Morgunblaðið - 26.05.1988, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
Heilsugæslustöðin
fær aukin húsakynni
Ný húsakynni hafa verið
vígð fyrir mœðraeftirlit,
krabbameinsleit og Heyrnar-
og talmeinastöð íslands á 4.
hæð Amaróhússins i Hafnar-
stræti 99 Akureyri. Heilsu-
gæslustöðin var stofnuð i árs-
byrjun 1985 og þar með sam-
einaðist starfsemi Læknamið-
stöðvarinnar, Heilsuverndar-
stöðvarinnar og heilsugæslu i
skólum.
Stöðin þjónar um 17.000 íbúum
og er þar með langstærsta heilsu-
gæslustöðin á landinu. Að henni
standa Akureyrarbær, Amarnes-
hreppur, Skriðuhreppur, Öxna-
dalshreppur, Glæsibæjarhreppur,
Hrafnagilshreppur, Saurbæjar-
hreppur, Öngulsstaðahreppur,
Grímseyjarhreppur, Svalbarðs-
strandarhreppur, Hálshreppur og
Grýtubakkahreppur með útibú á
Grenivík.
Morgunblaðið/Jihanna Ingvarsdittir
Jón Kr. Sólnes stjómarformaður
Heilsugæslustöðvarinnar á Ak-
ureyri i ræðustól við vigslu nýrra
húsakynna.
Frá því að Heilsugæslustöðin
tók til starfa hefur henni verið
gefíð eða hjálpað að eignast ýmis
tæki. Árið 1986 gaf Kiwanisklúbb-
urinn Kaldbakur eymasmásjá,
semer mikilvægt fyrir eftirlit með
eymasjúkdómum. Stöðin eignaðist
ómtæki til notkunar við mæðraeft-
irlit í maímánuði 1987 og vom það
hin ýmsu kvenfélög og klúbbar er
stóðu að kaupunum.
Mæðraeftirlitið hefur einnig
eignast monitortæki til að fylgjast
með hjartslætti bams í móður-
kviði. Fyrir ári síðan afhenti Láo-
nessuklúbburinn Ösp stöðinni
heymarmæli sem staðsettur er og
notaður við heilsugæslu í Síðu-
skóla. í aprflmánuði si. gaf Lions-
klúbbur Akureyrar stöðinni rann-
sóknartæki sem mælir starfshæfni
lungna. Tækið nýtist einkum við
greiningu og meðferð lungnasjúk-
dóma.
Morgunblaðið/Rúnar Þðr
Pétur Bjamason í Shell Nesti með peningaskáp sömu tegundar og
stolið var aðfaranótt hvitasunnudags. Skápurinn var með innbyggða
þjófavörn þannig að um leið og hann er hreyfður úr stað, fer í
gang þjófavaraarkerfi, sem vælir i fjóra tima samfleytt.
í upphafí hafði heilsugæslustöð-
in ekki annað húsnæði til afnota
en það sem Læknamiðstöðin hafði
haft á 5. hæð f Hafnarstræti 99
og húsnæði Heilsuvemdarstöðvar
Akureyrar í Hafnarstræti 104.
Sumarið 1985 var tekið í notkun
nýinnréttað og vel búið húsnæði á
3. hæð f Hafnarstræti 99. Þrátt
fyrir þessa viðbót þótti nauðsyn-
legt að auka enn við húsrými og
4. hæð í Hafnarstræti 99 því tekin
á leigu. Framkvæmdir við innrétt-
ingar þar hófiist ekki fyrr en í
desember 1987. í þetta húsnæði
flytur nú starfsemi mæðravemdar
svo og krabbameinsleit. Ennfrem-
ur verður þar aðstaða fyrir Heym-
ar- og talmeinastöð ísiands sem
fyrst og fremst er notað þegar
starfsmenn stöðvarinnar koma í
heimsókn.
Ekki er öll 4. hæðin í Hafnar-
stræti 99 tekin í notkun nú og enn
sem fyrr verður ungbama- og
smábamaeftirlit til húsa í Hafnar-
stræti 104 og þar verður einnig
vinnuaðstaða flölskylduráðgjafa.
Þess er vænst að öll starfsemi
geti síðar flutt inn í Hafnarstræti
99.
Innbrotið í Shell Nesti:
100.000 kr. fyrir upplýsingar
Biluð rafhlaða í Securitas-kerfinu
„Ég hef ákveðið að veita hveij-
um þeim 100.000 krónur, sem
veitt getur mér eða rannsóknar-
lögreglunni á Akureyri upplýs-
ingar, er leitt geta til þess að
málið upplýsist og peningaskáp-
urinn finnist," sagði Pétur
Bjarnason í Shell Nesti á Akur-
eyri. Brotist var inn í Nestið að-
faranótt hvftasunnudags um kl.
