Morgunblaðið - 26.05.1988, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
ogatta
metra
söngir
alager.
• Úr „glass fiber".
• 6,7 og 8 metra á lager.
• Allar festingar og fylgi-
hlutir innifalið í verðinu.
• Stenst ágang veðurs.
• Fislétt.
• Fellanleg.
• Gyllt plexiglerkúla.
• Snúningsfótur kemur í
veg fyrir að fáninn snúist
upp á stöngina.
• Auðveld í uppsetningu.
• Útvegum aðila til upp-
setningar.
• íslenski fáninn í öllum
stærðum á lager.
• Allir fylgihlutir eru fáan-
legir stakir.
Grandagarði 2, 101 Rvík.
sími 28855.
IAGIT:
FACIT
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
Kúba — alþýðuvöld
og alþjóðahyggja
eftír Ingu Sigurðar-
dóttur og Sigurð
Einarsson
„Ég ber mikið traust til þjóðarinn-
ar. Ég trúi á mennina, trúi á gildin
og málstaðinn. Hvemig get ég ann-
að, þvi þegar við byijuðum áttum
við ekkert. Þegar pólitíska baráttan
og byltingarbaráttan hófst, áttum
við ekki einu sinni einn sentavó, ekki
áttum við vopn, ekki höfðum við
samtök, við höfðum ekki einu sinni
nafti né áhrif. Við byijuðum á núlli,
byijuðum með ekkert. Við hefðum
ekkert getað, ekki einu sinni reynt,
ef við hefðum ekki treyst á málstað-
inn, ef við hefðum ekki treyst þjóð-
inni, ef við hefðum ekki treyst mönn-
unum.
Ef ég væri ekki bjartsýnn, hvemig
hefði ég getað viðhaldið þessari
stefnu, þessum markmiðum, þessum
áætlunum? Nú er ekki lengur um að
ræða einn einstakling eða hóp ein-
staklinga, heldur milljónir manna,
sem eiga sér kenningu, stefnu og röð
gilda. Hver skyyldi vilja eyðileggja
þetta? Ég trúi á manninn og ég trúi
því, að fram komi nýir menn og
nýjar kynslóðir. Ég bind miklar von-
ir við, að fram komi hæfari menn
en við, betri en við.“ (Fidel Castro,
29. júní 1987.)
Þannig talar Fidel Castro um -kú-
bönsku þjóðina. Þjóðina, sem hann
leiddi til sigurs í alþýðubyltingu fyrir
um 30 árum síðan. Hahn er aðalrit-
ari Kommúnistaflokksins og forsæt-
isráðherra landsins. Næstur honum
er Raúl Castro, sem er yfirmaður
hersins og annar aðalritari flokksins.
Enginn vafl er á því, að Fidel er leið-
togi þjóðarinnar [ huga fólksins.
Hann sameinaði þjóðina til eigin
frelsunar og fólkið telur sig eiga
honum mikið að þakka. Hann er
mjög áberandi í þjóðlífínu og er ætíð
sá, sem heldur raeður á stórum stund-
um og vígir nýjar stofnanir. Þetta
kemur okkur stundum spánskt fyrir
sjónir og maður spyr sig óneitan-
lega, hvort ekki væri ráð, að dreifa
þessu eitthvað. Þegar þessari spum-
ingu er varpað meðal fólks, verður
svarið ætíð á sömu lund: Við viljum
heyra í Fídel, hann er okkar maður.
Hann er okkar fulltrúi, sameiningar-
tákn þjóðarinnar og tákn Byltingar-
innar.
Lífskjör
Fólk, sem ferðast hefur um Róm-
önsku Ameríku, segir oft, að koma
til Kúbu veki upp svipaða tilfínn-
ingu og að koma til Evrópu. Er þá
átt við samanburð lífskjara á Kúbu
og í öðrum löndum Rómönsku
Ameríku.
