtækjanna í einu og öllu um hvemig komið er. Eftir langvarandi verðbólgu, þar sem skuldir og steinsteypa voru arðbærustu fjárfestingamar, er ekki hægt að búast við því að öll hjólin snúist við í einni svipan. Þannig gerast hiutimir einfaldlega ekki í raunveruleikanum. Það var vissulega mjög mikilvægt að hverfa frá neikvæðum raunvöxtum, en all- ar öfgar em hættulegar. Þær eru jarðvegur mikilla eignatilfærslna á skömmum tíma, án þess að raun- veruleg verðmætasköpun liggi þar að baki. „Hvað er þetta maður, þetta reddast“ Kjami málsins er að ná verð- bólgunni niður, þannig að jafnvægi komist á í efnahagslífínu og þar með í þjóðfélaginu. Menn tala í þessu sambandi um að fastgengis- stefna sé það sem ganga verði út frá. Það kann að vera rétt, en þá verða menn lfka að gera sér grein fyrir að fastköstnaðarstefna er for- senda þess að hægt sé að reka fast- gengisstefnu, öðmvísi lifír atvinnu- lífíð ekki fastgengisstefnuna af. Það er hreinn bamaskapur að halda að fyrirtæki geti tekið á sig kostnaðarhækkanir upp á tugi pró- senta á ári, en selt afurðir sínar á óbreyttu verði. Hér lætur eitthvað undan. Það sem gerst hefur er að fyrirtækin hafa í stómm stíl fjár- magnað versnandi rekstrarafkomu með einhveiju dýrasta lánsfé í Evr- ópu, í þeirri von að senn kæmi betri tíð. En betri tíð er ekki enn komin og ekkert útlit virðist fyrir að hún sé á næstu grösum. Hið opinbera stýrir fastgengis- stefnunni en virðir sjálft ekki for- sendumar. það er fastkostnaðar- stefnuna, heldur hækkar þjónustu sína að því er virðist eftir þörfum. Það læðist óneitanlega að manni sá ótti að mörg fyrirtæki séu í raun búin að gefast upp, hafi gert sér grein fyrir að eigið féð sé í raun uppurið og því engu að tapa þótt tekin séu meiri lán. Hinum megin standa svo lánveitendur sem virðast gera sér grein fyrir að raunvemlegt markaðsandvirði eigna fyrirtælq'- anna standi oft ekki undir skuldum og ef fyrirtækin fari á hausinn fái þeir ekki sitt og því sé eins gott að lána svolítið meira í von um að það fari nú að rætast úr þessu. Gjaldþrotum lögaðila (fyrirtækja og félaga) fjölgaði úr 73 árið 1984 í 145 ár árið 1987. Til saman- burðar má benda á að fyrir um 10 áram vora gjaldþrot lögaðila óal- geng. Fátt virðist benda til að úr gjaldþrotum dragi á yfírstandandi ári. Þessi þróun hlýtur að geta tal- ist sem vísbending um að eitthvað sé að. Það er vissuleg rétt að 60 þúsund krónur í mánaðarlaun í fískvinnslu fyrir 50 stunda vinnuviku em ekki há laun. En þau em engu að síður miklu hærri en samkeppnisaðilar okkar þurfa að greiða í fískverkun- Þá hefur Gallerí Borg einnig bor- ist nokkrar myndir eftir Karólínu Lámsdóttur, vatnslitamyndir og olíumyndir, sem einnig em til sölu í kjallaranum. Gallerí Borg, Pósthússtræti er opið frá klukkan 10 árdegis til klukkan sex sfðdegis og á milli klukkan tvö og sex um helgar. (FréttatUkynning) arhúsum í Bretlandi og Þýskalandi, þar sem atvinnuleysi er mikið og nóg af ódýra vinnuafli. Þetta em staðreyndimar sem íslensk fyrir- tæki standa frammi fyrir í dag. Krafan um hærri laun fer nú