Morgunblaðið - 01.06.1988, Side 59
Y
88ei ínúi .1 fluoAauarvQiM .aiOAJflKuaflOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988
5a_
Animo
KAFFIVELAR
FJÖLBREYTT ÚRVAL
• VEGGSKILDIR
• VASAR
• STELL
• NYTJAMUNIR
• KLUKKUR
• LAMPAR
MINNIST TIMAMÓTA
MEÐ SERMERKTUM
KJÚRGRIP! Viö merkjum
hvers kyns gripi til að
minnast hatiðlegra tækifæra
og timamota.
GLIT
S. 685411.
0
Yogastöðin Heilsubót,
Hátúni 6a, auglýsir
Konur og karlar athugið!
Sex vikna sumarnámskeið verður haldið þann
1. júní - 10. júlí. Byrjunartímar. Mjög góðar al-
hliða æfingar, sem byggðar eru á Hatha-joga, til
viðhalds þrótti, mýkt og andlegu jafnvægi. Nýr ljó-
salampi og gufa.
Visa-Eurokortaþjónusta.
Yogastöðin Heilsubót,
Hátúni 6a, sími 27710.
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði,
símar: 91-652012 og 652008.
Þessir hringdu . .
Góð forsíðumynd
Móðir hringdi:
„Ég var mjög hneyksluð yfír
myndbirtingum fjölmiðla, þar á
meðal Morgunblaðsins, af
busavígslum sl. haust. Slíkt á
ekki að auglýsa því skrflslæti sem
einhverjir minnihlutahópar standa
að eru skólaæskunni ekki til sóma.
Ég vil hins vegar þakka fyrir
forsíðumyndina sl. föstudag. Þar
má sjá ungt fólk sem lokið hefur
prófum sínum með sóma og fagn-
ar því á heilbrigðan hátt úti í
veðurblíðunni. Á þessari mynd er
góð stemming og má sjá að þetta
unga fólk hefur náð merkum
áfanga { lífí sínu."
Hvítur plastpoki
Hvítur plastpoki með kvittana-
heftum frá Í.F.R. sunddeild og
tveimur' ávísunum tapaðist fyrir
nokkru. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 671662.
Gullfestar
Tvær gullhálsfestar, önnur með
rauðum steini, töpuðust í Kaup-
stað í Mjódd sl. fímmtudag.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 72629. Fundar-
laun.
Læða í óskilum
Þrílit læða, hvít, gul og grá kom
á heimili hér í bænum fyrir
nokkru. Hún er um það bil sex
mánaða og bar þess merki að
hafa verið á flækingi í nokkum
tíma. Eigandi hennar er beðinn
að hringja í síma 23625 sem fyrst.
Gullhringur
Gullhringur með bláum safír-
steini tapaðist á Hótel íslandi fyr-
ir mánuði. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma 71860
eftir kl. 17. Fundarlaun.
Góð þjón-
usta hjá
Amarflugi
Til Velvakanda.
Ég var að lesa opnuviðtal við
Kristinn Sigtryggsson forstjóra
Amarflugs og líst vel á manninn.
Það er gaman að heyra að félagið
hefur gengið vel undir hans stjóm.
Ég er líka viss um að starfsfólkið
á líka sinn þátt í því. Það er allt
upp til hópa mjög þægilegt og hjálp-
legt. Ég fór með Amarflugi til
Amsterdam og varð fyrir smáó-
happi og þurfti að leita ráðlegging-
ar á skrifstofuna þar og fékk frá-
bæra aðstoð hjá íslenskri starfs-
stúlku þar. Hún talar hollensku
mjög vel sem hlýtur að vera óvenju-
legt. Var hún elskuleg og hjálpleg
í alla staði og sendi ég henni sér-
stakar þakkir fyrir. Það hlýtur að
vera mikils virði fyrir Arnarflug að
hafa slíkan ágætis starfskraft. Ég
óska Amarflugi alls góðs.
Ánægður ferðalangur
Kaffivélar fyrir hótel, veitingahús,
stofnanir, fyrirtæki og skip.
HEILDVERSLUN HF.
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
tiUHBMéÆAJtOUUL
Enga ríkisstyrki
til fiskeldis
Til Velvakanda.
Mikil bjartsýni ríkti fyrir nokkr-
um árum um framtíð loðdýrarækt-
ar. Bændur vom hvattir til að
hætta hefðbundnum búskap og
leggja allt sitt í refa- og minkabú.
Útlitið var mjög gott um tíma,
skinnin seldust háu verði og var
jafnvel talað um stóriðju. Þessi
bjartsýni leiddi meðal annars til
þess að hið opinbera gekkst í
ábyrgð fyrir lánum sem bændur
tóku til að byggja upp loðdýrabú-
in og rann mikið fé til þessara
framkvæmda.
En svo hrundi markaðurinn.
Þá urðu margir vitrir eftirá og
sögðu sem svo að aldrei hefði átt
að leggja fé í þessa vitleysu. Ég
er sammála því að þessir peningar
hefðu betur farið í að byggja upp
hefðbundinn landbúnað en sjálf-
sagt er alltaf auðvelt að vera vitur
eftirá.
En það er líka hægt að vera
framsýnn. Nú em uppi háværar
kröfur um að ríkið leggi miklar
fjárhæðir undir í fiskeldi. Fiskeld-
isstöðvar hafa sprottið upp
víðsvegar um land og er þenslan
mikil í þessari atvinnugrein. En
það er ekki nóg, ríkið á líka að
koma með peninga almennings
og leggja í púkkið. Eftirá geta
menn verið vitrir og séð eftir öllu
saman.
Það hefur nefninlega komið í
ljós í nágrannalöndum okkar að
fískeldi er áhættusöm atvinnu-
grein. Það er líka hægt að spyija
sig að hversu arðbær hún er.
Hvers vegna þarf ríkið að leggja
fé í fískeldi fyrst það er svona
arðbært? Ég veit að fískeldi hefur
verið aðrbær atvinnugrein hér á
landi undanfarin ár, en er offjár-
festingin og þenslan svo mikil í
þessari atvinnugrein að hún nái
ekki einu sinni að standa undir
sjálfri sér? Væri ekki betra að
fara hægar í sakimar og byggja
fískeldisstöðvamar upp hægt og
rólega? Þetta ættu menn að at-
huga vel svo ekki verði annað eins
íjárfestingarslys eins og gerðist í
loðdýraræktinni, það slys hefði
mátt koma í veg fyrir að miklu
leyti ef menn hefðu fengist til að
hugsa. Fyrirhyggjuleysi í fjárfest-
ingum_ virðist vera þjóðarlöstur
okkar íslendinga. Þegar mér verð-
ur hugsað til allra þeirra fjármuna
sem ausið hefur verið í Flugstöð-
ina og önnur gæluverkefni get ég
ekki annað en undrast kjánaskap-
inn.
Hefðbundinn landbúnaður,
sauðfjárrækt og kúabú, hefur
lengi verið kjölfesta allrar land-
búnaðarstarfsemi hér á landi. Ég
er ekki á móti þvf að nýjar leiðir
séu reyndar en menn eiga ekki
að rasa um ráð fram. Eðlilegra
er að þessar undirstöðugreinar
njóti styrkja því þar vita menn
að hveiju þeir ganga að og áhætt-
an er því í lágmarki. Fiskeldið á
hins vegar eftir að sýna hvort það
skiiar þeim arði sem svo mikið er
talað um.
Gamall bóndi