Morgunblaðið - 06.05.1988, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Atvinnurekendur
33 ára fjölskyldumaður óskar eftir góðu
starfi. Mikil reynsla í markaðsmálum, inn-
kaupum og erlendum viðskiptum. Menntun
í markaðssetningu.
Upplýsingar um nafn, síma og aðrar upplýs-
ingar leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merktar: „ W - 4966“.
Matreiðslumaður
1. flokks veitingahús í Hafnarfirði óskar eftir
að ráða matreiðslumann sem fyrst.
Upplýsingar gefur yfirmatreiðslumaður á
staðnum.
Veitingahúsið Fjaran,
Strandgötu 55, 220 Hafnarfirði,
s. 651213 og 651890.
Starfskraftur
- fatnaður
Landsbanki íslands
vill ráða starfskraft til að annast öll mál er
varða einkennisfatnað starfsmanna bankans.
í þessu felst m.a. samskipti við framleiðendur
og starfsfólk. Leitað er að duglegum og
snyrtilegum aðila með góða alhliða starfs-
reynslu. Áhugi og þekking á fatnaði er æski-
legur.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
okkar.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar
eða hjá starfsmannasviði bankans í Hafnar-
húsinu.
Umsóknafrestur er til 13. maí nk.
Gudni Tónssqn
RÁÐCJÖF & RÁDNl NGARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 RHYKJAVlK - PÓSTHÓLF 693 SÍUI621322
Frá menntamála-
ráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla
Við Nýja hjúkrunarskólann er laus til um-
sóknar ein og hálf staða námstjóra. í stöðun-
um felst fagleg ábyrgð á námsbraut, skipu-
lagning og stjórn auk þess kennsluskylda
að hluta til.
Viðfangsefni næsta ár verða:
Gjörgæsluhjúkrun,
félags- og heilsuverndarhjúkrun,
hjúkrunarstjórnun,
geðhjúkrun, svæfinga- og skurðhjúkrun.
Ráðið verður í stöðurnar til eins árs. Nánari
upplýsingar eru veittar í síma 622150 kl.
10.00-12.00 alla virka daga.
' Við framhaldsskólann á Húsavik eru lausar
kennarastöður í eftirtöldum greinum:
Þýsku, frönsku, ensku, viðskiptagreinum,
stærðfræði, tölvufræði og hálf staða í tón-
mennt. Jafnframt er óskað eftir sérkennara til
að kenna nemendum með sérkennsluþarfir.
Við menntaskólann og iðnskólann á ísafirði
eru lausar eftirfarandi stö_ður:
Ein og hálf staða í íslensku og stærðfræði,
heilar stöður í þýsku, vélstjórnargreinum,
rafvirkjun, rafeindavirkjun, grunnnámi rafiðna
og þjálffræði íþrótta og skíðaþjálfun, tveir
s þriðju stöður í dönsku og skipstjórnarfræð-
um, hálfar stöður í frönsku og eðlisfræði.
Ennfremur starf húsbónda, húsmóður og rit-
ara, allt hálfar stöður.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 25.
maí nk.
lEltflit KIIl
Menn tamálaráðuneytið.
iJUKitimiiXiitiiDnxitHHimiMi
Rekstrarfræði
Fræðslustarf og umsjón starfsþjálfunar við
Samvinnuskólann á Bifröst er laust til um-
sóknar. Viðskiptafræðimenntun eða önnur
sambærileg menntun og reynsla í atvinnu-
lífinu áskilin.
Góð launakjör, mikil tengsl við atvinnulífið,
atvinnumöguleikar fyrir maka og fjölskyldu.
íbúð á Bifröst fylgir starfi.
Umsóknir sendist skólastjóra Samvinnuskól-
ans á Bifröst og hann veitir upplýsingar í
síma 93-50000.
Sam vinnuskólinn.
Trésmiðir - tækifæri
Getum bætt við okkur góðum smiðum í verk-
efni okkar á Reykjavíkursvæðinu. Hörku
mælingaverk framundan. Mikil framtíðar-
vinna. Góður aðbúnaður.
Upplýsingingar í síma 652221.
S.H. VERKTAKAR HF.
STAPAHRAUN 4 - 220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 652221
w
Skrifstofustarf
Óskum að ráða starfskraft til almennra skrif-
stofustarfa. Starfið felst m.a. í frágangi toll-
pappíra og verðútreikninga ásamt símavörslu
og skjalavörslu. Enskukunnátta áskilin.
Skriflegar umsóknir sendist til ÍSÓL HF.,
Ármúla 17.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Harðduglegur
sölumaður
óskast til sælgætissölu o.þ.h. Við leggjum
til góðan bíl, góða vinnuaðstöðu og fyrsta
flokks vöru. Prósentur og trygging.
SPECTRUM HF
'ÉÉ'
I
P.o box662, 121 Reykjavík.
Fjórðungssjúkrahúsið
Neskaupsstað
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðinga vantar til sumarafleys-
inga og í fast starf. Húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
97-71403.
Framkvæmdastjóri.
Framtíðarstarf
Vegna aukinna umsvifa þurfum við að bæta
við starfsmanni í prentmyndagerð. Fag-
kunnátta ekki nauðsynleg. Æskilegt að hann
sé á aldrinum 30-50 ára og geti unnið sjálf-
stætt. Fjölbreytt starf.
Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast sendi inn
umsókn til auglýsingadeildar Mbl. merkta:
.ftamtíterstíýf. r. ^7Æ7“*fyrir. A§« ..,,.
Hárgreiðslu- eða
rakarasveinn
Óska eftir að ráða hárgreiðslu- eða rakara-
svein strax. Einnig nema í hárgreiðslu.
hjdDúcldd
HótelEsju,
S. 83055, 686917.
Verkamenn
- framtíðarstörf
Getum bætt við okkur vel þjálfuðum og
starfsreyndum verkamönnum við bygginga-
framkvæmdir og við gangstétta- og götu-
kantagerð á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Mikil
framtíðarvinna.
Upplýsingar í síma 652221.
S.H. VERKTAKAR HF.
STAPAHRAUN 4 - 220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 652221
w
Leikjanámskeið
í sumar
Óskum eftir að ráða áreiðanlegan aðila sem
hefur áhuga á íþróttum og gaman af börrium.
Upplýsingar í síma 687701 eftir kl. 4 á daginn.
SÓLEYJAR
ENGJATEIG1 -
við Sigtúnsreit
Knattspyrnuþjálfari
óskast
Ungt knattspyrnulið í 4. deild óskar að ráða
þjálfara fyrir keppnistímabilið, sem nú er að
hefjast.
Áhugasamir vinsamlegast hringið í síma
18125 eftir kl. 18.00.
Húsasmíðameistari
getur bætt við sig verkefnum.
Sími 652147 á kvöldin.
Járniðnaðarmenn
- rafiðnaðarmenn
Okkur vantar nú eða fljótlega menn til afleys-
inga í sumarfríum eða til lengri tíma. Starfið
er einkum fólgið í járniðnaði, rafiðnaði og
skildum greinum. Langur vinnutími, fæði í
mötuneyti.
Upplýsingar gefur Ágúst Karlsson í síma
681100.
Olíufélagið hf.,
Suðurlandsbraut 18,
simi681100.