Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
í fyrstu umferð áttum við að
spila Bach, Mozart og Paganini.
Mér tókst vel upp í Bach og Moz-
art, en bara þolanlega í Paganini,
svo ég var ekki viss hvort mér skol-
aði áfram. En það gekk . . . í regl-
unum sagði að í annarri umferð
ætti að spila allt utanað, nema
Carl Nielsen sónötu, sem var sett
fyrir. Önnur verk voru að eign vali
og þar spilaði ég Debussy sónötu,
Wieniawski og verk eftir Áskel
Másson. En einhvem veginn áttaði
ég mig ekki á að ég átti að læra
Debussy sónötuna utan að.
Á laugardagskvöldið leið mér
vel, var hin rólegasta að æfa mig,
þegar gamli kennarinn minn frá
Illinois kom inn um kl. 22.30. Við
máttum bara æfa til kl. 23 og þá
ætluðum við að fara út að borða.
Svona til að vera viss, spyr hann
mig, hvort ég eigi ekki að læra
Debussy utan að. Þá rann það upp
fyrir mér . . . Ég varð ofsalega
stressuð og auðvitað ómögulegt að
ætla að læra sónötuna utanað á
hálftíma, svo ég varð að gera það
á sunnudagsmorguninn, daginn,
sem önnur umferðin var haldin.
Tíminn var alltof naumur og það
fór allt í klessu hjá mér, gat alls
ekki lært verkið utan að.
Þegar röðin kom að mér varð ég
að halla mér að píanistanum og
kíkja á hjá henni til að klóra mig
í gegnum Debussy sónötuna. Það
voru tveir aðrir, sem svindluðu líka
svona. Ég var ekki ánægð með
aðra umferðina hjá mér, vegna
þessa klaufaskapar. Það var til-
kynnt um fjórða, fímmta og sjötta
sætið eftir aðra umferð og ég var
steinhissa að vera þar á meðal.
Fannst ég mjög heppin.
I þriðju umferðinni spiluðu svo
þrír, fluttu þá Carl Nielsen konsert-
inn með hljómsveit. Það var frábær
Rússi sem vann, stelpa frá Austur-
Þýskalandi í öðru sæti og Japani í
þriðja sæti."
Á sunnudaginn kemur fer Sigrún
á æfínganámskeið hjá fyrrum
kennarum sínum í Illinois. Hjón,
sem kenndu henni og undirbjuggu
hana undir að fara í Curtis tónlistar-
skólann. Þar kennir Sigrún litlum
krökkum, er aðstoðarkennari kenn-
ara sinna. Næsta vetur ætlaði Sig-
rún að vera í einkatímum í Banda-
ríkjunum, en fékk ekki dvalarleyfí
til þess, varð annaðhvort að vera í
vinnu eða skóla.
Sigrún Eðvaldsdóttir
Þá hringdu nokkrir félagar henn-
ar úr Curtis í hana og voru að leita
að fyrsta fiðluleikara í kvartett, sem
þau voru að stofna. Buðu Sigrúnu
að prufuspila og það varð úr, að
henni var boðin staðan. Fyrrverandi
skólastjóri í Curtis er nú að stofna
tónlistarskóla í Miami á Flórída.
Ætlar að byggja upp góðan skóla
og kvartettinn á að vera við skól-
ann. Það er mikill móður í aðstand-
endum nýja skólans og auðugt fólk,
sem er tilbúið að leggja peninga í
fyrirtækið. Ekki skortir kvartettinn
verkefni, til dæmis þegar búið að
skipulegjgja tónleikaferð fyrir
kvartettinn til Frakklands.
„Og það besta er,“ bætir Sigrún
við, „að þama hef ég ekki aðeins
gott kaup, heldur nógan tíma fyrir
sjálfa mig, nógan tíma til að æfa
af kappi." Eins gott, því Sigrún
stefnir á fleiri keppnir í Evrópu á
næsta og þamæsta ári. Þessa dag-
ana er verið að klára að setja sam-
an verk á geisladisk, sem íslensk
tónverkamiðstöð gefur út, þar sem
Sigrún spilar meðal annars Poemi,
eftir Hafliða Hallgrímsson. Heyrum
því væntanlega í Sigrúnu af geisla-
diski þegar líður á árið, en annars
vonandi sem fyrst á tónleikum
hér...
Texti: Sigrún Davíðsdóttir
Einstæðar mæður í ölluin hljömplötuverslunum
NÝ PLATA FRÁ KÁTUM PILTUM
KRINGLUNNI • BORGARTUNI • LAUGAVEGI