Morgunblaðið - 23.06.1988, Qupperneq 1
80 SIÐUR B
140. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Barneign-
um fjölgar
í Svíþjóð
Stokkhólmi. Reuter *
BARNEIGNUM hefur fjölgað
stórum í Svíþjóð eftir áralanga
fækkun. Barneignum hafði
fækkað ár frá ári um langt
árabil og hafa ýmsir óttast af-
leiðingar þess fyrir sænskt
þjóðlíf í framtíðinni.
Samkvæmt upplýsingum
sænsku hagstofunnar fæddust 1,8
börn á hvert þúsund íbúa í Svíþjóð
í fyrra. Bráðabirgðatölur fyrir
fyrri helming þessa árs sýna að
þróunin er upp á við. Barneignir
eru tíðari í Svíþjóð en t.a.m. í
Frakklandi, Vestur-Þýskalandi og
Ítalíu. Hlutfallstalan er meðal
þeirra hæstu í Evrópu, er aðeins
hærri á Irlandi, Kýpur, Möltu og
Islandi.
Sérfræðingar sænsku hagstof-
unnar segja að ein skýringin á
hinum auknu bameignum sé sú
að með auknu fijálsræði kvenna
hafi margar konur frestað því að
eignast böm þar til þær væm
komnar á fertugs- eða fímmtugs-
aldurinn.
íbúar Svíþjóðar em nú um 8,6
milljónir.
Reuter
Langferð
íhjólastól
Tibor GUrtler,
fimmtugur, fótalaus
Ungveiji af þýskum
ættum, sést hér
stöðva hjólastól sinn
fyrir framan ræðu-
pall sem Jóhannes
Páll páfi mun nota
er hann messar í
borginni Trausdorf i
Austurríki á föstu-
dag. GUrtler ók
stólnum 400 km leið
frá borginni Kecs-
kemet í austurhluta
Ungverjalands til
Trausdorf til þess að
fullnægja þrá sinni
að sjá páfa og hljóta
blessun hans. Fæt-
urna missti hann á
unglingsárunum. Á
mánudaginn
skemmdist hjólastóll
hans í árekstri við
bíl en austurrískur
biskup kom þvf til
leiðar að GUrtler
fékk nýjan stól og'
gat lokið ferðinni
sem varði alls fjóra
sólarhringa með
stuttum hvíldum.
Alls er talið að um
það bil 60.000 Ung-
veijar muni notfæra
sér rýmkaðar reglur
um utanlandsferðir
og sækja messu páfa.
Alnæmi:
Tilraunir
að hefjast
með nýtt lyf
Ziirich, Reuter.
SVISSNESKA lyfjafyrirtækið
Ciba-Geigy skýrði frá því í gær
að það myndi senn hefja til-
raunir á fólki með nýtt lyf gegn
alnæmi. Það var tekið fram að
minnst tíu ár myndu líða þar
til hægt yrði að setja lyfið á
almennan markað.
Talsmaður fyrirtækisins sagði
ið gerðar yrðu tilraunir með lyfið
á heilbrigðum, karlkyns sjálf-
boðaliðum í Sviss og Bandaríkjun-
um.
„ítrekaðar tilraunir -á dýrum
hafa gefíð til kynna að Iyfíð geti
stóraukið viðnám ýmissa dýrateg-
unda gegn HlV-veirunni sem veld-
ur alnæmi,“ sagði talsmaðurinn.
Hann bætti því við að gera yrði
tímafrekar tilraunir á mönnum til
að átta sig á því hvort lyfíð hefði
sömu áhrif á fólk og jafnframt
hvort hægt væri að koma alveg í
veg fyrir að veiran réðist á líkama
þess. Hann sagði að engin hætta
væri á því að sjálfboðaliðamir
fengju sjúkdóminn þar sem sjálf
veiran myndi ekki berast í líkama
þeirra.
Breska alþýðusamband-
ið talið vera að klofna
Rafvirkjasainbandinu hótað brottrekstri fyrir að afsala sér verkfallsrétti í samningum
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MIÐSTJÓRN breska alþýðu-
sambandsins, TUC, ákvað í gær
að gefa sambandi rafvirkja
frest til 8. júlí til að rifta tveim-
ur vinnustaðasamningum. Leið-
togi rafvirkja, Eric Hammond,
vísaði þessu á bug og segist
ekki munu rifta samningunum.
Klofningur alþýðusambandsins
er því staðreynd.
Jósef Stalín.
Stalín kennt um stríðsógnir
Moskvu, Reuter.