3.00 og þaðan tekinn 40-50 kg
peningaskápur, um það bil 40 sm
á kant, af Crown-gerð.
í skápnum voru töluverð verð-
mæti, en aðeins verðmæti er gagn-
ast eigandanum sjálfum. í skápnum
vom meðal annars víxlar, greiðslu-
kortanótur og annað f þeim dúr sem
enginn annar en Pétur sjálfur getur
notað. „Ég er að glata miklu meira
persónulega heldur en sá er tók
skápinn telur að hann getur hagn-
ast af. Ég vil því biðja fólk að hafa
vakandi auga með þessu. Mikið var
um utanbæjarfólk hér á Akureyri
um helgina þó ég vilji alls ekki al-
hæfa neitt f því efni," sagði Pétur
f samtali við Morgunblaðið.
Danfel Snorrason rannsóknarlög-
reglumaður sagði að rannsóknin
beindist auðvitað að utanbæjarfólk-
inu einnig þar sem óvenju gest-
kvæmt hefði verið þessa helgi. Brot-
ist var inn um glugga á austurhlið
Nestisins án þess að Securitas-
kerfíð, sem sett hafði verið upp í
Nestinu fyrir tæpu ári, færi í gang.
Hannes Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Securitas sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
búið væri að grandskoða þetta mál
og Ijóst væri að gölluð rafhlaða
hefði valdið því að kerfið virkaði-
ekki.„Það sem gerðist í þessu tilviki
var að rafmagnið fór af bænum um
eitt-leytið þessa umræddu nótt. Ef
rafmagn fer af, eiga rafhlöður að
halda búnaðinum gangandi f einn
til tvo sólarhringa eftir stærð bún-
aðarins. Rafhlaðan var hinsvegar
Fyrirhugað er að nokkur atriði
tengd listahátfð fari fram á Akur-
eyri dagana 3.-20. júní. Opnuð
verður myndlistarsýning í
Glugganum þar sem sýndar verða
myndir eftir Gunnlaug Scheving
úr safni Listasafns íslands.
Þann 10. júní verða haldnir tón-
leikar í sal gagnfræðaskólans.
Finnski baritonsöngvarinn Jorma
Hynninen flytur lög eftir Sibelius,
Hugo Wolf og Ralph Vaugham Will-
iams við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar. Tónleikamir heQast
kl. 20.00. Jorma Hynninen er list-
rænn forstjóri finnsku rfkisóper-
unnar. Hann hefur verið f aðalhlut-
verkum í Metropolitan-óperunni og
syngur reglulega í La Scala, Vínaró-
perunni, Parísaróperunni og í óperu-
húsum í Hamborg, Genf, Strassborg,
London, Mflanó og Bolshoi-óperunni
f Moskvu. Hynninen er einnig virtur
einsöngvari á tónleikum og f orator-
ium og hefur m.a. komið fram með
Fílharmóníuhljómsveitum Lundúna
og Vínarborgar, Sinfóníuhljómsveit
Gautaborgar og Fílharmóníuhljóm-
sveitinni í Helsinki sem hann söng
með í New York á degi Sameinuðu
þjóðanna í fyrra.
Þann 20. júní kemur 17 manna
bandarfskur hópur norður sem kallar
sig „Black Ballet Jazz“ og sýnir
sögu dansins í Ameríku í 200 ár
með dansi, látbragðsleik og söng.
Sýningin fer fram í íþróttaskemm-
unni og hefst kl. 20.00. Markmið
hópsins er að varðveita sögu dansins
S Ameríku og f sýningu hópsins kem-
ur skýrt fram hversu mikil áhrif
menning svertingja hefur haft á
dansinn í Ameríku.
Stjómandi hópsins, danshöfund-
urinn og stepp-dansarinn Chester
Whitmore, komst í læri hjá einum
besta stepp-dansara í heimi, Fayard
biluð f þessum tiltekna búnaði, en
þegar raftnagnið komst aftur á kl.
5:18 um morguninn, þá fyrst fór
kerfíð í gang og boðin bárust okkur
í stjómstöðinni f Reykjavík. Okkar
maður á Akureyri var sendur á
staðinn og kallað var á lögreglu,
en of seint því þjófurinn var á bak
og burt,“ sagði Hannes.
Hann sagði að rafhlaðan hefði
haldið kerfínu gangandi f einn og
hálfan tíma eftir að rafmagnið fór
af húsinu þannig að brotist hefur
verið inn á bilinu 2:15 til 5:15.
