Morgunblaðið - 22.05.1988, Síða 60
ALLTAF
SOLARMEGM
NÝTT FRÁ KODAK
SUNNUDAGUR 22. MAI 1988
VERÐ I LAUSASOLU 60 KR.
Verðum að ráðstafa
aflanum öðruvísi,
segir Kristján
Ragnarsson, form-
aður LÍÚ
200 milljóna
verðfall á
útflutningi
á ferskfiski
Morgunblaðið/RAX
Fegurðardrottningar sóla sig
ELLEFU stúlkur hafa undanfamar vikur búið sig undir keppnina um titilinn Fegurðardrottning íslands 1988, sem fram fer á Hótel íslandi
annað kvöld. Stúlkumar voru að sóla sig í vikunni og var smellt af þeim mynd við það tækifæri. Stúlkumar eru frá vinstri talið: Guðrún
Margrét Hannesdóttir, Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir, Guðný Elísabet Óladóttir, Guðbjörg Gissurardóttir, Karen Kristjánsdóttir, Halldís Höm
Höskuldsdóttir, Linda Pétursdóttir, Kristín B. Gunnarsdóttir, Sigrún Eyflörð og Martha Jörundsdóttir. Ellefta stúlkan, Kamilla Rún Jóhans-
dóttir, var í prófum á Akureyri þegar myndin var tekin.
Öryggismál í sumarbúðum víða enn í ólestri:
Itrekuðum kröfum um endur-
bætur hefur ekki verið sinnt
VERÐFALL á ferskum fiski á
erlendum mörkuðum síðustu
vikur miðað við sama tima í
fyrra nemur tæpum 200 milljón-
um króna sé miðað við sölu í
erlendum gjaldeyri. Verð á
þorski í Bretlandi hefur fallið
um 21,8% og verð f Vestur-
Þýzkalandi hefur faliið um
11,1%. Kristján Ragnarsson,
formaður LÍU, segir að timi sé
kominn til þess, að fiski upp úr
sjó verði ráðstafað með öðrum
hætti.
Verð á ferskum físki héðan frá
íslandi hækkaði um 6% að meðal-
tali fyrstu þrjá mánuði ársins, en
á tímabilinu frá upphafí aprílmán-
. aðar til 19. maí féll það verulega.
Bretlandi féll meðalverð á kflói
úr 96 pensum í 79 eða um 17%
og verð á þorski úr 1,01 pundi í
79 pens eða 21,8%. Það nemur um
160 milljónum krdna-miðað við
sama magn í fyrra. Þessi verð-
lækkun er heldur meiri en verð-
lækkunin á frystum og söltuðum
físki, en endurspeglar engu að
síður verðlækkun þá á fískmeti,
sem nú á sér stað á mörkuðunum.
Miðað við sama tíma.á síðasta ári
höfum við fengið tæplega 200
milljónum krónum minna fyrir
fískinn en þá.
í Vestur-Þýzkalandi hefur verð-
ið fallið úr 2,33 mörkum að meðal-
-tali umrætt tímabil í 2,07 og mun-
ar þar um 25 milljónum króna
miðað við sama magn á síðasta ári.
Kristján Ragnarsson, formaður
og framkvæmdastjóri LÍÚ, segir'
að rík ástæða sé til þess að tak-
marka framboð á ferskum físki,
við höfum ekki efni á þvi að tapa
verulegu fé við sölu físksins. Út-
gerðarmenn eigi að sjá um þá tak-
mörkun sjálfír, ekki að óska skip-
ana ofan frá. „Menn verða að ráð-
stafa afla sínum öðruvísi en selja
hann ferskan úr landi," sagði
Kristján Ragnarsson.
ÖRYGGISMÁL i sumarbúðum fyr-
ir börn eru viða ennþá i ólestri,
þrátt fyrir ítrekaðar kröfur yfir-
valda um úrbætur. Það eru eink-
um brunavarnir sem eru ófull-
komnar, sums staðar »11« óhæfar.
Til þess að fá starfsleyfi, þurfa
sumarbúðir að fá viðurkenningu
Baraaverndarráðs. Ráðið viður-
kennir búðimar að fenginni um-
sögn ýmissa aðila, þar á meðal
Brunamálastofnunar. Að sögn
Guðjóns Bjaraasonar, fram-
kvæmdastjóra Baraaveradarráðs,
hafa allmargir aðilar þráast við
að koma öryggismálunum i lag
og bera einkum við kostnaði. Þó
hafa nokkrir brugðist vel við
ábendingum og gert nauðsynlegar
breytingar hjá sér. Baraaverndar-
ráð veitti fimm fyrstu sumarbúð-
unum meðmæli i gær.
Sumarbúðir fá starfsleyfi til eins
árs í senn og veitir menntamálaráðu-
neytið leyfín að fenginni viðurkenn-
ingu Bamavemdarráðs. Heimilt er
að veita leyfi til tveggja ára og hafa
fimm búðir slík leyfi frá síðasta ári.
