Morgunblaðið - 01.06.1988, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988
\
ósigrandi
Þjálfari: Bobby Robson.
Fyrirliði: Bryan Robson.
England
virðist
ENGLAND
Eftir að Vestur Þjóðverjar unnu
Englendinga, 3:1, í vináttuleik
9. september í fyrra rœddl
Bobby Robson, framkvœmda-
stjóri enska landsliðsins, við
mig á leið okkar á blaðamanna-
fund eftir leikinn.
Aég að segja þér,“ sagði hann,
„blaðamennirnir ættu að
klappa vel fyrir okkur. Fæstir þeirra
hafa nokkru sinni fyrr séð svona
góðan leik.“ Þessi ummæli eru
rdæmigerð fyrir Robson og undir-
strika nýja leikaðferð sem Englend-
ingar hafa tekið upp.
Auk þess sem þeir leggja höfuðá-
herzlu á baráttuna um knöttinn er
mikið lagt upp úr skemmtilegum
leik. í leiknum gegn okkur virtist
sem þetta atriði væri Robson meira
kappsmál en að sigra okkur. Sjálfur
er Robson gamalreyndur knatt-
spymumaður með fjölda sigra að
baki.
Bobby Robson vonast ekki ein-
göngu eftir skemmtilegum leikjum
í Evrópukepj)ninni, heldur einnig
eftir sigri. Eg er sannfærður um
að báðar þessar vonir hans rætast.
Robson þurfti ekki frekar en Danir
og Spánveijar að byggja upp nýtt
lið eftir Heimsbikarkeppnina í Mex-
íkó árið 1986. Liðsmenn hans hafa
verið saman svo lengi að þeir gætu
leikið blindandi.
Þessi samhæfni liðsins tryggði Eng-
lendingum öruggan, 4:1, sigur yfír
Júgóslövum og sigur í sínum riðli
í undanrásum keppninnar með ell-
eft stig eftir sex leiki þar sem þeir
skoruðu 19 mörk en fengu á sig
aðeins eitt mark.
Englnn fangar bottann betur
en ShlRon
í mínum augum er enska landsliðið
líklegast til sigurs í keppninni um
Evrópubikarinn. Styrkur liðsins
hefst í markinu, en þar er Peter
Shilton frá Derby County, sem hef-
ur verið markvörður í nærri 100
landsleikjum.
Þótt Shilton sé að verða fertugur
getur enginn fangað boltann betur
en hann. Hann er að vísu ekki há-
vaxinn, en hann hefur vit á því að
hlaupa ekki út á móti háum send-
ingum að markinu.
En Shilton hefur hvort eð er enga
ástæðu til að hlaupa út úr markinu
þegar hann er með tvo „risa“ á
.borð við Tony Adams frá Arsenal
og Mark Wright frá Derby í vöm-
inni. Þessir tveir hávöxnu vamar-
menn eru í hópi þeirra fjögurra
vamarmanna liðsins sem virðast
jafn öruggir og Englandsbanki.
Sá sem heldur sig geta unnið skalla-
einvígi gegn annað hvort Wright
eða Adams hlýtur að trúa því að
ævintýrin gerist enn. Þeir standa
fastir fyrir á miðjunni og fara ekki
fram nema til að taka aukaspymur
eða homspymur. Robson hefur um
tvo hægri bakverði að velja - Viv
Anderson og Gary Stevens, sem er
sérfræðingur í löngum innköstum.
Báðir eru þeir sókndjarfír. Vinstra
megin er Kenny Sansom frá Arse-
nal. Hann er lágvaxinn en traustur
leikmaður, skjótur að snúa vöm í
sókn, og sér svo vel um að veija
miðjuna að mótheijamir eiga erfítt
með að bijótast þar í gegn.
Leiktækni ensku vamarinnar er
einföld: hún reynir að halda sig 30
metrum fyrir framan eigið mark,
takmarka leiksvið mótheijans og
hrekja hann inn á eigin vallar-
helming.
