Morgunblaðið - 22.05.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
Sjómenn og flug-
liðar eiga ósamið
STARFSFÓLK í flugi og sjómenn eru stærstu hópar launafólks,
fyrir utan ríkisstarfsmenn, sem eiga ósamið við vinnuveitendur og
fallaþvi undir bráðabirgðalög rikisstjórnarinnar. Hið sama gildir um
félög kennara, HÍK og KÍ, sem eru með lausa samninga, og BHMR
og Félag símamanna, sem eru með endurskoðunarákvæði í sínum
samningum.
Fundur var haldinn með flug-
virkjum og flugvélstjórum hjá ríkis-
sáttasemjara í fyrradag, en hann
var árangurslaus. Þá boðaði sátta-
semjari einnig fund með flugmönn-
um og flugfreyjum, en beðið var
um frest fram yfír hvítasunnu þar
sem forystumenn þeirra voru í flugi.
Samningum sjómanna hefur ekki
verið vísað til ríkissáttasemjara og
sjómenn hafa ekki boðað verkfall.
Kjötiðnaðarmenn höfðu boðað
tveggja daga verkfail í næstu viku.
Fjöldi nýrra hljóm-
platna væntanlegnr
ÍSLENSKIR hljómlistarmenn hafa að undanfömu verið önnum kafnir
við hyóðrita hijómplötur enda fer nú sumarvertíðin í hönd með til-
heyrandi útgáfustarfsemi. Að sögn Steinars Berg, formanns Sambands
hljómplötuútgefenda, er bæði um það að ræða að útgáfufyrirtækin
sendi frá sér hljómplötur fyrir sumarið og eins einstakar hljónisveitir
eða tónlistarmenn, sem sfðan fylgja plötunum eftir með hfjómleikaferð-
um um landið yfir sumarmánuðina.
Á vegum Steina h.f. er væntanleg-
ar plötur með Stuðkompaníinu,
Greifunum og hljómsveitinni Sálin
hans Jóns míns. Tvær hinar fyrr-
nefndu eru 12 tommu hraðgengar,
með tveimur lögum og er hvort lag
í tveimur útgáfum. Plata Sálarinnar
hans Jóns míns er hins vegar stór
hæggeng og er þar annars vegar um
að ræða ný íslensk lög í svokölluðum
„Tamla Motown soul stfl" og hins
vegar erlenda „soul-tónlist“. A plöt-
unni verður meðal annars lagið
„Sókrates" í „soul-útsetningu“. Plat-
an er væntanleg á markað um mán-
aðamótin júnf-júlí. Þá munu Steinar
h.f. annast dreifingu á nýjum plötum
með Hljómsveit Birgis Gunnlaugs-
sonar, hljómsveitinni Gildrunni og
plötu sem SÁÁ gefur út með lögum
eftir Rúnar Þór Pétursson. Meðal
flytjenda á þeirri plötu eru Bubbi
Morthens, Sverrir Stormsker og
Pálmi Gunnareson.
Skífan h.f. hefur þegar sent frá
sér stóra . hæggenga plötu með
Mannakomi, þar sem þeir Magnús
Eiríksson lagahöfundur og Pálmi
Gunnarsson söngvari eru í aðalhlut-
verki. Um miðjan júní er svo væntan-
leg stór hæggeng plata með hljóm-
sveitinni Kátir piltar, sem eru ungir
og hressir Hafnfirðingar, en platan
er frumraun þeirra á útgáfusviðinu.
Þá er von á fyrstu sólóplötu Bjama
Arasonar f byrjun júlf, en upptöku-
stjóm þeirrar plötu annaðist Jakob
Magnússon. Hann, ásamt Ragnhildi
Gfsladóttur, vinnur nú einnig að upp-
tökum á nýrri plötu með hljómsveit-
inni Strax, sem mun koma út á veg-
um Skífunnar með haustinu.
Grammið hefur sent frá sér nýja
plötu með Megasi en auk þess ann-
ast Grammið dreifingu á plötum
Sykurmolanna og Daisy Hill Puppy
Farm, sem þegar em kominar út.
Eins mun Grammið annast dreifingu
á plötu jasshljómsveitarinnar Súld,
sem væntanleg er um næstu mán-
aðamót, plötu Langa Sela og Skugg-
anna sem kemur út í byijun júní,
plötu Ham sem væntanleg er á sama
tíma og plötu Kamarorghesta sem
væntanleg er á markað í byijun júlí.
■ ■ —
Morgunblaðið/KGA
brekkan er lagfærð.
Neðst í Bakarabrekkunni er verið að hlaða gijótgarð nm leið og
Reykjavík:
Bakarabrekkan fær nýjan svip
„VIÐ erum að laga hallann í
Bakarabrekkunnni en hann var
það mikill að brekkan stóð ekki
undir sér,“ sagði Jóhann Páls-
son garðyrkjustjóri Reykjavík-
ur.
