Morgunblaðið - 23.06.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
4-
Jóhann vann Short og
komst af botninum
Belfort. Frá Margeiri Péturssyni.
EFTIR mikið mótlæti um helgina
vann Jóhann Hjartarson öruggan
og frækilegan sigur á Nigel
Short í 7. umferð heimsbikar-
mótsins hér í Belfort. Jóhann
hefur því 2,5 vinninga og er kom-
inn úr botnsætinu. Staðan á
toppnum breyttist ekki. Efstu
menn, Kasparov og Ehlvest,
gerðu báðir jafntefli og halda
forustunni með 5 vinninga. Á
morgun teflir Jóhann við sjálfan
heimsmeistarann Garrí Kasp-
arov. Það er í fyrsta skipti sem
þeir mætast við skákborðið og
jafnframt í fyrsta skipti sem Jó-
hann teflir við heimsmeistarann
í skák.
Um aðrar skákir í 7. umferðinni
er það að segja að þeir Ribli og
Karpov gerðu stutt jafntefli. Tafl-
mennska Karpov hér í Belfort hefur
ekki verið mjög sannfærandi, hann
hefur þegar tapað fyrir Sokolov og
í skákunum við Anderson og Nou-
geiras rambaði hann á barmi glöt-
unar. Kasparov reyndi töluvert til
þess að yfirbuga Boris Spasskí,
fyrrum heimsmeistara, en tókst það
ekki frekar en fyrri daginn. Kasp-
arov hefur aldrei unnið Spasskí, en
tvisvar tapað fyrir honum. Hann
var því mjög blóðþyrstur, en það
er eins og hvöss sóknartaflmennska
heimsmeistarans bíti ekki á örugga
og afslappaða taflmennsku
Spasskís, þótt kappinn sé orðinn
nokkuð ryðgaður í fræðunum.
Fjölmenni í afmæli
utanríkisráðherra
STEINGRÍMUR Hermannsson, utanríkisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins, átti sextugsafmæli
í gær. Fjölmenni var í afrnælisveislu ráðherrans í
Hafnarborg í Hafnarfírði. Á minni myndinni óskar
Eysteinn Jónsson, fyrrum ráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, Steingrími til hamingju.
Ráðherrann átti svo náðuga kvöldstund í faðmi fjöl-
skyldunnar og skoðaði gjafimar. Á stærri myndinni
skoðar Steingrímur andlitsmynd af sér, sem Haukur
Clausen málaði, og færði honum. í sófanum hjá
Steingrími sitja kona hans, Edda Guðmundsdóttir,
og Hlíf Böðvarsdóttir, tengdamóðir hans. Að baki
þeim er svo bamahópurinn, Jón, sem bregður á leik
við sonarsoninn Stephan, Neil, Hermann, Herdís og
Guðmundur. Dóttirin Hlíf var erlendis. Á sófahom-
inu situr sonarsonurinn Brian, sem var orðinn eilítið
stúrinn eftir viðburðaríkan dag. „Það eru allir orðn-
ir þreyttir eftir langan dag, en þetta var góður dag-
ur,“ sagði Steingrímur.
Á annað þúsund
feijuflug árlega
KOMUM ferjuflugvéla hingað til lands hefur fjölgað mjög á und-
anförnum 4-5 árum og nú eru þær á milli 1000 og 1200 taisins á
ári eða að meðaltali 3 vélar á dag. Hér er aðeins átt við komur
þessara véla á Reykjavíkurflugvöll en einnig lendir nokkur fjöldi
þeirra á Keflavikurveili þannig að samtals eru þetta hátt á annað
þúsund vélar áriega.
Flugþjónustan hf. á Reykjavík-
urflugvelli sér um alla þjónustu
við þessar vélar og segir Sveinn
Bjömsson eigandi hennar að áður
fyrr hafí mennimir sem flugu
þessum vélum verið mjög reyndir
flugmenn enda um erfitt flug að
Niðurstöður rannsókna Mengunarvarna:
Magn köfnuiiarefiiis og fos-
fórs mjög mikið í Mývatni
Líkur á að ryk frá glæðiofnum sé yfir lágmarkskröfum
NIÐURSTÖÐUR mæiinga á magni uppieystra fosfat-, nítrat og
ammóníumsambanda f frárennsii frá starfsemi Kísiiiðjunnar við
Mývatn benda til að innihald vatnsins af þessum samböndum sé
mjög hátt. í starfsleyfi verksmiðjunnar eru hins vegar engin sérstök
ákvæði um köfnunarefnis- og fosfórinnihald í frárennsli. Þessar
upplýsingar koma meðal annars fram i skýrslu Mengunarvarna
Hollustuverndar ríkisins og þar kemur ennfremur fram að mæling-
ar á ryki í útblásturslofti frá verksmiðjunni bendi tíl að ryk í út-
blæstri frá gufuþurrkara verksmiðjunnar sé innan þeirra marka,
sem sett eru fram í starfsleyfi verksmiðjunnar. Hins vegar hafi
ekki verið mælt ryk í útbiásturslofti frá glæðiofnum verksmiðjunnar
vegna skorts á nauðsynlegum tækjum til rykmælinga við hitastigið
sem þar er.
sem gerðar voru af sænska fyrir-
tækinu A.B. í ágúst 1979, hafí tyk-
magnið verið langt yfír þeim mörk-
um, sem sett voru fram í starfs-
leyfí verksmiðjunnar frá 1981. Frá
heilsufarssjónarmiði væri þama um
að ræða varasamasta rykið, er frá
verksmiðjunni berst. Með tilliti til
þessa verði ekki hjá því komist að
afla þess viðbótartækjakosts, sem
nauðsynlegur er til mælinga við
slíkar aðstæður.
