Morgunblaðið - 22.05.1988, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B
115. tbl. 76. árg.____________________________________SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkín:
Harmleikur í
smábarnaskóla
Winnetka. Reuter.
EITT barn lést og fimm særðust
alvarlega þegar ung kona gekk
á föstudag inn i skóla í bænum
Winnetka í Illinois-ríki í Banda-
ríkjunum og hóf að skjóta á nem-
endurna. Þá hafði hún áður
reynt að kveikja í öðrum skóla
og einnig húsi fjölskyldunnar,
sem hún hafði unnið fyrir við
Sovétríkin:
Flokksleið-
togar
settir af
Moskvu, Reuter.
KYMRAN Bagirov, leiðtogi sov-
éska Itnmmtiniataflokksins f sovét-
lýðveldinu Azerbajdzhan, var f
gær vikið úr starfi. Skömmu sfðar
var frá þvf skýrt að leiðtoga
flokksins í Armenfu hefði einnig
verið gert að taka pokann sinn.
Sovéska fréttastofan Tass skýrði
frá þvf að Abdul Vezirov hefði tekið
við starfi Bagirovs. Vezirov hefur
verið sendiherra Sovétríkjanna í Ind-
landi, Nepal og Pakistan.
Armenski minnihlutinn í
Azerbajdzhan hefur mjög látið til sín
taka að undanfömu. Þjóðemissinn-
aðir Armenar hafa krafist þess að
landbúnaðarhéraðið Nagomo-Kara-
bakh verði á ný sameinað Armeníu.
í febrúarmánuði brutust út harðvítug
átök Armena og Azerbajdzhana í
borginni Sumgajt í Azerbajdzhan og
þegar þeim lauk lágu rúmlega 30
manns í valnum.
Fyrr í þessari viku eftidu Armenar
til fjölmennra mótmæla í borginni
Jerevan til að leggja áherslu á kröfur
sínar og á miðvikudag flykktust
Azerbajdzhanar út á götur Bakú-
borgar til að mótmæla meintum of-
sóknum Armena.
barnagæslu. Að lokum svipti hún
sjálfa sig lífi.
Bandaríska alríkislögreglan var
að leita konunnar, sem hét Laurie
Dann, þrítug að aldri, vegna ann-
arra saka þegar hún gekk inn í
skólann, kvaðst ætla að kenna böm-
unum sitthvað um lífið og lét kúlna-
hríðina dynja á þeim. Átta ára gam-
all drengur lést strax en fimm önn-
ur böm eru alvarlega særð. Áður
hafði Dann kastað bensínsprengju
inn á heimili fjölskyldu, sem hún
hafði unnið fyrir, rejmt að kveikja
í skóla og verið hrakin frá öðrum
tveimur.
Dann braust loks inn í íbúðarhús
og sinnti hvorki tilmælum lögregl-
unnar né foreldra sinna um að gef-
ast upp. Þegar lögreglumenn vog-
uðu sér inn í húsið sjö klukkustund-
um síðar var Dann látin, hafði skot-
ið sig í höfuðið. Laurie Dann átti
við geðræn vandamál að stríða og
var lögreglan að leita hennar vegna
þess, að hún hafði hringt í fólk og
hótað að drepa það. Þá hafði hún
reynt að stytta fyrrverandi eigin-
manni sínum aldur og oft verið tek-
in fyrir þjófnað í verslunum.
I
& s
æ: 4*
... *
W4m
Morgunblaðið/RAX
... útí er
ævintýri
Kisa hugsaði sér gott til glóð-
arinnar þegar hún sá lítinn
auðnutittlingin í trénu, en
bjallan um hálsinn varaði
fuglinn við og hann var flog-
inn áður en draumur kisu
varð að veruleika. Auðnutittl-
ingur er næstminnstur
íslenskra fugla, um 13 cm að
lengd. Hann er fugl skóga og
kjarrlendis og gerir sér hreið-
ur í birki eða grenitrjám.
Auðnutittlingur fór að setjast
að í bæjum í kjölfar aukinnar
ræktunar. Hann byrjaði að
verpa á Akureyri um 1935 og
20 árum síðar í Reykjavík.
Afvopnunarsáttmáli risaveldanna:
Öldwigadeildm fellir breyt-
ingartíllögur íhaldsmanna
Washington, Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings hefur fellt tvær breyting-
artillögur við afvopnunarsátt-
mála risaveldanna, sem undirrit-
aður var í Washington á síðasta
ári. Samkvæmt lögum þurfa
tveir af hveijum þremur þing-
mönnum deildarinnar að mæla
með staðfestingu sáttmálans til
að hann öðlist gildi. Andstæðing-
ar samningsins hafa verið sakað-
ir um að halda uppi málþófi til
að tefja fyrir afgreiðslu málsins
en Ronald Reagan Bandaríkja-
Háværar kröfur um sam-
ræmdan garðsláttutíma
¥ nn#lnn Dnalvr 'I'nlnorvMlnk
London, Daily Telcgraph.
Á hvaða tima sólarhringsins
getur talist eðlilegt að menn
slái garðinn sinn með viðeig-
andi tækjabúnaði og tilheyr-
andi hávaða? Þetta er orðið
eitt helsta umræðu- og um-
hugsunarefni almennings á
Bretlandi eftir að vinsæll út-
varpsmaður skýrði frá því í
þættí sinum að hann hefði séð
mann arka um með sláttuvél í
garði sinum klukkan hálfsex
að nóttu. Nú hafa stjórnvöld
farið þess á leit við félagsskap
einn, „Hatursmenn hávaðans",
að gerð verði drög að reglu-
gerð um leyfilegan garðsláttu-
tima á Bretlandi.