eins og eldur í sinu um allt þjóðfélagið. Akveðnir hópar hafa þegar samið til næstu 12 mánaða. Hins vegar eiga ýmsir hópar enn eftir að semja, meðal annars hópar sem fengið hafa gífurlegar launahækk- anir á undanfömum 2 ámm. Þessir hópar láta ekki deigan síga og krefy- ast nú enn meiri launahækkana. Á sama tíma er stór hluti þeirra fyrir- tækja, sem em undirstaða verð- mætasköpunar, rekinn með tapi og eigið fé þeirra rýmar stöðugt. Þessi mál verða hvorki leyst með stjómvaldsákvörðunum, verkföllum né fastgengisstefnu. Þetta verkefni verður aðeins leyst með því að öll þjóðin líti í spegil og spyiji sig: „Hvaða rétt hef ég til- að stofna fnamtíð minni og afkomenda minna í hættu?" Já, það vaknar óneitan- lega sú spuming hjá manni hvort við höfum engar skyldur gagnvart þeim sem eiga að erfa landið. Það er eins gott að það fólk neiti ekki að greiða okkur ellilífeyrinn þegar þar að kemur, fari ekki í verkfall og heimti uppgjör skuldasúpunnar, þ.e. að við tökum á okkur þær skuldir sem við bemm ábyrgð á. Við gemm endalausar kröfur, tökum endalaus lán í útlöndum, leyfum endalaust bmðl, þar sem verið er að eyða lánsfé i fjárfesting- ar sem koma aldrei til með að skila sér og em að hluta til nú þegar orðnar hlekkur um háls næstu kyn- slóðar sem í orðsins fyllstu merk- ingu fær að erfa syndir feðranna. Eða halda menn e.t.v. að þetta sé bara leikur og það þurfí ekki að greiða þessi lán til baka? Síðan skömmumst við hvert út í annað, kennum ráðhermm og ríkisstjóm um, höldum áfram að heimta hærri laun og gleðjumst jafnvel þegar einhveijum öðmm gengur illa og „hinir" fara á hausinn. Hvað þurfum við að gera? Sú verðmætasköpun sem er und- irstaða þeirra lífskjara sem við bú- um við fer að miklu leyti fram í sjávarútvegi og iðnaði. Forsenda þess að við getum bætt lífskjörin er því aukin verðmætasköpun í þessum greinum. Viðskiptahallinn er nú orðinn geigvænlegur. Síðustu 10 árin hefur svo til alltaf verið halli á viðskiptum okkar við útlönd. í ár er gert ráð fyrir að viðskipta- hallinn verði ekki undir 10 milljörð- um króna. Við eyðum langt um efni fram og tökum lán erlendis til að halda veislunni áfram. En ekki nóg með það. Við ætlum komandi kynslóð að greiða þessi lán til baka. Þetta er eitthvert mesta ábyrgðarleysi sem hægt er að hugsa sér í einu þjóðfélagi. 1. Eitt mikilvægasta verkeftiið í því að snúa af þeirri braut sem við emm nú komin á er að ná viðskipta- hallanum niður. Til þess em fjórar leiðir: — Vinna nýja markaði fyrir íslenskar afurðir erlendis og auka þannig útflutning. Til þssa þarf mjög mikla fjármuni sem fyrirtækin hafa ekki í dag, vegna lélegrar af- komu á undanfömum ámm. Það þarf því að gefa fyrirtækjunum svigrúm til að skila hagnaði svo þau geti varið auknu fjármagni til ný- sköpunar og markaðssóknar og þannig unnið nýja markaði erlendis og aukið útflutning. — Vinna aukinn markað fyrir íslenskar afurðir innanlands á kostnað innflutnings. Til þess að árangur náist á þessu sviði verður að bæta samkeppnisstöðu innlends iðnaðar. Mikilvægasta verkefnið hér felst í að ná