„Brekkan verður síðan lögð
grasi á ný og mnnar gróðusettir
á brekkubrúninni. Það er gert til
að umferð gangandi liggi ekki um
brekkubrúnina en brekkan hefur
alla tíð verið gölluð og boðið upp
á að vera tröðkuð niður.
Þá verður einnig reynt að lífga
upp á svæðið umhverfis brekkuna
og Lækjartorg með blómakeijum
í sumar,“ sagði Jóhann.
Útitaflið neðan við brekkuna
heyrir undir garðyrkjudeild borg-
arinnar og er í umsjón Theódóre
Halldóresonar skrúðgarðameist-
ara borgarinnar. Til hans verður
að leita ef menn óska eftir að
tefla.
Ásmundur Stefánsson um bráðabirgðalðgin:
Leiða tQ kaupmáttarskerðmg-
ar og afnáms mannréttinda
„ÞAÐ ER Ijóst að þessi lög leiða
til kjaraskerðingar og þau fela í
sér afnám grundvallarmannrétt-
inda. Þessu hvorutveggju hfjót-
um við að mótmæla," sagði Ás-
mundur Stefánsson, forseti ASÍ,
aðspurður um bráðabirgðalög
ríkisstj óraarinnar.
Ásmundur sagðist ekki enn hafa
séð lögin sjálf, en það væri ljóst
að búið væri að binda kjarasamn-
inga til 10. apríl á næsta ári, sem
þýddi að samningsréttur væri af-
numinn í næstum eitt ár. „Þessi lög
beinast annarsvegar gegn ógerðum
samningum og það er ljóst að þau
lög eru sett fyrst og fremst vegna
deilunnar í Straumsvík. í öðru lagi
er verið að afnema rauðu strikin
og ætla ríkisvaldinu að ákveða það
hvort einhveijar bætur koma vegna
þeirrar verðbólgu sem gengisfell-
ingin leiðir af sér.
Samningsrétturinn er einn
grundvallarþáttur þeirra mannrétt-
inda sem við búum við í því lýðræði-
skerfí sem hér er og afnám þess
réttar er þess vegna alvarlegt brot
og raunar augljóst brot á þeim al-
þjóðasamþykktum sem við höfum
talið rétt að fylgja, eins og sam-
þykktum Alþjóða Vinnumálastofn-
unarinnar."
Ásmundur sagði að ekki væri
auðvelt að meta það sem kallað
væri „ráðstafanir i heild", því yfír-
lýsing ríkisstjómarinnar væri al-
mennt orðuð og því ekki fullkom-
lega ljóst hvað ákvæðin fælu í sér.
Það væri þó ljóst að aðgerðimar
gagnvart gráa markaðinum væru
mjög takmarkaðar, því aðeins virt-
ist miðað við að setja bindiskyldu
á verðbréfasjóðina, sem væru
minnstur hluti gráa markaðarins.
Stæreti hlutinn, hin almennu verð-
bréfaviðskipti, gætu hins vegar
haldið áfram hömlulaust, þannig
að lögin leiddu til tilflutnings á flár-
Ólafur Þ. Þórðarson lætur
af stuðningi við sljórnina
magni, en takmörkuðu ekki umsvif
gráa markaðarins. Þetta kæmi á
óvart, því forráðamenn ríkisstjóm-
arinnar hefðu haft uppi stór orð þar
að lútandi.
„Það kemur mér lfka á óvart að
það skuli hvergi vera minnst á tak-
mörkun á álagningu. Ég flutti til-
lögu um það á fundi Verðlagsráðs
á fimmtudag að það yrði komið í
veg fyrir að gengisfellingin leiddi
til háekkunar á álagningu og farm-
jöldum, en sú tillaga var felld þar.
',g sá það svo haft eftir Jóni Bald-
vini að hann teldi forsendur fyrir
því að taka á þessu máli síðar og
ég gekk þess vegna út frá því að
þetta yrði tekið inn í þann aðgerða-
pakka sem lagður yrði fram, en nú
kemur í ljós að svo er ekki.
Vegna þeirrar lagasetningar sem
nú gengur yfir er rétt að rifja upp
enn einu sinni reynsluna frá ’83.
Þeir hópar sem semja sjálfír á sínum
vinnustöðum munu væntanlega ná
fram kauphækkun með launaskriði,
en þeir sem búa við samnings-
bundna taxta verkalýðsfélaga
munu verða fyrir kjaraskerðingu.