Bryan Robson gofur ekkert
eftlr
Vöminni stýrir Bryan Robson - sem
er ekkert skyldur Bobby stjóm-
anda. Biyan leggur ekki meginá-
herzlu á nákvæmar sendingar,
stjóm hans á vöminni ber meiri
keim af stjóm Paul Breitners á
vöm Vestur Þjóðveija.
Robson er alltaf þar sem þörfin
fyrir hann er mest og geysist fram
völlinn hvetjandi félaga sína. Hann
hefur fótbrotnað þrisvar sinnum,
en meiðslin virðast ekkert hafa
dregið úr baráttuvilja hans.
Potor Shllton hefur ekkert gefíð eftir þrátt fyrir háan aldur. Enginn fangar
knöttinn betur en hann.
Bobby Robson, þjálfari enska
landsliðsins.
LandsllA Englands. Aftari röð frá vinstri: Peter Shilton, Gary Lineker, Tony Adams, Neil Webb, John Bames, Terry
Butcher, sem er meiddur. Fremri röð: Gary Stevens, Trevor Steven, Peter Beardsley, Biyan Robson og Kenny Sansom.
Miðverðimir em í sérflokki. Á
hægri væng er Chris Waddle frá
Tottenham, sem veldur mótheijan-
um vandræðum þar sem hann leik-
ur helzt með vinstri fæti. Þótt hann
sýnist ekki sérlega snar í snúning-
um, á Waddle það til að skjótast
framhjá vamarmanni á kantinum,
þjóta svo skyndilega inn á miðju
og spyma hörkuskoti að markinu.
í miðjunni era Trevor Stevens og
Peter Reid frá Everton fremstir í
flokki. Jafnvel leikmenn á borð við
Glen Hoddle hjá Monaco og Neil
Webb hjá Nottingham eiga erfitt
með að keppa við þessa tvo.
John Bames er sjálfkjörinn á vinstri
væng. Þessi stjömuleikmaður úr
liði Liverpool er mjög skotharður
og leikni hans með knöttinn setur
mótheijana út af laginu. Bames
sameinar kraftinn í ensku knatt-
spymunni og léttleikann í þeirri
afrísku.
Uneker er hættulegur
Sóknarleikmaðurinn Gary Lineker, Flérlr •* lykllmönnum enska landsliðsins, hressir og kátir. Robson, Beards-
markahæsti leikmaðurinn í heims- Adams og Bames.
Franz
Becken-
bauer
skrifar
fyrir
Morgun-
blaðid
GREIN
meistarakeppninni í Mexikó, virðist
hafa misst eitthvað af krafti sínum
eftir að hann hóf að leika með
Barcelona. Þetta tengist trúlega
slæmu gengi Katalónfufélagsins.
Strax og Lineker er kominn í lands-
liðsbúning Englands kemst hann í
sitt fyrra form. Hann er viðbragðs-
fljótur, skallasendingar hans hámá-
kvæmar, og hann er afbragðsfljótur
að skynja það þegar marktækifæri
gefast.
Ég gleymi því aldrei þegar hann
kastaði sér á fyrirgjöf frá Peter
Beardsley og skoraði jöfnunar-
markið gegn Brasilíu, 1-1. Það lá
við að skallasending hans sprengdi
netið.
Beardsley byggir upp tækifærin
fyrir Lineker. Hann er snöggur,
viðsjáll og hörkuduglegur leikmað-
ur, sem alltaf er reiðubúinn til að
leggja sig allan fram.
England virðist ósigrandi. Skyndi-
gagnsóknir og hraði virðast það
eina sem dugar gegn bresku vöm-
inni. Nema mótheijamir séu sérlega
heppnir, eins og við voram þegar
við sigruðum, 3:1, 9. september í
fyrra.
V—> «— rc V r< c« a * c*-1
0
ft' w f Ci
Q_J. c- c f c C— t—1
FJORÐA