Um götur Havana gengur prúð-
búið, glatt fólk, meðan vart verður
þverfótað fyrir betlurum í borgum
eins og Líma í Perú, þar sem sósíal-
demókratinn Alan Garcia ræður
ríkjum.
Fyrir byltingu var oft talað um
Havana sem allsheijar „búllu". í
slíkri borg hafa konur litla sem
enga möguleika á atvinnu. Oft var
það eina leiðin til framfærslu að
selja blíðu sína. í dag eiga allir
Kúbanir rétt til vinnu, þannig að
engin kona þarf að leiðast út í
vændi. En eins og 2. ritari ung-
kommúnista orðaði það „Á Kúbu
er ekkert skipulagt vændi, en þú
getur fundið vændiskonur." Eftir 7
mánaða dvöl í Havana höfum við
rekist á tvær slíkar úti á götu. Álíka
marga ofdrykkjumenn höfum við
séð, en enga eiturlyfjaneytendur.
Þetta ætti að teljast nokkuð gott f
2 milljóna manna borg. Einhver
önnur spilling þrífst vissulega í höf-
uðborginni. Til eru ungmenni, sem
heldur vilja stunda dollaraviðskipti
við ferðamenn, en taka þátt í upp-
byggingu sósíalismans. Þetta er
mjög lítill hluti ungs fólks, sem
„Á Kúbu er fjöldalýð-
ræði tryggt með svo-
kölluðum alþýðuvöld-
um (Poder Popular).
Þau voru stofnuð til að
tryggja sem best fram-
kvæmd sósíalísks lýð-
ræðis og til að auðvelda
þátttöku fjöldans í
stjórnun iandsins bæði
í sveitastjórnum og
landsstjórn.
kaupir dollara af ferðamönnum.
Kemur þeim síðan í verð í sérstök-
um dollarabúðum, sem eru fyrir
ferðamenn og aðra útlendinga, og
selur góssið á svörtum markaði.
Almenningur fyrirlítur þessa iðju
og segir, að þetta fólk nenni ekki
að vinna. Ungkommúnistar hafa
ákveðið starf í gangi til að snúa
þessu fólki til betri vegar, en segja
að alltaf séu einhveijir, sem heldur
vilja stunda svona líf.
Á Kúbu er fólkinu tryggðar nauð-
synjavörur með skömmtun á vörum
á lágmarksverði. Þar fyrir utan
getur fólk keypt vörur fijálst á
hærra verði. Ekki verður sagt að
vöruúrval sé mikið, en allir hafa
nóg og eru menn almennt ánægðir
með sitt hlutskipti. Hér ríkja önnur
gildi en neysluhyggjan og markmið-
in eru önnur en @ð auka persónu-
lega neyslu.
Þegar minnst er á lffskjör má
ekki gleyma rétti fólks til menntun-
ar og heilsugæslu. Níu ára skóla-
skylda er á Kúbu, en flestir ljúka
tólfta bekk. Æðri menntun er opin
öllum og fer úrvalið eftir frammi-
stöðu í skóla og atvinnulífí. Þar
skiptir líka máli þátttaka í fjölda-
samtökum og framkoma við með-
bræður sína.
Mesta stolt Kúbana er uppbygg-
ing og framkvæmd heilsugæslu. í
hveiju hverfí eru læknastofur og
hefur hver heimilislæknir um 600
fbúa á sínum snærum. Einnig eru
starfræktar heilsugæslustöðvar,
sem sjá um sérfræðiþjónustu og
sjúkrahús í hinum ýmsu sérgrein-
um. Áhersla er lögð á fyrirbyggj-
andi aðgerðir. Má þar nefna öflugt
mæðra — og ungbamaeftirlit og
starfsemi fyrir eldri borgarana f
hverfunum. Milli klukkan átta og
nfu á morgnana má sjá gamla fólk-
ið gera leikfímisæfíngar í skemmti-
görðum borgarinnar. Samkvæmt
okkar reynslu, er auðveldara að
nálgast sinn heimilislækni á Kúbu
en á íslandi.
