Morgunblaðið - 26.05.1988, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
Er þjófavarnarkerfið í
Seðlabankanum bilað?
Lærdómarnir af hinum svarta miðvikudegi
eftír Svavar Gestsson
Upphafið er á svörtum miðviku-
degi, daginn fyrir uppstigningar-
dag. Alþingi hefur verið slitið dag-
inn áður. Þingmenn Alþýðubanda-
lagsins höfðu minnt á að það væri
yfírvofandi hætta á því að gripið
yrði til kjaraskerðingaraðgerða
strax og Alþingi yrði sent heim.
Þess vegna flutti þingflokkurinn
tillögu um að banna kjaraskerð-
ingaraðgerðir i sumar. Sú tillaga
fékkst ekki tekin á dagskrá þings-
ins. Tilgangurinn með því að reka
þingið heim var a) að losna við
stjómarandstöðuna, b) að losna við
stjómarliðið. Við atkvæðagreiðslu-
um vantrauststillögu á ríkisstjóm-
ina benti ég á að tilgangurinn væri
sá að losna við óþekktargemlinga
eins og Ólaf Þórðarson úr stjómar-
liðinu. Það kom á daginn, enda rak
Steingrímur Hermannsson hann úr
Framsóknarflokknum daginn sem
gengið var frá efnahagsráðstöfun-
um með þeim ummælum að Ólafur
skipti engu máli — hann væri alltaf
annaðhvort inni eða úti.
Nærri þremur milljörðum
króna of seint
Það alvarlega við svarta miðviku-
daginn var seinlæti Seðlabankans
og þess varúðarkerfís sem á að
vera til í bankakerfínu. Þjófavarn-
arkerfið virkaði ekki fyrr enn
2,8 milljörðum eftir innbrotið.
Vissulega var hluti þess fjár sem
fór út úr gjaldeyrisdeildunum tek-
inn út með eðlilegum hætti. En það
lá þegar í stað í augum uppi að
almenningur gat ekki tekið út úr
bankakerfínu 2.800 milljónir króna
á einum degi. Og það liggur líka í
augum uppi að fyrirtækin geta
ekki tekið 2.800 miiljónir út úr
bankakerfinu nema bankarnir
hjálpi þeim til þess. Og það liggur
jafnframt í augum uppi að það er
stórkostlegur ávinningur að því að
taka fé út úr bankakerfínu og nota
það til gjaldeyriskaupa rétt fyrir
gengisfellingu. Og það er betra fyr-
ir viðskiptabanka að veija fé til
gjaldeyriskaupa jafnvel þó sami við-
skiptabanki verði að borga refsi-
vexti í Seðlabankanum vegna fy’ár-
munanna sem bankinn notar til
þess að kaupa gjaldeyrinn.
Þess vegna sá það allur almenn-
ingur hvers kyns hlaut að hafa ver-
ið. Og eftir stóð staðreyndin
víðfræg um allan heim: Keisarinn
var ekki í neinu — fíjálshyggjan
var kviknakin.
Galopið gjaldeyriskerfi
gengur ekki á íslandi
En fleira kom til: Keisarar fjár-
málaheimsins treystu því — eftir
yfírlýsingar ráðherranna — að þeir
fengju að iðka sínar athafnir í friði.
Ráðherramir höfðu sagt að þeir
mjmdu ekkert aðhafast fyrr en eft-
ir að forsætisráðherra væri kominn
heim frá Bandaríkjunum. Þess
vegna fóru iðnaðarráðherra og við-
skiptaráðherra utan að þeir treystu
því að ekkert yrði gert. Og því
treysti ijármálaheimurinn líka —
Teppi á
stigaganginn
sem þola mikið
og endast lengi!
í Teppalandi færðu teppið á stigaganginn.
Úrvalið er fjölbreytt og verðflokkar margir.
Hæstu gæðaflokkar.
Hjá okkur færðu ráðgjöf fagmanna.
