Morgunblaðið - 01.06.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988
Neyðarþingjúgóslavneskrakommúnista:
Flokksleiðtogarnir
sakaðir um spillingn
Belgrað, Reuter.
RAÐIR gljáfægðra glæsivagna
fyrir utan ráðstefnuhöllina í
Belgrað þar sem júgóslavneski
kommúnistaflokkurinn heldur
neyðarþing sitt urðu mörgum
ræðumanninum að vopni.
Flokksforystan var harðlega
gagnrýnd fyrir bruðl og spillingu
og sögðu fundarmenn að bifreið-
arnar bentu fremur til þess að
innandyra stæði yfir fundur Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins eða Evr-
ópubandalagsins.
„Við myndum spara 20 milljarða
dollara á 20 árum með helmings
fækkun ríkisbifreiða og bflstjóra,
eða sem svarar öllum erlendum
skuldum þjóðarinnar," sagði fulltrúi
að nafni Miodrag Perovic. Hann
hvatti flokksleiðtoga til að skila
gljáfægðum Mercedes-bifreiðum
sínum og íburðarmiklum villum. í
Júgóslavfu eru 176.000 ríkisbifreið-
ar og nemur kostnaður við þær jafn-
virði tveggja milljarða Bandaríkja-
dollara á ári, eða um 86 milljarða
íslenzkra króna.
Umræður á lokadegi neyðar-
þingsins í gær einkenndust af gagn-
rýni fulltrúa á flokksforystuna, sem
sökuð var um spillingu og getuleysi
Noregur:
Hermenn
mega bera
eymalokka
Hammerfest, Reuter.
NORSKUM hermönnum er nú
heimilt að bera eymalokka í her-
fylkingu. Slíkt hefur ekki þótt
hæfa hermönnum hingað til.
Norskur karlkyns hermaður vann
nú á dögunum mál fyrir rétti í
Hammerfest (nyrstu borg Evrópu)
sem snerist um það hvort karlkyns
jafnt sem kvenkyns hermenn mættu
bera eymalokka í skrúðgöngum.
Að sögn starfsmanna réttarins þá
fannst þeim tveimur kvenkyns dóm-
urum sem flæmdu í málinu það
bera vott um misrétti milli kynja
að leyfa ekki hermönnum af báðum
kynjum að ganga með eymalokka.
Þriðji dómarinn, sem er karlmaður,
var ósammála.
Hermaðurinn, sem kærði málið
til dómstóla, hafði verið sektaður
af hemum fyrir að neita að taka
niður eymalokk. í lögum um norska
herinn er kvenkyns hermönnum
einungis heimilt að bera eyma-
lokka.
í viðureigninni við efnahagsvanda
þjóðarinnar. Júgóslavar búa við
152% verðbólgu og skulda 21 millj-
arð dollara í erlendum lánum.
Utan þingsalanna hafa leiðtogar
þjóðarinnar einnig sætt gagnrýni.
„Mannlegar dyggðir eru einskis
metnar í flokknum. Leiðtogamir
hafa sett sjálfa sig ofar lögunum,"
sagði Dusan Pekic, fyrrverandi
þingmaður og stríðshetja.
Króatískar stríðsheijur héldu því
fram um daginn að frammámenn í
kommúnistaflokknum hefðu byggt
sér lúxusvillur fyrir almannafé í
baðstrandarbæjunum Split,
Dubrovnik og Hvar ,við Adríahaf.
Hefur því verið haldið fram að vill-
umar hafi verið byggðar fyrir lán
og sjóði, sem nota átti til endur-
reisnar í byggðarlögum, sem dreg-
ist höfðu afturúr. Lögðu hermenn-
imir til að villumar yrðu af þeim
teknar og leigðar ferðamönnum.
Ennfremur kvörtuðu hermennimir
fyrrverandi undan því að embættis-
menn hefðu fímm sinnum hærri
tekjur en almennir launamenn og
fullyrtu að þeir notuðu aðstöðu sína
til að bera undir vini og vandamenn.
Zvonimir Hrabar, leiðtogi júgó-
slavnesku alþýðusamtakanna,
krafðist þess á neyðarþinginu í gær
að skipuð yrði sérstök nefnd til að
rannsaka hvað hæft væri í ásökun-
um um spillingu í röðum leiðtoga
flokksins.
Reuter
JÞ
Ovenjulegt farartæki
Ökutækið á myndinni var meðal margra, sem þátt tóku I keppni um titilinn sparneytnasta farartækið
í Frakklandi. Keppnin var háð á Castelet-kappakstursbrautinni í Suður-Frakklandi um helgina.
Okumaðurinn heitir Charles Henry og er frá Sviss.
Stj órnarmy ndunarviðræður í Danmörku:
w w
Myndar Schluter þridju
stjórn sína fyrir helgi?
Árósum, frá Jens Erik Rasmusoen, Reportagfe/Gruppen.
