Morgunblaðið - 01.06.1988, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988
25
F oreldrafélag misþroska barna
eftir Matthías
Kristiansen
Misþroski, hvað er nú það?
Ef fullorðinn maður hugsar sig
um og reynir að rifja upp hver var
mesti klaufinn í bekknum, er líklegt
að hann muni eftir bami, oftast
strák, sem flæktist um fætuma á
sjálfum sér. Sá gat líka átt það til
að víxla stöfum í orðum skrifuðum
með stórum og klunnalegum stöfum
jafnframt því sem hann las hægt
og illa. Stundum átti þessi nemandi
það til að ijúka upp með látum
þegar minnst varði eða þá að hann
gat aldrei verið til friðs. Þetta er í
stuttum og einfölduðum dráttum
mynd af misþroska bami. Við
þekkjum öll þessi einkenni og hvert
og eitt þeirra getur átt við býsna
marga. Það er ekki fyrr en mörg
þessara (og annarra) einkenna em
hjá sama einstaklingi, að farið er
að tala um misþroska. Erlendis er
deilt um hvað á að kalla greining-
una og jafnvel hvað fellur undir
hana. Norðmenn og Svíar nota hug-
takið MBD (Minimal brain dys-
function) en Bandaríkjamenn tala
hins vegar um ADD (Attention
defícit disorder) og bæta svo stund-
um H aftan við skammstöfunina,
ef bamið er ofvirkt (hyperactive).
Þessa bandarísku útskýringu má
þýða á íslensku með orðinu athygl-
isbrestur. Oft er líka rætt um að
bam sé „gloppótt", það er að þroski
þess sé mismunandi mikill á mis-
munandi sviðum. En til þess að
dmkkna ekki í oft á tíðum tilgangs-
lausum deilum um nafngiftir höfum
við ákveðið að nota þetta orð, mis-
þroski.
Hvers vegna foreldrafélag?
Sífellt hefur verið að aukast vitn-
eskja um og rannsóknir á mis-
þroska. Þegar gmnur leikur á að
bam sé misþroska, er það gjaman
sent í Greiningarstöð ríkisins (í
Kjarvalshúsi) til greiningar. Grein-
ingin er í stuttu máli fólgin í því
að finna út á hvaða sviðum bamið
er á eftir í þroska og á hvaða svið-
um það fylgir jafnöldmm sfnum
nokkum veginn. Greining er ákaf-
lega mikilvægur hlekkur en aðal-
starfíð er þó eftir. Og hér er það
sem hlutverk foreldrafélagsins á að
verða stórt. Mjög mörg þessara
misþroska bama eiga nefnilega fullt
erindi í skólana. Þrátt fyrir þessa
galla sína em þau oftast ekki van-
gefín og geta lært í skóla engu síður
en aðrir, ef þeim er gert það kleift.
í grunnskólalögunum stendur að
sérhvert bam eigi kröfu á menntun
miðað við þarfír þess og getu, en
hins vegar em margir skólar engan
veginn í stakk búnir til þess að taka
við þessum bömum. Það er bæði
vegna þess að fræðsla til kennara
um misþroska hefur verið af skom-
um skammti, en einnig vegna þess
að oft koma bömin bara í skólann
án þess að nokkur viti að eitthvað
sé að. Það er því ekki farið að taka
á vandanum fyrr en það er jafnvel
orðið um seinan.
í lögum foreldrafélagsins segir
að það skuli vera stuðningssamtök
foreldra og aðstandenda, og að til-
gangur þess sé að efla kynningu
og skilning á misþroska. Þessu
hyggst félagið ná með því að safna
saman og dreifa upplýsingum til
fóstra, kennara og annarra sem
kunna að hafa af svona bömum að
segja. Einnig mun félagið halda
fræðslufundi og kynna á ýmsum
vettvangi hagi misþroska bama og
hvemig hægt er að hjálpa þeim í
lífsbaráttunni. Síðast en ekki síst á
félagið að veita foreldrum stuðning
á margvíslegan hátt, til dæmis með
því að gefa þeim tækifæri til að
ræða við aðra um vandamálin og
að útvega þeim aðgang að alls kon-
ar ritum sem fræða um misþroska.
Það er nefnilega hér eins og víða
annars staðar að margt má læra
af þeim sem gengið hafa í gegnum
sömu erfíðleikana og blasa við for-
eldrum misþroska bams.
Stofnun f oreldraf élagsins
Foreldrafélag misþroska bama
var stofnað þann 7. apríl í ár og
Bókarfregn
Þórgnýr Guðmundsson fv. skóla-
stjóri,
Sitt af hveiju
Prentsmiðjan Oddi hf.
