Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
17
Stj órnmálaskörungur sem
náði aldrei æðstu völdum
Erlendar baekur
Guðmundur H. Frímannsson
Antony Howard: RAB: The Life
of R.A. Butler, Macmillan, 1988
422 bls.
Richar Austen Butler fæddist
árið 1902 og lézt 1982. Hann var'
af merkri ætt mennta- og skóla-
manna enskri, gekk sjálfur í há-
skóla ungur að árum og lauk ævinni
sem meistari á Þrenningargarði við
Háskólann í Kambryggju. Hans er
þó ekki minnzt fyrir afrek í fræðum
og vísindum, heldur fyrir afar
merkilegan stjómmálaferil, sem þó
markaðist af djúpum vonbrigðum.
Rab Butler, eins og hann er yfir-
leitt nefndur, var í tæpa tvo ára-
tugi einn af valdamestu mönnum í
íhaldsflokknum brezka, en varð
aldrei leiðtogi hans, þótt fátt virtist
geta vamað honum þess. Það er
stundum um hann sagt að hann sé
bezti leiðtogi flokksins, sem aldrei
hlaut þó hnossið.
Rab Butier settist á þing árið
1929, þegar Verkamannaflokkur-
inn varð í fyrsta skipti stærsti flokk-
urinn í landinu. Hann lét af þing-
mennsku árið 1965, þegar þáver-
andi forsætisráðherra, Harold Wil-
son, bauð honum að taka við meist-
araembættinu á Þrenningargarði,
en forsætisráðherra veitir það emb-
ætti. Harold Wilson gekk þó ekki
gott eitt til, þegar hann bauð Butl-
er þetta embætti, því hann var
sannfærður, eins og Jo Grimond,
þáverandi leiðtogi Fijálslynda
flokksins, um að hefði Butler verið
leiðtogi Ihaldsflokksins í þingkosn-
ingum árið áður, hefði Verka-
mannaflokkurinn tapað þeim. Butl-
er þáði boðið og hvarf úr brezkum
stjómmálum fyrir fullt og allt. Hann
var allan tímann þingmaður fyrir
Saffron Walden-kjördæmið í Aust-
ur-Anglíu.
Þegar Butler settist á þing var
Stanley Baldwin leiðtogi íhalds-
flokksins. Neville Chamberlain tók
við af honum, þá Winston Church-
ill, síðan Sir Anthony Eden. Harold
Macmillan var leiðtogi á eftir Eden
og Sir Alec Douglas Home tók við
af honum. Sama ár og Butler hvarf
af þingi tók síðan Edward Heath
við af Home. Þegar Butler sezt á
þing er Stóra-Bretland miðlungs-
veldi í Evrópu og efnahagslegn
hnignun þess var enn ekki lokið. Á
þessum þijátíu og sex árum ganga
yfir kreppan, Seinni heimsstyijöld- '
in, styijöldin við Súez og stofnun
og uppgangur Efnahagsbandalags
Evrópu og þátttaka Bretlands í
því. Rab Butler hafði hönd í bagga
með að móta afstöðu Bretlands til
margs af þessu.
Vegur Butlers til mannvirðinga
í brezkum stjómmálum var skjótur.
Hann var, fljótlega eftir að hann
Unnið við íþrótta-
hús og sjúkrahús
í Stykkishókni
Stykkishólmi.
ÞAÐ ER lítið um byggingar-
framkvæmdir hér í Hólminum
í sumar, enda mikið búið að
byggja á síðastliðnum árum.
Eitt íbúðarhús er verið að hefja
bygrginfr11 á, þijú, fjðgur eru í
byggingu á mismunandi bygg-
ingarstigum.
Mestu framkvæmdir eru nú við
viðbyggingu sjúkrahússins, en þar
er unnið af krafti. Það verður
mikill og stór kapituli í sögu heil-
brigðismála hér í Stykkishólmi,
þegar byggingu lýkur. Einnig er
lögð mikil áhersla á íþróttamið-
stöðina og þar unnið svo sem
möguleikar leyfa og verður haldið
áfram þar til verkinu er lokið sem
kom á þing, settur í embætti í Ind-
landsmálaráðuneyti brezku ríkis-
stjómarinnar og þaðan lá leiðin í
utanríkisráðuneytið. Hann varð að-
stoðarráðherra utanríkismála í
stjóm Chamberlains. Yfirmaður
hans var Halifax, lávarður, sem
sinnti daglegum störfum í ráðu-
neytinu lítið og sat í lávarðadeild-
inni. Það kom því í hlut Butlers að
veija gerðir stjómarinnar í Neðri
deildinni. Hann var þar öflugasti
málsvari friðkaupastefnu Chamb-
erlains. Hann virðist hafa trúað því
staðfastlega að hún væri rétt og
jafnvel eftir að Churchill er tekinn
við af Chamberlain tekur hann
óvarlega til orða um samninga við
Þýzkaland og fær ofanígjöf. Þessi
afstaða hans olli honum vand-
kvæðum innan íhaldsfiokksins fram
undir 1960 og virðist vera ein
ástæða þess að hann var ekki tek-
inn fram yfir Macmillan, þegar
hann varð leiðtogi íhaldsflokksins
í upphafi árs 1957. Þegar Home tók
við 1963 komu klækir Macmillans
í veg fyrir að Butler yrði forsætis-
ráðherra.