SAGNFRÆÐINGAR í Moskvu
kváðu upp úr með það í gær að
gífurlegt mannfall Sovétmanna i
seinni heimsstyijöld væri að miklu
Ieyti um að kenna glæpum og
mistökum einræðisherrans Jósefs
Stalins, bæði fyrir og eftir að
Sovétmenn hófu beina þátttöku í
styijöldinni. Virtur sagnfræðing-
ur sagði að auki að mannfallið,
sem hingað til hefur verið sagt
nema um 20 milljón manns, hafi
i raun verið mun hærra. Sagði
hann töluna 27 milljónir vera mun
nær lagi, en það er um '/6 hluti
Sovétmanna á þeim tima.
„Ranghugmyndir Stalíns og
glæpaverk hans gerðu allan raun-
hæfan vamarviðbúnað nær ómögu-
legan, sérstaklega í landamærahér-
uðunum," sagði Viktor Anfílov höf-
uðsmaður í grein, sem hann reit í
dagblað vamarmálaráðuneytisins,
Krasnaja Zvezda.
í viðræðum sínum við Hitler fyr-
ir stríðið „ . . . brást Stalín pólitísku
hlutverki sínu og það kostaði okkur
milljónir mannslífa ... Við unnum
stríðið ekki vegna hans, heldur öllu
heldur þrátt fyrir hann,“ segir í
grein Alexanders Samsonovs í
síðdegisblaðinuMoskva að kveldi.
Greinamar tvær voru birtar í til-
efni þess að 47 ár eru liðin frá árás
Þjóðveija á Sovétríkin hinn 22. júní
1941, en þá rauf Hitler griðasátt-
mála sinn við Stalín. Greinar þessar
eru nýjasta atlagan að því almenn-
ingsáliti, að þrátt fyrir allt og allt
hafí Stalín verið mikill styijaldar-
leiðtogi.
Bæði Samsonov og Anfílov sögðu
að hreinsanir Stalíns innan hersins
síðla á íjórða áratugnum hefðu
greitt Hitler götuna að Moskvu.
Anfílov sagði að sér væri full-
komlega hulið hvernig menn hefðu
komist að þeirri niðurstöðu að 20
milljónir Sovétmanna hefðu fallið í
styijöldinni. „Einfaldur samanburð-
ur á mannfjölda 1939 og 1946 leið-
ir í ljós að mannfallið hafí verið um
27 milljónir. Sumir fræðimenn, sem
einnig gera ráð fyrir eðlilegri
tímgun segja að 50 milljónir séu
nær sanni."
Hammond hefur áður heitið því
að „bijóta öll ákvæði í lagasafni
TUC sé það nauðsynlegt til að
gæta hagsmuna rafvirkjasam-
bandsins." Miðstjóm TUC ákvað
að vísa sambandi rafvirkja ekki
úr alþýðusambandinu fyrirvara-
laust, heldur gefa því enn einu
sinni kost á að skipta um skoðun.
Nefnd, sem sett var á laggimar á
síðastliðnu ári til að semja sameig-
inlegar reglur um vinnustaða-
samninga, samþykkti nýjar reglur
á fundi sínum síðastliðinn mánu-
dag. Á þeim fundi var ákveðið að
banna verkalýðsfélögum að gera
samninga, sem létu af hendi verk-
fallsréttinn. Eftir þá samþykkt var
ljóst, að sambandi rafvirkja yrði
ekki sætt innan alþýðusambands-
ins.
Ágreiningurinn innan alþýðu-
sambandsins stendur ekki um
vinnustaðasamninga sem slíka,
heldur fyrst og fremst um þau
ákvæði, sem rafvirkjamir hafa
samið um og kveða á um, að öllum
ágreiningi um laun og kjör skuli
vísa til nefndar, sem vinnuveitandi
og verkalýðsfélag samþykkja sam-
eiginlega. Þetta þýðir í reynd, að
starfsmenn afsala sér verkfalls-
réttinum gegn þessum ákvæðum.
Eric Hammond vísaði beiðni
miðstjómarinnar á bug og sagði,
að það ætti ekki að ásaka raf-
virkjana, heldur miðstjómina.
Hann mundi sjálfur aldrei vinna
gegn hagsmunum félaga sinna,
eins og þeir mætu þá sjálfír, og
taldi fráleitt að sætta sig við túlk-
un miðstjómarinnar.
Einn af forystumönnum TUC
sagði í gær að óþolandi væri að
sum félög hlíttu ekki lögum og
reglugerðum sambandsins.
Verði stjóm sambands rafvirkja
ekki við tilmælum miðstjómarinn-
ar fyrir 8. júlí, verður þeim vísað
úr alþýðusambandinu til bráða-
birgða fram að ársþingi þess í
haust. Þar hefur Eric Hammond
rétt til að reyna að fá þingið til
að hverfa frá þessari ákvörðun.
Hammond hefur sagt að atkvæða-
greiðslu rafvirkja um samningana
ljúki ekki fyrr en 18. júlí og því
verði ekki breytt.
Að áliti flestra stjómmálaskýr-
enda er klofningur alþýðusam-
bandsins nú staðreynd.