Morgunblaðið - 26.05.1988, Qupperneq 51
Wo t tam as HUÓAaUTMMIM ,GI3AJ8MUDH0M
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
02
51
samt að hafa annan tilgang en að
ganga vegna ánægjunnar einnar.
Þetta hefír gerbreytzt á okkar
tímum. Nú er fjöldi manns, sem
hefír yndi af Qallgöngum og geng-
ur jafnvel sfendurtekið á sama fjal-
lið og forðast allt, sem kalla má
hættulegt. Þetta er einmitt. hin
almenna og ánægjulega fjall-
ganga.
Aðrir eru að leita að hættunni
og ráðast á illkleifa klettaveggi og
íshamra. Slíkt er aðeins fyrir fáa
útvalda, sem tileinkað hafa sér
klifurtækni og öryggisreglur. í
þessum tilfellum þarf ekki að vera
um neina Qallgöngu að ræða, held-
ur dugir að fínna klettavegg eða
ísvegg á láglendi.
Þessi klifurárátta er að mínu
viti allt annars eðlis en venjulegar
ijallgöngur og má ekki blanda því
saman um of. Samt hefír borið
allt of mikið á því hér meðal „fjall-
göngumanna" að sjálft prílið sé
aðalatriðið og hin eiginlega Qalla-
mennska. Lítt þjálfaðir menn hafa
jafnvel rokið af stað í mjög erfítt
klifur við erfíðar aðstæður og farið
sér að voða.
Ég, sem þetta rita, hefír stundað
íjallgöngur áratugum saman og
fór í erfitt fjallgöngunámskeið í
Bandaríkjunum á mínum yngri
árum. Við urðum að læra og þjálfa
okkur í klifurtækni í klettum og á
ísveggjum, fyrst og fremst til að
kunna til verka ef við lentum í
erfiðum köflum á leið okkar um
fjöllin, en alls ekki til að gera
sjálft klifrið að aðalatriði. Alltaf
varð að gæta fyllsta öryggis og
hætta ekki lífí sínu eða annarra.
Ég vil nefna hér sérstaklega
íslenska alpaklúbbinn, sem hefír
gert nokkuð af því að kynna leiðir
á flöll. Sumar þessar „leiðir" eru
stórvarasamar sumar sem vetur
og ættu alls ekki að flokkast með-
al uppgönguleiða. Ungir menn lesa
þetta og eru djarfír, svo sem ung-
um mönnum er tamt, og svo verða
alvarleg slys. Það má ekki hvetja
til áhættusamra ævintýra, nógir
verða til að leita þeirra samt.
Ég vil hinsvegar hvetja menn
til að ganga á fjöli, læra viss undir-
stöðuatriði og að virða allar örygg-
isreglur. Þessar ötyggisreglur
þurfa ekki að vera svo mjög flókn-
ar í venjulegum Qállgöngum. Aðal-
atriðið er að nota heilbrigða skyn-
semi og að ætla sér ekki um of.
Göngum okkur til ánægju, kom-
ust heil upp og heil heim aftur.
Orlofsnefnd hús-
mæðra í Reykjavík:
Orlofsdvöl
að Hvann-
eyríísumar
ORLOFSNEFND húsmæðra f
Reykjavfk mun starfrækja or-
lofsheimili í húsnæði Bændaskól-
ans að Hvanneyri í Borgarfirði
í sumar. Tekið verður á móti
umsóknum um orlofsdvöl frá og
með miðvikudeginum 1. júní á
skrifstofu orlofsnefndar Traðar-
kotssundi 6.
t+
Hægt verður að velja um eins
eða tveggja manna herbergi með
sér snyrtingu. Á staðnum er ágæt
baðaðstaða, heitur pottur og sól-
skýli. Boðið verður upp á leikfimi
og kvöldvökur og bókasafn er fyrir
hendi, auk þess sem farið verður í
skoðunarferðir. Guðsþjónustur
verða vikulega.
Dvalarvikur verða fímm í sumar
í júní og júlí og ekki er hægt að
dvelja lengur en eina viku.
GOODYEAR
TRAKTORSDEKK
gera krnftaverk
Til kraftaverka sem þessa þarf gott
jarðsamband.
Það næst með Goodyear hjólbörðum.
Gott samband jarðvegs og hljólbarða auðveldar
alla jarðvinnu.
Hafið samband við umboðsmenn okkar.
GOOD&YEAR
HEKLAHF
|Laugavegi 170-172 Simi 695500
Char-BroD
EINA
GASGRILLIÐ
MEÐ GAMLA
GÓÐA
GRILLBRAGÐINU
öllum grillunum fylgir:
* Emaljeituð griilgrind-
* Gleráloki
* Vinnuborð til hliðar og að framan
* Hitamælir í gleri (dýrari gerðir)
* IJpphækkuð grillgrind fyrir kartöflur og grænmeti
* Gaskútur
* Góðar leiðbeiningar
Verð á CHAR-BROIL frá:
12.900.-
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 ® 91-691600
har-Broil verksmiðjumar sem fúndu upp útigasgrillið kynna í dag mestu framför
í 30 ár, þ.e. Char-Broil gasgrillkolin. ■ í stað þess að nota hraunmola, eru notuð sérstök
viðarkol, sem gefa “ekta viðarkolabragð“ í allt að 10 klst. þ.e. 10 - 20 grillskipti.
Eftir það nýtast þau eins og steinar eða hraun, en einnig má skipta þeim út fyrir ný.
c