Morgunblaðið - 26.05.1988, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
63
fjölskyldu sinnar, og eins fyrir
tengdafólkið sitt, sem bókstaflega
umvafði haná eftir að hún missti
manninn sinn, og er hennar nú alls
staðar sárt saknað og ekki síst af
börnunum sem unnu henni mjög.
Ég, Addý, Geir, Kolbrún Ylfa og
Vigdís Rós færum öllu þessu fólki
okkár innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum Guð um að blessa minn-
ingu þessarar vinkonu okkar sem
við kveðjum nú.
Gissur Geirsson, Selfossi
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð um þúsund ár.
(H.K. Laxness)
„Sviðið" er stór vinnustaður, þar
sem unnar eru langar vaktir, helga
daga sem rúmhelga. Þó persónurn-
ar séu sundurleitar, virðist einhver
þráður tengja þær ótrúlega sterkum
böndum. Þetta samfélag var lostið
þungu höggi föstudaginn 13. maí
sl., þegar það spurðist að Kolla
okkar hefði farið frá okkur þann
dag, sem var einn sá fegursti á
þessu vori.
Er nokkuð tilviljun í þessu lífi?
Var það ekki einmitt á slíkum degi,
sem Kolla hlaut að kveðja, hún sem
elskaði vorið og sumarið?
Eftir sitjum við hnípin með minn-
ingar sem koma hver af annarri,
allar bjartar og fagrar, en inn á
milli þrengir sú áleitna spurning,
hvers vegna hún, aðeins 45 ára
gömul?
Kolia var sú manngerð, sem
mannbætandi var að kynnast og
umgangast. Við trúum því að henn-
ar hafi verið þörf á öðru sviði, en
við skynjum hér.
Kolla vann lengst af hjá sama
fyrirtæki, fyrst hjá Loftleiðum hf.
sem ung stúlka stúlka og síðar hjá
Hótel Loftleiðum eftir að hún var
orðin ekkja með þrjú böm.
í huga okkar, sem með henni
störfuðu, geymist mynd af óvenju
heilsteyptri konu, sem mat menn
og málefni að verðleikum, en ekki
eftir ytra glysi og skrumi.
Megi algóður guð leiða hana á
ókunnum vegum og rétta hönd sína
börnum hennar, móður og föður til
styrktar.
Við erum ríkari eftir að hafa
kynnst Kollu og þökkum henni -fyr-
ir allt og allt.
Magga og Soffía
Það var að renna upp nýr dagur.
Heitasti og fallegasti dagur þessa
nýbyijaða sumars. Inn um glugga
Vífilsstaðaspítala sendi sólin sína
yndislegu geisla og gaf loforð um
fallegan hlýjan dag, úti í skóginum
við spítalann sungu fuglarnir sína
fegurstu söngva í morgunkyrrðinni,
á meðan fólkið svaf, og Kolla mín
svaf, þreytt eftir baráttu síðustu
vikna við þennan hræðilega sjúk-
dóm. Hún var að heíja sinn síðasta
dag hér á jörð aðeins 45 ára gömul.
Kolla var dugleg og heiðarleg
ung kona. Dugnaður hennar kom
best í ljós þegar hún missti Badda,
manninn sinn, fyrir þrettán árum
frá þremur ungum börnum. Þrátt
fyrir nístandi sorgina þá barðist hún
áfram, vann mikið og vildi ekki láta
vorkenna sér. Enginn okkar veit
hvað mikið hún þurfti að leggja á
sig, vegna þess að Kolla talaði aldr-
ei um sína erfiðleika, en var alltaf
tilbúin að hlusta á okkur hin þegar
okkur fannst erfitt, og á sinn hæg-
láta hátt hvatti hún okkur áfram.
Hún kom alltaf heiðarlega fram,
hrein og bein, og allir vissu að
Kollu mátti treysta, og fyrir það
elskuðum við hana og virtum.
Já, Anna mín, þú áttir svo sann-
arlega duglega og góða stúlku, og
átt enn, í Guðs ríki. Hún lagði að-
eins fyrr af stað en við hin en öll
munum við hittast þar að lokum.
Drottinn gaf okkur loforð um eilíft
líf í hans ríki og eins og hann gef-
ur okkur nýjan dag að morgni, eins
mun hann gefa okkur nýtt líf að
loknu þessu.
Elsku Siggi, Anna Lind og
Begga, Guð gefi ykkur vissu um
endurfund við foreldra ykkar og
blessi ykkur á þessum sorgartím-
um.
ÓDÝRAR ORLOFSFERÐIR
3ja vikna ferð 9. til 29. júní. Fargjaldið er aðeins kr. 9.500.
Enn eru nokkur sæti laus í þessa ferð fyrir félagsmenn og fjölskyldur
þeirra.
Við útvegum ódýra bílaleigubíla og gistingu.
Verðið er hvergi hagstæðara, hafið samband strax við félagið ykkar.
Greiðslukjör
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
STARFSMANNAFÉLAGIÐ SÓKN
FÉLAG BIFVÉLAVIRKJA
VERZLUNARMANNAFÉLAG ÁRNESSÝSLU
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMSÓKN
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA.
SOKKABUXURNAR
SEM PASSA.
Fjölbreytt úrval!
Örugglega eitthvað fyrir þig.
Þú velur þína stærð eftir stærðatöflunni á Leggs söluhillunum.
Þunnar og fallegar á fæti,
falla þétt aö maga og mjöðmum,
styrkt tá, stæröir A,B,Q.
Blátt egg og hólkur.
wsí^
tNBM?1
Nuddsokkabuxur, sem örva,
blóðrásina við hverja hreyfingu
Falleg glansáferð.
Styrkt tá, stærðir A,B,Q.
Silfurlitt egg og hólkur.
Nuddsokkabuxur, mjög stífar
að ofan hafa sömu
eiginleika og Sheer Energy.
Stærðir B,Q.
Silfurblátt egg og hólkur.
Samkvæmissokkabuxur.
Líta út og eru viðkomu eins
og silki. Einnig fáanlegar
stífar að ofan.
Stærðir A,B,Q.
Glært egg - grár hólkur.
Vetrar Leggs. 50 den þykkar,
í fallegum litum.
Einnig fáanlegar stífar að
ofan. Stærðir A,B,Q.
Glær egg - hólkar lýsa litum
Leggs hnésokkar, 2 pör í eggi, extra breið teyja.
X \
ort'°\Cotyí/. ' t
Tískulitir frá Leggs.
Vanalegar sokkabuxur og
einnig stífar að ofan.
Stærðir A,B,Q.
Glær egg.
Einkaumboð:
íslensk lllll
Ameríslra
Sigrún og Kalli