Útgefandi: Höfundur
Eiríkur Stefánsson og Sigurður
Gunnarsson höfðu umsjón með
útgáfunni.
í fyrstu sumarvikunni á þessu ári
kom út fremur lítil en einkar fallega
unnin bók eftir einn af vormönnum
þjóðar okkar, Þórgný Guðmundsson
fv. skólastjóra á Sandi í Aðaldal, en
hann er einn af sonum skáldsins þjóð-
kunna Guðmundar Friðjónssonar.
Það er skemmtileg tilviljun að bók
Þórgnýs skuli koma út þegar brum
tijánna eru að springa út og landið
okkar fagra að klæðast nýjum gróðri.
En svo sem fjölmörgum er kunnugt
hefur höfundur af einlægni og festu
helgað ævistarf sitt allt mikilvæg-
ustu gróðrarstörfum þjóðar okkar:
Uppeldi fslenskrar æsku.
Bókin er í meðalstóru broti og 116
blaðsíður. En þótt hún sé ekki lengri,
er hún engu að síður efnismikil, því
að letur er fremur smátt og eyður
nær engar.
Hún skiptist í tvo aðalkaflá: Ræð-
ur og greinar frá ýmsum tímum
og Minnst nokkurra samferða-
manna. Eiríkur Stefánsson, skóla-
bróðir höfundar skrifar formálsorð. .
Bókin er í ljósri kraton-kápu. Á
framsíðu hennar er, auk heitis höf-
undar og bókar, einkar geðþekk og
táknræn teikning. Á baksíðu er hins
vegar mynd af höfundi ungum og
ágæt mynd af höfuðbólinu Sandi í
Aðaldal, fæðingarstað og heimili
höfundar.
Efni bókarinnar er raunar aðeins
Þórgnýr Guðmundsson
sýnishom af ræðum og greinum höf-
undar, valið nánast af handahófi.
Þótt ættingjar og vinir Þórgnýs
sakni margs sem hann hefur skrifað
og þeim fínnst að þama hefði átt
að vera, fagna þeir útgáfu bókarinn-
ar af heilum huga. Og það munu
margir fleiri gera, sem þekkja til
starfa Þórgnýs. Hún er og verður
góður varði um þennan mæta mann.
Bókin kostar aðeins kr. 500. Hún
fæst í Bókaverslun Þórarins Stefáns-
sonar á Húsavík, hjá Máli og menn-
ingu, Reykjavík, og heima hjá höf-
undi á Sandi í Aðaldal, S-Þing.
Sigurður Gunnarsson
eru nú þegar komnir á lista hjá því
á annað hundrað manns.
Við leggjum áherslu á að fjöl-
skyldan eigi við sameiginlegt
vandamál að stríða og því er ár-
gjaldið í dag 1500 kr. á fjölskyldu.
Misþroska bam er nefnilega engin
eyja.
Við höfum notið stuðnings
Þroskahjálpar við stofnun félagsins
og auk þess hefur norska foreldra-
félagið stutt okkur með ráðum og
dáð. Við fengum leyfí til þess að
þýða og staðfæra bækling þeirra
og hefur hann verið prentaður í á
þriðja þúsund eintökum hér.
Fyrir utan undirbúningsfundi og
stofnfund hefur nú þegar verið
haldinn einn kynningarfundur um
starfsemi Greiningarstöðvar ríkis-
ins annars vegar og hins vegar um
tilgang og starfsemi Svæðisstjóma.
Þess utan höfum við fengið eintak
af myndbandi um misþroska bam
og geta félagar slegið sér saman
og fengið myndina að láni. Gott er
að lítill hópur sjái hana saman og
ræði síðan efni hennar. Texti mynd-
arinnar er til í íslenskri þýðingu.
Bókasafn félagsins er ævintýralega
smávaxið enn, en þó má fínna þar
ýmislegt bitastætt.
Ef einhver sá, sem les þessar
línur, hefur áhuga á að kynna sér
nánar starfsemi félagsins, verða
meðlimur eða fá eintak af bækl-
ingnum, þá er heimilisfangið þetta:
Foreldrafélag misþroska bama,
Pósthólf 5475,
125 Reykjavík.
Höfundur er kennari og formaður
í Foreldrafélagi misþroska bama.
Er bam þitt
óvenjulega
/ —' »
m
RUM
ISLEIMSK HQNIMUN
TANGÓ
Efni: Svart - hvítt - Ijós eik
Verð frá kr. 108.108.00 m/dýnum.
Hönnun: Bergljót Ingvarsdóttir.
DUETl
Efni: Maghony - Ijós eik - hvítlökkuð eik.
Verð frð kr. 89.300.00 m/dýnum.
Hönnun: Einar Ágúst.
Framleiöandi
j^/u/
Grensásvegi 3 • Sími 681144