„Þetta er eitt af því sem ekki á að
geta gerst hjá okkur. Við sitjum
uppi með það að búnaður frá okkur
hafí bilað. Það liggur hinsvegar Ijóst
fyrir að orka rafhlöðunnar fór öll
út á rúmum klukkutíma og er mik-
il hending að svona nokkuð geti
gerst, svo ég tali nú ekki um að
rafmagn fari af á þessum árstfma
og innbrotsþjófur detti nákvæmlega
inn á þann tíma. I kerfum hjá okk-
ur á höfuðborgarsvæðinu getur
þetta ekki gerst þar sem boðyfir-
færslan er miklu öruggari. Ef raf-
hlaða í kerfí í Reykjavík missti orku,
þá myndum við fá boð um það
strax. Þetta er þó ekki mögulegt
úti á landi nema með ýmsum tilfær-
ingum sem við erum að skoða f
framhaldi af þessu,“ sagði Hannes.
Tónlist myndlist og dans
um listahátíðardagana
13, 14 og 15 ára krakkar:
Vilja samkomustað
fyrir 16 til 18 ára
Nicholas, þegar hann fór að hjálpa
ókunnum manni með sprungið dekk
einhveiju sinni sem var á leið heim
af dansæfíngu sumarið 1974. Hann
lærði einnig ballett og nútfmadans
og hefur hlotið verðlaunin „Los
Angeles Dance Alliance Award" fyr-
ir verk sfn sem danshöfundur. Hann
er einnig leikari og söngvari og hef-
ur leikið f mörgum söngleikjum
vestra og komið fram í kvikmyndum.
Meðal annarra f hópnum er söng-
og leikkonan, dansarinn og dans-
höfundurinn Trina Parks, en hún
hefur komið fram vfða í Banda-
ríkjunum og í Frakklandi, á tónieik-
um, í sjónvarpsþáttum og kvikmynd-
um. Parks er kunn fyrir leik sinn í
sjónvarpsþáttunum „Farne" og f
einni af James Bond-myndunum,
„Diamonds are Forever", þar sem
hún háði neðansjávar karate-einvígi
við Sean „007“ Connery.
„ÞAÐ vantar samkomustað
fyrir unglinga á aldrinum 16
tíl 18 ára þar sem þeir geta
hist, helst alla daga og allan
daginn, en einkum á kvöldin
og um helgar og dansað.“ Þessi
tillaga fékk almennan hljóm-
grunn á meðal þeirra 710 þátt-
takenda er þátt tóku í könnun
á vegum æslulýðsráðs fyrir
skömmu þar sem svarendur
voru úr 7., 8. og 9. bekkjum á
Akureyri. Athygli vekur að
svarendur vijja samkomustað
fyrir unglinga eldri en þeir
sjálfir eru sem að sögn að-
standenda könnunarinnar
bendir til þess að þeir séu að
tryggja sig í framtiðinni —
jafnvel að brúa bilið þar til þau
sjálf komast inn á vínveitinga-
staðina, 18 ára.
Spurt var hvað helst þyrfti að
gera til þess að bæta æskulýðs-
starf á Akureyri. Um helmingur
þátttakenda kom með einhveijar
tillögur um úrbætur. Nokkrar voru
mjög almenns eðlis svo sem um
að auka þurfí fjölbreytni og hafa
starfíð skemmtilegra. Flestir þeir,
sem á annað borð svöruðu þessari
spumingu, settu fram ákveðnar
úrbótatillögur og aðeins ein þeirra
virtist eiga almennan hljómgrunn.
Aðrar algengar óskir voru um
lækkaðan aðgangseyri að dan-
sleikjum, opin hús f skólunum verði
oftar, dansleikir verði fyrir 7.-9.
bekk á laugardögum, félagsmið-
stöðvar verði víðar, einkum voru
óskir um bætta félagsaðstöðu f
Glerárhverfí algengar, fjölga þarf
íþróttahúsum og bæta aðstöðu
fyrir aðrar Sþróttagreinar en hinar
hefðbundnu boltagreinar. Nokkrir
báðu um keilusal og nokkrir um
aukinn körfubolta fyrir stúlkur og
enn aðrir um meira hnit. Þó nokkr-
ir minntust á að kjmna þyrfti
æskulýðsstarfið betur. Klúbbar
þurfa að vera fleiri og tengjast
skólastarfinu. Margir nefndu að
bæta þyrfti húsnæðisaðstöðu ská-
tanna.
Engin sérstök ánægja virtist
með starfsemi Dynheima, óskað
er eftir meiri tilbreytingu en um-
fram allt öðru húsi eða húsum eins
og áður segir þar sem fjölbreytt
starfsemi fer fram. Þar eiga að
vera leiktæki, ballskák, borðtennis
og spilakassar.