Hverfanefndimar til vamar bylt-
ingunni (CDR) gegna mikilvægu
hlutverki í heilsugæslunni. Þær að-
stoða við framkvæmd bólusetninga.
I hveiju hverfí er ein kona, sem sér
um að hvetja nágrannakonur sínar
til að fara í krabbameinsskoðun.
Og innan hverfanefndanna blandar
fólk sér í málefni hvers annars og
hvetur og aðstoðar hvert annað til
lausnar á sfnum vandamálum.
Alþýðuvöld
1976 var samþykkt stjómarskrá
Kúbu. Hún hafði þá verið tekin til
umræðu meðal þjóðarinnar, þannig
að hver einasti maður hafði tæki-
færi til að segja sína skoðun á
henni. Árið áður var fjöldskyldulög-
gjöfín samþykkt með sama hætti.
A Kúbu er fjöldalýðræði tryggt með
svokölluðum alþýðuvöldum (Poder
Popular). Þau vom stofnuð til að
tryggja sem best framkvæmd sósí-
alísks lýðræðis og til að auðvelda
þátttöku fjöldans í stjómun landsins
bæði í sveitarstjómum og lands-
stjóm. Sveitarfélögunum, sem em
169 talsins, er skipt niður í ein-
menningskjördæmi. Fólkið velur
sinn fulitrúa f almennum kosning-
um og mynda þessir fulltrúar sveit-
arstjómarinnar, sem sjá um fram-
kvæmdir og stjómun hver á sínu
svæði. Úr röðum sveitarstjómar-
manna er síðan valið í stjómir í 14
sýslum landsins og til þjóðþingsins,
sem er æðsta stofnun ríkisins. Ljóst
er að allir sem eiga sæti á þinginu
verða að hafa verið valdir upphaft
lega í sínu einmenningskjördæmi. í
einmenningskjördæmunum em
haldnir almennir fundir á sex mán-
aða fresti. Annar greinarhöfunda
hafði tækifæri til að sitja einn slíkan
fund. Þár kom fólkið fram með til-
lögur og kvartanir, sem vörðuðu
nánasta umhverfí þess. Rætt var
m.a. um aðbúnað heimilislæknisins,
illa upplýstar götur, lélega vörslu
lögreglunnar og húsnæðismál. Full-
trúi fólksins fékk yfír sig miklar
skammir fyrir að hafa ekki leyst
það sem kvartað var yfir á síðasta
fundi. Lögreglumaður svæðisins var
kallaður upp á pall og sneri þaðan
sneyptur, því fólkið hafði staðið
hann að því að stunda kaffíhús í
stað þess að líta eftir svæðinu. Á
sama fundi fékk heimilislæknirinn
þvílíkt hrós, að hann varð feiminn.
Mannréttíndi
Undanfamar vikur hafa mann-
réttindamál verið mikið til umræðu
hér á Kúbú. Fundurinn í Genf er á
hvers manns vömm og mikið í frétt-
um. Þar gerðust Bandaríkjamenn
svo djarfír að pússa upp hryðju-
verkamann og gera hann að sendi-
herra sfnum á fundinum. Valladares
var í lögreglu einræðisherrans
Batísta á sfnum tfma. En það var
ekki ástæðan fyrir fangelsun hans.
Eftir sigur Byltingarinnar tók hann
þátt í skemmdarverkum og notaði
til þess sprengiefni uppmnnið frá
Talaðu við
ofefeur um
þvottavélar
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 -688589
] LONDOI
9 I (xi viki l
FLUGLEIÐIR
-fyrir þig-
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SKIRASIANGA-
JARN
Flokkur (grade) A. DNV-skírteini.
Sandblásið og grunnað
Fjölbreytni í stærð og þykkt.
Skipavinklar
Skipaflatjárn
SINDRA^STÁL HF
BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684