Morgunblaðið - 23.06.1988, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
Rauði krossinn
í Staksteinum
Ritstjórum Morgunblaðsins
hefur borist eftirfarandi athuga-
semd frá Guðjóni Magnússyni,
formanni Rauða kross Islands:
Sem formaður Rauða kross ís-
lands vil ég mótmæla villandi skrif-
um í þættinum Staksteinar 7. júní
sl. um þátt Rauða kross íslands í
stofnun landsnefndar um friðar-
fræðslu og friðaruppeldi.
Greinin „Rauði krossinn og frið-
aruppeldi" er ekki merkt höfundi
og því á ykkar ábyrgð.
í greininni kemur fram vantrú á
friðarfræðslu, friðaruppeldi og frið-
arsamtökum. Þá kemur fram van-
traust á öllu friðarstarfí sem höf-
undur telur sig geta á einhvern
hátt með réttu eða röngu tengt
kommúnisma.
Ofstækið í garð þeirra er starfa
að boðun friðar sem lesa má úr
penna Staksteina er raunalegt og
verulegt áhyggjuefni þegar höfð eru
í huga skoðanamótandi áhrif Morg-
unblaðsins í íslensku þjóðfélagi.
Þetta ofstæki ætti að vera áhyggju-
efni öllu Rauða kross fólki, ekki
síst þegar í greininni er jafnframt
markvisst og gegn betri vitund
reynt að gera starf Rauða krossins
að friðarmálum tortryggilegt.
Staðreyndin er sú að blaðamaður
Morgunblaðsins fékk um það upp-
lýsingar frá undirrituðum og í öðru
símtali frá framkvæmdastjóra RKÍ
að Rauði kross íslands ætti ekki
aðild að stofnun landsnefndar um
friðarfræðslu og friðaruppeldi.
Þetta má reyndar lesa ef öll grein
Staksteina er grandskoðuð, því að
í lokin stendur undir fyrirsögninni:
Friður kommúnismans: „Nú mun
það hins vegar vera svo, þó annað
megi skilja af bréfi stuðningshóps-
ins, að Rauði kross íslands sem
Kristilegt samfélag:
Okkar innri styrkur gerir
okkur að sigurvegurum
VEGURINN, kristið samfélag,
stóð fyrir söng og leiktjáningu í
síðustu viku í Kringlunni ásamt
bandariskum hóp sem hér er
staddur. Hópurinn hefur það að
markmiði að boða kristið siðgæði
meðal fólks.
Forstöðumaður Vegarins er
Björn Ingi Stefánsson og sagði
hann að Vegurinn væri fijáls kristi-
leg hreyfíng sem hófst fyrir fímm
árum. Markmið samtakanna er að
ná til þjóðarinnar með boðskap
Krists. „Þjóðinni hefur farið mikið
aftur. Hér er við lýði nokkurs konar
afsláttarstefna sem gerir það að
verkum að smám saman bíður
kristilegt siðgæði hnekki. Við
stöndum á verulegum tímamótum
í dag. Það virðist sem fokið sé í
flest skjól, ekki bara í efnahagslegu
tilliti heldur og ekki síst í andlegum
efnum. Hróp hjartans hefur aukist
og óttatilfmningu og einmanaleika
vaxið ásmegin," sagði Bjöm Ingi.
„Sömuleiðis hefur tíðni skilnaða
aukist í 50 af hundraði. Engu að
síður búum við við betri lífsskilyrði
en þekkjast víðast annarsstaðar.
Ef við snúum frá þeim grunni sem
Biblían hefur búið okkur um aldir,
hlýtur eitthvað að bresta," sagði
Bjöm Ingi.
Björn Ingi sagði að hreyfíngin
vildi byggja upp sterkt kristilegt
samfélag sem yrði auglýsing um
það líf sem Kristur boðar. Hreyfing-
in hefur tekið Hvanneyri á leigu
um verslunarmannahelgina og þar
stendur hún fyrir fjölskylduhátíð.
Þar verða ýmsar uppákomur,
fræðsla og íþróttir. Hátíðin er opin
öllum almenningi.
„Við í Veginum höfum uppgötvað
að Kristur er lifandi og raunvem-
legur í dag og það orsakar breyt-
ingu innra með okkur. Við emm
ekki að flýja vandamál og erfiðleika
lífsins heldur höfum við þann innri
styrk sem þarf til að geta staðið
uppi sem sigurvegarar."
TIMARIT
KRISTILEGS FÉLAGS
HEILBRIGÐISSTÉTTA
slíkur hefur ekki haft afskipti af
þessum málum heldur einungis ein-
staklingar innan hans. Það er þó
engu að síður íhugunarefni hvort
samtök á borð við Rauða krossinn
og fólk sem starfar innan hans vé-
banda eigi að láta hafa sig í herferð-
ir tengdar aðilum á borð við Menn-
ingar- og friðarsamtök íslenskra
kvenna.“ Tilvitnun lýkur.
Friðarboðun Rauða krossins er
skýr: „Með mannúð til friðar.“
Rauði kross íslands er öllum opinn
án tillits til stjórnmálaskoðana eða
áhugamála. Skrif Staksteina em
óvirðing við helstu hugsjónir Rauða
kross hreyfíngarinnar: Mannúð,
jafnrétti og hlutleysi.
Guðjón Magnússon
Morgunblaðið/Sverrir
Vegurinn, kristilegt samfélag, stóð fyrir söng og leiktjáningu í versl-
unarhúsinu Kringlunni.
KARCHER 570 HÁÞRÝSTIDÆLAN
Skínandt hreint- leikondifétt
Hlaðin kostum og spennandi fylgihlutum:
• 20x meiri þrýstingur en úr garðslöngu
• hraðari og betri hreingerning
® 85% minni vatnsþörf
• sápa sem mengar ekki umhverfið
• þvottabursti, hentugur fyrir bílinn
• snúningsskaft með handhægu gripi
• 10m háþrýstislanga
• sápuskammtari
Aukahlutir:
• snúningsstútur sem gefur 30% aukningu á þrýstingi
og 7x meiri vinnuhraða
® sandblástur, garðúðari,
undirvagnsþvottaskaft ofl.
m
sápa
m
RAFVERHF
SKEIFUNNI3E, SÍMAR 82415 & 82117
Forsíða tímarits Kristilegs félags
heilbrigðisstétta.
Kristilegt félag
heilbrigðisstétta:
Tímarit
endurvakið
TÍMARIT Kristilegs félags heil-
brigðisstétta er komið út eftir
nokkurt hlé. Þetta er 10 ára af-
mælisrit með efni ætluðu heil-
brigðisstéttum og fleirum.
Meðal efnis er viðtal við hjónin
séra Magnús Björnsson og Guðrúnu
Dóm Guðmannsdóttur hjúkmnar-
fræðing um líf þeirra og starf. Við-
tal við séra Jón Bjarman sjúkrahús-
prest um sálgæslu dauðvona sjúkl-
inga. Einnig er grein um niðurstöð-
ur rannsóknar um trúarlegar þarfir
sjúklinga. Blaðið er 30 blaðsíður,
dreift ókeypis. Upplag er 7.000 ein-
tök.
(Fréttatilkynning)
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Gódan dagitm!
4