Morgunblaðið - 06.05.1988, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÁRSÞING KKÍ
Tvísýnt að útlendingar tái
að leika í úrvalsdeildinni
næsta keppnistímabil
Þrjú mikilvæg mál á Ársþingi KKÍ
J^RSÞING Körfuknattleikssam-
bands íslands hefst á morgun.
Líklega mun mest verða rœtt
um þrjú mál, hvort leyfa eigi
útlendinga í úrvalsdeildinni,
breytlngar á fyrirkomulagi
deildarinnar og starfsreglur
aganefndar.
að sem verður þó líklega aðal-
málið á þessu þingi er hvort
útlendingum verði leyft að leika
með íslenskum liðum, en tillaga
þess efnis verður lögð fram á þing-
inu. Samkvæmt öruggum heimild-
um Morgunblaðsins er mjög tvísýnt
hvort tillagan verður samþykkt eða
felld og mun líklega velta á örfáum
flékvæðum. Meirihluti Suðumesja-
liðanna er fylgjandi tillögunni, en
Reykjavíkurliðin eru flest á móti.
Þó er alls ekki ljóst hvemig nákvæm
skipting er á milli liða og þrátt fyr-
ir að leikmenn séu flestir fylgjandi
tillögunni er ekki þar með sagt að
stjómarmenn félaganna séu sama
sinnis. Það verða þó þeir fulltrúar
sem félögin senda sem ráða úrslit-
um um endanlega niðurstöðu.
Samkeppni við handbofta
í»að er ljóst að íslandsmótið í hand-
knattleik verður með fjömgasta
móti, enda margir atvinnumenn á
leið heim. Þeir sem em fylgjandi
því að leyfa útlendinga telja því
nauðsynlegt að fá útlendinga að
nýju inn í deildina til að geta veitt
handboltanum samkeppni. Áhorf-
endafjöldi á körfuboltaleikjum vetr-
arins var með minnsta móti, ef
undan em skildir síðustu leikir ver-
tíðarinnar og því telja margir að
það eina sem gæti flölgað áhorfend-
um að nýju séu útlendingar.
Þeir sem em á móti halda því fram
að íslenskur körfubolti eigi að dafna
án erlendra leikmanna og þannig
verði breiddin meiri. Auk þess er
dýrt að fá erlenda leikmenn og fé-
lögin ekki mjög vel stæð fyrir.
Ef tillagan um útlendinga verður
samþykkt mun hún gilda til eins
árs og eftir það verður hún tekin
til endurskoðunnar.
8 llð í úrvalsdeild
Önnur tillaga sem lögð verður fram
á þinginu varðar breytingar á fyrir-
komulagi úrvalsdeildarinnar. Þar
er hugmynd um riðlakeppni. Tveir
riðlar skipaðir fjómm liðum hvor. í
hvomm riðli verður leikin fjórföld
umferð og tvöföld umferð út í hinn
riðilinn. Þannig myndu öll liðin leika
saman. Það lið sem hafnaði í efsta
sæti í A-riðli myndi mæta liðinu í
2. sæti í B-riðli, og öfugt, í úrslita-
keppninni. Raðað yrði í þessa riðla
eftir styrkleika.
Þetta em aðeins átta lið og sam-
kvæmt þessu myndi Þór falla í 1.
Þór í 1. deild?
deild og em Norðanmenn skiljan-
lega ekki ánægðir með það.
Þetta fyrirkomulag er svipað því
og er í NBA-deildinni í Banda-
ríkjunum og gefur kannski meiri
möguleika, auk þess að réttlæta
úrslitakeppnina, en ekki hafa allir
verið á eitt sáttir við fyrirkomulag
hennar. Þá fjölgar leikjunum um
Qóra, verða 20 í stað 16.
Breyttar reglur aganefndar
Þriðja stóra málið á þessu þingi er
tillaga um breyttar starfsreglur
aganefndar. Nefndinni hafa verið
settar mjög þröngar skorður og
reyndar verið óstarfhæf í alvarlegri
málum, eins og kom svo greinilega
í ljós í máli ívars Webster í vetur.
Þessi nýja tillaga miðast við að
breyta reglunum í þá vem að aga-
nefnd geti tekið öll mál og staðið
undir nafni.
Nýr formadur KKÍ
Auk þessara mála, sem munu
líklega taka mestan tíma á þinginu,
fer fram kosning formanns. Bjöm
Björgvinsson, formaður KKÍ, mun
ekki gefa kost á sér aftur og búast
flestir við að Kristinn Albertsson,
gjaldkeri, taki við stöðu hans.
Þingið hefst á morgun kl. 13 í
Hótel ÍSÍ og heldur svo áfram á
sunnudaginn frá kl. 10.
Morgunblaðið/Einar Falur
Valur Inglmundarson var kjörinn besti leikmaður úrvalsdeildarinnar á nýaf-
stöðnu keppnistímabili. Stendur valið á milli erlendra leikmanna næsta ár?
VEGGTENNIS / ISLANDSMOT
Morgunblaðið/Bjarni
Q6ð þátttaka var í íslandsmótunum í veggtennis um helgina.