Undanfarið héfur Brunamálastofnun
verið að kanna ástand sumarbúða
og em skýrslur stofnunarinnar að
berast Bamavemdarráði þessa dag-
ana. Guðjón Bjamason sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að fáir staðir
væru alveg í lagi. Það væri allt of
algengt, að í engu hefði verið sinnt
kröfum um úrbætur, sem settar vom
fram í fyrra. Þó hefðu nokkrir aðilar
lagfært húsakynni sinna búða og
hann kvaðst vita um staði, þar sem
ástandið var slæmt í fyrra, en nú
væri unnið af krafti við endurbætur.
Bamavemdarráð hefur sent bréf
til rekstraraðila þeirra búða, sem
þegar hefur verið fjallað um umsókn-
ir frá og em ekki í lagi. í bréfinu
er sagt, að samkvæmt úttekt Bmna-
málastofnunar sé ástand brunavama
í búðunum slæmt og að úrbætur, sem
krafist var á síðasta ári hafí ekki
komið til framkvæmda. Þá segir orð-
rétt í bréfínu : „Bamavemdarráð
íslands hefur tekið þá afstöðu að
mæla ekki með rekstri þeirra sum-
ardvalarheimila sem ekki gera við-
eigandi ráðstafanir til að tryggja
öryggi þeirra bama sem þar koma
til með að dvelja. Þar sem ljóst þyk-
ir að brunavamir í búðum em ekki
fullnægjandi, getur Bamavemdarráð
íslands ekki mælt með rekstri sumar-
búða þar, nema branavamir verði
bættar í samræmi við skýrslu
Brunamálastof nunar rikisins.
Óheimilt er að hefía starfrækslu
sumardvalarheimilis og sumarbúða,
nema leyfisbréf sé fyrir hendi. Sam-
kvæmt 12. gr. 2. mgr. reglna um
sumardvalarheimili bama og sumar-
búðir, nr. 145/1986 mun bama-
vemdarráð snúa sér til lögregluyfir-
valda og krefjast lokunar ef til þess
kemur að sumarbúðir starfi án tilskil-
ins leyfís."
Á fundi á föstudaginn samþykkti
Bamavemdarráð að mæla með veit-
ingu leyfís til Ásaskóla, Bifrastar,
Hofs, Skúfslæks og Súluholts en
fimm búðir eru með tveggja ára leyfi
frá því í fyrra. Þau eru Bergsstaðir,
Glæsibær, Skálholt, Tunga og Vest-
mannsvatn. Níu sumarbúðir hafa
fengið neitun enn sem komið er.
Bamavemdarráð heldur aftur
fund 26. maí og verða þá afgreiddar
þær 12 umsóknir sem eftir eru. Einn-
ig er líklegt að þá verði teknar til
endurskoðunar sumar þær umsóknir
sem fengu neitun ef úrbætur hafa
verið gerðar.
ToUvörugeymslaii vUl
hýsa bjórbirgðimar
„ÞAÐ ER búið að bjóða hér fram
sjálfsagt allar bjórtegundir
heimsins," sagði Gústaf Níels-
son, skrifstofustjóri hjá Áfengis-
og tóbaksverslun rikisins, þegar
. hann var inntur eftir því hvort
umboðsmenn hinna ýmsu bjór-
tegunda hafi verið ágengir við
að koma sinni vöra að. Stjórn-
endur Tollvörugeymslunnar
telja sig geta hýst umtalsverðar
birgðir af bjór, en með þvi móti
verði hægt að bjóða upp á fleiri
tegundir.
Gústaf var spurður hvort mögu-
legt væri að selja fleiri tegundir
af bjór í ríkinu, yrðu birgðir að
me8tu geymdar í Tollvörugeymsl-
unni. Hann sagði að þessi mögu-
leiki væri fyrir hendi, en þetta hefði
ekki verið rætt að því er hann best
vissi. Jón Bragi Gunnlaugsson,
skrifstofustjóri Tollvörugeymsl-
unnar hf., sagði að þar væri verið
að kanna möguleikann á því að
geyma bjórbirgðir og ætlun þeirra
væri að ganga á fund forstjóra
ÁTVR og þiýsta á hann að þessi
leið verði farin.
Hagstofan lítur svo á að alla
vöru,' sem komin er í tollvöru-
geymslu, sé í raun búið að flytja
inn og hún komin á hagskýrslur
sem slík. Ef þessi leið væri farin,
að geyma bjórbirgðir í tollvöru-
geymslu, kæmi birgðakostnaður í
hlut umboðsmanna eða framleið-
enda og þá veltur á skilningi á lög-
unum hvort þessi leið er fær eða
ekki þar sem ÁTVR hefur einka-
rétt á því að flytja inn og dreifa
áfengi.