Eftir Seinni heimsstyijöldina
varð Butler fjármálaráðherra í öðm
ráðuneyti Churchills og síðar ut-
anríkisráðherra undir Home. Hann
hefur þótt einhver snjallasti fjár-
málaráðherra eftirstríðsáranna og
vildi til dæmis að gengi pundsins
yrði fljótandi þegar árið 1952, en
fékk þvi ekki framgengt. Hann
varí) yfirmaður rannsóknarstofnun-
ar íhaldsflokksins, þegar flokkurinn
tapaði kosningunum 1945 og átti
stóran þátt í að endurlífga flokkinn
í stjómarandstöðu. En merkasta
framlag hans til þjóðmála er eflaust
menntamálafrumvarp, sem hann
var höfundur að á stríðsámnum og
var samþykkt 1944. Það hefur
mótað brezkt menntakerfí alveg
fram á þennan dag.
Anthony Howard er aðstoðarrit-
sjóri sunnudagsblaðsins The Ob-
server. Hann er enginn stuðnings-
maður Íhaldsflokksins og hafði ekki
ævinlega verið sérlega vinsamlegur
Butler á blaðamennskuferli sínum.
Þrátt fyrir það fór Butler fram á
það að hann ritaði bókina og aðstoð-
aði hann við það síðustu ár ævi
sinnar. Bókin er mjög lipurlega
samin og skemmtileg aflestrar og
ályktað varlega um menn og mál-
efni. Helzti veikleiki hennar er að
gera litla sem enga grein fyrir þeim
hugmyndasögulega þætti, sem
óhjákvæmilega er fyrir hendi í
stjómmálum. Slíkur þáttur hefði
getað verið sérlega fróðlegur um
Butler, sérstaklega vegna _ gífur-
legra áhrifa hans á stefnu íhalds-
flokksins fyrst eftir stríðið. Mér er
ómögulegt að sjá, hvar ætti ná-
kvæmlega að staðsetja Butler í
nútímasljómmálum. Hann skorti
þann sannfæringarkraft, sem
Thatcher hefur, var mikill kunn-
áttumaður í málamiðlunum, en
hann var eindreginn fijálshyggju-
maður í Qármálum.
áætlað er að verði á næstu tveim
áram. Þetta er mikil framkvæmd
og vönduð. Kjallarahæð er lokið
og nú er verið að stilla upp fyrir
aðalhæðinni og er það mikið verk.
Trésmiðjan Ósp hefír með hönd-
um byggingarframkvæmdir í
sjúkrahúsbyggingunni, en Tré-
smiðja Stykkishólms er að vinna
við íþróttamiðstöðina, svo það era
mikil verkefni hjá þeim nú auk
þess sem Ösp er að vinna að smíði
leiktækja fyrir Reykjavíkurborg.
Þessar framkvæmdir gefa ungu
fólki tækifæri til sumarvinnu og
um leið að læra að kynnast
trésmíði og húsasmíði.
— Ami
STAÐARFELL 88
Árleg Jónsmessuhátlð Styrktarfélags Staðarfells
verður haldin dagana 24. - 26. júní næstkomandi.
Hátíðin verður sett á föstudagskvöld kl. 22.00.
Frábær skemmtiatriði, m.a.: VALGEIR GUÐJÓNSSON, SIGGI BJÖRIMS,
DR. FEELGODD BLUES BAND O.FL., O.FL.
Meiriháttarfjölskylduskemmtun jjar sem börnin eru virk í dansi og ieikjum.
Barnaball á laugardag með HUOMSVEIT GRÉTARS ÖRVARSSONAR.
Leiktæki á staðnum s.s. bílar, flugvélar, rólur, vegasölt o fl. o.fl.
Varðeldur á iaugardagsnótt með fjöldasöng og harmónikuleik. Stórkostlegt
8 metra langt útigrill þar sem allir grllla saman.
HUÓMSVEIT GRÉTARS ÖRVARSSONAR OG STJÓRNIN leika fyrir dansi
langt fram eftir nóttu á föstudags- og laugardagskvöld. Þar sem allir skemmta
sérsaman.
RÚNAR ÞÓR kynnir lög af nýju plötunni sem er til styrktar SÁÁ.
STAÐARFELLSHÁTÍÐIN er fyrst og fremstfjölskylduskemmtun þar sem
anægt, hresst og ómengað fólk skemmtir sér og öðrum með leik og dansi.
ALLAR VEITINGAR VERÐA Á STAÐNUM (nánast).
GERUM STAÐARFELLSHÁTÍÐINA AÐ SKEMMTUNINNI
OKKAR OG LÁTUM HVORT ANNAÐ FINNA AÐ ÞAÐ ER
GOTT AÐ VIÐ SÉUM TIL...
SÆTAFERÐIR FRÁ REYKJAVÍK (RAUÐA KL. 18.00).
MUNIÐ AÐ KJÓSA UTANKJÖRSTAÐAR.
—
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
NÝBÝLAVEGI 16 - P.O.BOX 397 - KÓPAVOGI
- SÍMI 641222