verðbólgunni niður og örva þátttöku almennings í at- vinnurekstri, með því að gera hluta- flárkaup jafn eftirsóknarverð og annað spamaðarform. Ljóst er hins vegar að þessar aðgerðir taka nokk- Páll Kr. Pálsson „Við gerum endalausar kröfur, tökum endalaus lán í útlöndum, leyfum endalaust bruðl, þar sem verið er að eyða lánsfé í fjárfestingar sem koma aldrei til með að skila sér o g eru að hluta til nú þegar orðn- ar hlekkur um háls næstu kynslóðar sem í orðsins fyllstu merk- ingu fær að erfa syndir feðranna. Eða halda menn e.t.v. að þetta sé bara leikur og það þurfi ekki að greiða þessi lán til baka? Síðan skömm- umst við hvert út í ann- að, kennum ráðherrum og ríkisstjórn um, höld- um áfram að heimta hærri laun og gleðj- umst jafnvel þegar ein- hverjum öðrum gengur illa og „hinir“ fara á hausinn.“ um tíma þar til árangur fer að skila sér. — Samdráttaraðgerðir í fjárfest- ingum einkaaðila, opinberra aðila og aðgerðir til að draga úr einka- neyslu. Hér er hægt að ná árangri á tiltölulega skömmum tíma. — Spamaður í opinbemm rekstri. Hér er stórt verk að vinna því möguleikamir em miklir, eink- um með auknu eftirliti innan ríkis- rekstursins og með því að færa ýmsa þætti sem í dag em í höndum opinberra aðila í hendur einkaaðila. Allt tal um að slíkt leiði til minni og verri þjónustu af hálfu hins opin- bera er byggt á misskilningi. Á sama hátt og fyrirtæki geta náð að auka framleiðnina með ýmsum aðgerðum, t.d. endurbótum í fram- leiðslu og birgðastýringu, ásamt aðgerðum á sviði hönnunar, þróun- ar, markaðsmála og aukinnar tæknivæðingar, er hægt að beita ýmsum aðgerðum til spamaðar inn- an opinbera geirans án þess að það bitni með einum eða öðram hætti á gæðum þjónustunnar. 2. Fyrir utan að upplifa um- fangsmestu tæknibreytingar sem um getur í veraldarsögunni stönd- um við frammi fyrir vemlegri breyt- ingu á aldursskiptingunni í þjóð- félaginu. Þessi breyting kallar á nýja hugsun í „atvinnusköpunamm- ræðunni". Færri og færri verða til að sjá öldmðum farborða. Færri og færri verða til að standa undir kostnaðinum vegna endurgreiðslu á lánum sem tekin hafa verið. Tvær meginleiðir em færar til að hafa áhrif á þessa þróun. Ann- arsvegar að gera það eftirsóknar- verðara að eignast böm og hins vegar að vinna að því að ný störf skapi sem mest verðmæti. Með þessu er átt við að í stað atvinnu- sköpunarsjónarmiða komi verð- mætasköpunarsjónarmið. í raun má segja að við séum alltof fá í Gallerí Borg: Louisa og Karó- lína í kjaUaranum þessu landi til að hafa efni á að eyða vinnuaflinu í óarðbær störf, eða störf þar sem lítill virðisauki á sér stað. 3. Þá er mikilvægt að við gemm okkur grein fyrir að aukin sjálf- virkni mun væntanlega valda vem- legri tilfærslu á vinnuaflinu í fram- tfðinni. Sjálfvirknivæðingin í fslensku atvinnulífí er þegar hafín. Þróunin fram til þessa hefur verið fremur hæg en ýmislegt virðist nú benda til að veralegur kippur sé að komast í sjálfvirknivæðingu íslenskra fyrirtælq'a. Ein meginskyringin á aukinni sjálfvirknivæðingu er skortur á vinnuafli og sú verðlækkun