Hvergi er hróflað við gróðaöflun í
atvinnulífínu. Lagasetningin nú
mun óhjákvæmilega leiða til mis-
skiptingar með sama hætti og
1983.“
Stj ómunarfélagið:
Fundir um
efnahagsmál
Stjómunarfélag íslands hefur
ákveðið að gangast fyrir reglu-
bundnum fundum um þau mál-
efni, sem efst eru á baugi hveiju
sinni í efnahagsmálum. Markmið-
ið með fundunum er að efla
fslenskt atvinnullf og styrkja fé-
lagsstarfið.
Stjómunarfélagið hefur hingað til
gengist fyrir ráðstefnum öðra hveiju,
en það hefur ekki verið gert með
reglulegum hætti. Steftit er að því
að fundimir verði haldnir á mánaðar-
fresti og verður sá fyrsti á þriðjudag-
inn kemur klukkan 16 í húsnæði
félagsins að Ánanaustum. Jón Sig-
urðsson, forstjóri íslenska jám-
blendifélagsins ræðir þar um efnið
íslensk fyrirtæki - Erient fjármagn;
Ávinningur og áhrif.
Sjómenn:
EDjótum að fá þessi 10%
- segir Óskar Vigfússon forseti Sjómannasambandsins
ÓLAFUR Þ. Þórðarson, þing-
maður Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum, lagði á þingflokks-
fundi framsóknarmanna á föstu-
dag fram bókun þar sem hann
segist hafa látið af stuðningi við
rfkisstjórnina. Ástæðan sé
„ábyrgðarleysi“ f stjórn efna-
hagsmála landsins. Guðmundur
G. Þórarinsson lagði einnig fram
bókun á fundinum um efna-
hagsráðstafanir ríkisstjómar-
innar.
Ólafur Þ. Þórðareon lagði fram
eftirfarandi bókun á þingflokks-
fundi Framsóknarflokksins í gæn
„Það staðfestist hér með að ég hef
látið af stuðningi við þessa ríkis-
stjóm. Ástæðan fyrir því er ábyrgð-
arleysi í stjóm eftiahagsmála lands-
ins. Við þær aðstæður sem nú eru
komnar upp hefði gengisfelling
þurft að vera 20%. Jafnframt hefði
þurft að koma á kreppulánum til
að fækka nauðungarappboðum.
Beita hefði þurft ríkissjóði til
aðgerða er dragi úr verðbólgu. Frá-
leitt er að stinga höfðinu í sandinn
eins og nú er gert og kalla yfír sig
efnahagsaðgerðir á flögurra mán-
aða fresti. Þetta er aðför að lands-
byggðinni og hvorki f þágu þjóðar-
innar eða Framsóknarflokksins."
í samtali við Morgunblaðið sagði
Ólafur að þetta þýddi að hann
myndi ekki veija ríkisstjómina van-
trausti en taka málefnalega afstöðu
til frumvarpa. Þegar hann var
spurður hvort hann myndi áfram
sitja í þingflokki framsóknarmanna
sagði hann að þá ákvörðun yrðu
félagar hans að taka. „Ég hef bent
þeim á hið foma fordæmi þegar
Pétur Ottesen hætti stuðningi við
ríkisstjóm Ólafs Thors. Þetta verða
þeir að meta.“
Ólafur Þ. sagði að margt fleira
þyrfti að gera en hann legði til f
bókuninni. Hann sagði höfuðgall-
ann við þessar aðgerðir vera að
verðbólgan héldi áfram á fullu. Til
þess að ná henni endanlega niður
þyrftum við að nota „finnsku að-
ferðina", þ.e. ijúfa vísitölubindingu
af lánum. „Við verðum að ná vísi-
tölunum burt,“ sagði ólafur Þ.
„HVAÐ varðar lagasetningu
ríkisstjórnarinnar hlýt ég að
mótmæla þvi að sá sjálfsagði
réttur verkalýðshreyfingarinnar
að semja um laun sé af henni
tekinn,“ sagði Óskar Vigfússon
formaður Sjómannasambands ís-
lands. „Við okkur sjómenn hefur
enn ekkert verið rætt. Það er
eftir að ganga frá fiskverði og
ríkissijórnin virðist þegar hafa
markað ákveðinn ramma. Við
hljótum að fara fram á að fá
þessa 10% hækkun óskerta."
Óskar sagði að sjómenn hefðu
þegar í vikunni gert ríkisstjóminni
grein fyrir að þeir hefðu dregist
aftur úr fólki í landi í hækkunum
launa. „ Við höfum lýst því yfír opin-
berlega að til þess að jafna mismun-
in þyrfti fiskverð að_ minnsta kosti
að hækka um 15%. Ég met það svo
nú að ríkisstjómin hafí þegar mark-
að okkur bás. Ef ríkisvaldið er að
úthluta launahækkunum hljótum
við að ætlast til að vera inn f því,“
sagði Óskar Vigfússon.