Ásmundur sigursæll
ÍSLANDSMÓTIÐ í „squash“ og
„raquetball" fór fram um
síðustu helgi. í fyrrnefnda
leiknum var íslandsmeistari f
karlaflokki Frosti Sigurjónsson
en f kvennaflokki Ingrid Svens-
son. Sigurvegar á íslands-
meistaramótinu í „racquett-
ball“ urðu hins vegar Ásmund-
ur Ólafsson f karlaf lokki og
Ellen Björnsdóttir f kvenna-
flokki.
eppt var í „squashinu" í Vegg-
sport á Seljavegi en „raquet-
ball“-keppnin fór fram í Dansstúdói
Sóleýjar.
Frosti Siguijónsson sigraði Hörð
Þorsteinsson í úrslitaleiknum í
„squashi". í þriðja sæti lenti Sigurð-
ur Sveinsson. íslandsmeistari
kvenna varð Ingrid Svensson en í
öðru sæti Helga B. Jónsdóttir. Inga
Róbertsdóttir hafnaði í því þriðja.
í annarri deild varð Jón Rósmann
Mýrdal sigurvegari en Jakob Þór
Pétursson í öðru og Davíð
Davíðsson í þriðja. Efnilegasti leik-
maður mótsins var kosinn Elvar
Guðjónsson og gaf Veggsport hon-
um bikar fyrir. Góð þátttaka var á
mótinu eða um 50 manns. Fyrirtæk-
ið Nýtt sþdrt sf. gaf farandbikará
í verðlaun.
íslandsmeistari í „raquetball" varð
sem fyrr segir Ásmundur Ólafsson
en hann sigraði einnig í Stjömumót-
um vetrarins. Þrándur Amþórsson
varð í öðru sæti og Victor Urbancic
í þriðja. íslandsmeistari kvenna
varð Ellen Bjömsdóttir en Edda
Svavarsdóttir í öðru og Margrét
Jónsdóttir í því þriðja. í annarri
deild sigraði Stefán Jónsson en
Bjami Brandsson varð í öðru sæti
og Ellen Bjömsdóttir í þriðja. Versl-
unin Útilíf gaf farandbikara í karla-
flokki en Dansstúdíó Sóleyjar í
Tcvennaflokki.
KÖRFUBOLTI / NBA
San Antonio
Spurs úr leik
Pétur Guðmundsson og félagar
hjá San Antonio Spurs em nú
úr leik í úrslitakeppni NBA-deildar-
innar í körfuknattleik.
San Antonio tapaði fyrir Los Ange-
les Lakers í þriðja leik liðanna,
107:109. Lakers sigraði því saman-
lagt, 3:0.
Úrslit i NBA-deildinni, samanlegt i sviga:
Cleveland-Chicago Bulía.....110:102 (1:2)
Dallas Mavericks-Houston Rockets93:92 (2:1)
L.A. Lakers-San Antonio Spurs .109:107 (3:0)
Denver-Seattle Supersonics 125:114 (2:1)
KNATTSPYRNA / SVISS
Spennan eykst í
deildarkeppninni
LUZERN, lið Sigurðar Grétars-
sonar, tapaði 3:1 fyrir Aarau á
þriðjudagskvöld og missti þar
af mikilvægum stigum f sviss-
nesku deildarkeppninni. Liðið
er nú í 4. sæti með 23 stig eins
og Grasshoppers og keppnin
um UEFA-sætin fer harðnandi.
Xamax er enn f efsta sæti með
28 stig en Aarau er f öðru
sæti með 27. Servette er f
þriðja sæti með 25 stig.
Sigurðar var nq'ög vel gætt allan
leikinn og fyrir vikið fékk hann
engin marktækifæri. Hann byrsti
sig við dómarann þegar farið var
^■■■■1 að líða á fyrri hálf-
Anna leik og fékk að líta
Bjamadóttir gula spjaldið.
skrifarfrá Aarau náði forys-
tunni eftir auka-
spymu strax á fyrstu mínútu. Bæði
liðin börðust vel og leikurinn var
hraður og skemmtilegur. Staðan
var 1:0 í hálfleik. Wynton Rufer,
sem var kallaður „besti framheijinn
í Sviss“ eftir leikinn, setti annað
mark Aarau á 56. mínútu. Schönen-
berg skoraði loks fyrir Luzem á
71. mínútu en liðinu tókst ekki að
jafna metin. Sigurður gat ekki um
frjálst höfuð strokið og Jurgen
Mohr þótti ekki standa sig nógu
vel á miðjunni. Rufer skoraði á ný
fyrir Aarau á 78. mínútu og liðið
komst í seilingarfæri við meistara-
titilinn.
Servette sigraði Xamax 2:4. Þetta
var fyrsti ósigur Xamax á heima-
velli í tvö ár. Liðið hafði ekki beðið
ósigur í 30 leikjum í röð. Það tap-
aði gegn YB 1:4 árið 1986. YB
varð þá meistari en Xamax vann
titilinn aftur ári seinna. Karl-Heinz
Rummenigge skoraði tvö af mörk-
um Servette í leiknum. Hann þykir
hafa staðið sig vel í Sviss í vetur.
Grasshoppers unnu YB 3:0 í fyrra-
kvöld.
Næsti leikur Luzem verður gegn
Servette annað kvöld. Grasshoppers
keppa þá við Xamax og Aarau við
St. Gallen.