Morgunblaðið - 26.05.1988, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
ÁS-TENGI
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál-í-stál
SÖtyi7CsQcy3@icj)tr <=& ©©
VESTURGÖTU 16 SÍMAR 14680 21480
577// ÚR
/
Hallarmúla 2, sími 83211
Austurstræti 10, sími 27211
* Kringlunni, sími 689211
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
Erindi um
íslensk
mannanöfn
Á FUNDI hjá Ættfræðifélaginu
á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18,
kl. 20.30 á fimmtudagskvöld flyt-
ur Guðrún Kvaran orðabókarrit-
stjóri erindi um íslensk manna-
nöfn.
Meginefni erindisins verður að
reifa hugmyndir flytjanda um nyt-
sama bók um mannanöfn sem safn-
að hefur verið til um nokkurt skeið.
Rætt verður um kosti og galla þjóð-
skrár við rannsóknir og notkun
tölvu við gagnasöfnun. Einnig verð-
ur reynt að gera grein fyrir breyt-
ingum á tíðni nafna og dreifingu
þeirra eftir landshlutum. Fjallað
verður um tvínefni og sögu þeirra,
ættarnöfn og „dulbúin" ættamöfn,
tískusveiflur og áhrif bókmennta á
nafngjafír. Að lokum verður þeirri
spumingu varpað fram hvernig best
verður staðið að varðveislu íslenska
nafnakerfísins.
(Fréttatilkynningf)
KÓR
ÖLDUTÚN S SKÓL A
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Frá því að ísland byggðist hafa
þeir sem kváðu ljóð sín fyrir er-
lenda höfðingja, notið sérstakrar
virðingar hjá þjóðinni og það að
verða frægur hefur hér á landi
ávallt verið það sama og vinna
sér nafn erlendis. Nokkrir lista-
menn hafa fetað sömu slóð og
skáldin fyrrum og j)að slær ljóma
á nöfn þeirra. Nu síðast fengu
íslenskir dansarar viðurkenningu
fyrir list sína og víst er ástæða
til að gleðjast, þó það hafi fyrir
löngu verið ljóst þeim sem vildu
vita, að ballettdansararnir við
Þjóðleikhúsið eru góðir listamenn.
Einn hópur listamanna hér á
landi hefur náð mikilli frægð er-
lendis og hafa trúlega fáir slíkir
farið eins vítt um heiminn og Kór
Öldutúnsskóla. Nú stendur fyrir
dyrum ferðalag til Asíu og Ástr
alíu og af því tilefni hélt kórinn
tónleika í Víðistaðakirkju í Hafn-
arfírði. Á efnisskránni vom
söngvar frá ýmsum löndum og
þar komu fram þrír sönghópar
sem greindust í Litla kór, A-hóp
og Kór Öldutúnsskóla. Þama gat
að heyra og sjá afraksturinn af
þeirri miklu vinnu sem gæði kórs-
ins byggjast á. Litli kórinn söng
nokkur almenn sönglög einröd
duð, lög eins og Meistari Jakob,
Máninn og Signir sól af þokka
og yndisieik.
A-hópur er einskonar úrval og
sá hópur opnaði tónleikana með
íslenskum þjóðlögum og lauk tón-
leikunum með frumflutningi á
Bamagælu eftir Hjálmar H.
Ragnarsson við samnefnt kvæði
eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur.
Lagið er feikna erfítt í flutningi
en þannig samið að skemmtileg-
heit textans koma sérlega skýrt
fram. Kórinn hafði erfiða hljóm-
skipan lagsins á valdi sínu en á
eftir að ná betri tökum á því leik-
ræna. Af öðrum lögum sem kórinn
söng er óþarfí að tíunda nokkuð
sérstakt nema að söngurinn allur
var sérlega vandaður og er saga
kórsins í raun afreksverk Egils
Rúnars Friðleifssonar, sem upp-
eldisfræðingar mættu huga að á
þessum tímum fjölmiðlunar-
skrumsins. En það er ekki aðeins
að Kór Öldutúnsskóla sé uppeldis-
legt afrek, heldur er söngurinn
sjálfur þeim galdri gæddur að um
allan heim undrast menn gæði
hans og vita sem er, að á fáum
stöðum í heiminum er betri söng
að heyra en í Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði.
-dagur þangað til við opnum!
9^9
9 T 0
S *
heimilið og meira til!
HUSA
SMIOJAIM