Morgunblaðið - 26.05.1988, Blaðsíða 72
72
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN 1993
„Svíar munu halda
Heimsmeistara-
keppnina 1993"
SAAB-eigendur
Við flytjum starfsemi okkar frá Bíldshöfða 16.
Vegna flutninganna verða SAAB-varahluta-
verslun og SAAB-verkstæðið lokuð frá og með
föstudeginum 27. maí nk.
Opnað verður aftur að Lágmúla 5
miðvikudaginn 1. júni nk.
Við bjóðum SAAB-eigendur velkomna til nýrra
höfuðstöðva SAAB á íslandi og vonum að
þessi 3ja daga röskun á starfseminni valdi
þeim sem minnstum óþægindum.
- segir Arne Ellefsson, framkvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands Svía. „Útiloka ekki þriðju þjóðina"
Sigurður Qunnarsson og sænski markvörðurinn, Claes Hállgren, takast hér
í hendur. En þeir léku saman með Tres de Mayo á Spáni 1986.
TVÆR þjóðir hafa nú lýst yfir
áhuga á að fá að halda heims-
meistarakeppnina íhandknatl
leik 1993, ísland og Svíþjóð.
Endanleg ákvörðun um hvaða
þjóð heldur keppnina verður
tekin í Seoul í september. Áður
en að því kemur munu þjóðirn-
ar vinna að því að fá stuðning
sem flestra aðildarríkja alþjóða
handknattleikssambandsins,
IHF.
Jón Hjaltalín Magnússon, form-
aður HSÍ, hefur sagt að íslend-
ingar hafi fengi stuðning frá mun
fleiri þjóðum en Svíar og standi
betur í baráttunni fyrir að fá að
halda keppnina. Svíar eru hinsvegar
á öðru máli og Arne Ellefsson,
framkvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands Svíþjóðar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að Svíar
hefðu stuðning frá fjölmörgum
þjóðum.
„Það er alls ekki rétt að við höfum
aðeins stuðning frá Norðurlanda-
þjóðum. Þrátt fyrir að við höfum
ekki Ieitað eftir loforðum, þá vitum
við af mörgum þjóðum sem munu
styðja umsókn okkar.
Við höfum frekar lagt okkur fram
við að kynna Svíþjóð, en að fá ein-
hver ákveðin loforð. Við búum yfir
mikilli reynslu og betri aðstöðu og
ég held að það eigi eftir að vega
þungt þegar lokaákvörðun verður
tekin.
Hinsvegar er mikil vinna framund-
an og ef íslendingar halda rétt á
spilunum þá mun ég ekki gera lítið
úr möguleika þeirra. Þeir hafa stað-
, sig mjög vel í að kynna ísland
og hafa verið duglegir við að koma
sínum málum á framfæri."
Slæmt að báóar þjóðimar
skuli sækja um keppnina
Koin umsókn íslands þér á óvart?
„Ég get nú ekki sagt það. íslending-
ar hafa verið á uppleið og hafa
sýnt að þeir eru ein af fremstu þjóð-
um heims í handknattleik. Kannski
var kominn tími til að þeir reyndu
að fá keppni sem þessa, en það er
mjög slæmt að báðar þjóðimar skuli
sækja um sömu keppnina."
Heldur þú að Islendingar séu
ekki tilbúnir til að halda slíka
keppni?
„Þvf miður verð ég að segja að ég
get ekki séð að þeir séu tilbúnir.
Eg hef komið til Islands og veit að
þar eru fá stór íþróttahús. Við erum
hinsvegar með hús í Stokkhólmi
sem rúmar 15.000 áhorfendur, í
Gautaborg erum við með hús fyrir
12.000 áhorfendur og svo fjölmörg
hús sem taka 6-8.000 áhorfendur.
Við höfum gífurlega reynslu í skipu-
lagningu. Við höfum tvívegis haldið
keppnina áður, séð um úrslitaleik
Davis-keppninnar í tennis og heims-
meistaramót í ísknattleik, knatt-
spymu og borðtennis. Það mun án
efa koma okkur til góða."
Ekkl pressa frá Svíum varð-
andihús
Nú setti IHF fram þá kröfu að
þeir sem héldu keppnina yrðu
að geta boðið upp á hús sem
rúmaði 7.000 áhorfendur. Kom
þessi krafa frá ykkur?
„Það er af og frá að við höfum
beitt IHF einhverri pressu. Við höf-
um ekki trú á að eitt hús breyti öllu
í þessu máli."
Hvað með ykkar menn i stjórn
IHF. Munu þeir beita áhrifum
sínum þegar gengið verður til
atkvæða?
„Við eigum tvo menn í stjóm IHF,
en þeir munu vera fullkomlega hlut-
lausir, því get ég lofað. Þeir hafa
til dæmis ekki verið með í undirbún-
ingi okkar og ekki setið í nefndum
sem gætu haft áhrif á hvaða land
verður fyrir valinu.“
Finnst þér eðlilegt að Svíar haldi
keppnina í þriðja sinn?
„Af hvetju ekki? Það hefur það
aðeins í för með sér að við erum
betur undirbúnir. Það eru engin
takmörk fyrir því hve oft hægt er
að halda keppnina í sama landinu.
Það gæti verið íslendingum í hag
að við höfum tvívegis fengið keppn-
ina og þeir hafa verið duglegir við
að benda á það. Við sáum um
keppnina 1954 og 1967 og því yrðu
liðin 25 ár frá því að við héldum
hana síðast."
Útiloka ekkl þriöja landiö
Átt þú von á því að fleirí þjóðir
sæki um keppnina, t.d. Vestur-
Þýskaland?
„Það gæti vel farið svo, en það
kæmi mér á óvart ef Vestur-Þjóð-
veijar myndu sækja um keppnina.
Það er þó alls ekki hægt að útiloka
það. í B-keppninni síðustu var Aust-
urríki eina þjóðin sem sótt hafði
um, en á þinginu kom fram umsókn
frá Frökkum og hún var samþykkt.
Það gæti því gerst að einhver þjóð
legði fram umsókn á þinginu
sjálfu."
Svíarfó HM-93
Hvar heldur þú að heimsmeist-
arakeppnin 1993 verði haldin?
„Ég efast ekki uma ð Svíar muni
halda keppnina. Annars væri ég
ekki að vinna að þessum málum.“
Hveija telur þú möguleika ís-
lendinga og Svía á Ólympíuleik-
unum í Seoul?
„Ég tel að Sovétríkin og Jugóslavía
séu með sterkustu liðin í riðlinum,
en bæði ísland og Svíþjóð geta sigr-
að þessar þjóðir. Ég vona að íslend-
ingum gangi vel, en það er ekki
gott að spá. Liðin gætu leikið um
3. sætið, en fara ekki neðar en í
8. sæti.
Að sjálfsgöðu vona ég að Svíar sigri
íslendinga, en ég óska íslendingum
alls hins besta. Lið þeirra er sterkt
og það væri gaman að sjá þá ofar-
lega. Þó ekki ofar en Svía!"
Globus?
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Stórholt
Stangarholt
Meðalholt
Óðinsgata
KOPAVOGUR
Hraunbraut 18-47
|Kiorö»tiMaíít?>