VIÐ GERUM TILBOÐ ÁN SKULDBINDINGA.
en flóðið út úr bankakerfínu varð
meira en svo að hægt væri að láta
sem ekkert hefði gerst. Það er
ekki hægt að slökkva eldinn með
því að snúa sér undan meðan
Róm brennur.
En hinn svarti sunnudagur segir
fleira: Hann segir okkur það að
fíjálshyggjan í verki passar ekki á
íslenska efnahagskerfið. Með því
að hafa gjaldeyriskerfið opið er
hægt að kveikja í banka- og gjald-
eyriskerfínu aftur og aftur án þess
að stjómvöld fái rönd við reist.
Þess vegna er hin galopna gjaldeyr-
isafgreiðsla vitleysa. Þess vegna
verður að setja reglur um að þjófa-
varnarkerfið hringi öllum bjöll-
um þegar gjaldeyrisúttektir ein-
stakra fyrirtækja, banka eða ein-
staklinga fara fram úr vissum
mörkum — eða þegar eitt fyrir-
tæki, einn banki, einstaklingur taka
meira út en ^ðlilegt má teljast.
Annars brennur Róm til kaldra kola
áður en menn komast fram úr til
þess að bjarga, hvað þá heldur að
menn komist á fætur, sem var þó
orðalagið sem stjórnmálagagnið
Tíminn notaði um stjómina um
daginn: Að hún væri komin á fætur!
Sjálfsögð krafa ráðherrans
— en hvað svo?
Það var því í senn eðlilegt og
sjálfsagt af Jóni Baldvin Hannibals-
syni að heimta upplýsingar um
gjaldeyrisyfírfærslumar. Og það er
líka sjálfsagt að krefjast þess að
hann leiti allra hugsanlegra leiða
til að birta listann. Og það strax.
En sú birting gerir enga stoð né
heldur það sem fylgdi hinum svarta
miðvikudegi nema menn átti sig á
því að formúlur hins galopna
Svavar Gestsson
„Með því að hafa gjald-
eyriskerfið opið er
hægt að kveikja í
banka- og gjaldeyris-
kerfinu aftur og aftur
án þess að stjórnvöld
fái rönd við reist. Þess
vegna er hin galopna
gjaldeyrisafgreiðsla
vitleysa.“
hagkerfis eiga ekki við á ís-
iandi; geta reyndar þvert á móti
kollsiglt efnahagslegu sjálfstæði
íslendinga. Þá yrði kreddutrúin
dýru verði keypt að ekki sé meira
sagt.
Höfundur er þingmaður fyrir Al-
þýðubandalagið í Reykja vik og
fyrrverandi viðskiptaráðherra.
Stofnlánadeild landbúnaðarins:
Refaúttekt lýk-
ur í næstu viku
STARFSMENN Stofnlánadeildar landbúnaðarins stefna að því
að ljúka úttekt á loðdýrabúum landsins í næstu viku. Úttektin
er unnin upp úr skattframtölum bænda en ákvarðanir um
framtíð refaræktarinnar bíða
og fram hefur komið.
Leifur Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri Stofnlánadeildar
landbúnaðaríns segir að úttektin sé
gerð samkvæmt ósk ríkisstjómar-
innar vegna erfíðleika atvinnu-
greinarinnar fyrr í vetur. Síðan
hafa reyndar komið upplýsingar um
mun verri stöðu en áður var miðað
niðurstöðu úttektarinnar, eins
við. Leifur sagði að seint hefði
gengið að afla nauðsynlegra upplýs-
inga þar sem menn hefðu verið að
skila skattframtölum sínum til
skattstjóra allt fram undir þennan
tíma. Egill Bjamason ráðunautur á
Sauðárkróki mun vinna við úttekt-
ina.
ACTI-VITA
frá MONTEIL snyrti vörum.
Fást aöeins í Söndru.
Snyrtivöruverslunin
SAmRA
‘Reykjaviíiurvegi 50
Sími: 53422