Mælingar og kannanir á ryki í
útblæstri frá Kísiliðjunni við Mý-
vatn voru framkvæmdar á vegum
Mengunarvarna Hollustuvemdar
ríkisins sumarið 1987. Einnig vom
framkvæmdar mælingar á efnainni-
haldi í frárennsli frá nokkram stöð-
um í vinnslurás verksmiðjunnar auk
mælinga á vatnssýnum úr Mývatni.
Tilgangurinn með mælingum þess-
um var að kanna hve mikla mengun
væri um að ræða frá verksmiðj-
unni, og hvort hún væri innan þeirra
marka, sem tiltekin eru í starfsleyfí.
Mengunarvamir hafa ennfremur
gert mælingar á ryki og efnainni-
haldi í útblæstri frá Steinullarverk-
smiðjunni á Sauðárkróki. Niður-
stöður þeirra mælinga benda ein-
dregið til að verksmiðjan standist
þær kröfur um hámarksrykmagn,
sem settar era fram í starfsleyfí
hennar. Niðurstöður mælinga á
lofttegundum í útblásturslofti frá
verksmiðjunni, það er fenóli, form-
aldehyd og ammóníaki, benda einn-
ig til að verksmiðjan standist í flest-
um tilfellum kröfur þær sem starfs-
leyfi kveður á um. í skýrslunni seg-
ir þó að athuga þurfi betur form-
aldehydinnihald í útblæstri frá kæli-
svæði.
ræða. Er þessum ferðum fór fjölg-
andi í framhaldi af vaxandi eftir-
spum eftir flugvélum í Evrópu
hafí alls konar fólk tekið að sér
að fljúga vélunum.
Pétur Einarsson flugmálastjóri
segir að Flugmálastjóm sé nú með
til athugunar að-setja hertari regl-
ur um skilyrði þau sem menn þurfa
að uppfylla til að fá að fljúga héð-
an og bendir hann á sem dæmi
að Kanadamenn hafi þegar slíkar
reglur um þá flugmenn sem fljúga
frá Kanada.
„Ég vil taka það skýrt fram að
ég tel að hér sé um áhættuflug
að ræða og reglur Kanadamanna
felast meðal annars í að þessir
flugmenn verða að gangast undir
hæfnispróf og hafa með sér ákveð-
inn öryggisútbúnað í vélum
sfnum," segir Pétur. „Nokkuð hef-
ur verið um að menn reyni að
koma sér undan þessum skiiyrðum
með því að fljúga frá frönsku
smáeynni Saint Pierre en franski
flugmálastjórinn var í heimsókn
hér nýlega og ræddum við um leið-
ir til að setja undir þennan leka.“
í skýrslu Mengunarvama segir
að samkvæmt niðurstöðum mæl-
inga á útblæstri frá glæðiofnum,
Ríkisútvarpið;
10% hækkun
afnotagjalda
GJALDSEÐLAR vegna afnota-
gjalda Ríkisútvarpsins fyrir
næsta ársfjórðung eru nú á leið
til gjaldenda. Ríkisstjórnin hefur
samþykkt 10% hækkun afnota-
gjaldanna en útvarpsstjóri hafði
óskað eftir rúmlega 20% hækk-
Afnotagjald af litsjónvarpi fyrir
tímabilið júlí til september verður
3.510 krónur en var 3.190 fyrir
apríl til júní. Afnotagjald svarthvfts
sjónvarps er fyrir sama tíma 3.160
krónur en var 2.870. Loks verður
afnotagjald fyrir útvarpsviðtæki
1.170 krónur en var 1.062 krónur,
samkvæmt upplýsingum inn-
heimtudeildar Ríkisútvarpsins.
Hempuklæddir prestar við guðsþjónustu í upphafi Prestastefnu íslands.
Prestastefna hafin
Morgunbladið/Einar Falur
BISKUP íslands, hr. Pétur Sigurgeirsson, setti
Prestastefnu íslands í Langholtskirlqu í gær. Presta-
stefnan hófst með guðsþjónustu í kirlq'unni kl. 10
þar sem formaður fínnska prestafélagsins, sr. Kop-
posela, predikaði. Setningarathöfnin hófst síðan kl.
14. Aðalumræðuefni Prestastefnunnar að þessu sinni
er fermingin og hlutverk hennar. Á annað hundrað
prestar sitja Prestastefnuna,