sem er að eiga sér stað á tölvustýrðum búnaði. Erlendis hefur sjálfvirkni- væðingin meðal annars haft í för með sér aukið atvinnuleysi. Sums staðar hefur mönnum tekist að ^ sneiða hjá þessu, eins og t.d. í Jap- an þar sem mikill fjöldi nýrra starfa hefur skapast í kjölfar aukinnar sjálfvirknivæðingar, bæði við þróun og framleiðslu sjálfvirks búnaðar og eftirlit, viðhald og menntun á þessu sviði. Sjálfvirkninni fylgja bæði tæki- færi og ógnanir fyrir okkur íslend- inga. Með aukinni sjálfvirkni opnast möguleikar á fjölgun starfa í ýms- um greinum sem tengjast þróun og framleiðslu sjálfvirks búnaðar og viðhaldi og rekstri á sjálfvirkum vélum. Möguleikamir felast einkum í hönnun og þróun nýrra afurða, markaðssókn með nýjar afurðir framleiddar með hátækniaðferðum, viðhaldi og þjónustu á þeim sjálf- virka tækjabúnaði sem notaður verður og menntun þeirra sem starfa í þessu umhverfí. Ógnunin felst hins vegar í þeirri fækkun hefðbundinna starfa í ýms- um greinum atvinnulífsins sem óhjákvæmilega mun eiga sér stað í lqolfar aukinnar sjálfvirknivæð- ingar. Forsenda þess að okkur takist að nýta sjálfvirknivæðinguna til bættra lífskjara er gífurleg þróun- arstarfsemi, margföld á við það sem nú viðgengst. Kjami málsins er sá að aukin sjálfvirkni mun koma hvort sem við viljum eða ekki og ef við þróum ekki sjálf hluta þeirra tækja sem verða notuð í hefðbundn- um greinum atvinnulífsins í framt- íðinni og í nýjum greinum, er hætta á að ný tækni verði að mestu leyti flutt inn og lífskjörin muni versr.a hér á landi og við jafnvel fá svipað- an atvinnuleysisskell og ýmsar aðr- ar þjóðir. Einungis með því 'ð nýta nýja tækni til að þróa, '.amleiða og markaðssetja samkeppnishæfar afurðir á alþjóðamarkoði mun okk- ur takast að bæta úfskjörin. Stóriðja morgundagsins á íslandi er því ekki orkufrekur iðnaður, þó vissulega sé rétt að kanna þá mögu- leika eins og aðra. Það sem við þurfum að leggja áherslu á og fjár- festa í er þekkingamppbygging og tæknivæðing sem er forsenda þess að við höldum þeim lífskjömm sem við höfum hvað þá að við bætum þau. Til að ná árangri þurfum við að veija miklum ijármunum f þróunar- staiftð á næstu ámm. Hér duga ekki tugir milljóna, heldur þarf hundmð milljóna á hveiju ári. Auka þarf starfsþjálfun, eftirmenntun og endurmenntun og sjá til þess að almenningur í landinu verði virkari þátttakandi f atvinnulffínu en verið hefur. Fmmkvæðið að þessari þróun verður að koma frá fyrirtækjunum sjálfum. Hins vegar er ljóst að nauð- synlegt áhættufjármagn er í dag ekki til staðar f fyrirtækjunum. Fyrirtækin eiga erfitt með að standa ein straum af því gífurlega þróunarstarfí sem hér þarf að koma til. Því er mikilvægt að veita fyrir- tækjunum aukið svigrúm til ný- sköpunar. Slíkt verður ekki gert með aukinni skattheimtu og óraun- hæfum launakröfum. 4. Tækifærin í atvinnuuppbygg- ingunni em næg. Sem dæmi má nefna: — Fiskeldi. — Framleiðslavélaogtækjafyr- ir veiðar og vinnslu. — Fullvinnsla sjávarafurða. — Hugbúnaðar- og rafeindaiðn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.