Að sögn Johns Connells, for-
manns félagsins, verður lagt til
að að blátt bann verði lagt við
notkun sláttuvéla fyrir klukkan 9
á morgnana og eftir klukkan 18.
Þá verður og kveðið á um að notk-
un sláttuvéla skuli með öllu
óheimil á sunnudögum og löggilt-
um hátíðisdögum. „Fólk sem kem-
ur seint heim úr vinnu á að fylgja
fordæmi mínu. Ég slæ garðinn
minn á laugardögum. Hávaðinn
sem þessu fylgir eykst stöðugt
og brýnt er að finna lausn á þess-
um alvarlega vanda," segir Conn-
ell.
í Evrópu eru víða í gildi reglu-
gerðir í þessa veru og hafa „Hat-
ursmenn hávaðans" tekið mið af
þeim í tillögum sínum. Víða er
mönnum einungis heimilt að slá
garða sína milli klukkan 7 og 19
og á nokkrum stöðum í Vestur-
Þýskalandi varðar það við lög að
æða um með sláttuvél milli klukk-
an 13 og 15 um helgar.
Sláttuvélaframleiðendur á
Bretlandi hafa lýst sig andvíga
lagasetningunni og benda á að
áhugamenn um garðrækt og
snyrtimennsku eigi fullan rétt á
því að sinna garðvinnu þegar þeim
þyki henta. Auk þess sé loftslag
á Bretlandi ákaflega breytilegt
og því beri mönnum beinlínis
skylda til að nýta þá sólardaga
sem gefast. „í huga okkar er sum-
arið og sláttuvélin eitt og hið sama
og hljóðið í vélinni er óijúfanlegur
hluti breskrar siðmenningar,"
segir talsmaður fyrirtækisins
„Qualcast". „Þeir á meginlandinu
kunna að líta málið öðrum augum
en þeir taka garðrækt ekki jafn
alvarlega og við gerum."
forseti leggur ríka áherslu á að
sáttmálinn hafi verið staðfestur
áður en hann heldur til fundar
við MikhaO S. Gorbatsjov Sovét-
leiðtoga í Moskvu-
Líkt og búist hafði verið við hafa
íhaldsmenn í öldungadeildinni lagt
fram tillögur um breytingar og við-
bótarákvæði við samninginn um
upprætingu meðal- og skamm-
drægra kjamorkueldflauga á landi
til að koma í veg fyrir staðfestingu
hans. Tillögur sem þessar nefna
Bandaríkjamenn „banvænar breyt-
ingartillögur" því hljóti þær sam-
þykki þingmanna þarf í ákveðnum
tilfellum að hefja á ný samningavið-
ræður við fulltrúa Sovétstjómarinn-
ar. Andstæðingar sáttmálans, sem
em í minnihluta í öldungadeildinni,
segja Sovétmenn hingað til hafa
svikið gerða samninga um takmörk-
un vígbúnaðar og hafa uppi efa-
semdir um að samningurinn þjóni
öryggishagsmunum Bandaríkja-
manna og bandamanna þeirra í
Vestur-Evrópu.
Á föstudag var breytingartillaga
Steve Symms, þingmanns frá Ida-
ho, felld með miklum meirihluta
atkvæða en í henni var kveðið á
um að samningurinn yrði ekki stað-
festur fyrr en Reagan forseti hefði
lagt fram fullnægjandi sannanir
fyrir því að Sovétmenn brytu ekki
lengur gegn ákvæðum fyrri samn-
inga risaveldanna. Tillaga Gordons
Humphreys frá New Hampshire
hlaut sömu örlög en samkvæmt
henni hefði Washington-sáttmálinn
ekki öðlast gildi fyrr en Atlants-
hafsbandalagið hefði komið sér upp
fullnægjandi eldsneytis- og vopna-
birgðum í Evrópu til að geta stað-
ist 15 daga átök við herafla Varsjár-
bandalagsins.
Sú viðbótartillaga sem vafalaust
á eftir að valda hvað mestum deilum
í þingdeildinni varðar hugsanlegar
breytingar á túlkun Washington-
sáttmálans. Margir þingmenn telja
að skylda beri stjómvöld til að leita
samþykkis öldungadeildarinnar áð-
ur en ný túlkun samningsins er
tekin upp. Hafa menn í þessu sam-
hengi minnt á hina svonefndu
„rýmri túlkun" ABM-sáttmálans
frá árinu 1972 um takmarkanir
gagneldflaugakerfa en samkvæmt
þessari túlkun stjómar Reagans
forseta á ákvæðum hans, leyfist
Bandaríkjamönnum að gera tilraun-
ir með geimvamarbúnað utan rann-
sóknarstofnana.
Robert Byrd, þingmaður demó-
krataflokksins og forseti öldunga-
deildarinnar, gagnrýndi þingmenn
fyrir að halda uppi málþófi og
hvatti þá til að kynna breytingartil-
lögur sínar hið fyrsta ella myndi
tæpast gefast tími til að ræða þær.
Þó svo almennt sé talið að samning-
urinn verði staðfestur liggur enn
ekki fyrir hvort þingmenn ná að
ljúka störfum sínum fyrir Moskvu-
fundinn.