GERT er ráð fyrir að Poul
SchlUter, starfandi forsætisráð-
herra Danmerkur, myndi sína
þriðju ríkisstjóm í lok þessarar
viku. Fjöldi borgaralegu flokk-
anna í væntanlegri stjórn verður
fyrst Ijós eftir að Radikale vens-
tre hefur tekið afstöðu til þess
hvort flokkurinn viil taka sæti í
henni.
Schliiter fékk umboð drottningar
í gær til að reyna að mynda rikis-
stjóm sem nyti stuðnings sem
flestra flokka. Radikale venstre
hefur gegnt lykilhlutverki í stjóm-
armyndunarviðræðunum að undan-
fömu og féllst að lokum á að Schliit-
er yrði falin stjómarmyndun. Fram-
faraflokkurinn og borgaralegu
flokkamir §órir tóku sömu afstöðu.
Jafnaðarmenn reyndu til hins
ítrasta að fá Radikale venstre til
að styðja myndun stjómar vinstri-
flokkanna undir forsæti Svends
Aukens. Þrátt fyrir að stefna jafn-
aðarmanna höfði til radikala ber
formaður flokksins, Niels Helveg
Petersen, meira traust til Schluters
en Aukens í embætti forsætisráð-
herra.
Radikalar eru ekki að öllu sáttir
við drög að málefnagrundveili, sem
borgaralegu flokkamir hafa komið
sér saman um og vilja gera á honum
breytingar. Helge Dohrmann, form-
aður þingflokks jafnaðarmanna,
Stj órnarandstaðan
í S-Kóreu vill frið-
>
samlega Olympíuleika
Seoul, Kóreu. Reuter.
ROH Tae-woo, forseti, og leið-
togar stjórnarandstöðunnar í
Suður-Kóreu, gerðu með sér
samkomulag á laugardag um að
hvetja róttæka námsmenn og
aðra stjómarandstæðinga til að
leggja niður ofbeldisverk og
mótmælaaðgerðir til þess að
stuðla að þvi að Ólympfuleikam-
ir f Seoul geti farið fram með
sem mestum glæsibrag i haust.
Roh og stjómarandstöðuleið-
togamir ákváðu að sameinast um
að leggja að Norður-Kóreumönnum
að mæta til leiks á ólympfuleikina.
Þá hétu leiðtogamir að styðja til-
raunir Rohs til að bæta samskiptin
við Sovétmenn og Kínveija, sem
verið hafa bandamenn Norður-
Kóreu frá því á tímum Kóreustríðs-
ins, sem stóð yfir á ámnum
1950-53.
Fundur Rohs og leiðtoga stjóm-
arandstöðunnar á sér engin for-
dæmi en hann var haldinn í Blá
húsinu, embættisbústað forsetans,
og stóð í fjórar klukkustundir. Til
fundarins mættu Kim Dae-jung,
Kim Young-sam og Kim Jong-pil.
Þeir lýstu ánægju með viðræðumar
við Roh og sögðu þær hafa verið
árangursríkar. Að sögn talsmanns
sijómarinnar hétu þeir að taka upp
ný vinnubrögð í stjómmálabarát-
tunni og gera allt til þess að ná
hefur haldið því fram, að borgara-
legu flokkamir annars vegar og
vinstri flokkamir hins vegar hafi
gengið of langt til að geðjast radi-
kölum. Séu stefnuskrárdrög Au-
kens og Schliiters í raun afrit af
steftiuskrá Radikale.
Ef stefnuskrámar eru skoðaðar
niður í kjölinn kemur í ljós að fylk-
ingamar greinir á í aðeins örfáum
atriðum. Svend Auken er talinn
hafa spillt fyrir verðandi stjóm
borgaralegu flokkanna þegar hann
sagði að samsteypustjóm þeirra
myndi leiða til meiri óstöðugleika,
klofnings og aukinna árekstra, að
óbreyttum málefnagmndvelli.
Radikale venstre ákveður á fundi
annað kvöld hvort flokkurinn muni
taka þátt í stjómarsamstarfínu eða
ekki. Flest bendir til þess að flokk-
urinn sjái sér hag í að auka áhrif
sín með því að taka sæti í stjóm-
inni. Aðrir væntanlegir stjómar-
flokkar era Venstre, íhaldsflokkur-
inn og litlu flokkamir tveir, Kristi-
legi þjóðarflokkurinn og Miðdemó-
kratar. Akveði radikalar á hinn
bóginn að halda sig utan stjómar
endurvekur Schluter væntanlega
fjórflokkastjómina.
Reuter
Juan Antonio Samaranch, forseti IOC, er í Seoul vegna undirbún-
ings Ólympiuleikanna og er hér með Kim Young-nae, borgarstjóra.
fram málamiðlun í öllum deilum. Á
fundinum hét Roh að láta lausa
stjómarandstæðinga, sem sitja í
fangelsi, og að endurskipuleggja
her landsins og leyniþjónustu.
þannig að almenningi þyrfti ekki
að standa jafn mikill stuggur af
þeim og nú væri.
ERLENT